Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2009, Blaðsíða 6
Henti jólatré á
bíl nágranna
Óvenjulegar deilur sköpuðust
milli nágranna á höfuðborgar-
svæðinu á dögunum. Þannig er
mál með vexti að maður nokkur
hugðist losa sig við jólatré úr
íbúð sinni. Hann brá á það ráð
að henda trénu fram af svölun-
um en ekki vildi betur til en svo
að það hafnaði ofan á bíl ná-
granna mannsins.
Eigandi bílsins heldur því
fram að nágranninn hafi gert
þetta að yfirlögðu ráði. Fram
kemur í tilkynningu frá lögreglu
að mennirnir hafi áður deilt um
umrætt bílastæði en tjónið á bíln-
um liggur hins vegar ekki fyrir.
Fimmfalt fleiri
án atvinnu
Skráð atvinnuleysi í desember
2008 var 4,8 prósent og eykst
atvinnuleysi um 45 prósent að
meðaltali frá nóvember eða
um 2.458 manns. Atvinnuleysi
hefur ekki verið jafnmikið frá
því í janúar árið 1997. Á sama
tíma á árinu 2007 var atvinnu-
leysi 0,8 prósent, fimmtungur
þess sem nú er. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu um at-
vinnuleysi frá Vinnumála-
stofnun.
Atvinnuleysi er nú mest
á Suðurnesjum, 9,7 prósent,
en minnst á Vestfjörðum 1
prósent. Atvinnuleysi eykst
um 46 prósent á höfuðborgar-
svæðinu og um 44 prósent á
landsbyggðinni. Atvinnuleysi
eykst mun meira meðal karla
eða um 56 prósent en um 29
prósent meðal kvenna.
Mátti hand-
taka óróasegg
Héraðsdómur Reykjavíkur
hefur sýknað íslenska ríkið af
kröfu manns um bætur vegna
meintrar ólöglegrar handtöku.
Hann fór fram á eina milljón
króna í bætur.
Maðurinn var handtekinn
á veitingastaðnum Áttunni í
Hafnarfirði 2. febrúar árið 2007
þegar óeinkennisklæddir lög-
reglumenn voru þar við eftirlit.
Maðurinn byrjaði þá að öskra
og kalla á lögreglumennina og
var með bendingar. Lögreglu-
maður gekk þá gengið upp að
honum og sagði honum að
hann væri lögreglumaður. Eftir
nokkurt orðaskak hafi mað-
urinn ýtt við lögreglumann-
inum. Hann hafi í kjölfarið
verið handtekinn en veitt mót-
spyrnu við handtökuna.
Íslandsmet
í afgangi
Útflutningur fyrir desember-
mánuð 2008 nam 54 milljörð-
um króna en innflutningur 29,9
milljörðum. Þetta er samkvæmt
bráðabirgðatölum sem birtar
eru á vef Hagstofu Íslands. Vöru-
skiptin voru því hagstæð um
24,1 milljarð króna samkvæmt
bráðabirgðatölum.
Frá árinu 1992 hefur afgang-
ur af vöruskiptum í einum mán-
uði aldrei verið meiri á því tíma-
bili. Hallinn á vöruskiptum við
útlönd á árinu 2008 gæti því ver-
ið um 4,8 milljarðar samkvæmt
bráðabirgðatölum.
Bjarni Ármannsson krafðist þess við
eigendur gamla Glitnis að hann fengi
29 krónur á hlut fyrir 2 prósenta hlut
sinn í bankanum. Þetta var 3 krón-
um yfir markaðsvirði. Sala hlutarins
færði Bjarna tæplega 550 milljónum
meira en markaðsvirði hlutarins. Ekk-
ert gagntilboð barst frá stjórn gamla
Glitnis.
Þetta kom fram í máli Bjarna Ár-
mannssonar, fyrrverandi forstjóra
gamla Glitnis, við aðalmeðferð í máli
Vilhjálms Bjarnasonar, hluthafa í
Glitni, gegn fyrrverandi stjórnarmeð-
limum gamla Glitnis. Aðalmeðferðin í
málinu fór fram í Héraðsdómi Reykja-
víkur í gær og bar Bjarni þar vitni.
Bjarni seldi hlut sinn í bankanum fyrir
tæpa 7 milljarða króna árið 2007 eftir
að hann hætti sem forstjóri hjá bank-
anum eftir eigendaskipti þar sem FL
Group varð stærsti hluthafinn.
Krafðist hærra verðs
en á markaði
Bjarni Ármannson, fyrrverandi for-
stjóri gamla Glitnis, sagðist við vitna-
leiðslu í gær hafa gert þá kröfu að hann
fengi 29 krónur fyrir hlutinn og að
önnur upphæð hefði aldrei komið til
tals. Bjarni sagði að í slíkum viðskipt-
um keyptu stjórnir hlutafélaga stund-
um hluti á markaðsvirði og stundum
ekki. Bjarni sagði að ef hlutur sinn í
bankanum hefði farið á markað hefði
það getað leitt til þess að gengi bréfa í
gamla Glitni lækkaði.
Hræðsla við gengislækkun
Í skýrslutöku yfir Þorsteini Jónssyni,
stjórnarformanni gamla Glitnis, í
gær kom fram að Bjarni Ármannsson
hefði farið fram á að hann léti af störf-
um í bankanum eftir að FL Group varð
stærsti hluthafinn í Glitni árið 2007 og
að hann hefði einnig viljað selja 2 pró-
senta hlut sinn í bankanum. Þorsteinn
sagði að Bjarni hefði farið fram á að fá
29 krónur á hvern hlut sem hann átti
í bankanum. Hann sagði að stjórn
Glitnis hefði talið mikilvægt að eigna-
tengsl Bjarna við bankann yrðu rofin
sem fyrst og án þess að það kæmi sér
illa fyrir hluthafa bankans.
Í máli Hauks Guðjónssonar, fyrr-
verandi stjórnarmanns í gamla Glitni,
kom fram að stjórn bankans hefði tal-
ið betra að stjórn bankans keypti hlut-
inn af Bjarna í stað þess að hann seldi
hlutinn sjálfur á almennum markaði.
Björn Ingi Sveinsson, einn fyrr-
verandi stjórnarmannanna, sagði að
gengi bréfanna í gamla Glitni á mark-
aði hefði getað lækkað ef Bjarni hefði
selt hlut sinn sjálfur.
Bruðlað í Bjarna
Guðni Haraldsson, lögmaður Vil-
hjálms, segir að málið sé höfðað á
þeirri forsendu að stjórn Glitnis hafi
ekki verið heimilt að sólunda fjár-
munum bankans eins og gert var
þegar hlutbréfin voru keypt af Bjarna
Ármannssyni á meira en markaðs-
virði því bankinn hafi verið almenn-
ingshlutafélag og enginn þörf hafi
verið á því. „Bankanum veitti nú
ekki af þessum peningum. Þetta er
því miður bara ekki eina dæmið um
svona bruðl því hið sama á við um
samninginn sem gerður var við Lár-
us Welding,“ segir Guðni.
Vilhjálmur Bjarnason vildi ekki
tjá sig um málið við DV því það væri
komið fyrir dómstóla. Hann sagðist
þó vera bjartsýnn á að dæmt yrði sér
í hag. Vilhjálmur krefst tveggja millj-
óna króna í skaðabætur í málinu.
Stjórnir hlutafélaga
fari varlegar
Guðni segir að peningarnir sem fel-
ast í skaðbótakröfunni séu ekki að-
alatriðið í málfutningnum. „Þetta er
fyrst og fremst prinsippmál. Markmið
Vilhjálms er að dómurinn í málinu
verði fordæmisgefandi svo stjórnir
fyrirtækja geti ekki bara valsað um
og gert það sem þær vilja, kannski
samkvæmt fyrirmælum stærsta hlut-
hafans. Við viljum fá þá niðurstöðu
í málinu að stjórnum í almennings-
hlutafélögum beri að fara varlegar
og eftir settum lögum því þær eru
að höndla með fé allra hluthafanna,“
segir Guðni.
Úrskurðað verður í málinu á
næstu tveimur vikum.
IngI F. VIlHjálmSSon
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
„Við viljum fá þá nið-
urstöðu í málinu að
stjórnum í almennings-
hlutafélögum beri að
fara varlegar og eftir
settum lögum því þær
eru að höndla með fé
allra hluthafanna.“
bjarni seldi glitni
bréfin á yfirverði
Fimmtudagur 15. janúar 20096 Fréttir
ritstjorn@dv.is
Innlendar FréttIr Bjarni ármannsson krafðist verðs sem var hærra en markaðsverð fyrir hlut sinn í gamla
Glitni. Stjórn Glitnis samþykkti kröfu Bjarna án gagntilboðs. Stjórnarmenn Glitnis voru
hræddir við að hlutabréf í bankanum myndu lækka ef Bjarni seldi bréfin á markaði.
Bjarni fékk tæpa 7 milljarða fyrir hlut sinn eða 550 milljónir yfir markaðsvirði.
Krefst bóta Vilhjálmur Bjarnason,
hluthafi í glitni, fer fram á tvær milljónir
króna í skaðabætur frá gamla glitni.
mynd gunnar gunnarSSon
Stjórnarmenn í héraðsdómi Þorsteinn m. jónsson, fyrrverandi stjórnar-
formaður gamla glitnis, Björn ingi Sveinsson, Haukur guðjónsson og Katrín
Pétursdóttir, fyrrverandi stjórnarmenn í glitni, mættu í aðalmeðferðina í gær.
Lögmaður þeirra er Ólafur Eiríksson sem er fyrstur frá vinstri.
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi
í gær karlmann í 15 mánaða fang-
elsi fyrir tilraun til að nauðga vin-
konu dóttur sinnar að morgni dags á
heimili fjölskyldunnar í apríl síðast-
liðnum. Maðurinn hóf drykkju strax
eftir að hann kom úr vinnu klukkan
fjögur daginn áður. Hann hafði far-
ið í matarboð ásamt sambýliskonu
sinni og þar hafði hann haldið áfram
að drekka og farið síðar á skemmti-
stað, þau urðu síðan viðskila. Dóttir
hans og vinkonur hennar gistu allar
þessa nótt heima hjá þeim á annarri
hæð hússins en maðurinn og sam-
býliskona hans í herberginu við hlið-
ina á. Skýrsla var tekin af konunni á
vettvangi og segist hún hafa vakn-
að klukkan 8.10 þennan morgun og
tekið eftir því að maður hennar var
ekki við hlið hennar í rúminu. Í þann
mund sem hún uppgötvaði að mað-
urinn var ekki á staðnum heyrði hún
grát. Hún sá manninn í gegnum rifu
á hurðinni liggjandi við hlið stúlk-
unnar. Hann var búinn að losa belti
stúlkunnar og hélt fyrir munn og nef
hennar. Hún heyrði hann segja: „Uss,
uss, á ég að meiða þig?“ Þá réðst kon-
an á hann með bók og lamdi í höfuð
hans og hringdi síðan á lögreglu.
Stúlkan segir að hún hafi orðið
mjög hrædd og ekki vitað hvað hún
ætti að gera, hún hafi sagt honum
að hætta en þá hafi hann sýnt meiri
hörku og sagt henni að hafa hljótt.
Kona mannsins sagðist aldrei
hafa séð ákærða jafndrukkinn og
þennan morgun. Þegar hún hafi ráð-
ist á hann hafi hann virst í öðrum
heimi. Þau hafi tekið upp sambúð að
nýju eftir að hann hafi leitað sér að-
stoðar og hætt að drekka. Manninum
var kynntur framburður vitna um að
hann hefði sagt stúlkunni að þegja
eða hann skyldi meiða hana. Ákærði
svaraði því að þetta hlyti að vera
sannleikanum samkvæmt þótt hann
myndi ekki eftir því. Skýrslum sem
voru teknar sama dag og umrætt at-
vik átti sér stað og framburði manns-
ins í héraðsdómi bar ekki saman.
Hann breytti sögu sinni og kvaðst
ekki muna eftir atvikinu. Maðurinn
var dæmdur í fimmtán mánaða fang-
elsi og gert að greiða stúlkunni 400
þúsund krónur auk málskostnaðar.
bodi@dv.is
Reyndi að nauðga vinkonu dóttur sinnar eftir skemmtun:
„uss, uss, á ég að meiða þig?“
nauðgun
maðurinn hélt fyrir munn
stúlkunnar áður en kona
hans sló hann í höfuðið
með bók.