Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2009, Blaðsíða 14
N ú þegar Ísland rambar á barmi gjaldþrots, þjóðin hefur misst trú á stjórn-málamönnum, sjálfstæð-
ismenn gera sig líklega til að varpa
Evrópustefnu sinni fyrir róða og fram-
sóknarmenn leita eftir leiðtoga til að
vísa þeim veginn frá grafarbakkanum
hlýtur ein spurning (tvískipt) að hvíla
á þjóðinni af meiri þunga en nokkur
önnur: Slær Kristinn H. Gunnarsson
met þeirra Hannibals Valdimarsson-
ar og Björns Jónssonar? Verður Krist-
inn mesti flokkaflakkari allra tíma á
Íslandi?
K ristinn H. Gunnarsson hef-ur sýnt það og sannað að hann á erindi á þing. Hvað annað er hægt að segja
þegar þrír flokkar hafa stillt honum
fram í vænlegu sæti á framboðslistum
sínum? Hvernig er hægt að afneita
umboði mannsins sem hefur fengið
Vestfirðinga, og síðar íbúar Norðvest-
urkjördæmis alls, til að kjósa sig á þing
undir þremur ólíkum gunnfánum?
U ngur vaskur frambjóð-andi Alþýðubandalagsins heillaði Vestfirðinga upp úr skón-
um laust eftir
fall Berlín-
armúrsins
og var
kosinn
á þing
1991, var
í stórum
nýliða-
hópi Al-
þingis það
árið
ásamt Davíð Oddssyni, Össuri Skarp-
héðinssyni og Finni Ingólfssyni svo
nokkrir séu nefndir. Og í átta ár talaði
Kristinn máli vestfirskrar alþýðu, eða
allt þar til kommarnir ákváðu að taka
saman við kratana og kellingarnar til
að mynda Samfylkingu. Þá veislu leist
Kristni ekkert á og lá þá beint við að
ganga til liðs við Framsóknarflokkinn.
Þar hafði Gunnlaugur Sigmundsson
sagt að hann hygðist hætta á þingi ef
það mætti verða til að ungur maður
fengi tækifæri til að leiða flokkinn í
kjördæminu. Og dúkkaði þá upp nýr
maður í flokknum. Hinn rauði Krist-
inn var orðinn grænn og hélst það í
nokkur ár eða þar til samband hans
og annarra framsóknarmanna hafði
heldur látið á sjá. En þó framsóknar-
menn hafi ekki séð ljósið í Kristni sáu
forystumenn Frjálslynda flokksins
öflugan mann sem ekki mátti láta
valsa út í eyðimörkina. Kristinn gekk
í Frjálslynda flokkinn og jafnaði þar
með met tveggja gamalla
verkalýðsforkólfa.
L engi var haft fyrir satt að ef einhver
stæði undir titl-
inum alræmd-
ur flokkaflakkari
væri það Hanni-
bal Valdimarsson.
Á nærri þriggja
áratuga þing-
ferli sínum sem
hófst 1946 kusu
Vestfirðingar og
Reykvíkingar hann á
þing undir
merkjum þriggja flokka, Alþýðuflokks,
Alþýðubandalags og Samtaka frjáls-
lyndra og vinstrimanna. Ekki nóg með
það heldur tók hann þátt í að stofna
þá tvo síðari (Alþýðubandalagið að
vísu aðeins sem kosningabandalag)
og var formaður allra þriggja. Björn
Jónsson, sem var forseti Alþýðusam-
bands Íslands um tíma, rétt eins og
Hannibal fór öfuga leið. Hann var
fyrst kosinn á þing fyrir Alþýðubanda-
lagið 1956, síðan fyrir Frjálslynda og
vinstrimenn og loks Alþýðuflokkinn
1978. Hann sat þó aldrei nema einn
dag á þingi fyrir síðastnefnda flokkinn
vegna erfiðra veikinda.
Þ essir menn áttu sem sagt lengi vel Íslandsmetið í flokkaflakki. (Nokkrir jöfn-uðu það reyndar með því að
sitja á þingi fyrir þrjá flokka og flokks-
brot en enginn var kosinn á þing aftur
fyrir þrjá flokka fyrr en Kristinn H. sló
í gegn í Frjálslynda flokknum vorið
2007.) En nú kunna að vera
blikur á lofti. Kristinn H.
Gunnarsson, sem á
yngri árum fékk við-
urnefnið sleggjan,
virðist hugsanlega
á leiðinni í nýjan
flokk. Kristinn
yrði þá fyrsti
maðurinn til að
sitja á þingi fyrir
fjóra stjórnmála-
flokka. Stóra
spurningin í ís-
lensku þjóðfélagi
hlýtur því að vera:
Slær Kristinn Ís-
landsmet?
þriðjudagur 13. janúar 200914 Umræða
SLÆR SLEGGJAN MET?
svarthöfði
spurningin
„Já, því í kántrílögum er fólk alltaf að
missa bílinn, húsið, hundinn eða
kærustuna. Og ég missti þessa hluti líka.“
Aron Pálmi Ágústsson
komst áfram í idol-
áheyrnarprufunum
um helgina en hann
söng kántrílagið
Thunderbolt, lag
garth Brooks.
ERTu MEð káNTRí
í bLóðiNu?
sandkorn
n Guðlaugur Þór Þórðar-
son heilbrigðisráðherra stóð
sem nakinn frammi fyrir 2000
Hafnfirðingum í nauðvörn
vegna niðurskurðar á Sankti
Jósefsspítala. Ítrekað var púað
á ráðherr-
ann vegna
aðgerðanna
en hann bar
þó höfuðið
hátt. Skond-
ið var að sjá
að úti í sal
sat Hafn-
firðingurinn
Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir, varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins, en lyfti ekki litlafingri
til hjálpar Guðlaugi. Það kann
að eiga sér þá skýringu að heil-
brigðisráðherrann er talinn
eiga sér þann draum að ýta
Þorgerði til hliðar af hinu póli-
tíska sviði.
n Ofurbloggarinn Egill Helga-
son á oft skemmilega spretti
á Eyjunni. Með skemmtilegri
færslum hans er þegar hann fór
í sund og lýsti upplifun sinni.
Barnungi í sturtuklefanum
benti á hann en fór heiftar-
lega mannavillt: „Ég var í sundi
áðan. Lítill drengur, svona
þriggja ára, benti á mig og kall-
aði: „Davíð Oddsson!““
n Úr Hádegismóum Morgun-
blaðsins heyrist að meðal
þeirra sem áhuga hafi á að yf-
irtaka ofurskuldir Árvakurs sé
auðmaðurinn Björgólfur Thor
Björgólfsson. Um það er rætt
að hann myndi þá taka hönd-
um saman
við þá sem
Kolbrún
Bergþórs-
dóttir blaða-
maður kall-
ar litla klíku
í Sjálfstæð-
isflokkn-
um. Þar
var blaðamaðurinn að vísa til
Styrmis Gunnarssonar, fyrr-
verandi ritstjóra og sannfærðan
andstæðind ESB-aðildar. Talið
er að gamli ritstjórinn hugsi
sér gott til glóðarinnar að beita
Mogganum málstað sínum til
framdráttar. Í því felst væntan-
lega að núverandi ritstjóri verði
að víkja.
n Höfuðskáldum Íslands hef-
ur nú bæst öflugur liðsauki
því Bubbi Morthens stimpl-
aði sig inn í félagsskapinn svo
um munaði í sunnudagsblaði
Fréttablaðsins.
Þar við hliðina á umfjöllun
um eitt höfuðskáldanna, sem
Bubbi verður nú að teljast til,
Böðvar Guðmundsson, er
heljarinnar bálkur eftir Bubba;
Vorið sem andaði köldu. Vald
höfundar á staf dvergbúans
skín þar úr hverjum drætti;
„Byltingin lá í loftinu árið tvö-
þúsund og níu / á nesinu beið
fólkið eftir vorsins kríu / sem
var á leiðinni en villtist oní
öldu / drukknaði og vorið það
andaði köldu“. Þetta er ekkert
annað en tær snilld og vandséð
að nokkur geti toppað túlkun
meistara Bubba á þeirri raun
sem íslenska þjóðin stendur
frammi fyrir.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á neTinu: dv.is
aðalnúmer: 512 7000, riTsTjórn: 512 7010,
áskrifTarsími: 512 7080, auglýsingar: 512 70 50.
Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
„Ég þekkti ekki mitt
eigið barn vegna
meiðsla þess.“
n Palestínskur faðir á
gaza um barn sitt þegar
það gekk móti honum illa
slasað og hrópaði „pabbi, pabbi“. - DV
„Ég er hættur
að taka við
bókunum
fyrir árið 2009.“
n Páll Óskar í talhólfi sínu en vinsældir
hans hafa aldrei verið meiri. - DV
„Hvergi var talað um að
það vantaði níu leikmenn
í okkar lið.“
n Guðmundur Guðmundsson landsliðs-
þjálfari um umfjöllun dana um sigur
þeirra á íslenska landsliðinu. danir
stærðu sig mikið af eins marks sigri á
silfurliðinu frá ólympíuleikunum. - DV
„Þau fá ekki frítt nema þau
mæti.“
n Björn Leifsson, eigandi
World Class, sem býður
starfsfólki fjögurra
stórra fyrirtækja frítt í
ræktina gegn því að þau mæti að
minnsta kosti einu sinni í viku á
samningstímanum. - DV
„Það er klárt lögbrot.“
n Aðalsteinn Baldursson, formaður
framsýnar, um að fyrirtæki segi upp
fólki og sendi það strax af stað til
þess að sækja um bætur vegna
skertrar atvinnu. - Fréttablaðið
Skepnuskapur
Leiðari
Nú, þegar skuggar fátæktar færast yfir fjölskyldur og einstaklinga í samfélag-inu, er áríðandi að hlúa
að sem flestum. DV skýrði í gær frá
einni af dökkum hliðum kreppunn-
ar sem kemur fram í því að rukkur-
um er sigað á þá foreldra sem ekki
geta greitt fyrir skólamáltíðir barna
sinna. Þúsundir hafa misst atvinnu
sína, tekið á sig launaskerðingu, eða
vísitölulánin hafa einfaldlega slig-
að þá. Sú aðgerð að mæta greiðslu-
falli á skólamáltíðum með því að
siga blóðhundum á foreldrana er
hörmung af versta tagi. Víst er að
margir foreldrar horfast nú í augu
við að geta ekki veitt börnum sín-
um það sem sjálfsagt þótti í góðær-
inu. Þau börn sem verða fyrir því að
geta ekki fengið heita máltíð í skól-
anum sínum munu finna enn sár-
ar fyrir fátækt sinni. Jafnvel er lík-
legt að þau verði fyrir einelti þegar
þau glíma við þá skömm
að eiga ekki fyrir mat eins
og félagar þeirra. Þetta eru
sömu börnin og upplifa það
að foreldrar þeirra eru að
missa eigur sínar, jafnvel
heimilið að fara á uppboð.
Stjórnvöld verða þegar í stað
að stöðva það illvirki sem
felst í því að senda matar-
reikninga barna í lögfræði-
innheimtu. Ísland getur
ekki verið svo djúpt sokkið
í eymd að svona lagað megi
viðgangast. Þegar í stað verð-
ur að grípa inn í þessa ógn-
araðgerð. Ef eina ráðið er
að skólamáltíðir verði fríar
þá skal svo verða. Þjóðin má
ekki líða þann skepnuskap
sem birtist í því að matur
verði tekinn frá börnum. Þar
hlýtur þjóðin að draga mörk-
in. Stjórnvöld eiga leik.
REyNiR TRAuSTASoN RiTSTJóRi SkRifAR. Ísland getur ekki verið svo djúpt sokkið í eymd
SKÓLAMÁLTÍÐIR INNHEIMTAR AF HÖRKU:
dv.is
F r j á l s t , ó h á ð d a g b
l a ð
mánudagur 12. janúar 2009 dagblaðið
vísir 7. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
fréttir
BÖrnin gjaLda fYrir VaXandi fátÆKt
SKóLaStjórar KVíðafuLLir Vegna Kre
ppunnar
Boðið upp á frían hafragraut í tVeim
ur SKóLum
aronpáLmi
áframíidoL
fóLK
SVonaforðaSt Þú
fLenSuna
RUKKARAR
SENDIR Á
SKÓLABÖRN
SérfrÆðingarnir
gefa ráð
SÖng KántríLag
fórna LÖmB
íSraeLS
EKKI VIÐ HÆFI
BARNA
sv
ið
se
tt
M
YN
d
paLLitiL
ameríKu
fóLK
LamB
hrÆddi
fjárhunda
eYddi 600
ÞúSundumí
Þrjá StóLa
og Sér eKKi eftir ÞVí
fréttir
fréttir
neYtendur
hrYLLingurinn á gaza óritSKoðaður
„ég ÞeKKti eKKi mitt eigið Barn“
bókstafLega