Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2009, Side 6
þriðjudagur 10. mars 20096 Fréttir
Sigurður Sigurðsson hrósar Birni Bjarnasyni fyrir framlag til Landsbjargar:
styrkur frá Birni gerði útslagið
„Ég held að þessum peningi sem
Björn Bjarnason veitti Landsbjörg sé
vel varið,“ segir Sigurður Sigurðsson
sem starfar í Flugbjörgunarsveitinni í
Reykjavík. Hann segir að félagar henn-
ar hafi sent Birni bréf stuttu áður en
hann lét af embætti og vakið athygli á
fjárþörf sveitarinnar.
Sigurður bendir á að stjórnstöðv-
ar- og talstöðvarbíll Flugbjörgunar-
sveitarinnar sé rúmlega fimmtán ára
gamall og löngu tímabært sé að end-
urnýja. „Peningur frá dómsmálaráðu-
neytinu var veittur til Landsbjargar til
tækjabúnaðar og eins og staðan er þá
á ég von á að Landsbjörg afhendi þetta
formönnum björgunarsveitanna á
höfuðborgarsvæðinu og að peningun-
um verði varið í þetta verkefni sem er í
þágu allra björgunaraðgerða á vegum
Landsbjargar enda hinn nýi stjórn-
stöðvarbíll orðinn sameiginleg stjórn-
stöð lögreglu og björgunarsveitanna,“
segir Sigurður.
Félagsmenn höfðu áður fundið
notaðan bíl sem myndi henta vel en
höfðu ekki efni á að festa kaup á hon-
um. „Þessi peningur gerði alveg útslag-
ið með að við gætum fest okkur bílinn,“
segir Sigurður.
„Það er einmitt eins og þið haf-
ið verið að benda á, þá staðreynd að
ýmsir stjórnmálamenn hafa verið ör-
látir á fé rétt áður en þeir hafa látið af
störfum og hvort sem fólk vill kalla það
að við höfum verið að misnota þessa
þekkingu okkar eða ekki þá er það
bara þannig að Björn Bjarnason hefur
haft einstaklega mikinn áhuga á öllu
þessu starfi Landsbjargar og björgun-
arsveitanna,“ segir Sigurður.
Í síðasta helgarblaði DV var sagt
frá því að Björn Bjarnason úthlutaði
5,1 milljón króna til fyrirtækja og fé-
lagasamtaka áður en hann lét af emb-
ætti dóms- og kirkjumálaráðherra í
janúarmánuði. Um var að ræða eft-
irstöðvar ráðstöfunarfjár frá fyrra
ári auk þriðjungs þeirrar upphæð-
ar sem dómsmálaráðherra hefur til
ráðstöfunar yfir allt árið 2009. Þar af
fékk Landsbjörg þrjár milljónir vegna
tækjabúnaðar.
erla@dv.is
Úr sér genginn Loksins virðist vera hægt að endurnýja stjórnstöðvar- og talstöðv-
arbíl Flugbjörgunarsveitarinnar sem keyptur var fyrir söfnunarfé Kvennadeildarinnar
fyrir 15 árum. Mynd FBSR
„Mér finnst að það eigi að gefa svona
börnum kost á að sækja hvaða tóm-
stundastarf sem er og gera undan-
þágu því tónlistarnám er það sem
honum hentar,“ segir Guðrún Lilja
Hermannsdóttir, móðir sjö ára
gamals langveiks drengs í Kópavogi
sem fær ekki tómstundastyrk frá
bænum til að senda son sinn í tón-
listarnám.
Kópavogsbær veitir tómstunda-
styrki að upphæð 15 þúsund krón-
ur á ári en þeir eiga ekki við þeg-
ar um tónlistarnám er að ræða þar
sem tónlistarskólar fá bein framlög
frá bænum.
Fæddist með ónæmisgalla
Eðvald, sonur Guðrúnar Lilju, fædd-
ist með ónæmisgalla sem leiðir til
þess að hann er gjarnari en önnur
börn á að fá sýkingar og smitast af
sjúkdómum. Síðar greindist hann
einnig með ADHD; athyglisbrest og
ofvirkni. „Hann er langveikur, hefur
sínar sérþarfir og getur ekki stund-
að íþróttir. Við þurftum því að finna
eitthvað annað fyrir hann,“ segir
Guðrún. Hún og maðurinn hennar
eiga eldri dóttur sem stundar hand-
bolta og hafa þau fengið styrk frá
Kópavogsbæ vegna íþróttaiðkunar
hennar.
„Ég vissi að bærinn niðurgreiddi
tómstundaiðkun en ég kom hins
vegar að lokuðum dyrum,“ segir
Guðrún.
Henni var bent á að tala við
Gunnar Guðmundsson hjá Íþrótta-
og tómstundaráði Kópavogsbæjar,
ÍTK. Í bréfi sem Gunnar sendi Guð-
rúnu segir: „Við gerum engan grein-
armun á börnum hvað þetta varð-
ar en því miður fellur tónlistarnám
ekki undir niðurgreiðsluna hjá okk-
ur. Það gæti verið að þetta sé styrk-
hæft hjá öðrum sviðum til dæmis
Félagsþjónustunni, en ég þekki það
því miður ekki nægilega vel.“
Vísað á Félagsþjónustuna
Þegar Guðrún hafði samband við
Félagsþjónustu Kópavogsbæjar var
henni hins vegar bent á að beina
erindi sínu til ÍTK. Eftir að hún tók
fram að henni hefði þegar verið
neitað þar var Guðrún boðuð á fund
hjá Félagsþjónustunni sem fram fer
í vikunni. Þar á að skoða mál henn-
ar og athuga hvort hægt sé að koma
til móts við kostnað vegna tónlistar-
námsins. Enn er það hins vegar alls-
endis óvíst.
Guðrún segir Eðvald hafa mik-
inn áhuga á tónlist. Síðasta haust
hóf hann því nám við Tónstofu Val-
gerðar í Reykjavík sem er eini tón-
listarskólinn á landinu þar sem
nemendur með sérþarfir njóta for-
gangs. Námsgjaldið er sjö þúsund
krónur á mánuði.
„Þetta er gott fyrir þroskann hjá
honum. Hann spilar helst á tromm-
ur. Þær eru í uppáhaldi hjá honum.
Hann situr oft líka með lítið hljóm-
borð og spilar. Hann er mjög músík-
alskur,“ segir Guðrún.
Hún bendir á að hún hafi feng-
ið þær upplýsingar að Kópavogsbær
myndi borga fyrir tilsjónarmann
sem gæti verið með syni henn-
ar í íþróttatímum og finnst skjóta
skökku við að slíkt sé greitt þar sem
þjónustan hljóti að kosta mun meira
en þær 15 þúsund krónur sem hún
óskar eftir að fá í tómstundastyrk
vegna tónlistarnámsins.
Bein framlög til tónlistarskóla
Þór Jónsson, upplýsingafulltrúi
Kópavogsbæjar, segir að tómstunda-
styrkir hafi ekki verið veittir fyrir tón-
listarnám vegna styrkja sem tónlist-
arskólar þiggja nú þegar með beinum
framlögum úr bæjarsjóði. Þór tekur
einnig fram að Gunnar fylgi reglum
ÍTK fullkomlega og hafi ekki heimild
til að veita umbeðna undanþágu.
„Með því að um er að ræða
nokkuð sérstakt tilvik virðast úrræði
ekki endilega tæmd. Umrædd móðir
getur enn sent erindi í bæjarráð
Kópavogs, lýst ósk sinni og rökstutt
hana og hugsanlega hlotið úrlausn
sinna mála þar. Um það get ég
auðvitað ekkert fullyrt, enda þekki
ég ekki öll atriði málsins, en þetta
mundi ég ráðleggja henni,“ segir Þór.
„Hann er langveikur,
hefur sínar sérþarfir
og getur ekki stundað
íþróttir.“
LANGVEIKUM DRENG
NEITAÐ UM STYRK
Kópavogsbær styrkir börn til tómstundastarfs um fimmtán þúsund krónur á ári. Guð-
rúnu Lilju Hermannsdóttur, móður sjö ára langveiks drengs, var hins vegar neitað
um styrk þar sem sonur hennar stundar tónlistarnám. Henni býðst hins vegar að til-
sjónarmaður fylgi drengnum á íþróttaæfingar en slíkar æfingar henta honum illa.
ERLa HLynSdóttiR
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
nýtur tónlistarinnar Eðvald Hólmarsson
hóf tónlistarnám í haust og telur móðir
Eðvalds það hafa jákvæð áhrif á þroska hans.
Mynd HEiða HELGadóttiR
Frjáls fyrrverandi
handrukkari
Frægasti handrukkari Íslands,
Annþór Kristján Karlsson,
lauk afplánun á þriggja ára
fangelsisdómi fyrir rúmri viku og
er því frjáls ferða sinna. Annþór
má þó búast við að þurfa að
sitja inni aðeins lengur þar sem
fjögurra ára fangelsisdómur, sem
hann fékk fyrir sína aðild að UPS-
hraðsendingarmálinu, verður
brátt tekinn fyrir hjá Hæstarétti en
þangað áfrýjaði hann dómnum.
Annþór sagði í nýlegu viðtali í
Íslandi í dag að hann væri breyttur
maður sem ætlaði að flytja til
Spánar þegar afplánun lyki.
Valt á
Vestfjörðum
Lögreglan á Vestfjörðum fékk
klukkan 19.15 í fyrrakvöld
tilkynningu um bílveltu á
Ennishálsi á Ströndum. Þar valt
flutningabíll á hliðina og lokaði
veginum. Veður og aðstæður
voru mjög slæmar á vettvangi.
Björgunarsveit kom til aðstoðar
og þurfti að fá kranabíla úr
Reykjavík til að koma bílnum
á hjólin aftur. Því verki var ekki
lokið fyrr en klukkan sex um
morguninn. Vegurinn var lokaður
að mestu en jeppar gátu komist
framhjá vettvangi. Umferð var þó
ekki mikil vegna færðar og veðurs.
Klipptu af
hundrað númer
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
klippti skráningarnúmer af
tæplega hundrað ökutækjum
um helgina sem voru ýmist
ótryggð eða óskoðuð og
jafnvel hvorutveggja. Í frétt frá
lögreglunni segir: „Trassaskapur
sumra í þessum efnum er með
ólíkindum.“ Þá hvetur lögreglan
eigendur og umráðamenn
bifreiða til að gera þar bragarbót
á en lögreglan kemur til með að
halda eftirlitinu áfram næstu
daga og hvetur hún ökumenn
til að passa upp á þetta svo ekki
þurfi að koma til fyrrnefndra
aðgerða.
Leyfislausir
með læti
Bæjarráð Reykjanesbæjar getur
ekki mælt með því að skemmti-
og veitingastaðurinn Glóðin fái
leyfi til að reka skemmtistað að
Hafnargötu 62 vegna ítrekaðs
ónæðis sem íbúar á svæðinu
hafa orðið fyrri af hálfu staðarins.
Þetta kom fram á fundi bæjarráðs
en þá var fjallað um umsókn
Nýju Glóðarinnar ehf. en það er
fyrirtækið sem rekur Glóðina. Þetta
þýðir að eigendur staðarins mega
aðeins hafa opið til ellefu virka
daga og til eitt eftir miðnætti um
helgar. Hávaði og slæm umgengni
eru sögð aðalástæðurnar.