Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2009, Síða 17
þriðjudagur 13. janúar 2009 17Sport
Beckham Betri en hann Bjóst við „Ég var mjög ánægður með leikinn,“ sagði david Beck-
ham sem var óvænt í byrjunarliði aC Milan gegn roma í sínum fyrsta leik fyrir liðið á sunnudag-
inn. „Ég var ánægður með að þjálfarinn hélt mér nær allan tímann inn á því það er mikilvægt
fyrir mig að komast í leikform. Ef ég á að segja satt leið mér betur en ég bjóst við.“ Beckham
verður í aC Milan næstu tvo mánuðina áður en hann heldur aftur til Bandaríkjanna að
leika með La galaxy í MLS-deildinni þar í landi. „nú vonast ég bara til þess að fá að
byrja í fleiri leikjum en ég tek þetta bara skref fyrir skref,“ sagði Beckham sem viður-
kenndi að hann hefði verið meira en ánægður að byrja á bekknum.
„Stóra vandamálið hjá West Ham
þegar ég var þar var Eggert Magnús-
son,“ sagði Alan Pardew, fyrrverandi
knattspyrnustjóri West Ham, sem
var rekinn af Eggerti þegar hann sat
í stjórnarformannsstól enska úrvals-
deildarliðsins. Pardew var í viðtali á
Sky-sjónvarpsstöðinni um helgina
þar sem hann fór ekki fögrum orðum
um Eggert.
„Ég bar enga virðingu fyrir Egg-
erti og átti engin samskipti við hann.
Hann vildi kaupa allan heiminn og
mér fannst hann oft svolítið barna-
legur. Það besta sem hefur komið fyr-
ir West Ham er að hann er ekki leng-
ur þar,“ sagði Pardew. „Hann skildi
ekki alveg hvernig hlutirnir gengu
fyrir sig,“ bætti hann við og sagði yfir-
töku Íslendinganna hafa vegið þungt
fyrir liðið.
„Enginn vissi alveg hvernig sín
staða væri þegar þeir tóku við. Eng-
inn vissi hvort stjórinn yrði
áfram eða leikmennirn-
ir, hvað þá starfsliðið. Allir
urðu mjög óöruggir um eig-
ið starfsöryggi,“ sagði Par-
dew sem talaði einnig um
komu Carlosar Tevez og Ja-
viers Mascherano á sín-
um tíma. Hann sló
ekki hendinni á
móti þeim en
þeir voru ekki
leikmennirn-
ir sem hann
vantaði.
„Mér var
sagt að ég
gæti feng-
ið þessa tvo
heimsklassa
leikmenn
og auðvit-
að neitaði
ég ekki að fá menn sem ég
hafði horft á í Heimsmeistara-
keppninni það sama ár. Ég
sagði stjórninni samt frá því
að ég þyrfti að styrkja nokkr-
ar stöður sem var ekki gert.
Tevez og Mascherano voru
ekki menn í þær
stöður
sem
mig vantaði menn í
og þar vorum við
veikir fyrir út tíma-
bilið. Litlu munaði
að það yrði félag-
inu dýrkeypt,“ sagði
Alan Pardew.
tomas@dv.is
Alan Pardew vandar Eggerti Magnússyni ekki kveðjurnar:
eggert vildi kaupa allan heiminn
gjörBreyttur
Ferrari
Ferrari frumsýndi nýjan Formúlu-fák
sinn fyrst allra liða í gær. nýi bíllinn
heitir F60 til að minnast þess að
Ferrari hefur verið til staðar öll 60 ár
Formúlunnar. Vegna róttækra
breytinga á reglum er framvængur-
inn á nýja bílnum mjög áberandi á
meðan afturvængurinn hefur
mjókkað til muna. Engir uggar eru á
bílnum eins og hefur verið
undanfarin ár. „þessi bíll er nýr alveg
frá grunni,“ sagði tæknistjóri Ferrrari,
aldo Costa, um nýja bílinn við
athöfnina sem ekki gat farið fram á
fyrir fram ákveðnum stað vegna
frostlagðrar keppnisbrautar.
engar áhyggjur
Phil neville, fyrirliði Everton, hefur
litlar áhyggjur þó að liðið muni vanta
Belgann Marouane Fellainni í báðum
leikjunum gegn Liverpool á
næstunni. Fellaini, sem hefur leikið
einstaklega vel eftir að hann kom til
Everton, fékk sitt tíunda gula spjald í
sigri Everton gegn Hull um helgina og
er því farinn í tveggja leikja bann.
Hann tekur það út í deildar- og
bikarleik gegn Liverpool. „þetta var
mjög stangur dómur,“ sagði neville
um tíunda gula spjaldið. „Fellainni
hefur fengið nokkur vafasöm spjöld á
sig eins og á laugardaginn. Við látum
þetta samt ekkert á okkur fá. þetta
þýðir bara að einhver nýr maður fær
tækifæri og við verðum tilbúnir í
leikina gegn Liverpool,“ sagði neville.
Wagner í
hólminn
Lið Snæfells í iceland Express-deild
karla í körfubolta hefur fengð
liðstyrk fyrir seinni hluta Íslands-
mótsins en bandarískur leikstjórn-
andi, Lucious Wagner, hefur gert
munnlegt samkomulag við liðið að
því er kom fram á karfan.is í gær.
Wagner hefur leikið með spilandi
þjálfurum Snæfells, Hlyni Bærings-
syni og Sigurður þorvaldssyni, áður í
Hollandi og þá var hann með
stigahæstu mönnum finnsku
deildarinnar á sama tíma og
njarðvíkingurinn Logi gunnarsson
lék þar. Hann kemur til Snæfells frá
Líbanon þar sem hann hefur verið að
leika en einnig á hann að baki leiki í
tékknesku deildinni. Honum er ætlað
að stjórna sóknarleik Snæfells en
hann er nokkuð hár af leikstjórnanda
að vera.
uMSjón: tóMaS þór þórðarSon, tomas@dv.is / SVEinn WaagE, swaage@dv.is
„Þetta minnir helst á Rocky gegn
Drago,“ sagði Willie Colon, leikmaður
Pittsburg Steelers, aðspurður um hat-
rið á milli Pittsburgh Steelers og Balti-
more Ravens sem mætast í úrslitaleik
Ameríkudeildarinnar í NFL. „Þarna
verða slagsmál og þetta á eftir að
verða blóðugt,“ bætti Colon við sem
átti góðan leik með Steelers-sókninni
í fyrrinótt. Miklar áhyggjur voru af
sókn Steelers þó vörnin væri sú besta
í deildinni. Hún klikkaði samt ekki í
undanúrslitum gegn San Diego Char-
gers á heimavelli og valtaði Steelers-
liðið yfir San Diego.
Hataðasti maðurinn í Baltimore
Steelers eru taldir líklegastir til þess að
hampa Ofurskálinni enda með lang-
besta árangurinn af þeim liðum sem
eftir eru. Það er þó ljóst að Baltimore
Ravens munu ekkert gefa eftir enda er
kalt á milli liðanna. Þau leika í sama
riðli í Ameríkudeildinni og mætast
því tvisvar á hverju tímabili. Nú þegar
sæti í sjálfum Superbowl er undir má
búast við að allt verði vitlaust.
Eftir sigurinn á Chargers töluðu
leikmenn Steelers ekki um sigurinn
heldur voru farnir að einbeita sér að
úrslitaleiknum gegn erkifjendunum.
Heinz Ward, útherji Steelers, lýsti sér
fyrr á leiktíðinni sem hataðasta mann-
inum í Baltimore eftir þær grófu tæk-
lingar sem hann hefur farið í gegn
Ravens undanfarin ár. „Það er fé lagt
til höfuðs mér í Baltimore,“ sagði Ward
brosandi eftir sigurinn á Chargers.
Undirmagnar í úrslitum
Úrslitaleikur Þjóðardeildar er ekki
síður áhugaverður. Þar mætast Ariz-
ona Cardinals og Philadelphia Eagles
sem státa ekki af besta árangrinum í
Þjóðardeild, Arizona með þann fjórða
besta og Eagles þann sjötta. Bæði lið
voru miklir undirmagnar í undanúr-
slitaleikjum sínum þar sem Arizona
lagði Carolina sem var með besta ár-
angur allra og Eagles lagði meistara
Giants, bæði lið á útivelli.
Eagles bæta sig með hverjum
leiknum og eru taldir mun líklegri
en Arizona til afreka. Leikstjórnandi
þeirra, Donovan McNabb, hefur sjald-
an leikið betur og gerði allt rétt gegn
Giants á meðan meistarinn sjálfur,
Eli Manning, tókst ekki að gera neitt
rétt. „McNabb er besti leikstjórnand-
inn í deildinni. Ég þarf ekkert að segja
meira en það,“ sagði hæstánægður
þjálfari Eagles, Andy Reid, í leikslok.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Eftir næstu helgi ræðst hvaða lið leika til úrslita um ofurskálina, Superbowl, í NFL-deild-
inni. Í Þjóðardeildinni mætast tvö lið, sem enginn bjóst við, í úrslitum, Arizona Cardinals
og Philadelphia Eeagles. Í Ameríkudeildinni má búast við blóðbaði þar sem tvö lið sem
hata hvort annað mætast í úrslitum, Pittsburgh Steelers og Baltimore Ravens.
Hatur í úrslitum
ameríkudeildar
Frábær Hlauparinn Willie Parker hljóp
147 metra og skoraði tvö snertimörk í
öruggum sigri Steelers á Chargers.
Áhættumenn það er
ekki fyrir hvern sem er
að mynda nFL-leiki.
þessi ljósmyndari varð
undir leikmanni
Steelers eftir að hann
skoraði snertimark.
Gamall en góður Kurt Warner tekur á
móti Eagles í arizona á sunnudaginn.
MyNd AFP
Rekinn Eggert rak Pardew og réð
alan Curbishley sem síðar hætti
vegna ágreinings við stjórnina.
Barnalegur Pardew segir Eggert hafa
verið barnalegan og segist ekki hafa
borið neina virðingu fyrir honum.