Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2009, Qupperneq 3
skjótast fram fyrir Birki í goggunar-
röðinni í Norðausturkjördæminu.
Styrkur Höskuldar þykir liggja í því
að hann er þingmaður flokksins, ný-
sestur á þing og þykir standa sig vel.
Stuðningurinn á flokksþinginu er
óviss; sumir segja að hann sé mik-
ill og jafnvel meiri en stuðningurinn
við Pál, einkum á landsbyggðinni en
ekki síður í Framsóknarfélagi Reykja-
víkur þar sem hann er sagður njóta
stuðnings yfir helmings flokksþings-
fulltrúa.
Sigmundur óræð stærð
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
er býsna óræð stærð í Framsókn-
arflokknum, einkum vegna þess að
hann er nýr þar innan veggja. Hann
þykir koma vel fyrir, hann er bæri-
lega þekktur úr fjölmiðlum og virðist
kunna að fleyta sér á faldi kröfunn-
ar um endurnýjun flokksforystunn-
ar. Hann á meðal annars stuðning á
Austurlandi sem er og var eitt helsta
höfuðvígi Framsóknarflokksins. Af-
staða Sigmundar til ESB er hófsöm
eða óljós rétt eins og afstaða Höskuld-
ar. Báðir viðurkenna þeir mikilvægi
málsins en eru ekki jafnsannfærðir
um evru og aðild að ESB og Páll og
hans stuðningsfólk. Veikleiki Sig-
mundar í formannsslagnum er sá að
hann skortir tengsl inn í flokkinn og
gangverk hans og á þar af leiðandi
ekki eins auðvelt með að skipuleggja
sig fyrir átökin. Hann verður því að
treysta meira á frammistöðu sína og
„lobbyisma“ á flokksþinginu sjálfu.
Þá bentu reyndir framsóknarmenn
blaðamanni DV á það í tengslum við
vinnslu fréttaskýringarinnar, að einn
helsti ljóður á ráði flokksforystunnar
undanfarin ár væri hversu illa henni
hefði gengið að rækta samstöðuna
innan þingflokksins. Nýr formaður
verði helst að sitja á þingi og geta sýnt
sinn myndugleik þar til þess að öðl-
ast nægilegan trúnað og viðurkenn-
ingu innan þingflokksins. Augljós-
lega stendur Höskuldur betur að vígi
en Páll og Sigmundur í þessu efni.
Formaður þarf minnst helming
Nýjar tillögur um kjör formanns
eru afar forvitnilegar og geta haft
afdrifaríkar afleiðingar í formanns-
kjörinu verði þær samþykktar á
flokksþinginu. Þær felast einfald-
lega í því að nái enginn einn 50 pró-
senta fylgi að lágmarki í fyrstu at-
rennu verði að kjósa á milli tveggja
efstu manna. Þetta þykir nauðsyn-
legt til þess að tryggja sem mesta
samstöðu um nýjan formann. Bent
er á að ólíklegt sé að nokkur þeirra
þriggja sem augljóslega berjast um
formannsstólinn nái þessu tak-
marki í fyrstu atrennu. Fari svo
blasir við æði flókin mynd. Keppi
Páll við Höskuld eða Sigmund í
úrslitaviðureigninni eru að flestra
dómi mestar líkur á því að kjós-
endur Höskuldar kasti í miklum
mæli atkvæðum sínum á Sigmund
og öfugt. Þannig muni Páll eiga
erfitt uppdráttar í úrslitaviðureign
hvernig sem á málið er litið.
Fari hins vegar svo að Höskuld-
ur og Sigmundur berjist til úrslita
er ómögulegt að segja til um kosn-
ingahegðun þingfulltrúanna. Þá
gæti verið gott að hafa stuðnings-
menn Páls Magnússonar með sér.
Viss tengsl eru milli Gunnlaugs,
föður Sigmundar og fyrrverandi
þingmanns Framsóknarflokks-
ins, og S-hópsins sem Páll tengdist
að einhverju leyti í gegn um Finn,
Halldór og Valgerði á sinni tíð. Þau
tengsl gætu haft óvænta og mik-
ilsverða þýðingu í formannskjöri
Framsóknarflokksins næstkom-
andi sunnudag.
þriðjudagur 13. janúar 2009 3Fréttir
Augljóslega hefur engum formanni flokksins
undanfarin ár, Valgerði Sverrisdóttur, Guðna
Ágústssyni, �óni Sigurðssyni eða �alldóri Ás�
grímssyni, tekist að auka fylgi flokksins í þéttbýl�
inu á suðvesturhorni landsins þar sem tveir þriðju
hlutar landsmanna búa.
Hóparnir sem berjast um FramsóknarFlokkinn:
enDurnÝjun utan FrÁ
Nýr formaður
með Flokk í önDunarvél
SENDIHErra
Á VaNÚaTÚ
Eitt fyrsta skrefið sem íslensk
stjórnvöld verða að stíga strax til að
bregðast við kreppunni er að bjóða
aðalseðlabankastjóra að leita sér
að nýrri vinnu. Þetta sagði Robert
Wade, prófessor í stjórnmálahag-
fræði, á borgarafundi í Háskóla-
bíói. Bestu skilaboðin sem stjórn-
völd geta sent heiminum um að
þau vilji takast á við vandamál sín
væru hins vegar að gera Davíð að
sendiherra á Vanúatú, lítilli eyju í
Kyrrahafi, sagði hann.
Stærstur hluti fundargesta stóð
úr sætum og nær allir klöppuðu
mikið og lengi þegar Wade mælti
þessi orð. Stóri salur Háskólabíós
var þétt setinn þegar Wade og aðrir
ræðumenn tóku til máls.
Geir og Davíð gagnrýndir
Wade sagði það vekja furðu meðal
manna úti um allan heim að Dav-
íð Oddsson sæti enn á stóli seðla-
bankastjóra. Wade stytti ræðu sína
nokkuð. Í lengri útgáfu hennar, sem
birtist á tjaldi bíósalarins, mátti sjá
að hann hafði ritað og ætlað að
segja að það ætti að víkja Davíð
úr starfi fyrir vanrækslu í störfum.
Einnig að Davíð hefði greinilega
lítinn skilning á alþjóðlegum fjár-
málum.
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra fékk líka skilaboð frá Wade
sem sagði að eitt af brýnustu skref-
um ríkisstjórnarinnar væri það að
forsætisráðherra bæði þjóðina af-
sökunar. Geir var reyndar ekki á
staðnum til að hlýða á skilaboðin.
Honum, líkt og öðrum formönnum
stjórnmálaflokkanna, var boðið á
fundinn en hann afboðaði komu
sína. Steingrímur J. Sigfússon og
Valgerður Sverrisdóttir voru einu
formennirnir sem mættu. Gunn-
ar Sigurðsson fundarstjóri aug-
lýsti eftir einhverjum þingmanni
Sjálfstæðisflokksins sem gæti tekið
sæti Geirs í hans stað en fékk eng-
an staðgengil. Enginn mætti fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
Féllu af eigin
verkum
Íslenskir ráða-
menn hafa marg-
ir hverjir sagt
að íslenska
hagkerfið
hafi hrun-
ið vegna
þeirrar
niður-
sveiflu sem hefði hafist í Banda-
ríkjunum. Þessu hafnaði Wade.
Hann sagði að ein ástæða þess að
íslenska hagkerfið hefði hvort eð
er lent í vandræðum væri sú galna
hugmynd að byggja hér upp mið-
stöð alþjóðlegra banka. Það væri
ekki hægt í svona litlu hagkerfi,
með sjálfstæðan gjaldmiðil og
frjálsa fjármagnsflutninga.
Önnur ástæða væri sú að efna-
hagurinn eftir 2000 byggði á fölsku
eða ósjálfbæru vaxtarmódeli. Það
lýsti sér í að háir stýrivextir köll-
uðu á erlent fjármagn sem ýtti
upp krónunni og gerði innflutning
þannig ódýran. Þetta sagði Wade
að hefði meðal annars birst í því að
það hefði verið ódýrt fyrir Íslend-
inga að taka lán erlendis. Hann
sagðist hafa verið furðu lostinn fyr-
ir nokkrum árum þegar hann sá Ís-
lendinga taka lán líkt og morgun-
dagurinn kæmi aldrei.
Wade klykkti svo út með því að
segja að íslensk stjórnvöld hefðu
getað brugðist við og dregið úr eða
komið í veg fyrir hrunið.
Mörg mögur ár
Wade er svartsýnn á stöðu efna-
hagsmála næstu árin. Reyndar ger-
ir hann ráð fyrir að heimsbyggðin
rétti ekki úr kútnum fyrir alvöru
fyrr en upp úr 2015. Þá gerir hann
sér hins vegar vonir um að taki við
þrjátíu ára rólegt hagvaxtarskeið,
svipað og það sem stóð frá lokum
seinni heimsstyrjaldar fram undir
1980.
Raffaella Tenconi, hagfræð-
ingur Straums í London, spáði að
samdráttur þjóðarframleiðslu á
árinu yrði yfir tíu prósentum og
að verðbólga héldist í tveggja stafa
tölu áfram. Þó væri útlit fyrir að
staða krónunnar batnaði aðeins en
það byggir á peningamálastefnu og
hvernig höft verða á henni.
„Líklega er erfiðasti hluti þess-
ara umbreytinga framundan en
ekki að baki,“ sagði Tenconi.
Eitt fyrsta verk ríkis-
stjórnarinnar ætti að
vera að reka Davíð Odds-
son seðlabankastjóra.
Næsta skref ætti að
vera að gera hann að
sendiherra langt, langt
í burtu, segir Robert
Wade hagfræðingur.
Hann segir galna
drauma um al-
þjóðlega banka-
miðstöð eina af
helstu ástæð-
um hrunsins
á Íslandi.
Robert Wade
Stjórnmálahagfræð-
ingur við London
School of Economics.
„Líklega er erfiðasti
hluti þessara umbreyt�
inga framundan en
ekki að baki.“
BRynjólFuR ÞóR GuðMunDSSOn
fréttastjóri skrifar: brynjolfur@dv.is
Davíð Oddsson Best geymdur
sem sendiherra á Vanúatú, að
mati roberts Wade, heimskunns
stjórnmálahagfræðings.