Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2009, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2009, Blaðsíða 14
Umliðin helgi einkennd-ist af heljarstökkum eða risafalli fólks í prófkjör-um. Það gladdi hjarta Svarthöfða að sjá vestfirsku valkyrj- una Ólínu Þorvarðardóttur skjótast hátt á himin Samfylkingar í Norð- vesturkjördæmi og hreppa annað sætið á framboðslista flokksins. Það er til marks um jafnræði hjóna að hún ýtti Sigurði Péturssyni, eigin- manni sínum, til hliðar og tók sæti hans. Rétt er að halda því til haga að hann hvarf sjálfviljugur frá fram- boði í stað þess að verða lagður af eiginkonu sinni. Þessi mikla kjarnakona á eftir að láta mikið að sér kveða á Alþingi og von-andi fær hún ráðherra- stól. En það eru ekki allir sam- mála um ágæti þessa fyrrverandi skólameistara frá Íslafirði. Á sínum tíma reyndi Ólína eftir mætti að halda uppi aga meðal kennara ekki síður en nemenda. Það tókst ekki betur en svo að uppreisn brast á í skólanum og á endanum hrökklað- ist skólameistarinn úr starfi. Þann dag bugaðist Svarthöfði af leiða yfir skammsýni þeirra sem ekki bera skynbragð á stóra einstakl- inga. Fæstir skilja ástæður þess að hún yfirgaf Menntaskólann, en sjálf er Ólína með það á hreinu að hún sætti innri ofsóknum enskukennara og fleiri öfundarmanna. Hún var misskilin af vitsmunaverum sem þekkja ekki taðköggla frá eplum. Um tíma var Ólína dómari í hinum alræmda sjón-varpsþætti Gettu betur. Þar fengu gáfur hennar og hárprýði svo sannarlega að njóta sín. Það hvessti að vísu á stundum í samskiptum dómara og keppenda sem skyldu ekki að orð dómarans eru eins konar lög. Og Ólína gaf sig hvergi í þeim slag og stóð á sínu eins og ævinlega. Allt frá því að Ólína gekk hnarreist út úr Mennta-skólanum á Ísafirði hefur hún verið áberandi í um- ræðunni. Geislandi gáfur og innsæi hefur einkennt ræðu hennar og rit. Hún hefur undirstrikað rækilega hversu mikið tjón Menntaskólans var við brotthvarfið. Ólína stóð í vetur fyrir sam-tökum óháðra sem vildu beita sér fyrir endur-skoðun stjórnarskrárinn- ar. Áréttað var þar að þau sem að þessu stóðu stefndu ekki á þing og væru ópólitísk með tilliti til hefð- bundinna stjórnmálaflokka. Þetta var hópur sem af eindrægni barðist fyrir stjórnlagaþingi og hafði að markmiði að leiðrétta lýðræðishall- ann. Óljóst er hvað gerðist í fram- haldinu en væntanlega hafa augu Ólínu opnast fyrir því að fjórflokk- urinn er hjarta íslenska lýðveldis- ins. Í framhaldinu hefur hún ákveð- ið að fara í framboð. Samfylkingin var þá rökréttur farvegur fyrir hana. Á þeim örlagatímum sem nú eru á Íslandi er nauðsyn-legt að fá til verka kjarna-fólk. Svarthöfði er sann- færður um að Ólína er af þeirri sort sem dugir til að draga þjóðina upp úr feninu. Þegar fyrir liggur að Ingi- björg Sólrún Gísladóttir er að hætta í stjórnmálum og Jóhanna Sigurð- ardóttir vill ekki taka við kaleik for- manns Samfylkingar er lausn for- mannskreppunnar augljós. Ólína er auðvitað best til þess fallin að stýra flokknum milli skerja. Þá er víst að hún mun lúskra á þeim sem ekki fylgja stefnu hennar. Öllu skiptir að nú er Ísland að komast í réttar hendur. Þjóðin mun að sjálfsögðu fylkja sér að baki vestfirsku val- kyrjunni sem mætt er til að bjarga þjóðinni. Þriðjudagur 10. Mars 200914 Umræða Vestfirska Valkyrjan svarthöfði spurningin „Já. Talan 2 virðist ætla að loða við mig.“ Fjölmiðlamaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson náði takmarki sínu, 2. sæti, í netprófkjöri samfylkingarinnar í Norðausturkjör- dæmi um helgina. Eins og flestir vita var sigmundur forstöðumaður fréttasviðs stöðvar 2 en var sagt upp störfum fyrr á árinu. er allt þegar tVennt er? sandkorn n Sú ákvörðun Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur að hverfa úr stjórnmálum kom samherj- um hennar, sem öðrum, mjög á óvart. Staðan er grafalvarleg fyrir flokkinn þar sem örstutt er til kosninga. Dagur B. Eggertsson er af mörg- um talinn framtíðar- leiðtogi en vand- inn felst í reynsluleysi hans. Samfylkingarmenn leggja því ofuráherslu á að fá Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráð- herra til að skipta um skoðun og gefa kost á sér til að brúa bil- ið þar til nýr leiðtogi finnst. n Takist ekki að snúa Jóhönnu Sigurðardóttur beinast augu sumra að Össuri Skarphéð- inssyni iðnaðarráðherra sem sloppið hefur í gegnum banka- hrunið með óskaddaða ímynd. Össur skildi við flokkinn á sín- um í tíma í 32 prósenta fylgi og hefur yfir að ráða mikilli póli- tískri reynslu. Þá skemmir vafa- laust ekki fyrir honum að vera, ásamt Ögmundi Jónassyni heilbrigðisráðherra, guðfaðir núverandi ríkisstjórnar. Vand- inn er hins vegar áhugaleysi Össurar á því að takast á hendur verkefnið. n Slagur Illuga Gunnarsson- ar og Guðlaugs Þórs Þórðar- sonar um fyrsta sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fer stöðugt harðn- andi og muna elstu menn ekki önnur eins vígaferli. Baráttan er grimmust í myrkvið- um netsins þar sem tíðkast hin breiðu spjótin. Guðlaugur Þór þótti eiga góðan leik í stöðunni um helgina þegar haldið var pólskt kvöld á kosningaskrif- stofu hans undir handleiðslu frambjóðandans Grazyna Mar Okuniewska. Reiknað er með að í framhaldinu flykkist Pól- verjarnir í Sjálfstæðisflokkinn. n Framsóknarflokkurinn gengur í gegnum mikla endurnýjun þessa dagana, eins og Sjálfstæð- isflokkurinn. Athygli vakti þó að við uppstillingu í Reykja- vík var for- maðurinn, Sigmund- ur Davíð Gunnlaugs- son, gerður afturreka með þá til- lögu sína að vinur hans, Magnús Árni Skúlason, yrði í öðru sæti í Reykjavík norð- ur. Vefritið Pressan greindi frá því að þá hefði sá gamli refur, Alfreð Þorsteinsson, risið upp og mótmælt. Taldi hann ófært að Magnús Árni, samherji Guð- laugs Þórs Þórðarsonar, fengi sætið. Sagði hann óþarft að flytja spillingu inn í Framsókn. LyNgháLs 5, 110 rEykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: Elín ragnarsdóttir ritStjórar: jón Trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 70 50. umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Þótt henni sé það óljúft.“ n Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri og blaðamaður, um að Jóhanna Sigurðardóttir neyðist til þess að taka við formannssæti Samfylkingarinnar hvort sem henni líki það betur eða verr. - jonas.is „Þar eiga helst allir hlutir að gerast í gær.“ n Björn Bjarnason alþingismað- ur um ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. Hann segir óðagot stjórnarinnar endurspegla pólitískt skapferli hennar. - bjorn.is „Hættan á raunverulegu þjóðargjaldþroti hefur færst nær.“ n Thomas Haugaard, hagfræðingur hjá Svenska Handelsbanken í Kaupmannahöfn, í samtali við Bloomberg-fréttaveituna um þjóðnýtingu fjárfestingabankans Straums. - DV.is „Economy Comfort er almennur fargjaldaflokk- ur þar sem farþegum er boðið upp á meiri þjón- ustu.“ n Segir í lýsingu Icelandair en Vísir greinir frá því að Jón Ásgeir Jóhannesson, sem er vanur að fljúga með einkaþotum, hafi flogið á Economy Comfort til Englands. - visir.is „Ég held að við hefðum ekki getað fengið betri gest en hana.“ n Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um Evu Joly sem er komin til landsins til þess að hjálpa til við rannsókn bankahrunsins. - mbl.is Formannskreppa Leiðari Með þeirri síðbúnu ákvörðun sinni að hætta í stjórnmálum setur Ingibjörg Sólrún Gísladótt-ir Samfylkinguna í gríðarlega erfiða stöðu. Þar ríkir nú formannskreppa með tilheyrandi óróleika innanflokks. Ingi- björg var um tíma sterkur leiðtogi en fjarvist- ir vegna veikinda hafa veikt stöðu hennar svo að líklega var bakland hennar brostið. Þá voru þær raddir sífellt háværari sem kröfð- ust þess að hún axlaði sinn hluta ábyrgðar á bankahruninu og eftirleik þess. Eina færa leiðin fyrir hana var því að hætta. Hinn aug- ljósi arftaki væri Jóhanna Sigurðardóttir sem fleytt gæti flokknum í gegnum einar kosn- ingar. En forsætisráðherrann hefur enn sem komið er þvertekið fyrir að vilja formanns- stólinn. Jón Baldvin Hannibalsson, fyrr- verandi formaður Alþýðuflokksins, hefur lýst áhuga sínum á því að verða formaður. Jón Baldvin er afskaplega umdeildur innan Samfylkingarinnar og því engar líkur á því að sátt yrði um hann í það embætti. Dagur B. Eggertsson, leiðtogi borgarstjórnarflokks Samfylkingar, hefur lýst yfir framboði sínu til varaformanns. Nafn hans hefur nú dúkkað upp í tengslum við formennskuna. Dagur er óskrifað blað í landsmálum og mikil áhætta fólgin í því að fela honum æðsta embætti flokksins. Það gæti haft í för með sér fylgishrun Samfylkingar ef illa velst í formannsstól- inn. Minnsta áhættan felst í því að fá Jó- hönnu til að fallast á það að verða formaður í skamman tíma. Ef hún felst ekki á það ligg- ur í augum uppi að næstbesti kosturinn fyr- ir Samfylkinguna er Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi formaður. Hann hefur reynslu af embættinu og myndi geta brúað það bil sem myndast við skyndilegt brotthvarf Ingi- bjargar Sólrúnar. Össur hefur líka þann nauðsynlega eiginleika stjórnmálamanns að geta stappað stálinu í fólk á erfiðleikatímum án þess að vera í beinni afneitun varðandi ástandið. Aðalatriðið fyrir þjóðina er að fá til leiks leiðtoga sem trúa á framtíð velferð- arríkisins og geta vakið upp jákvæðni meðal landsmanna. reynir traustason ritstjóri skrifar: Næstbesti kosturinn fyrir Samfylkinguna er Össur Skarphéðinsson bókstafLega

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.