Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2009, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2009, Blaðsíða 4
Fimmtudagur 15. janúar 20094 Fréttir ritstjorn@dv.is Innlendar FréttIr „Við höfum dæmi um að fólk hefur sleppt dýrum aðgerðum því það hefur hreinlega ekki efni á að borga þær og lát- ið lóga dýrunum,“ segir Katrín Harðar- dóttir, dýralæknir í Víðidal. Í kreppunni eykst að fólk láti aflífa gæludýr sín í stað þess að borga aðgerðir eftir fótbrot eða önnur minniháttar meiðsli. Aðgerðir vegna fótbrots á hundum kosta á bilinu 80 til 120 þúsund krónur og eiga ekki all- ir pening til að borga slíka aðgerð. Ekki til peningur fyrir aðgerð „Það kom upp í tvígang núna í haust að fólk hætti við dýrar aðgerðir og lét svæfa dýrið. Þetta er eitthvað sem ég hef ekki orðið mikið vör við áður, fólk hefur bara samið frekar um greiðslur. Í þessum til- vikum sá fólk ekki fram á að hafa tekjur til að borga svona aðgerðir,“ segir Katr- ín og bendir á að mikil aukning sé í slík- um svæfingum núna í kreppunni. Hún segist kvíða næstu mánuðum þegar fólk hefur minna milli handanna en áður. „Maður veit náttúrlega ekki hvað gerist á næstunni, fólk sem hefur misst störf sín er fyrst núna að verða launalaust. Ef fólk missir húsnæði og fer í leiguhús- næði þar sem það má ekki hafa dýrin munum við sjá aukningu í svæfingum.“ Köttur kvaldist í margar vikur Sif Traustadóttir, dýralæknir hjá Dýra- lækningamiðstöðinni og formaður Dýralæknafélagsins, segir að hún hafi fengið inn á borð hjá sér kött sem var látinn kveljast í margar vikur vegna stíflu í þörmum. „Við fengum tilfelli nýlega þar sem við höfum grun um að eigendurnir hafi beðið mjög lengi með að koma með dýrið og við höfum grun um að þeir hafi ekki haft efni á því að koma á vaktina. Hann var mikið veikur vegna þess að það var aðskotahlutur fastur í þörmunum,“ segir Sif en fólk- ið var að vonast til að þetta myndi lag- ast. Hún segir að fólk spái meira í því núna í kreppunni hvað hlutirnir kosta og tekur fram að það sé alls ekki ódýrt að eiga gæludýr, ýmis kostnaður fylgi. Mun algengara er að fólk láti aflífa ketti en hunda yfir sumartímann. „Það er eins og fólk sé ekki eins tengt þeim eins og hundum og það virðist vera auðveldara að losa sig við þá þegar það hentar ekki að hafa þá lengur.“ Ellen Ruth Ingimundardóttir dýra- læknir hefur orðið vör við að fólk láti stærri aðgerðir bíða því ekki sé til peningur til að borga slíkar aðgerðir. „Við höfum sem betur fer sloppið við að fólk láti svæfa dýr einungis vegna peningaleysis, en við höfum miklar áhyggjur af þessu,“ segir Ellen, en að aflífa kött kostar í kringum 7.600 krón- ur og tíu kílóa hund rúmlega 12.000 krónur. Hún bendir á að til séu dæmi um að fólk fái sér gæludýr í kreppunni. „Við vitum líka að fólk er að fá sér dýr til að létta sér lífið á meðan ástandið er svona í þjófélaginu.“ Ódýrt að tryggja Brynja Tomer, tryggingaráðgjafi VÍS Agria dýraverndar, segir að það sé að færast í aukana að fólk tryggi dýrin sín. „Sjúkrakostnaðartrygging er al- gengasta tryggingin hjá okkur, það er trygging sem bætir dýralæknakostnað og lyfjakostnað.“ Hún segir það kosta rúmlega 2.000 krónur á ári að tryggja kött og 6.000 krónur fyrir með- al hund. „Við borg- um allt að 300 þúsund krónur í lækn- iskostnað á ári fyrir dýrið, til dæmis getur eitt fót- brot auðveldlega farið upp fyrir hundr- að þúsund krónur,“ segir Brynja og bendir á að það borgi sig fyrir fólk að tryggja dýrin sín því slys getur ekki tek- ið nema eitt sekúndubrot. „Mér finnst hræðilegt að heyra svona dæmi, sér- staklega þar sem ég veit hversu ódýrar og víðtækar þessar tryggingar eru. Það er mikil ábyrgð að taka að sér dýr og dýrin eiga sér engan aðra talsmenn en okkur eigendurna og með þessu móti tryggjum við dýrinu allrabestu læknis- þjónustu og lækningu sem völ er á fyr- ir einhverjar sex þúsund krónur á ári sem er ekki mikill peningur.“ DÝRIN DREPIN TIL AÐ SPARA Dæmi eru um að fólk láti aflífa dýrin sín frekar en að borga aðgerðir eftir fótbrot eða önnur slys á gæludýrum. Katrín Harðardóttir dýralæknir segir að kreppan og launa- leysi geti bitnað á gæludýrum á næstu mánuðum þegar þrengra verður í búi. Boði logason blaðamaður skrifar bodi@dv.is „ef fólk missir húsnæði og fer í leiguhúsnæði þar sem það má ekki hafa dýrin munum við sjá aukningu í svæfingum.“ Erfiðir tímar Ellen ruth ingimarsdóttir og Sif traustadóttir segja að fólk hugsi sig tvisvar um áður en stórar og dýrar aðgerðir eru framkvæmdar gæludýr Katrín Harðardóttir veit um tvö nýleg dæmi þess að dýr voru aflífuð vegna þess að ekki var til peningur til að framkvæma aðgerð eftir fótbrot. Tryggingar hjá VÍs Brynja tomer hvetur alla til að kaupa tryggingu fyrir dýrin sín því slysin gera ekki boð á undan sér. Benni Ólsari ákærður aftur Benjamín Þ. Þorgrímsson, einnig þekktur sem Benni Ólsari, hef- ur verið ákærður fyrir að ráðast á Ragnar Ólaf Magnússon á bílastæði við Hafnarvogina við Hafnarfjarðarhöfn. Þetta er í annað skipti sem ákært er í máli Benna vegna árásinnar á Ragnar Magnússon en árásin var tekin upp á myndband og sýnd í sjón- varpsþættinum Kompás. Vísa þurfti málinu frá í fyrra skipt- ið vegna ágalla á málsmeðferð. Samkvæmt ákærunni sparkaði Benni í Ragnar, tók hann hálstaki og þrýsti honum niður til jarðar þar sem hann sparkaði nokkrum sinnum í höfuð hans. Benni var einnig ákærður fyrir að ráðast á 35 ára gamlan karlmann 3. júlí í fyrra á barnum á Nordica-hótel- inu. Þessu máli var einnig vísað frá í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir áramót en Benni er ákærður fyrir að kýla manninn í andlitið og hægri vanga. Kisa handtekin Ókunnugur köttur kom inn í íbúð manns í Hafnarfirði á dögunum og vildi maðurinn að lögreglan kæmi og fjarlægði dýrið. Hon- um var tjáð að ekki væri hægt að bregðast við tafarlaust enda fylgdi sögunni að kötturinn væri svo sem ekkert ófrýnilegur. Mað- urinn lét sér það vel lynda en tók síðan til sinna ráða, handsam- aði köttinn og fór með hann á lögreglustöðina. Hinn óboðni gestur, sem var fressköttur, hafði nokkrum sinnum áður farið inn í sömu íbúð en eigandi hennar, maðurinn sem tók til sinna ráða, er sjálfur með kött, læðu. Varp- aði þetta ljósi á atburðarásina og skýrði þessar heimsóknir. Hinum óboðna ketti var þar næst sleppt úr haldi og hefur hann síðan haldið sig réttu megin við lögin. Svikin kaup hjá sjeik? Í lok september var tilkynnt að sjeikinn Mohamed bin Kha- lifa Al-Thani, bróðir emírsins í Katar, hefði keypt 5,1 prósents hlut í Kaupþingi á 25,5 milljarða, sem gerði hann að þriðja stærsta hluthafa. Milljarðar þessir finnast hins vegar hvergi eins og kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins. Málið er í skoðun hjá yfirvöld- um en embættismenn spyrja sig hvort kaupin hafi verið risavax- ið svindl þar sem raunveruleg- ir peningar hafi aldrei skipt um hendur. Sjeikinn sem um ræðir ætlaði líka að kaupa hlutafé í Al- fesca á sama tíma en aldrei varð af því. Áhrifamesti hluthafinn í Alfesca á þeim tíma var Ólafur Ólafsson, aðaleigandi Kjalars, sem nýverið hefur verið í fréttum vegna gjaldeyrisskiptasamninga við Kaupþing. “Bylting hefur þegar orðið, sú bylt- ing sem skiptir máli hefur átt sér stað,” segir Kjartan Ólafsson, lektor í hug- og félagsvísindadeild í Háskól- anum á Akureyri. Að sögn Kjartans hefur orðið hugarfarsbylting með- al þjóðarinnar í kjölfar bankahruns- ins, með þeim hætti að peningaleg gildi sem höfðu fest rætur hérlendis hurfu hratt. “Gildismatið í samfélag- inu breyttist. Það er þróun sem hefur tekið mörg ár og við fórum að leggja meiri áherslu á peningaleg gildi. Það var í raun byltingin. Ef það er einhver bylting í gangi núna er það andbylt- ing, eða tilraun til að koma hlutun- um í lag aftur,” segir hann. Að mati Kjartans er ólíklegt að al- varleg átök komi upp á árinu. “Það er mjög ólíklegt að hér verði átök. Það fer eftir því hvort fólk hefur á tilfinn- ingunni að það sé hlustað á það,” segir hann. “Mótmælendur eru ekki að rífa niður samélagið, þetta er til- raun til að byggja það upp. Það er mjög nauðsynlegt. Það er umræða í gangi í samfélaginu um hvaða gildi við samþykkjum og hvað ekki og sú umræða á sér stað í borgarafundum, bloggsíðum og fjölmiðlum. Allt þetta fólk vill láta heyra í sér.” Sú hreinsun eða bylting í gildis- mati Íslendinga sem Kjartan lýsir felst í því að fólki verður aftur gert kleift að ná þeim markmiðum sem samfé- lagið setur einstaklingunum. “Þegar bankahrunið var í október höfðu ekki bara gildin komist á flot heldur líka höfðu lokast fyrir okkur þessar leiðir sem við höfðum að markmiðinu. Ef við ímyndum okkur að það hafi ver- ið viðurkennt markmið í samfélag- inu að verða ríkur þá var það mark- mið tiltölulega óaðgengilegt fyrir mjög marga. Það sem samfélagið er að reyna að gera núna í þessum mót- mælum er að endurskapa jafnvægi milli markmiða og leiða. Þetta eru viðbrögð sem eru ekkert ósvipuð því og ef maður á börn og þau brjóta eitt- hvað eða skemma, þá segir maður: “Nei, ég vil ekki hafa þetta,” og sýnir að maður er ekki sáttur við hegðun- ina. Þá eiga börn að skilja að þau hafa gert eitthvað af sér,” útskýrir Kjartan. Með mótmælunum sé almenningur að færa hinum ábyrgu þau skilaboð að þeir líði ekki hegðun þeirra. bodi@dv.is Kjartan Ólafsson lektor á Akureyri segir að byltingin sé hafin á Íslandi Bylting er þegar orðin Mótmæli mótmælendur eru að reyna að byggja samfélagið upp á nýtt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.