Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2009, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 15. janúar 2009 17Sport
Drillo tekur við Noregi norska knattspyrnusambandið réð í gær goðsögnina í lif-
anda lífi Egil „drillo“ Olsen í starf landsliðsþjálfara. drillo mun því mæta með sína sveit til reykja-
víkur á árinu en noregur leikur með Íslandi í riðli í undankeppni heimsmeistaramótsins. drillo
starfaði sem þjálfari noregs á árunum 1990-1998 og undir hans stjórn lék liðið í úrslitakeppni
heimsmeistaramótsins í Bandaríkjunum árið 1994 og í Frakklandi 1998. Á þeim tíma lék norska
landsliðið einhverja leiðinlegustu knattspyrnu sem sést hefur þar sem taktíkin var aðein að
negla eins langt fram og hægt var, hið svokallaða „kick and run“. drillo þjálfaði einnig Wimbled-
on á Englandi og landslið Íraks. noregur er með tvö stig í undankeppninni en Ísland fjögur.
„Já, það er óhætt að lofa virkilega
góðum þætti í kvöld,“ segir Gunn-
ar Jarl Jónsson, höfundur og fram-
leiðandi þáttaraðarinnar Atvinnu-
mennirnir okkar, sem hefst á Stöð 2
Sport klukkan 20.00 í kvöld. „Logi er
feykilega skemmtilegur karakter og
áhorfendur fá heldur betur að kynn-
ast því,“ bætir Gunnar við en Logi er
viðfangsefnið í fyrsta þætti af alls sjö
sem telja ásamt honum okkar helstu
stjörnur, eins og Grétar Rafn Steins-
son, Hermann Hreiðarsson, Guðjón
Val Sigurðsson, sjálfan Eið Smára
Guðjohnsen og íþróttamann ársins
2008, Ólaf Stefánsson.
Skyggnst er inn í líf atvinnumann-
anna okkar frá öllum hliðum. Farið
er með þeim á æfingar og á bak við
tjöldin á leikdag ásamt því að líta
nánar á einkalífið. Upptökur hafa
verið í gangi frá því í haust og var
fylgst með atvinnumönnunum bæði
erlendis og hér heima með landslið-
inu.
„Allir þessir atvinnumenn lifa
eðlilegu lífi eins og annað fólk og eru,
að Loga undanskildum, miklir fjöl-
skyldumenn. En auðvitað er spenn-
andi fyrir áhorfandann að sjá hvern-
ig þessir menn lifa og það er þeirra
að dæma hvort líf þeirra sé ótrúlegra
en fólk ætlar,“ segir Gunnar Jarl Jóns-
son. tomas@dv.is
Atvinnumennirnir okkar byrja í kvöld:
logi ríður á vaðið
toppliðiN
mætast
Efstu lið iceland Express-deildarinn-
ar í körfubolta, Kr og grindavík,
drógust í gær saman í undanúrslit
Subway-bikarsins. Þessi tvö lið hafa
borið höfuð og herðar yfir önnur lið í
vetur og mættust einnig í úrslitum
deildarbikarsins. Hinn undanúrslita-
leikurinn er ekki síður merkilegur.
Stjarnan með teit Örlygsson í brúnni
mætir njarðvík á heimavelli. teitur
þjálfaði njarðvík í fyrra en yfirgaf
Ljónagryfjuna með látum. Hjá
konunum mætast Keflavík og Valur í
Sláturhúsinu í Keflavík en 1.
deildarlið Skallagríms tekur á móti
Kr í Fjósinu.
Karlar:
Kr - grindavík
Stjarnan - njarðvík
Konur:
Keflavík - Valur
Skallagrímur - Kr
Leikið verður 24. og 25. janúar.
Hissa á
veðmöNgurum
roger Federer var vel úr karakter
þegar hann ræddi við fréttamenn á
blaðamannafundi um opna ástralska
mótið sem hefst á mánudaginn en
það er fyrsta slemmumót ársins.
Veðmangarar segja Bretann andy
murray líklegastan til sigurs á undan
bæði efsta manni heimslistans,
rafael nadal, og Federer. „Hann
hefur aldrei unnið slemmumót. Það
er mjög skrýtið að sjá þetta,“ sagði
Federer sem sækist eftir sínum
fjórtánda slemmusigri í Ástralíu.
murray hefur verið sjóðheitur og
unnið fyrstu tvö mót ársins, og í
báðum rúllað yfir Federer. „murray
hefur farið vel af stað á árinu en að
vinna slemmumót er allt annað mál.
Ekki svo margir menn hafa gert það
undanfarin ár. Ég og nadal vinnum
þau flest,“ sagði Federer sem er
vanalega mun hógværari.
umSjón: tómaS Þór ÞórðarSOn, tomas@dv.is / SVEinn WaagE, swaage@dv.is
Fyrsti þáttur
Áhorfendur fá að skyggnast
inn í líf Loga geirssonar í kvöld.
mynd Getty ImaGes
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester
United, stillti upp stórskotaliði gegn
Wigan á Old Trafford í gær. Fimm
breytingar voru gerðar frá Chelsea-
leiknum. Scholes og Carrick komu
inn á miðjuna og Nani bættist í hóp
með Rooney, Ronaldo og Berbatov.
Eftir stórsigurinn síðustu helgi og
jafntefli Liverpool og Stoke blasti sá
möguleiki við að hægt yrði að kom-
ast stigi fram fyrir Liverpool ef tveir
frestaðir leikir yrðu nýttir. Sú staða
hlyti að verða mikil hvatning fyrir
heimamenn að klára þennan leik.
Steve Bruce gat valið úr fullfrísk-
um leikhópi sína bestu menn enda
Wigan eina liðið í Úrvalsdeildinni
sem ekki er með leikmenn á sjúkra-
lista. Wigan var fyrir leikinn búið að
sigra fjóra af síðustu fimm leikjum og
hafði verið að spila traustan og góð-
an fótbolta. Emile Heskey og Zaki
voru fremstu menn, Valencia á kant-
inum og Titus Bramble og Melchiot
voru klárir í hjarta varnarinnar.
mark um leið
Leikurinn hófst og leikmenn Wigan
virtust enn vera að virða fyrir sér troð-
fullt Leikhús draumanna þegar ný-
kjörinn besti leikmaður heims braust
upp hægri kantinn og sendi fyrir á Wa-
yne Rooney sem skoraði örugglega af
markteig. Staðan orðin 1-0 eftir aðeins
50 sekúndur. Það er ekkert sem vekur
menn eins hressilega og ísköld blaut
gólftuska í andlitið og í forundran var
Wigan komið undir á heimavelli Eng-
landsmeistaranna. Rooney var líklega
ekki orðinn nógu heitur þegar hann
skoraði því hann þurfti að fara út af 5
mínútum síðar og Carlos Teves kom
inn á fyrir markaskorarann.
skothríð upp í stúku
Wigan þurfti smá tíma til að jafna sig
og var komið vel inn í leikinn eftir 10
mínútna leik. Gestirnir reyndu sig í
frumlegum markskotum án þess að
ógna Van der Sar nokkuð. Á 25. mín-
útu komst varamaðurinn Teves einn í
gegn eftir hræðileg mistök í vörn Wig-
an en Titus Bramble náði að þjarma
að Argentínumanninum og hindra
mark. United gaf í og eftir hálftíma-
leik voru heimamenn komnir með
undirtökin aftur. Gestirnir fengu þó
kjörið færi í hraðaupphlaupi, fjórir
á móti þremur, en skot úr upplögðu
færi hafnaði í stúkunni. 0-1 í hálfleik
og Wigan enn inni í leiknum.
Baráttuglaðir gestir
Gestirnir mættu ákveðnir til seinni
hálfleiks og fullákveðnir fyrir Ste-
ve Bennet dómara sem gaf Titus
Bramble, Scharner og Zaki gul spjöld
á stuttum tíma á fyrstu 7 mínútum
hálfleiksins. Heimamenn virtust
hálfáhugalausir og Wigan sterkari
aðilinn þegar Ryan Taylor brenndi
af upplögðu færi. Baráttuglaðir leik-
menn Wigan héldu áfram að sækja
og Valencia fór ítrekað illa með
O‘Shea á hægri kantinum. Valencia
þrumaði boltanum rétt yfir þegar 10
mínútur lifðu leiks en Berbatov fékk
skömmu síðar upplagt tækifæri til að
klára leikinn en gott skot lak fram-
hjá stönginni. Í uppbótartíma mun-
aði minnstu að Emile Heskey næði
að tryggja Wigan verðskuldað stig en
skalli hans hitti ekki markið.
Þrjú stig í hús
Niðurstaðan var mikilvægur en tæp-
ur sigur hjá United sem getur þakkað
Wayne Rooney og 54. markinu hans
stigin þrjú. Steve Bruce getur ver-
ið rígmontinn af frábærri frammi-
stöðu sinna manna og það er deg-
inum ljósara að hann er að gera
góða hluti með þetta hörku Wigan-
lið. Manchester United er nú aðeins
tvemur stigum á eftir Liverpool og á
leik til góða. Liðið hefur ekki fengið á
sig mark í níu leikjum og á því aðeins
einn leik til að jafna Chelsea sem hélt
hreinu í tíu leikjum.
sveInn waaGe
blaðamaður skrifar: swaage@dv.is
næsta stopp:
toppsætið
manchester United er farið að eygja toppsæti
ensku Úrvalsdeildarinnar eftir 1-0 sigur á
baráttuglöðu wigan á Old Trafford.
Með sigri á laugardaginn kemst Un-
ited á toppinn, tímabundið hið
minnsta.
sá besti ronaldo lagði upp
markið á fyrstu mínútunni.