Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2009, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.2009, Page 22
Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær er Bjarni Haukur Þórsson að fara að setja upp söngleik- inn Grease í sumar. Þegar eru komnar af stað sögusagnir um leikaraval og hefur sjónvarps- og leikkonan Ragnhildur Stein- unn Jónsdóttir verið nefnd til sögunar í hlutverki Sandy. „Ég verst allra frétta af málinu,“ sagði Bjarni Haukur þegar DV hafði samband við hann. „Það hefur verið talað við nokkrar stúlkur varðandi hlutverkið en ekkert verið staðfest.“ Sjálf vildi Ragn- hildur ekki kannast við málið og sagði miklar annir í Sjónvarpinu koma í veg fyrir að hún gæti tek- ið að sér hlutverkið. Fimmtudagur 15. janúar 200922 Fólkið StúlknaSveit í euroviSion Stúlknasveitin Elektra, með systurnar Rakel og Hildi Magnúsdætur í fararbroddi, mun flytja framlag Örlygs Smára í Eurovision-for- valskeppninni 31. janúar. Lagið heitir Got no love. „Við höfum skorað á útrásarvíkinga að koma og vera skotmörk í hinu árlega skítkasti,“ segir Arnar Jóns- son hjá Sauðfjársetrinu á Ströndum. Skítkastið er partur af hinum árlegu Furðuleikum en venjan er að kasta blautum kindaskít í lifandi skot- mörk. „Hingað til hafa skotmörkin yfirleitt verið saklausir bændasynir af Ströndum.“ Arnar segir það ekki við hæfi lengur á þessum síðustu og verstu tímum að kasta skít í saklausa al- þýðuna. „Það hefur verið gert nóg af því og þess vegna er skorað á út- rásarvíkingana.“ Arnar segir engan hafa gefið sig fram en hann býst við að útrásarvíkingarnir geri það einn af öðrum. Arnar segir engan sérstakan auð- mann vera efstan á óskalistanum í skítkastinu. „Þeir eru allir velkomn- ir og ég held að þeir yrðu menn að meiri ef þeir mættu. Sumir fara í Kastljósið og aðrir í skítkastið.“ Þetta er í fimmta skiptið sem Furðuleikarnir fara fram en þeir eru haldnir fyrsta sunnudaginn í júlí. Leikarnir samanstanda af ýms- um furðulegum íþróttagreinum þar sem skítkastið er lokahnykkurinn. „Oft loðir skíturinn mest við þá sem kasta honum, bæði í alvörunni og í orðum, þannig að þeir eru nú ekki í neinni stórkostlegri hættu,“ segir Arnar að lokum. asgeir@dv.is auðmenn Skotmörk í SkítkaSti Útrásarvíkingar Spurning hvort Hannes, Bjarni eða Björgólfur séu nógu miklir menn til að taka áskoruninni. ragn- hildur í greaSe? SauðfjárSEtrið á Ströndum Skorar á útráSarvíkinGa að taka þátt í furðuLEikunum: Örlygur Smári og Hara-SyStur: Heimir Karlsson og Kolbrún Björnsdóttir í þættinum Í bítið tóku Gísla Njálsson, sem bú- settur er í Bretlandi, á orðinu í gærmorgun og hófu söfnun á lopapeysum fyrir aldraða Breta sem eru að krókna úr kulda. Nú er kaldasti vetur í Bretlandi í þrjá áratugi og á undanförnum dögum hafa verið dæmi þess að allt að tólf manns hreinlega deyi úr kulda á hverri klukkustund. Ekki nóg með það heldur stálu íslenskir bankamenn sparifénu af mýmörgum Bretum gegnum Icesave. Hægt er að senda allan aflögu lopafatnað á Bylgjuna sem er til húsa í Skaftahlíð 24. lopi á Bretana Hara-systur Stofnuðu stúlknasveitina Elektru. „Við erum loksins búnar að gera þetta. Við fengum spark í rassinn frá sjálfum okkar og Öggi hjálpaði líka til er hann talaði við okkur,“ segir Hildur Magnúsdóttir, söngkona og Hara-systir. Hildur, ásamt systur sinni Rakel, hefur stofnað kvennahljómsveitina Elektru og mun sveitin koma fram í fyrsta skipti í Eurovision-forkeppn- inni 31. janúar næstkomandi. Þar munu þær syngja lagið Got no love eftir Örlyg Smára. Hann samdi This is my life, framlag Íslendinga í Eur- ovision-keppninni í fyrra. Hildur og Rakel kunnu engin deili á stúlkunum áður en sveitin var stofnuð en eru mjög ánægðar með stúlkurnar sem þær fengu til liðs við sig. „Við í rauninni leituðum þær bara uppi,“ segir Hildur og hlær. Hún tekur það fram að leitin að nafni á sveitina hafi verið dálítið erfið. „Við erum búnar að fara í marga með nafnið á sveitinni en okkur fannst Elektra flott. Við þurftum einhvern tímann að stoppa og ákveða okkur og þetta var útkoman.“ Hildur er hæstánægð með Eur- ovision-lagið. Hún segist þó ekki vita hvort sveitin muni endilega verða á þessari braut það sem eftir er. „Þetta lag er sambland af tölvu- tónlist og rokkpoppi. Þetta verður kannski ekki eina tónlistarstefnan. Aðalmálið er að við skemmtun okk- ur vel, nú ef Eurovision-lagið gengur vel þá er aldrei að vita nema við ger- um fleiri slík lög,“ segir Hildur. Að- spurð hvort kvíði sé í stúlkunum um að komast áfram eða ekki er Hildur fljót að svara neitandi. „Við pælum sem minnst í því. Við ætlum að gera okkar besta og vonandi verður fólk hrifið.“ Þó að Hildur hlakki mikið til að taka þátt í Eurovision segist hún ekki vera Eurovision-nörd. „Rakel systir er meira fyrir Eurovision en ég, en ég fylgist að sjálfsögðu með eins og öll íslenska þjóðin. Vonandi kom- umst við langt og verðum þjóðinni til sóma,“ segir Hildur brosandi. Örlygur Smári er hæstánægður með útkomuna. „Þetta er gítar- rokk með hröðu bíti undir og minnir kannski svolítið á Katie Perry,“ segir hann. „Þær systurn- ar hafa mikið ver- ið að syngja með öðrum sveitum, eins og Stuð- mönnum, en það hefur lengi blundað í þeim að stofna sína eigin hljómsveit. Ég veit að þær eru mjög spenntar yfir þessu, að stofna kvenna- sveit. Ég hvatti þær áfram og fannst sniðugt að fá þær í þetta Eur- ovision-verkefni með mér,“ segir Örlygur. Hann segir sveitina vera í anda Grýlanna. „Ég veit ekki hvort þetta er nákvæmlega eins og þær vilja sánda í framtíðinni, en mér var boðið að taka þátt í keppninni. Ég þurfti að byrja á því að finna flytjanda fyrst og vinna síðan lagið. Þannig var vinnu- ferlið og þess vegna reyndi ég að sníða lagið að þessu kons- epti þeirra.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.