Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2009, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2009, Blaðsíða 8
Fimmtudagur 15. janúar 20098 Fréttir „Það er svo löngu komið nóg af bulli og bruðli. Hljómur í fyrirmælum um að skera niður annars staðar í þjóðfé- laginu er tómur og holur með þessar greiðslur til hliðsjónar. Maður hrein- lega kúgast þegar svona vinnubrögð eru viðhöfð,“ segir Kristján Gunnars- son, formaður Starfsgreinasambands- ins. Honum ofbjóða dagpeningar þingmanna en dæmi er um að þing- maður hafi fengið rúmlega 175 þús- und krónur vegna þriggja daga ferðar til útlanda. Óbreyttir dagpeningar Frá bankahruninu hefur verið tíðrætt um að skera niður á helstu vígstöðv- um. Dagpeningar þingmanna hafa þó haldist óbreyttir. Frá 1. október til áramóta nema dagpeningar Alþingis til þingmanna 2,6 milljónum króna. Á þessu tímabili hafa sex ferðir verið farnar á vegum þingsins til útlanda. Þá hafa sautján þingmenn dvalist erlend- is í fjörutíu og sjö daga. Flestir hafa að- eins farið í eina ferð en þrír hafa farið í tvær ferðir. Styst þessara ferða er fundur þing- manna EFTA í Genf 25. nóvember. Tveir þingmenn sóttu fundinn og fékk hvor rúmar 43 þúsund krónur í dag- peninga vegna hennar. Lengsta ferð- in á tímabilinu var fimm daga. Þar var um að ræða ársfund NATO-þingsins í Valencia dagana 14. til 18. nóvember. Þar er gert ráð fyrir þremur gistinótt- um. Þrír þingmenn sóttu ársfundinn og fékk hver þeirra tæpar 274 þúsund krónur í dagpeninga vegna hennar. Ekki á farfuglaheimilum Kristján Gunnarsson bendir á að þeir sem hann starfar fyrir í Starfsgreina- sambandinu fái vegna vinnuferða sinna dagpeninga sem rétt duga fyr- ir útlögðum kostnaði. Hann telur að þingmenn geti gist á heldur góðum hótelum fyrir greiðslurnar frá Alþingi. Hins vegar sé auðvitað eðlilegt og sjálf- sagt að greiða útlagðan kostnað þing- manna. „Ég ætla þeim alls ekki að gista á einhverjum farfuglaheimilum. Ég vil gera vel við það fólk sem er full- trúar okkar á erlendri grund. En ég vil „Ég held að það hljóti að þurfa að skoða þetta með sömu gler- augum og niðurskurð á öðrum sviðum.“ Þingmenn hafa fengið 2,6 milljónir króna í dagpeninga frá bankahruninu. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa frá 1. október fengið greidda rúma milljón. Ásta Ragn- heiður Jóhannesdóttir Samfylkingunni fékk 450 þúsund krónur vegna átta daga dvalar erlendis vegna þingstarfa. Kristján Gunnarsson segist hreinlega geta kúgast vegna vinnubragða sem þessara. MILLJÓNIR Í DAGPENINGA ERla HlynsdÓttiR blaðamaður skrifar: erla@dv.is Dagpeningar þingmanna Ásta r. JóhannesDóttir s 449.200 kr. 8 dagar Valencia, liechtenstein ragnheiður e. ÁrnaDóttir D 273.563 kr. 5 dagar Valencia magnús stefÁnsson B 273.563 kr. 5 dagar Valencia Ásta möller D 157.650 kr. 3 dagar genF (Fundur alþjóða- þingmannasambandsins) þuríður Backman V 157.650 kr. 3 dagar genF (Fundur alþjóða- þingmannasambandsins) Árni þór sigurðsson V 152.986 kr. 3 dagar brussel, genF (Fundur þingmannaneFndar eFta) katrín JúlíusDóttir s 152.986 kr. 3 dagar brussel, genF (Fundur þingmannaneFndar eFta) Ármann kr. ólafsson D 109.556 kr. 2 dagar brussel BJarni BeneDiktsson D 109.556 kr. 2 dagar brussel illugi gunnarsson D 109.556 kr. 2 dagar brussel Árni pÁll Árnason s 101.528 kr. 2 dagar helsinki helgi hJörVar s 101.528 kr. 2 dagar helsinki kJartan ólafsson D 101.528 kr. 2 dagar helsinki kolBrún hallDórsDóttir V 101.528 kr. 2 dagar helsinki kristJÁn þór Júlíusson D 101.528 kr. 2 dagar helsinki ragnheiður ríkharðsDóttir D 101.528 kr. 2 dagar helsinki siV frið- leifsDóttir B 101.528 kr. 2 dagar helsinki Þingmenn sjálfstæðisflokks n dagpeningar: 1.064.465 krónur n Átta þingmenn, tuttugu dagar Þingmenn samfylkingar n dagpeningar: 805.242 krónur n Fjórir þingmenn, fimmtán dagar Þingmenn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs n dagpeningar: 412.164 krónur n þrír þingmenn, átta dagar Þingmenn Framsóknarflokksins n dagpeningar: 375.091 króna n tveir þingmenn, sjö dagar Þingmenn Frjálslynda flokksins n engar ferðir á tímabilinu miðað er Við tímabilið 1. október 2008 til 1. janúar 2009. flokkarnir ferðast n dagpeningar þingmanna eru ákvarðaðir á ferðakostnað- arnefnd alþingis. upphæð þeirra er misjöfn eftir því hvert er farið en áfangastöðum er skipt í fjóra flokka. þannig eru greiddir hærri dagpeningar til þeirra sem ferðast til new York og moskvu en þeirra sem fara til genf og hong kong á vegum þingsins. dagpeningar miðast við sdr sem er meðalgengi helstu gjaldmiðla. Við útreikninga dagpeninga miðar dV við gengi sdr á síðasta degi hverrar ferðar samkvæmt gengisskráningu seðlabankans. samkvæmt leiðbeiningum frá skrifstofu alþingis er í útreikningum miðað við áttatíu prósent af heildarupphæð dagpeninga að viðbættri þeirri upphæð sem ætluð er til gistikostnaðar. hann er þó undanskilinn ef um dagsferðir er að ræða. upplýsingar um ferðir eru fengnar af vefsíðu alþingis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.