Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Side 15
Miðvikudagur 14. janúar 2009 15Umræða Hver er maðurinn? „kristinn gunnar Blöndal.“ Hvað drífur þig áfram? „Coka- Cola og sköpunargleði.“ Hvar ert þú uppalinn? „Í Seljahverfi í Breiðholti. Það var stórkostlegt að alast þar upp og bjó mig vel undir lífið.“ Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? „kjöt og aspassúpan hennar ömmu minnnar.“ Hvaða bók er á náttborðinu þínu? „kóraninn. Ég er eins trúlaus og þeir gerast en það er bara áhugavert að lesa hana. Ég hef líka lesið svolítið í Biblíunni.“ Hvert er uppáhaldshúsverkið þitt? „Mér finnst nánast gaman að þeim öllum. Segi þó að elda og hengja upp þvott.“ Hver vegna ætti fólk að kaupa Happiness and Woe? „vegna þess að hún er góð og peninganna virði.“ Platan var tíu ár í vinnslu; hvað tafði verkið? „Ástin og lífið.“ Finnurðu fyrir meiri væntingum frá fólki um að platan sé góð vegna þessa langa tíma sem tók að gera hana? „Ábyggilega en ég reyni að pæla sem minnst í því. Ég pæli nú nóg samt.“ Kemur næsta plata þín út árið 2019 eða í lok næsta góðæris á Íslandi? „nei, hún kemur í ár. Ég er búinn að semja öll lögin á hana og er að vinna textann og sönglínur núna. nú á tímum þarf að bretta upp ermarnar. Og það á við um alla sem vettlingi geta valdið.“ Finnst þér að Ísland ætti að slÍta stjórnmálasamskiptum við Ísrael? „já, pottþétt.“ Páll Heiðar Jónsson 17 Ára neMi „já, ég hugsa það.“ GuðbJörG s. HaFþórsdóttir 24 Ára kennari „er ekki best að gera það?“ örlyGur elÍasson 74 Ára lÍfeyriSÞegi „Ég er hlutlaus.“ eva rut eyJólFsdóttir 36 Ára neMi Dómstóll götunnar bob Justman sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu, Happiness and Woe, í fyrradag. justman er eitt af tónlistarsjálfum hins fjölhæfa kristins gunnars Blöndal sem er ef til vill þekktastur sem fyrrum meðlimur tveggja helstu rokksveita síðari ára, Botnleðju og ensími, og sem plötusnúðurinn knái kgB. Meðgöngutími plötunnar var tíu ár. Trúlaus en les Kóraninn „já, það finnst mér.“ einar ólaFsson 60 Ára aðStOðarSkólaStjóri maður Dagsins Bráðum hefur innrás Ísraelshers á Palestínumenn á Gaza kostað 1000 manns lífið. Þriðjungur fallinna eru börn. Fréttamyndir af syrgj- andi foreldrum og munaðarlaus- um börnum hafa hreyft við íslensku þjóðinni. Efnt er til mótmæla, ræð- ur fluttar, ótal greinar skrifaðar og krafa almennings er skýr: Ísland verður að gera sitt til að stöðva blóðbaðið. Eins og reynslan sýnir er besta leiðin til þess að setja þrýsting á ísraelsk stjórnvöld að slíta stjórn- málasambandi við Ísrael. En ís- lensk stjórnvöld taka það ekki í mál. Þess í stað rífast ráðherrar við þjóð- ina, við hvern annan og við sjálfa sig um hvort þau eigi að fordæma blóðbaðið, hvernig það skuli gert og hver eigi að gera það. Ísraelsk- ir ráðamenn eru ekkert miður sín útaf þessum fordæmingum, enda hefur það reynst þeim ágætlega að hunsa slíkt orðagjálfur og fara bara sínu fram. Enginn stöðvar eineltið á leik- velli heimsmálanna. Þar situr ís- lenska ríkisstjórnin í sandkassanum og reynir af veikum mætti að reyna að reisa banka-sandkastalann við að nýju, og gefur bresku ríkisstjórn- inni illt auga, sannfærð um að hún eigi sök á hruninu. En úti á vellin- um, fyrir allra augum, eru ísraelsk stjórnvöld að ganga í skrokk á pal- estínsku þjóðinni. Það er blóð alls staðar, sandur og tár í augum barns- ins og það reynir að veikum mætti að verja sig. Hinar ríkisstjórnirnar í sandkassanum kalla skammaryrði til ísraelsku stjórnvaldanna og segj- ast fordæma svona hegðun, nema bandarísk stjórnvöld sem rétta þeim ísraelsku skóflu svo þau nái betri höggum. Þegar ísraelska ríkisstjórn- in hefur svo lokið sér af sest hún í sandkassann og leikur sér með hin- um, eins og ekkert hafi í skorist. En það er óvíst að palestínska barnið geti staðið upp aftur. Og ef svo er, þá getur það ekki forðað sér því ísraelsk stjórnvöld koma bara aftur og aftur þar til þau hafa lokið verkinu. Eng- inn stöðvar þau. Það þarf einhver að segja stopp og neita að vera já-maður fantsins á leikvellinum. Fyrst og fremst fyr- ir palestínsku börnin, til að sýna þeim að það er einhver sem þor- ir að standa upp fyrir minnimáttar, einhver sem gerir það kannski þess virði fyrir þau að þrauka. En það er líka fyrir okkur sjálf, því hvern- ig getum við lifað við okkur sjálf ef við horfum á ofbeldið, sjáum blóð- ið og tárin og heyrum ópin – og ger- um ekkert nema huga að sandkast- alanum okkar? Hvernig eigum við að horfa í augu okkar eigin barna og segja þeim að við gerðum ekk- ert fyrir börnin í Palestínu? Það er of mikið í húfi. Slítum stjórnmála- sambandi við Ísrael strax – stríðinu verður að linna. Slítum stjórnmálasambandi við Ísrael kjallari svona er íslanD 1 selur meydóminn til að fjármagna meistaranámið natalie dylan ákvað að selja sig til að fjármagna nám í fjölskyldu- og hjónabandsráðgjöf. 2 „öskraði á mig: nei, nei, nei“ Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir stjórnsýslu- fræðingur segir guðlaug Þór Þórðarson hafa öskrað á sig: „nei, nei, nei!“ 3 seldi dóttur sína fyrir bjór og peninga lögreglan í greenfield í Bandaríkjunum handtók karlmann grunaðan um að hafa selt fjórtán ára dóttur sína til hjónabands í skiptum fyrir peninga, bjór og kjöt. 4 steinhissa smyglari hélt hann væri með pylsur dieter Samson, 65 ára Þjóðverji, smyglaði 20 kílóum af hassi með norrænu. Hann segist hafa haldið að hassið væri pylsur. 5 Hógvær en sexí leikkonan Megan fox er rómuð fyrir fegurð sína en segist ekki vera kynþokkafyllri en aðrar konur. 6 barnaníðingur datt í lukku- pottinn dæmdur barnaníðingur vann 62 milljónir króna í lottói í Bandaríkjunum. Ágóðinn af sölu miðanna fer til styrktar fórnarlömbum kynferðisbrota. 7 Kári þögull um lánveitingar kári Stefánsson, forstjóri decode, er þögull um sögusagnir þess efnis að félagið hafi fengið stórt lán frá landsbanka Íslands á dögunum. mest lesið á dv.is steinunn röGnvaldsdóttir formaður Ungra vinstri grænna skrifar „Það er blóð alls staðar, sandur og tár í augum barnsins og það reynir að veikum mætti að verja sig.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.