Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Page 8
Miðvikudagur 14. janúar 20098 Fréttir Bankarnir eiga Bíla fyrir milljarð Íslensku bankarnir þrír sem eru í ríkiseigu eiga glæsilegan bílaflota en samkvæmt grófum útreikning- um er heildarverðmæti hans meira en einn milljarður íslenskra króna. Hver banki á rúmlega fimmtíu bíla en helmingur þeirra myndi flokkast sem lúxusbílar, bílar sem kosta yfir tíu milljónir króna, en sumir þeirra eru breyttir og hlaðnir aukabúnaði eins og bluetooth-kerfi og aksturs- myndavél. Þeir bílasérfræðingar sem DV ræddi við segja að Glitnir eigi flott- asta bílinn en það er sérinnfluttur BMW M5 sportbíll sem var keyptur glænýr í byrjun síðasta árs. Bíllinn kostar yfir tuttugu milljónir beint úr kassanum en B&L sá um innflutn- inginn. Þess ber að geta að allar tölur um verð bílanna eru fengnar frá bílaum- boðunum og í sumum tilvikum hjá bílasölum. Er þá gert ráð fyrir að bíll- inn sé nýr enda hefur DV ekki töl- ur yfir ekinn kílómetrafjölda undir höndum eða tæmandi lista yfir þann aukabúnað sem fylgir sumum bif- reiðunum. Lánaði sjálfum sér Glitnir er sá banki sem á flest- ar glæsikerrurnar en heildarverð- mæti þeirra er rúmar 150 milljónir íslenskra króna. Þá er aðeins reikn- að verðmæti tólf dýrustu bílanna en bankinn á fjörutíu og níu bíla. Gríð- arlegir fjármunir liggja því í bílaeign Glitnis en samkvæmt heimildum DV hefur bankinn ekki reynt að losa sig við neinn af fjörutíu og níu bílum sínum. Glitnir gerði vel við toppana í bankanum en fyrir utan stórglæsi- legan BMW M5 sportbíl á bankinn einn BMW 7 sem kostar rúmar tut- tugu milljónir króna, einn Porsche Cayenne jeppa sem kostar rúmar fimmtán milljónir króna og þrjá Audi Q7 jeppa sem kosta rúmar þrettán milljónir stykkið. „Ódýrari“ lúxusbílar Glitnis kosta ekki nema rúmar tíu milljónir króna en það eru bílar eins og BMW X5, BMW X3, BMW 5 og þó nokkrir Toy- ota Land Cruiser jeppar. Það sem vekur athygli er að Glitn- ir hefur í flestum tilvikum lánað sjálf- um sér fyrir kaupunum. Þannig er Glitnir fjármögnun skráður eigandi flestra bílanna, en Glitnir banki er skráður umráðamaður. Landsbank- inn og Kaupþing fóru ekki þessa leið því þeir eru skráðir eigendur allra bílanna. Samkvæmt upplýsingum frá mannauðssviði Glitnis er stefna Nýja Glitnis sú að einungis bankastjóri hafi bifreiðahlunnindi en það er hluti af umsömdum starfskjörum. Í svari Glitnis kemur einnig fram að átta af þessum bifreiðum eru not- aðar vegna daglegs reksturs en aðr- ar bifreiðar sem nýi bankinn tók yfir voru hluti af kjörum starfsmanna í gamla bankanum. Þess vegna hafa allir þeir starfsmenn sem sagt var upp og þeir sem héldu starfi sínu bíl- ana áfram út uppsagnarfrestinn eða í þrjá til sex mánuði. Sumir þeirra hafa nú þegar skilað bifreiðunum. „Bankinn leitar nú leiða til þess að skila eða selja viðkomandi bifreið- ar í samstarfi við fjármögnunaraðila og bifreiðaumboð,“ segir jafnframt í svari Glitnis. Ekki fékkst svar við því hverjir aka hvaða bílum og því enn á huldu hvaða bankastarfsmaður keyrir um á tuttugu milljóna króna BMW M5 sportbíl. Rándýrir Lansbankajeppar Toyota-umboðið á Íslandi fékk held- ur betur nokkrar krónur í vasann þegar Landsbankamenn fóru í versl- unarleiðangur í janúar og febrúar á síðasta ári en þá voru keyptir hvorki meira né minna en þrír Toyota Land Cruiser 200 jeppar, dýrasta jeppabif- reiðin frá Toyota, einn Toyota Land Cruiser 120 og einn Toyota Avensis. Jepparnir þrír kosta samtals þrjátíu og níu milljónir beint úr kassanum en þó má gera ráð fyrir að Landsbank- inn hafi fengið ágætis afslátt enda um stórkaup að ræða. Land Cruiser- inn er, þrátt fyrir gífurlega hátt verð, ekki dýrasti jeppinn í leikfangakass- anum því Landsbankinn á Porsche Cayenne Turbo S sem var keyptur í enda árs 2006 beint úr kassanum. Bíllinn var keyptur af Bílabúð Benna sem flutti hann inn sérstaklega fyrir Landsbankann en bíllinn er 522 hest- öfl. Þá á Landsbankinn einnig flott- Glitnir er sá banki sem á flestar glæsikerrurn- ar en heildarverð- mæti þeirra er rúmar 150 milljónir íslenskra króna. Þá er aðeins reiknað verðmæti tólf dýrustu bílanna en bankinn á fjörutíu og níu bíla. Ríkisbankarnir þrír eiga 157 bíla af ýmsum stærðum og gerðum. Langflestir bílanna myndu flokkast sem lúxusbílar eins og BMW, Audi og Toyota Land Cruiser. Ódýrustu lúxusbílarnir í eigu bank- anna kosta um og yfir tíu milljónir króna en þeir dýrustu kosta yfir tuttugu milljónir. Flestir lúxusbílarnir voru sérpantaðir fyr- ir bankana í fyrra og eru því glænýir. Samkvæmt heimildum DV hefur enginn ríkisbankanna reynt að losa sig við bílana en heild- arverðmæti þeirra er meira en einn milljarður íslenskra króna. AtLi MáR GyLfAson blaðamaður skrifar: atli@dv.is Drekka bensín Segja má að sumir bílanna drekki bensín og því getur rekstrarkostnaðurinn hlaupið á tugum milljóna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.