Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2009, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2009, Blaðsíða 8
Þriðjudagur 10. Mars 20098 Fréttir Formlegri leit lögreglu höfuðborgarsvæðisins og björgunarsveita að Aldísi Westergren hefur verið hætt. Aldís hvarf sporlaust af heimili sínu í Grafarholti þann 24. febrúar. Lögregla og björgunarsveitir hafa leitað að henni síðan en leit hefur engan árangur borið. Vigdís Rafnsdóttir, náskyld frænka Aldísar, segir að fjölskyldan vonist eftir að fá einhver svör og er afar þakklát lögreglunni og björgunarsveitum fyrir gott starf. „Vonum að Við fáum einhVer sVör“ „Þetta er alltaf erf-itt og verður alltaf erfitt.“ Formlegri leit lögreglu höfuðborg- arsvæðisins og björgunarsveita að Aldísi Westergren hefur verið hætt. Aldís hvarf sporlaust af heimili sínu í Grafarholti 24. febrúar síð- astliðinn og hefur leit að henni ekki borið árangur. Björgunar- sveitir hafa kafað í Fossvogi, Kópa- vogshöfn og Reynisvatni og fyrir helgi leituðu leitarhundar að Aldísi út frá heimili hennar í Gvendar- geisla 17 í Grafarholti. Þá tóku yfir hundrað björgunarsveitarmenn þátt í leit að Aldísi en ekkert fannst sem gat varpað ljósi á hvarf henn- ar. Að sögn lögreglu hafa alltof fáar ábendingar borist um hvarf Aldís- ar miðað við eftirgrennslan. Formlegri leit hætt Ágúst Svansson, aðalvarðstjóri lög- reglu höfuðborgarsvæðisins, segir að þó leit sé hætt sé vinnsla máls- ins í fullum gangi hjá rannsóknar- deild lögreglunnar. „Við erum að horfa yfir víðara svæði, taka fleiri skýrslur og horfa vel í kringum okkur. Formlegri leit björgunarsveita er hætt nema aðrar vísbendingar berist okk- ur. Rannsóknardeildin er komin miklu meira inn í málið. Þeir eru að vinna með vísbendingar og fara yfir stöðuna og athuga hvort það sé fleira sem má gera betur. Þetta er nýr mannskapur sem kemur að málinu og kannski sér hann aðra vinkla. Vinnsla málsins er enn í fullum gangi hjá okkur,“ segir Ág- úst. Mál Aldísar er rannsakað sem mannshvarf og að sögn lögregl- unnar er ekki talið að hvarf hennar tengist einhverju saknæmu. Halda í vonina Vigdís Rafnsdóttir, náskyld frænka Aldísar, er búsett í Vestmannaeyj- um og segir alla fjölskylduna vinna mjög náið með Ágústi Svanssyni og lögreglu höfuðborgarsvæðisins. „Við vitum að það er ekki hægt að leita nema vitað sé hvar á að leita. Lögreglan er að vinna mikið og gott starf í þessu máli þó form- legri leit sé hætt,“ segir Vigdís en sporlaust hvarf Aldísar fær mikið á ættingja hennar og aðstandendur. „Þetta er alltaf erfitt og verður alltaf erfitt. Auðvitað vonum við að hún finnist og að við fáum einhver svör. Við vitum að allir eru að gera allt sem þeir geta til að leysa úr þessu. Við erum rosalega þakklát fyrir alla þá hjálp sem við fáum.“ Hefur þú séð Aldísi? Aldís er 37 ára gömul. Hún er á milli 165 og 170 sentímetrar á hæð með skollitað axlarsítt hár. Aldís er mögulega klædd í dökkan jakka eða úlpu, dökkar buxur og með svartan og hvítan hálsklút. Þeir sem geta veitt upplýsingar um Al- dísi eru beðnir um að hringja í 444- 1100. liljA KAtRín gunnARsdóttiR blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is leitað í skurðum Yfir hundrað björgunarsveitarmenn tóku þátt í leitinni að aldísi fyrir helgi en skilyrði voru slæm vegna mikilla snjóa. Fáar vísbendingar Lögreglan hefur fengið alltof fáar vísbendingar um hvarf aldísar miðað við eftirgrennslan. Uppselt er í þrjár vélar Icelandair í golfferðir til Spánar í apríl: Kreppan drepur ekki golfbakteríuna „Málið er mjög einfalt. Við erum með þrjár leiguflugvélar frá Icelandair til Sevilla á Spáni núna í vor. Í hverri vél eru 183 sæti og okkur tókst að fylla þessar þrjár vélar á innan við tveim- ur mánuðum. Þetta eru þá eitthvað um fimm hundruð sæti. Okkur finnst þetta vera ótrúlegur árangur,“ seg- ir Peter Salmon, framkvæmdastjóri golfdeildar ferðaskrifstofunnar Vita. Vita flýgur til Sevilla og þaðan er keyrt í um einn og hálfan tíma á mjög virt golfsvæði sem eru þekkt meðal Ís- lendinga. Þar ber að nefna Islantilla Golf Resort, El Rompido og Monteca- stillo. Á hverjum stað er gist á glæsi- legum hótelum og geta þeir sem vilja bæta golfsveifluna sótt sér kennslu. „Á hverjum stað eru sjötíu til áttatíu manns með flottum fararstjórum og góðri stemningu. Þetta er yndislegt,“ segir Peter. Að sögn Peters er aðsókn í ferðirn- ar ögn minni en á sama tíma í fyrra en samt sem áður kom það starfsmönn- um Vita skemmtilega á óvart hve vel gekk að selja í ferðirnar í ár. „Þetta sýnir okkur kannski að kreppan hefur ekki áhrif. Fólk lang- ar út í sitt golf og getur ekki beðið eft- ir að fara. Fólk getur ekki horft á frost og snjó lengur. Við skipuleggjum ferð- irnar almennilega og fólk kann vel að meta það,“ segir Peter sem hefur sjálf- ur mjög gaman af golfi. „Ég hef spilað golf í hátt í fjörutíu ár. En ég fer ekki með í ferðirnar núna. Ég hef nóg að gera við að skipuleggja lúxusferðir fyrir næsta ár.“ Vegna gríðarlegrar aðsóknar í ferðirnar hefur ferðaskrifstofan Vita bætt við golfferðum í apríl og maí en ekki bara til Spánar. Vita flýgur líka til Knightsbrook á Írlandi þar sem gist er á fjögurra stjörnu hóteli og spilað á skemmtilegum átján holu velli. lilja@dv.is tveir golfvellir El rompido er fimm stjörnu hótel þar sem eru tveir átján holu golfvellir. ótrúlegur árangur Peter salmon hefur verið í ferðabransanum í fjöldamörg ár og það kom honum á óvart hve vel gekk að selja í golfferðirnar hjá Vita. Vill ekki glæsibifreið Lúðvík Lúðvíksson frambjóð- andi til formanns VR segir að sitt fyrsta verk nái hann kjöri á morgun verði að lækka laun formannsins ásamt því að selja glæsibifreið VR sem borguð er af félagsmönnum VR. Hann segir að glæsibifreiðin fari beint í sölu nái hann kjöri, það sé á hreinu. Þá muni hann fara ofan í bækur VR með hæfustu aðilum og leggja fjárfestingarstefnu VR fram til félagsmanna. Félags- menn VR þurfi að læra af mis- tökum stjórnenda sem hafi farið mikinn með eigur þeirra í VR. Fótbrot í Klambragili Rétt eftir hádegi á laugardag barst lögreglunni á Selfossi hjálparbeiðni vegna konu sem talin var fótbrotin í Klambragili sem er norðvest- ur af Hveragerði. Þarna hafði par verið á göngu er konan missteig sig og fótbrotnaði. Björgunarsveitarmenn gengu með konuna upp úr gilinu að Bitru þar sem aðrir björgun- arsveitarmenn tóku við og komu konunni til byggða. Svo óheppilega vildi til á leið- inni að samferðamaður kon- unnar steig niður í hveravilpu og brenndist á fæti og hlaut annars stigs bruna. Tekjuafgangur- inn horfinn Ein af hverjum fimm krónum sem hið opinbera hefur í tekjur í ár og á næsta ári fer í að greiða vexti af lánum. Fjármálaráðu- neytið reiknar með því að tekju- afkoma hins opinbera verði nei- kvæð um 201 milljarð króna í ár. Þetta er viðlíka fjárhæð og allur uppsafnaður tekjuafgangur hins opinbera á þensluárunum 2004 til 2007 þegar hann nam 195 milljörðum króna. Þetta kemur fram á vef Greiningar Íslands- banka. Í nýjum tölum Hagstof- unnar kemur fram að tekjuhalli hins opinbera árið 2008 hafi ver- ið 17,2 milljarðar króna, eða 1,2 prósent af landsframleiðslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.