Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2009, Page 13
þriðjudagur 13. janúar 2009 13Fréttir
Nördum kennt að daðra
Tölvunördar í Potsdam-háskólan-
um suður af Berlín þurfa ekki að
örvænta þó þeir eigi í basli með
samskipti sín við hitt kynið. Þar
verður boðið upp á kúrs í daðri og
munu þeir 440 nemar sem skráðir
eru til náms til meistaragráðu læra
að skrifa daðurleg smáskilaboð og
rafrænan póst af sama toga. Einnig
verður kennt hvernig á að heilla fólk
í veislum og taka á höfnun. Philip
von Senftleben, útvarpsmaður og
rithöfundur, mun sjá um kúrsinn og
segir að hann muni kenna nemum
„að fá hjarta annarra til að slá fastar
á meðan þitt er stillt“. Nemendum
verður einnig kennt að nota líkams-
tjáningu og streitustjórn.
Sjóræningjar Sirius Star riðu ekki feitum hesti frá borði:
Sómalski sjóræninginn sem skolaði
á land skömmu eftir að hafa fengið í
hendurnar sinn hlut lausnarfjár fyrir
sádiarabíska olíuskipið Sirius Star var
með fulla vasa fjár. Að sögn frænda
hans var hann með 135.000 banda-
ríkjadali í plastpoka í vasanum.
Sómalskir sjóræningjar höfðu
haldið olíuskipinu í tvo mánuði og ku
hafa fengið þrjá milljónir bandaríkja-
dala lausnarfé fyrir að yfirgefa það.
Talið er að fimm sjóræningjanna hafi
drukknað þegar bát þeirra velti í úfn-
um sjó þegar þeir voru á leið til síns
heima í Mið-Sómalíu.
Sjóræningjarnir yfirgáfu Sirius Star
eftir að lítil flugvél sást henda því sem
talið er hafa verið lausnarféð í fallhlíf
yfir skipinu.
Samkvæmt frásögn sjónarvotta
drukknuðu fimm sjóræningjar, en
lík hinna fjögurra hafa ekki fundist.
Abukar Sheikh Hassan, frændi sjó-
ræningjans sem fannst, sagði í viðtali
við BBC að fjölskyldan hefði fundið
135.000 bandaríkjadali í fórum hans.
Eitthvað af fénu var blautt og fjölskyld-
an dundaði við að þurrka seðlana.
Þrír sjóræningjanna af Sirius Star
lifðu svaðilförina af, en töpuðu sínum
hlut lausnarfjárins þegar þeir syntu
til lands. Enn sem komið er er frændi
Hassans sá eini sjóræningjanna sem
tókst að halda fengnum hlut.
Þó umræddir sjóræningjar hafi
ekki riðið feitum hesti frá sjóráninu
er ljóst að sjórán eru arðvænleg at-
vinnugrein á þeirra slóðum. Á síðasta
ári bárust fregnir af um eitt hundr-
að sjóránum á fjölförnum siglinga-
leiðum við austur- og norðurströnd
landsins. Sómalskir sjóræningjar
hafa enn á sínu valdi úkraínska flutn-
ingaskipið Faina, sem þeir tóku í sept-
ember. Farmur skipsins er þrjátíu og
þrír skriðdrekar og annar vopnabún-
aður.
Skolaði að landi með lausnargjaldið
Humarinn George
Hinn 140 ára George fær að njóta
efri áranna sem frjáls vera. Örlög
George, sem er humar, áttu að vera
svipuð annarra humra; að enda
sem veisluréttur á borðum veit-
ingastaðarins City Crab and Sea-
food í New York.
En George er sennilega fæddur
undir heillastjörnu því einn gest-
anna fékk samúð með hinum níu
kílóa humri og við nánari rann-
sókn kom í ljós að hann er 140 ára.
George var sleppt í frelsið í sjóinn
við Kennebunkport í Maine, en þar
eru humarveiðar bannaðar og get-
ur þakkað sínum sæla fyrir misk-
unnsama matargestinn frá City
Crab and Seafood.
PriNsiNN oG PakistaNiNN
nokkurn Pakistana,“ sagði Abbasi.
Að hans mati er afsökunar-
beiðni Harrys ekki nægjanleg.
„Harry prins ætti að biðja her Pak-
istan og pakistönsku ríkisstjórnina
afsökunar vegna þessa. Ég get ekki
samþykkt afsökun hans nema þau
geri það fyrst,“ sagði Abbasi.
Það er mat þeirra sem til þekkja
að það verði metið við Harry prins
hve skjótt hann brást við og baðst
afsökunar og að tillit verði tekið til
þess hve langt er um liðið síðan
ummælin féllu.
Áður verið í ólgusjó
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Harry
prins lendir í kröppum dansi vegna
hegðunar sinnar. Snemma árs
2005 birtist mynd af Harry á forsíðu
breska slúðurblaðsins Sun. Mynd-
in hafði verið tekin í afmælisveislu
vinar Harrys og var Harry íklædd-
ur einkennisbúningi þýsku Afríku-
sveitanna og prýddi hakakross nas-
ista vinstri upphandlegg prinsins.
Það sem gerði málið vandræða-
legra en ella fyrir konungsfjölskyld-
una var að framundan var dagur til-
einkaður helförinni og fjölskyldunnar
beið stórt hlutverk í minningarat-
höfninni.
Líkt og nú var þess krafist að Harry
bæðist afsökunar og líkt og nú kom af-
sökunin í formi tilkynningar frá heim-
ili konungsfjölskyldunnar, Clarence
House.
Slagsmál við ljósmyndara
Árið 2004 komst Harry í fréttirnar eft-
ir að hafa lent í einhvers konar stymp-
ingum við ljósmyndara fyrir utan
næturklúbb í Lundúnum. Ljósmynd-
arinn, Chris Uncle, fullyrti að prins-
inn hefði rokið út úr bifreið sinni og
slegið til hans.
Starfsmaður konungsfjölskyld-
unnar sagði að Harry hefði fengið
myndavélina í andlitið þegar hann sté
út úr bifreið sinni og hefði ýtt henni til
hliðar með þeim afleiðingum að önn-
ur vör ljósmyndarans sprakk.
Harry prins baðst ekki afsökun-
ar vegna atviksins enda var þess ekki
krafist. Áðurnefndur að-
stoðarmaður sagði að
ekki mætti gleyma því að
myndavélinni hefði verið
otað að andliti prinsins og
hann hefði rekist í mynda-
vélina og það „mætti telja
árás í sjálfu sér“.
Ekki alls varnað
Ekki er fráleitt að ætla að
málið sé stormur í vatns-
glasi, þó deila megi um
smekksemi ummæla
prinsins. En Harry er
ekki alls varnað. Árið
2004 sló hann í gegn í
Afríku þegar hann eyddi
tíma með munaðarleys-
ingjum í Lesótó. Þá vann
hann á barnaheimil-
inu Mants’ase og kynnti
börnin meðal annars
fyri rúgbí að loknu erfiði
dagsins.
Börnin báru Harry
góða sögu og ekki var betur séð en
hann nyti sín vel í þeirra félagsskap,
og þau í hans.
Harry eignaðist aðdáanda á
meðal barnanna, en það var Maf-
usi Maqhoane, ellefu ára stúlka sem
hafði misst foreldra sína úr eyðni, líkt
og önnur börn á barnaheimilinu. Að
sögn þeirra sem til sáu varð hún him-
inlifandi þegar Harry tók hana upp og
gantaðist við hana. Í ljósi þess er hæp-
ið að ætla að ummæli Harrys í garð
Ahmeds, félaga síns, hafi sprottið af
kynþáttafordómum.
Skartar hakakrossi í veislu
Myndin fór líkt og eldur um
sinu um heiminn.
Með gúrkha-hermanni
Harry var um ellefu vikna
skeið í afganistan.
Sirius Star Lausnargjaldið
svífur í fallhlíf niður á dekk
olíuflutningaskipsins.