Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.2009, Page 22
Þriðjudagur 10. Mars 200922 Fólkið
Barði Jóhannsson, betur þekktur
sem Barði í Bang Gang, fagnaði
fæðingu síns fyrsta barns í lok
febrúar. Í heiminn kom falleg
stúlka og heilsast móður og
barni vel. Unnusta Barða heitir
Elma Stefanía Ágústsdóttir, en
Barði og Elma hafa verið óað-
skiljanleg síðan þau kynntust
og á síðasta ári unnu þau einnig
saman. Elma samdi síðasta lagið
á breiðskífu Merzedes Club sem
nefnist Desire og var textinn afar
djarfur – sá djarfasti á plötunni.
„Ég fylgist með því sem er að ger-
ast í fyrirtækinu,“ segir Jóhannes
Jónsson, eigandi Bónuss, sem
stóð vaktina á laugardaginn við
opnun nýjustu Bónusverslun-
arinnar á Korputorgi í Mosfells-
bæ.
Verslunin er sú stærsta í fer-
metrum á landinu. „Það gekk
mjög vel þessa fyrstu helgi og
þetta lofar góðu,“ segir Jóhann-
es sem reynir að fylgjast með
öllum sínum verslunum. „Ég
hef nóg að gera. Ætli við séum
ekki með hundrað starfsstöðvar
um land allt og ég reyni að fylgj-
ast með þeim hvernig sem ég
get,“ segir hann og segist ávallt
reyna að vera viðstaddur opn-
anir nýrra verslana.
„Ég teki á móti viðskiptavin-
um, bæði ánægjuröddum og
kvörtunum. Þannig fylgist ég
með því sem er að gerast og fæ
það beint í æð. Ég reyni að tala
við kúnnana okkar eins og ég
geri alla daga,“ segir Jóhann-
es sem var einmitt á leiðinni í
Bónusverslun sína í Njarðvík er
blaðamaður náði tali af hon-
um. „Þar ætla ég að hitta fólk og
ræða við það um dagsins þarfir.“
völva dv:
Andrés Pétur Rúnarsson fyrr-
verandi fasteignasali opnaði um
síðustu helgi Pósthúsið í Póst-
hússtræti þar sem Red Chilli´s
veitingastaðurinn eitt sinn var.
Pósthúsið er vínbar en einnig
verður boðið upp á veitingar.
Andrés Pétur er einn eigenda
staðarins ásamt þaulreyndum
mönnum úr veitingabransan-
um. Andrés Pétur var á staðnum
og tók á móti gestum með bros
á vör. Hann var ákærður á dög-
unum fyrir ölvunarakstur og að
bjóða lögreglumönnum mútur.
Andrés Pétur
oPnAr vínbAr
„Ingibjörg Sólrún Gísladóttir hættir
sem formaður flokksins af persónu-
legum ástæðum og Össur Skarphéð-
insson tekur við stjórntaumunum á
ný en völvan sér þó Jóhönnu Sigurð-
ardóttur í einhverju lykilhlutverki.“
Textann hér að framan er að
finna í spá völvunnar fyrir árið 2009
sem birtist í áramótablaði DV. Völv-
an hefur í gegnum tíðina reynst ansi
sannspá. Þannig spáði hún árið 2007
að Dagur B. Eggertsson yrði borgar-
stjóri árið 2008 í „jafnmarga daga og
liðirnir eru í hári hans“ og að Magn-
ús Geir Þórðarson yrði ráðinn í starf
leikhússtjóra Leikfélags Reykjavík-
ur. Báðar spárnar reyndust réttar en
nú hefur komið á daginn að völvan
hefur reynst sannspá um brotthvarf
Ingibjargar Sólrúnar og um lykilhlut-
verk Jóhönnu.
Ingibjörg Sólrún tilkynnti í fyrra-
dag að hún þyrfti að hætta afskiptum
af stjórnmálum af heilsufarsástæð-
um. Jóhanna Sigurðardóttir tók sem
kunnugt er við forsætisráðherra-
stólnum fyrr á árinu en spurningin
nú er einungis sú hvort völvan
reynist sannspá um að Öss-
ur Skarphéðinsson taki
aftur við stjórnartaum-
unum í Samfylkingunni.
Meðal þeirra sem
orðaðir hafa verið
við formannsstólinn
í flokknum eru Árni
Páll Árnason, Dagur
B. Eggertsson og Jó-
hanna Sigurðardóttir,
að ógleymdum Össuri
Skarphéðinssyni.
Nú ber svo við
að í ljósi efna-
hagsaðstæðna
er þörf á
sterkum og
reynslu-
miklum
leiðtoga
og fell-
ur
Öss-
ur
vel undir þá lýsingu.
Nú þegar einungis rúmir
tveir mánuðir eru liðnir af ár-
inu hefur völvan reynst sanns-
pá um nokkur atriði. Hún spáði
því í desember að kynntar yrðu
breytingar á yfirstjórn Seðla-
bankans og honum yrði stjórn-
að af einum manni í framtíð-
inni. Þá sagði völvan að val
ríkisstjórnarinnar myndi vekja
furðu og deilur í fyrstu sem síðan
myndu hjaðna. Skipan Sveins Har-
alds Öygard í embætti seðlabanka-
stjóra vakti furðu margra þó að al-
menn sátt hafi verið um skipan hans.
Það voru þó einna helst sjálfstæðis-
menn, með Björn Bjarnason fremst-
an í flokki, sem settu spurningar-
merki við lögmæti skipanarinnar.
Völvan spáði því einnig að enn
harðari mótmæli myndu blossa upp
eftir áramót. Þau myndu þó lognast
út af þegar tilkynnt yrði um alþingis-
kosningar í vor sem og raunin varð.
Nú er spurningin sú hvort Árni Sig-
fússon, bæjarstjóri Reykja-
nesbæjar, stígi til hliðar
vegna mikilla deilna
sem tengjast fyrirhug-
uðu álveri í Helgu-
vík eða hvort Bjarni
Benediktsson taki
við for-
manns-
stóln-
um hjá
Sjálfstæð-
isflokknum,
eins og völv-
an spáði fyrir
um.
einar@dv.is
sPáði fyrir um
brotthvArf
ingibjArgAr
Völva DV hefur heldur betur reynst sannspá. Hún spáði
því um áramót að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
myndi hætta í stjórnmálum af persónulegum
ástæðum, Jóhanna Sigurðardóttir yrði í
lykilhlutverki og að einn maður tæki við
af yfirstjórn Seðlabankans.
Tekur Össur við? Össur skarphéðinsson
mun taka við stjórnartaumunum í sam-
fylkingunni, samkvæmt spá völvunnar.
Einn seðlabankastjóri Völvan spáði því að
skipan seðlabankastjóra myndi vekja furðu. Það
gerði hún þó að almenn sátt sé um skipanina.
Sannspá völva Völvan
reyndist sannspá um brott-
hvarf ingibjargar sólrúnar.
bArði
eignAst
bArn
tók á móti kúnnum
JóHanneS JónSSon Stóð Vaktina Við opnun nýrrar VerSlunar:
Jóhannes í Bónus Fylgist vel með
því sem gerist í Bónusverslunum
sínum.