Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2009, Blaðsíða 17
Þriðjudagur 10. Mars 2009 17Sport
Gullverðlaun oG vesen Breski spretthlauparinn dwain Chambers gæti verið
búinn að koma sér í vandræði enn eina ferðina vegna lyfjamála. Nú er það hins vegar ekki
vegna falls á lyfjaprófi eins og hann lenti í árið 2003 og var dæmdur í tveggja ára keppnis-
bann fyrir heldur ævisögu sinnar. Þar ræðir hann ítarlega og opinskátt um lyfjamál og íþróttir
en talsmaður alþjóðafrjálsíþróttasambandsins segir að sérfræðingar sambandsins muni fara
vel yfir bókina. sé eitthvað í bókinni sem gæti skaðað íþróttina opinberlega verður það rætt
á næsta fundi sambandsins í lok mars. Chambers má aldrei taka þátt á ólympíuleikum aftur
samkvæmt breskum lögum en er byrjaður að keppa aftur og varð Evrópumeistari innanhúss
í 60 metra hlaupi um helgina.
Stelpurnar okkar í íslenska kvenna-
landsliðinu í knattspyrnu leika um
fimmta sætið á Algarve-mótinu í
Portúgal eftir 2-0 tap gegn Dönum á
Algarve-mótinu í Portúgal í gær. Þær
dönsku skoruðu mark í hvorum hálf-
leik og voru heilt yfir sterkari en ís-
lenska liðið sem sótti þó í sig veðrið
í seinni hálfleik. Danska landsliðið
hreppti því annað sæti riðilsins og
leikur gegn heimsmeisturum Þjóð-
verja um bronsið, leikur sem Ísland
hefði farið í með jafntefli eða sigri.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson gerði
þrjár breytingar á íslenska liðinu
sem tapaði með minnsta mun fyr-
ir heimsmeisturum Bandaríkjanna
síðastliðinn föstudag. María Björg
Ágústsdóttir fékk tækifærið í mark-
inu og settist Guðbjörg Gunnars-
dóttir því á bekkinn. Þá komu inn
í liðið Erna Björk Sigurðardóttir og
Rakel Hönnudóttir fyrir Sif Atladótt-
ur og Söru Björk Gunnarsdóttur sem
meiddust báðar gegn Bandaríkjun-
um.
Danir voru töluvert betri en ís-
lensku stelpurnar í fyrri hálfleik og
skoruðu fyrra mark leiksins eftir
skyndisókn á 36. mínútu en Margrét
Lára Viðarsdóttir vildi fá aukaspyrnu
við vítateig Dana aðeins fáeinum
sekúndum áður. Þær dönsku bættu
svo við marki eftir að hafa sloppið í
gegnum vörn Íslands í seinni hálf-
leik. María Björg varði fyrra skot
þeirra dönsku en þær hirtu frákastið
og tryggðu sér sigurinn.
Íslenska liðið sótti í sig veðr-
ið í seinni hálfleik en tókst ekki að
minnka muninn. María Björg stóð sig
einstaklega vel í markinu og er Sig-
urður Ragnar í öfundsverðri stöðu
að geta valið á milli þriggja frábærra
markvarða en Þóra Björg Helgadóttir
var ekki leikfær fyrir mótið. Leikurinn
um fimmta sætið gegn Kína verður
háður á miðvikudaginn. tomas@dv.is
Ísland tapaði 2-0 fyrir Danmörku á Algarve-mótinu:
leikið um fimmta sætið
haukafólkið
valið best
slavica dimovska var valin besti
leikmaður seinni umferðar iceland
Express-deildar kvenna í körfubolta
en valið var tilkynnt í gær. Þjálfari
slavicu hjá Haukum, Yngvi
gunnlaugsson, var valinn besti
þjálfarinn en Haukar urðu deildar-
meistarar. Á sama tíma voru kynntir
undanúrslitaleikir í úrslitakeppninni
en þar mætast Haukar og Hamar
annars vegar og Keflavík og Kr hins
vegar. Fyrsti leikur Hauka og Hamars
er í kvöld á Ásvöllum klukkan 19.15
en á morgun mætast Keflavík og Kr
í fyrsta leik á sama tíma.
slavica var eðlilega valin í úrvalslið
seinni hluta iceland Express-
deildarinnar en Keflvíkingar áttu þar
tvo leikmenn. Þær Pálínu gunn-
laugsdóttur og gamla brýnið Birnu
Valgarðsdóttur. Þá voru í úrvalslið-
inu sigrún Ámundadóttir úr Kr og
signý Hermannsdóttir úr Val.
dugnaðarforkurinn var valin guðrún
gróa Þorsteinsdóttir úr Kr en þau
verðlaun eru ný af nálinni og voru
tekin upp á þessu tímabili. Þau
hlýtur sá leikmaður sem skilar miklu
til síns liðs inni á vellinum þó það
sjáist kannski ekki í tölfræðinni.
Seinni hluti iceland
expreSS-deildar kvenna
Besti leikmaðurinn:
slavica dimovska, Haukum
Besti þjálfarinn:
Yngvi gunnlaugsson, Haukum
dugnaðarforkurinn:
guðrún gróa Þorsteinsdóttir, Kr
Úrvalsliðið:
Pálína gunnlaugsdóttir, Keflavík
Birna Valgarðsdóttir, Keflavík
sigrún Ámundadóttir, Kr
signý Hermannsdóttir, Val
slavica dimovska, Haukum
GuðJón
framlenGDi
guðjón Þórðarson skrifaði í gær
undir nýjan samning við enska C-
deildar liðið Crewe alexandra sem
hann tók við í lok desembermánaðar.
Hann fékk að vita hvernig málum
yrði háttað hjá félaginu í nánustu
framtíð og skrifaði eftir það undir
nýjan samning. undir stjórn guðjóns
hefur Crewe unnið sjö af ellefu
leikjum sínum og komist af
fallsvæðinu. Hann hefur innbyrt 21
stig í þessum ellefu leikjum sínum en
liðið var með 16 stig eftir tuttugu og
þrjá leiki þegar hann kom. Í samtali
við staðarútvarpið hjá BBC sagðist
guðjón var ánægður með vinnu sína
og njóta hennar. „Það eru aðrir sem
ráða framtíð minni en þetta snýst
bara um að ná í góð úrslit úti á
vellinum,“ segir guðjón.
uMsjóN: tóMas Þór ÞórðarsoN, tomas@dv.is
© GRAPHIC NEWS
STERKIR HEIMA FYRIR
Flestir leikir án taps á heimavelli
Bayern
Arsenal
Man Utd
Valencia
Man Utd
Lyon
29
23
20
20
18
18
1998-02
2004-
2001-05
1999-03
2005-
2003-07
Leikvika
Heimildir: UEFA, Infostrada Sports Picture: Getty Images
8
Leikirnir 10. mars Úrslit fyrri leiks Úrslit fyrri leiks
Sporting CP
S-4 J-0 T-3
8-13
Sigrar 0
FC Bayern
S-5 J-2 T-0
17-4
Sigrar 2
Villareal
S-2 J-4 T-1
10-8
Sigrar 0
Panathinaikos
S-3 J-2 T-2
9-8
Sigrar 0
A. Madrid
S-3 J-4 T-0
11-6
Sigrar 1
FC Porto
S-4 J-1 T-2
11-10
Sigrar 0
Lyon
S-3 J-3 T-1
15-11
Sigrar 0
Barcelona
S-4 J-2 T-1
19-9
Sigrar 3
Leikirnir 11. mars
Arsenal
S-4 J-2 T-1
12-5
Sigrar 2
S-4 J-0 T-3
12-7
Sigrar 0
AS Roma
Real Madrid
S-4 J-0 T-3
9-6
Sigrar 0
S-4 J-2 T-1
10-5
Sigrar 1
Chelsea
S-3 J-3 T-1
7-4
Sigrar 0
Juventus
S-5 J-2 T-0
12-5
Sigrar 2
Liverpool
Mörk skoruð/fengin
Fyrri viðureignir
Jafntei 0
Mörk skoruð/fengin
Fyrri viðureignir
Jafntei 1
Mörk skoruð/fengin
Fyrri viðureignir
Jafntei 1
Mörk skoruð/fengin
Fyrri viðureignir
Jafntei 2
Mörk skoruð/fengin
Fyrri viðureignir
Jafntei 2
Mörk skoruð/fengin
Fyrri viðureignir
Jafntei 1
Mörk skoruð/fengin
Fyrri viðureignir
Jafntei 0
Mörk skoruð/fengin
Fyrri viðureignir
Jafntei 2
0-1 5-0
1-1
2-2 1-1
0-1
1-0
0-0 Internazionale
S-2 J-3 T-2
8-7
Sigrar 0
Man Utd
S-2 J-5 T-0
9-3
Sigrar 1
VERÐMÆTUSTU LEIKMENNIRNIR
Mörk+Stoðsendingar
Leikmenn með mesta
framlagið sóknarlega
Ribery
Klose
Messi
Lisandro
Benzema
Gerrard
Jadson
Toni
10
8
8
7
6
7
6
6
ÞEKKTAR STÆRÐIR
Oftast komist í átta liða úrslit
Manchester Utd
AC Milan
Bayern
Real Madrid
Barcelona
Juventus
9
8
8
8
7
7
Bayern
Bayern
Barcelona
Porto
Lyon
Liverpool
Shakhtar
Bayern
Á SKOTSKÓNUM
Markahæstu menn Mörk
Klose
Lisandro
Benzema
Gerrard
Messi
Berbatov
Del Piero
Gilardino
Jadson
Koevermans
6
6
5
5
4
5
4
4
4
4
Bayern
Porto
Lyon
Liverpool
Barcelona
Man Utd
Juventus
Fiorentina
Shakhtar
PSV
Fjögur lið geta bókað sér sæti í 8 liða
úrslitum meistaradeildar Evrópu í
kvöld. Bayern München er komið
áfram, og það verður að segjast alveg
eins og er eftir fáránlegan en frábær-
an 5-0 útisigur á Sporting í fyrri leik
liðanna. Panathinaikos mun vafa-
lítið stilla upp grískum varnarmúr á
heimavelli gegn Villarreal og vernda
útivallarmarkið sitt en Grikkirnir
náðu 1-1 jafntefli á Spáni.
Chelsea er í forsvari Englendinga
í baráttu Englands og Ítalíu í kvöld en
það ferðast með 1-0 sigur í fartesk-
inu til Tórínó. Stórleikurinn er á Anfi-
eld í Liverpool þar sem heimamenn
taka á móti stórveldinu Real Madr-
id. Liverpool lék Real grátt í Madríd
og er með 1-0 forskot fyrir leikinn í
kvöld. Tölfræðin er með Liverpool en
það myndi þakka pent fyrir ef Fern-
ando Torres yrði dæmdur leikfær en
það kemur í ljós seint í dag.
Ákvörðun tekin seint í dag
Fyrir tveimur vikum haltraði Fern-
ando Torres af velli í 1-0 sigri Liver-
pool á Real Madrid. Hann hefur
síðan misst af leikjum liðsins í milli-
tíðinni en er farinn að æfa í von
sinni um að ná leiknum gegn Real í
kvöld. „Við ákveðum okkur á morgun
[í dag],“ sagði Rafael Benitez, stjóri
Liverpool, um stöðuna á Torres á
blaðamannafundi í gær. „Hann hef-
ur tekið tvær léttar æfingar, svo tekur
hann aðra æfingu og eftir það ákveð-
um við okkur.“ Torres er uppalinn hjá
Atletico Madrid sem er erkióvinur
Real Madrid og yrði því ekki leiðin-
legt fyrir piltinn að skora.
Sagan og tölfræðin
Liverpool hefur verið í góðu formi í
meistaradeildinni í ár en það hef-
ur unnið fimm af síðustu sjö leikj-
um sínum, gert tvö jafntefli og ekki
fengið á sig meira en eitt mark í leik.
Það hefur þó aldrei unnið spænsk-
an andstæðing á heimavelli, alls
þrjú töp og þrjú jafntefli, en hafa ber
í huga að jafntefli fleytir Liverpool
áfram. Liverpool hefur sex sinnum
leitt einvígi í útsláttarkeppni meist-
aradeildarinnar og aðeins einu sinni
beðið ósigur.
Real Madrid hefur aðeins tvíveg-
is tapað fyrri leik í einvígi í meistara-
deildinni, 1-0. Annað skiptið gegn
Arsenal 2006 og hitt gegn Bayern
München 2001 og í hvorugt skiptið
komst það áfram. Eins hefur spænska
liðið aðeins einu sinni unnið enskan
andstæðing í útsláttarkeppninni. Þá
hefur Real Madrid ekki unnið útileik
í útslattarkeppni meistaradeildar-
innar í síðustu átta tilraunum.
tÓMaS ÞÓr ÞÓrÐarSOn
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
Seinni leikir 16 liða úrslita meistaradeildar Evrópu hefjast í kvöld. Tvö ensk lið eru
í eldlínunni og bæði eru þau í góðri stöðu. Chelsea sækir Juventus heim með eins
marks forystu og Liverpool fær stórveldið Real Madrid í heimsókn eftir frábæran sig-
ur á útivelli. Fernando torres er ennþá spurningamerki hjá þeim rauðu.
torres tæpur
fyrir stórleikinn
Byrjaður að æfa
Fernando torres getur
æft en óvíst er um
hvort hann sé leikfær.
Mynd aFp
Sif atladóttir Var ekki með vegna meiðsla.