Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2009, Page 10
þriðjudagur 13. janúar 200910 Neytendur
Dísilolía
el
d
sn
ey
t
i Gullinbrú verð á lítra 141,4 kr. verð á lítra 165,8 kr.
Skeifunni verð á lítra 139,8 kr. verð á lítra 164,2 kr.
Skógarhlíð verð á lítra 141,4 kr. verð á lítra 165,8 kr.
bensín
Spönginni verð á lítra 139,7 kr. verð á lítra 164,1 kr.
Eyrarbakka verð á lítra 135,3 kr. verð á lítra 159,7 kr.
Fellsmúla verð á lítra 139,8 kr. verð á lítra 164,2 kr.
Skógarseli verð á lítra 139,9 kr. verð á lítra 163,4 kr.
umsjón: Baldur guðmundsson, baldur@dv.is / neytendur@dv.is
„Þegar ég var búinn að borða tvo
bita af brokkólíinu og var að skola
blómkálið sá ég að það var einhver
hreyfing í bakkanum,“ segir Alfreð
Guðmundsson, múrari í Kópavogi.
Hann varð fyrir þeirri óskemmti-
legu reynslu að finna lifandi klauf-
hala í grænmetisbakka sem hann
hafði keypt í Bónus. „Ég hafði ekki
lyst á að klára úr bakkanum,“ segir
Alfreð sem segir lífsreynsluna hafa
verið heldur óskemmtilega.
Sigurgeir Ólafsson, plöntusjúk-
dómafræðingur við Matvælastofn-
un, telur að hingað geti tvenns
konar dýr borist með matvælum.
Annars vegar snýkjudýr sem lifa á
grænmetinu en hins vegar laumu-
farþegar sem eru í umhverfinu þeg-
ar grænmetinu er pakkað eða það
er flutt. Þetta eigi auðvitað ekki að
fylgja vörunni en góð regla sé að
skola alla ferska vöru sem maður
neytir.
Hvimleiður vandi
Bananar ehf. sjá Bónus fyrir græn-
meti. Kjartan Már Friðsteinsson,
framkvæmdastjóri fyrirtækisins,
segir að svona geti því miður gerst.
„Þetta hefur komið fyrir og mun
koma fyrir aftur. Grænmeti er vara
sem kemur úr náttúrunni og því get-
ur það alltaf komið fyrir að skordýr
slæðist með,“ segir hann en bætir
við að atvik sem þessi séu hvimleið.
Aðspurður hvað gert sé þegar svona
mál koma upp svarar Kjartan að það
sé misjafnt eftir efni og ástæðum.
Yfirleitt sé reynt að greina hvaða
skordýr sé um að ræða auk þess
sem kaupandanum sé á einhvern
hátt bættur skaðinn, ef einhver er.
Kjartan hvetur fólk til að skola eða
eftir atvikum sjóða grænmeti áður
en þess er neytt, jafnvel þó það sé
þrifið með vatni erlendis.
Alfreð segist ekki sáttur við svör-
in sem hann fékk þegar hann hafði
samband vegna klaufhalans. „Þeir
buðu mér annan bakka en mér
hefði ekki fundist mikið þó ég hefði
fengið einhverja inneign hjá þeim,“
segir hann.
Leggjast ekki á fólk
Erling Ólafsson er skordýrafræðing-
ur. Hann segir að klaufhalar berist
alloft til landsins, einkum með með
grænmeti og ávöxtum en einnig í
ýmsum pakkningum. Stundum ber-
ist þeir í heimahús með plöntum úr
gróðurhúsum og blómaverslunum.
„Klaufhalar lifa meðal annars á rotn-
andi ávöxtum en eru annars ekki til
skaða. Þeir leggjast ekki á fólk,“ seg-
ir Erling en dæmi eru um að klauf-
halar hafi sest hér að og fjölgað sér
tímabundið, einkum í gróðurhús-
um en jafnvel í heimahúsum.
„Einnig eru vísbendingar frá síð-
ustu árum sem vekja grunsemdir
um að tegundin sé farin að þreifa
fyrir sér með landnám í görðum
okkar. Það hefur þó ekki verið sann-
reynt endanlega. Hins vegar þyrfti
það ekki að koma á óvart nú með
hlýnandi loftslagi,“ útskýrir hann.
Svartar ekkjur
Aðspurður hvort fólki stafi hætta
af skordýrum sem hingað berist
til lands með matvælum segir Er-
ling að ekki hafi verið gerð nein út-
tekt á þeim kvikindum sem hingað
rata. „Flest eru þetta meinleysisgrey
jafnvel þó þau eigi það til að slæð-
ast ofan í okkur með þessum suð-
rænu gómsemdum. Það er reyndar
til í dæminu að hingað berist svart-
ar ekkjur svokallaðar, til dæmis með
vínberjum frá Norður-Ameríku. Þær
geta verið varhugaverðar ef þær ná
að bíta. Annað varasamt kemur ekki
upp í hugann,“ segir hann.
Eignaland ehf. prentar kreppumiða:
AFSláttArmiðAr í krEppunni
„Það eina sem fólk þarf að gera er að
klippa miðann út úr ritinu og fram-
vísa honum í þeirri verslun sem við
á,“ segir Davíð Lúther Sigurðarson,
eigandi Eignalands ehf. Fyrirtækið
safnar nú auglýsingum í 8 blaðsíðna
rit sem dreift verður í tíu þúsund
eintökum á höfuðborgarsvæðinu.
Auglýsingarnar eru jafnframt af-
sláttarmiðar í viðkomandi verslun
eða fyrirtæki.
Á vefsíðunni vefsida.is/mid-
ar má lesa allt um þetta framtak en
fyrirtæki greiða sjö þúsund krónur
fyrir að vera með. Þar segir einn-
ig að hugmyndinni svipi nokkuð
til „coupon“-menningarinnar úti
í heimi. „„Coupon“-miðarnir hafa
sparað einstaklingum sem eru dug-
legir að nota þá margan peninginn,
og sama má segja með fyrirtækin
sem bjóða afsláttinn, því meira sem
miðarnir eru notaðir, því meiri sala
og velta, þannig að allir græða.“
Davíð segir að viðbrögðin hafi
verið frábær. „Fyrirtæki eru að nýta
sér þetta til að selja alls kyns vörur,
sem þau eiga á lager, með afslætti,“
segir hann en þeim er í sjálfsvald
sett hvernig afslátt þau bjóða. „Það
getur verið allt frá 5 upp í jafnvel 100
prósent afslátt. Þau geta boðið tvo
fyrir einn eða þrjá fyrir tvo, allt eftir
vilja,“ útskýrir hann.
Afsláttarritið verður hægt að
nálgast víðsvegar um höfuðborg-
arsvæðið í febrúar. „Þetta mun
liggja frammi í sjoppum, bakarí-
um, íþróttahúsum og víðar. Það er
kreppa hjá okkur líka og þess vegna
sendum við þetta ekki á öll heimili
að þessu sinni. Þetta mun hins veg-
ar ekki fara fram hjá neinum,“ segir
hann að lokum.
baldur@dv.is
rjóminn í
klAkAbox
Ef þú stendur frammi fyrir því
að hafa keypt rjóma sem liggur
fyrir skemmdum er ekki endi-
lega nauðsynlegt að baka annan
skammt af pönnukökum. Gott og
gilt húsráð er að setja rjómann
í klakabox og frysta. Þá geturðu
hvenær sem er gripið fram rjóma
í þægilegum einingum og sett í
sósur, svo dæmi sé tekið. Rjómi
er munaðarvara sem endist að-
eins í fáeina daga. Á þennan hátt
geturðu nýtt hann betur.
Frítt Fjár-
málAnámSkEið
Neytendasamtökin munu á næstu
viku í samstarfi við Reykjavíkur-
borg halda námskeið um fjármál
og heimilisbókhald fyrir almenn-
ing í öllum hverfum Reykjavík-
urborgar, að því er fram kemur á
heimasíðu Neytendasamtakanna,
ns.is. Þar verður meðal annars far-
ið yfir hagræðingu í heimilis- og
bókhaldi. Þau eru þátttakendum
að kostnaðarlausu en nauðsynlegt
er þó að skrá sig fyrirfram. Nánar
má lesa um skráningu á nám-
skeiðin á ns.is.
n Lastið fær Skífan fyrir
hátt verð. Viðskiptavin-
ur hafði samband og
sagðist hafa farið í Skífuna
til að kaupa Dagvaktina á DVD.
Þar kostuðu þættirnir rétt liðlega
5.000 krónur svo hann ákvað að
skoða verð á fleiri stöðum. Í Bón-
us fann hann svo sama safn eitt
þúsund krónum ódýrara. Þar
kostuðu herlegheitin rétt liðlega 4.000
krónur. Hann
lét slag
standa.
n Lofið að þessu sinni fær American
Style. Ánægður viðskiptavinur hafði
samband og sagðist hafa farið með
svanga fjölskyldu sína á einn af
stöðum skyndibitakeðjunnar.
Matur handa fjórum, með gosi,
frönskum og kokteilsósu kostaði
einungis 3.180 krónur, að hans
sögn, og þótti það vel
sloppið á þessum
síðustu og verstu.
sEndið loF Eða lasT Á nEYTEndur@dV.is
Kreppumiðar
afsláttarritinu verður
dreift í febrúar.
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
SKOLIÐ GRÆNMETIÐ!
Alfreð Guðmundsson, múrari í Kópavogi, fann lifandi klaufhala í spergilkáli sem hann
var að borða. Framkvæmdastjóri Banana ehf. segir að skordýr geti því miður slæðst
með grænmeti og öðrum lífrænum afurðum til landsins. Hann hvetur fólk til að skola
eða jafnvel sjóða grænmeti áður en þess er neytt. Skordýrafræðingur segir að klaufhalar
berist alloft til landsins en að þeir séu meinlausir.
Sprækur en meinlaus klaufhali
skordýrið var afar líflegt á meðan á mynda-
tökunni stóð og hljóp hring eftir hring.
ljósmyndari: Heiða Helgadóttir
MyND HeiÐA HeLGADóttiR