Fréttablaðið - 14.07.2015, Síða 30
14. júlí 2015 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 26
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
ÚTBOÐ
Ríkiskaup f.h. Isavia ohf. óskar eftir tilboðum í verkið:
20106 - Keflavíkurflugvöllur Stækkun
flughlaðs til austurs
Verkið felst í stækkun flugstæða til austurs á Keflavíkurflugvelli.
Verktaki tekur við framkvæmdarsvæðinu eins og það er þegar
núverandi verkáfanga vegna jarðvinnu lýkur. Verktaki skal ljúka við
jarðvinnu, leggja flughlaðsmalbik og steypu. Verktaki skal koma
fyrir regnvatnsrennum ásamt öllum lögnum, olíuskilju, sandfang
ásamt settjörn með grjótvörn. Einnig skal koma fyrir ljósamöstrum,
undirstöðum, ídráttarrörum, strengjum, ásamt öðrum rafbúnaði.
Helstu verkþættir og magntölur:
Flughlaðssteypa: 4.150 m3
Flughlaðsmalbik: 42.350 m2
Uppgröftur: 10.000 m3
Burðarlög: 7.350 m3
Lagnir: 850 m
Settjörn og grjótsvelgur: 1 stk.
Ljósamöstur: 3 stk.
Verki skal að fullu lokið 31. júlí 2016.
Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum sem verða aðgengi-
leg á vef Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is miðvikudaginn 15. júlí nk.
Tilboð verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska
þriðjudaginn 28. júlí 2015 kl 14:00 hjá Ríkiskaupum, Borgartúni 7C,
105 Reykjavík.
365.is Sími 1817
Færðu fjarskiptin yfir til 365
og fáðu vandað sjónvarpsefni
á fáránlega góðu verði
REIKNAÐU
DÆMIÐ
á 365.is
„Ég fæ mér eiginlega alltaf Cheerios
á morgnana. Svo er rosalega ljúft
að gera vel við sig við góð tilefni og
útbúa góðan bröns.“
Fanney Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri
Ungfrúr Íslands
MORGUNMATURINN
„Okkar útgáfa er talsvert frá-
brugðin upprunalegu útgáfunni en
þetta var mjög skemmtilegt verk-
efni,“ segir Haukur Heiðar Hauks-
son, söngvari hljómsveitarinnar
Diktu. Sveitin tók á dögunum þátt
í svokölluðu „Spotify Sessions“
verkefni en í því tóku þátt íslensk-
ar hljómsveitir og tónlistarmenn
og léku lög hver annarra, ásamt
því leika eitt lag eftir sjálfan sig.
„Við tókum lagið Color Decay
eftir Júníus Meyvant og reynd-
um að gera okkar útgáfu af því.
Við tókum þetta upp læf í Sund-
lauginni og bættum engu við
þannig að þetta er hrátt og
skemmtilegt,“ segir Haukur
Heiðar um framlag Diktu
til verkefnisins.
Ásamt Diktu og
Júníusi Meyvant tóku
þátt í verkefninu
hljómsveitirnar
Vök og Valdimar.
Afraksturinn er
kominn á Spotify
og fróðlegt að
heyra misjafnar
útgáfur listamann-
anna. „Þetta er hluti af mark-
aðsstarfi Spotify á Íslandi,
þeir hafa verið að gera þetta
með listamönnum úti. Það er
verið að reyna nýta miðil-
inn og búa til eitthvað nýtt
og skemmtilegt,“ segir
Steinþór Helgi Arnsteins-
son sem hafði umsjón
með verkefninu. „Í
þetta sinn var verk-
efnið tekið enn lengra
og gerðu listamenn
ábreiður af lögum
hver annars og útkom-
an er frábær, sérstaklega því þetta
er allt tekið læf og listamennirnir
fengu lítinn undirbúningstíma,“
bætir Steinþór Helgi við. - glp
Ábreiður af lögum hver annarra
Fjórar íslenskar hljómsveitir taka þátt í verkefninu sem kallast Spotify Session.
DIKTA Hljómsveitin tók lag eftir Júníus
Meyvant og setti í eigin búning.
STEINÞÓR HELGI
ARNSTEINSSON
„Hann er fróðasti Bítlasérfræðing-
ur í heimi og það er óumdeilt. Hann
er eini svona „professional“ Bítla-
sérfræðingurinn í heiminum og
ætlar að koma til landsins í tilefni
útgáfunnar,“ segir Bítlaáhugamað-
urinn Friðbert Elí Friðbertsson.
Eiginkona hans, Kristín Magdalena
Kristjánsdóttir, þýddi bókina The
Beatles: All These Years, Volume
1 – Tune In eftir Bítlasérfræðing-
inn Mark Lewisohn, sem er talinn
vera allra fróðasti maður heims um
Bítlana. Þau gefa bókina út saman.
Bókin, sem mun bera titilinn
Bítlarnir telja í, kom út í Bretlandi
og Bandaríkjunum árið 2013 og er
væntanleg til útgáfu hér á landi í
september. „Við hjónin keyptum
útgáfuréttinn á bókinni áður en
hún kom út. Konan mín er þýðandi
og ég er rosalega mikill Bítlaáhuga-
maður þannig að við vinnum þetta
saman. Við erum búin að þýða hana
og nú er verið að lesa hana yfir. Við
stefnum á að koma henni út í sept-
ember og Mark ætlar að koma til
landsins í kjölfarið,“ útskýrir Frið-
bert Elí.
Það liggur ekki fyrir hvenær
Bítlasérfræðingurinn kemur
nákvæmlega til
landsins en það
verður um svip-
að leyti og bókin
kemur út. „Fólk
mun fá að hitta
hann og getur
fengið hann til að
árita eintak af bók-
inni. Mig langar að
fá hann til að halda
fyrirlestur, því
hann er svo fróður
og góður að segja
frá. Hann hefur
til dæmis haldið
fyrir lestur um myndirnar sem eru
í bókinni en þær eru 60 talsins og
það er rosalega fróðlegt. Það verð-
ur gaman fyrir Bítlaaðdáendur og
-áhugamenn að hitta hann,“ segir
Friðbert Elí.
Talsverður fjöldi bóka hefur
komið út í tengslum við Bítlana og
hefur Mark Lewisohn einnig gefið
út nokkrar bækur um Bítlana en
hann segir þó sjálfur að umrædd
bók sé eina bókin sem hafi vant-
að í Bítlabókasafnið. Hann segir
að bókin sé eina bókin um Bítlana
sem segi rétt frá öllu í tengslum
við snillingana frá Liverpool.
„Mark gaf út bókina The Comp-
lete Beatles Recording Sessions:
The Official Story of the Abbey
Road Years árið 1988 eftir að hafa
hlustaði á allar upptökur sem til
eru af Bítlunum. Bítlarnir veittu
honum aðgang að öllum þeim upp-
tökum sem þeir tóku upp í Abbey
Road og er hann eini maðurinn
sem hefur hlustað á allar upptök-
urnar þeirra,“ segir Friðbert Elí.
Þá vann Mark með Bítlunum pers-
ónulega. „Hann var að vinna fyrir
Paul McCartney í tengslum við
útgáfumál og annað. Hann sá einn-
ig um útgáfu heim-
ildarmyndarinnar
The Beatles Antho-
logy sem kom út í
átta hlutum á DVD.
Það er eina sanna
heimildarmyndin
um Bítlana því hún
er sú eina sem þeir
hafa gefið út sjálfir.“
Mark var í tíu ár
að skrifa bókina og
fór stór hluti þess
tíma í að leita upp-
lýsinga. Hann hafði
rosalega sterk tengsl
inn í innsta hring tengdan Bítlun-
um og fékk upplýsingar sem eng-
inn annar hafði. „Það er rosalega
margt nýtt í þessari bók, upplýs-
ingar sem voru ekki þekktar áður.
Hann afsannar sumar kenningar
sem hafa verið á kreiki,“ útskýrir
Friðbert Elí.
Bókin er um þúsund blaðsíður
og flutti Mark meðal annars til
Liverpool til þess að setja sig inn
í aðstæður. „Hann fletti öllum dag-
blöðum frá fimmta og sjötta áratug
síðustu aldar í Liverpool sem sýnir
okkar að hann hefur lagt rosalega
mikið á sig.“
Friðbert Elí og Kristín Magda-
lena hittu Mark í London á síðasta
ári og var Bítlasérfræðingurinn
ákaflega ánægður með að bókin
yrði þýdd á íslensku. „Hann hefur
mikinn áhuga á Íslandi og er mjög
spenntur yfir því að hún sé að
koma út á Íslandi. Hann nefnir til
að mynda Ísland í viðtölum þegar
spurt er út í hvar bókin kemur út,“
segir Friðbert Elí léttur í lundu.
Bókin er fyrsta bókin af þrem-
ur en sú næsta kemur út árið 2020.
gunnarleo@frettabladid.is
Bítlasérfræðingur á
leiðinni til landsins
Friðbert Elí og Kristín Magdalena þýddu ævibók Marks Lewisohn um Bítlana.
Mark er talinn fróðasti Bítlasérfræðingur heims og starfaði fyrir sveitina.
BÍTLARNIR Mark hefur unnið með
Bítlunum á ýmsan hátt.
HITTUST Í LONDON Friðbert Elí Friðbertsson, Kristín Magdalena Kristjánsdóttir og dóttir þeirra Svandís Hekla hittu Mark
Lewisohn ásamt umboðsmanni hans, KT Forster, í London í fyrra, og úr varð að hann mætir á Klakann í haust. MYND/FLORIAN TRYKOWSK
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
2
:5
9
F
B
0
3
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
3
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
1
-9
8
B
C
1
7
5
1
-9
7
8
0
1
7
5
1
-9
6
4
4
1
7
5
1
-9
5
0
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
3
2
s
_
1
3
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K