Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2009, Page 19
Miðvikudagur 14. janúar 2009 19Sviðsljós
Farin að eldast
Kate Hudson kominn með nýjan upp á arm
inn:
Sjóðheitur
nýr kærasti BrókarlauS
og vinSæl
Lady GaGa á ennþá vinsælasta lagið í Bandaríkjunum:
Söngkonan Lady GaGa virðist ekki
vera sérstaklega hrifin af því að
klæðast buxum eða öðrum fatn-
aði sem hylur neðri part líkamans.
Hennar uppáhaldsklæðnaður er
einfaldlega nærbuxur og sokka-
buxur eins og sjá má á myndunum.
GaGa er yfirleitt klædd þessari sam-
setningu þegar hún kemur fram en
hún gladdi meðal annars gesti Jay
Leno nýlega með því að klæðast
þveng og sokkabuxum.
Lagið hennar Just Dance hef-
ur verið á toppi Billboard-listans
í Bandaríkjunum um þó nokk-
urt skeið. Hún er á toppi popp-
lista Billboard sem og Hot 100 og
mesta sótta lagið á netinu. Lady
GaGa, sem er 22 ára gömul og
heitir réttu nafni Joanne Stefani
Germanotta, er ekki bara vinsæl
í Bandaríkjunum. Just Dance fór
einnig á toppinn í Bretlandi, Kan-
ada og Ástralíu.
Lady GaGa Er yfirleitt
bara á brókinni.
Funheit Lagið hennar
just dance hefur náð
gríðarlegum vinsældum.
Trúlofuð –
loksins
Ofurfyrirsætan Gisele Bundchen
og ruðningsleikmaðurinn Tom
Brady eru loksins trúlofuð. Sú
saga að þau hefðu trúlofað sig
í einkaflugvél á jóladag reynd-
ist ekki vera sönn. Samkvæmt
tímaritinu People trúlofaði þetta
fallega par sig síðastliðinn föstu-
dag. Tom Brady var eitt sinn með
leikkonunni Bridget Moynahan.
Þegar leikkonan komst hins veg-
ar að því að hún væri ólétt hætti
ruðningsmaðurinn með henni.
Stuttu seinna byrjaði hann með
Gisele. Nýtrúlofaða parið ætlar
að gifta sig í Kostaríka, en Gisele
á einmitt hús þar.
Söngkonan vinsæla Fergie hefur aldeil-
is ástæðu til að gleðjast þessa dagana en
stúlkan er ekki einungis nýgift stóru ást-
inni sinni, leikaranum Josh Duhamel,
heldur ganga nú sögur af því hún beri tví-
bura undir belti.
Parið gekk í það heilaga í Malibu síð-
astliðinn laugardag og hélt að því loknu í
glæsilega brúðkaupsferð þar sem það ætl-
ar sér að slaka á og njóta lífsins enda vön
að hafa í nógu að snúast.
Parið stoppaði á flugvellinum í Los
Angeles á leið sinni í brúðkaupsferðina og
var söngkonan spurð þar hvort ekki stæði
til að fara að fjölga í fjölskyldunni og á hún
að hafa svarað um hæl að hún ætti nú þeg-
ar von á sér og það tvíburum. Ef fréttirn-
ar reynast réttar má spyrja sig hvort það
sé eitthvað sérstakt í mataræðinu þarna
í Hollywood þar sem önnur hver stjarna
virðist verða ólétt að tvíburum.
Einnig á Fergie að hafa farið fögrum
orðum um vel heppnað brúðkaup þeirra
hjóna og sagði daginn hafa verið stórkost-
legan. Parinu tókst að halda fjölmiðlum
frá athöfninni og átti því afslappaða stund
með sínum nánustu sem fengu ekki að vita
um nákvæma staðsetningu brúðkaupsins
fyrr en sama dag og athöfnin fór fram.
Á von á tvíburum Sögur
ganga nú af því að söngkon-
an eigi von á tvíburum.
nýgift
og tvíburar á leiðinni
Parið nýgifta Söngkonan Fergie
og leikarinn josh duhamel gengu
í það heilaga síðastliðna helgi.
Fergie hefur yfir mörgu að
gleðjast þessa dagana: