Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2009, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2009, Síða 6
Fimmtudagur 2. apríl 20096 Fréttir Íslandssetrinu í Danmörku hefur ver- ið lokað fyrir Íslendingum. Baldvin Björnsson, forstöðumaður Íslands- setursins, segir ástæðuna fyrir þessu vera óréttlátan fréttaflutning Stöðv- ar 2 og Vísis 22. febrúar síðastliðinn. Þar sagði frá nafnlausum hjónum sem sökuðu Baldvin um að hafa platað sig á fölskum forsendum til Danmerkur, lofað þeim öllu fögru, en svikið þau og haft af þeim aleiguna, alls 900 þúsund krónur. Í viðtali við DV skömmu síðar sagði Baldvin að ásakanir fólksins í frétta- tímanum hefðu gjörsamlega rústað mannorði hans. Baldvin hefur hafn- að ásökunum hjónanna og birti allar upplýsingar um málið á vefsíðu sinni til þess að hreinsa mannorð sitt. Hann hefur nú gefist upp á því að markaðs- setja hótelið sérstaklega fyrir íslenska ferðalanga og hyggst leita réttar síns. Íslendingar vanir því að lokað sé á þá „Íslendingar eru eflaust orðnir vanir því að lokað sé á þá erlendis og enn ein lokunin þýðir ekki svo mikið,“ segir Baldvin. Í tilkynningu sem hann sendi DV vegna lokunarinnar, segist hann hafa ákveðið að snúa baki við löndum sínum, loka Íslandssetrinu og einbeita sér í framtíðinni alfarið að uppbygg- ingu hótelsins Lollands sem er í sama húsi og Íslandssetrið hefur verið rekið. Hann mun ekki markaðssetja hótelið fyrir íslenska ferðalanga framar. Baldvin hefur velt þessum mögu- leika fyrir sér alveg síðan málið kom upp fyrir rúmum mánuði. 27. febrú- ar sagði Baldvin í viðtali við DV: „Ég veit hreinlega ekki hvort Íslandssetr- ið verði opið fyrir Íslendinga í framtíð- inni, þegar mannorði manns er gjör- samlega rústað. Ég velti því fyrir mér hvort ég eigi ekki bara að snúa mér að fólki sem er heiðarlegt. “ Lok, lok og læs Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum fór Baldvin af stað með Íslandssetr- ið fyrir nokkrum mánuðum. Tilgang- urinn var að hjálpa fólki sem hefur ákveðið að flytja af landi brott vegna efnahagsástandsins, að fóta sig í Dan- mörku. Hann bauð upp á gistingu fyrir Íslendinga, akstur um nálægustu þétt- býlissvæði og ráðgjöf um hvert fólk á að snúa sér þegar það flytur til lands- ins. Einnig segist hann hafa ætlað að ráðleggja fólki með atvinnumögu- leika. Nú hefur Baldvin gefist upp á þessari hugmynd og segir hann mann- orð sitt hafa beðið mikinn hnekki. „Ég vil samt koma á framfæri kveðjum til þess góða fólks sem gist hefur Íslands- setrið að undanförnu, einnig þakka ég fyrir þann mikla stuðning sem fólk sýndi á erfiðum tímum meðan ófag- legur fréttafluttningur setti mannorð- ið á annan endann.“ Baldvin Björnsson, forstöðumaður Íslandssetursins í Danmörku, hefur ákveðið að loka hótelinu fyrir Íslendingum. Hann tók niður skilti Íslandssetursins á dögunum og segist ætla að einbeita sér að því að reka hótelið en ekki markaðssetja það fyrir Íslendinga. Hann segir ástæðuna vera þann hnekki sem mannorð hans varð fyrir eftir að Stöð 2 og Vísir birtu viðtal við íslensk hjón sem sökuðu hann um að hafa haft af þeim aleiguna. Lokað magnús Einarsson, starfsmaður íslandssetursins, tók niður skilti íslandssetursins um síðustu helgi. ÍSLANDSSETRIÐ LOKAR Á ÍSLENDINGA „Íslendingar eru eflaust orðnir vanir því að lok- að sé á þá erlendis.“ vaLGEIR ÖRN RaGNaRSSON blaðamaður skrifar: valur@dv.is Setuverkfall hjá rektornum Röskva, samtök félagshyggju- fólks við Háskóla Íslands, blása til setuverkfalls stúdenta á skrif- stofu rektors Háskóla Íslands klukkan átta í dag. Stúdentarn- ir fara fram á að Háskólinn taki upp sumarannir til að koma til móts við nemendur en seinna í dag er háskólaráðsfundur þar sem málið verður tekið fyrir. Sigfús Steingrímsson, for- maður Röskvu, segir að mik- il svartsýni ríki meðal nem- enda Háskóla Íslands. „Það eru margir sem sjá fram á að verða atvinnulausir í sumar og fólk er frekar svartsýnt. Því er gríðar- lega mikilvægt að eitthvað verði gert. Eftir því sem ég hef heyrt er þetta mjög ódýr lausn,“ segir Sigfús. Bjargað úr eldsvoða Öryggisvörður Securitas sýndi snarræði þegar hann bjargaði manni út úr brennandi íbúð við Mávatjörn í Reykjanesbæ aðfaranótt 31. mars. Talsverð- ur eldur logaði í potti á eldavél þegar öryggisvörðurinn kom að húsinu, en íbúðin er tengd við öryggiskerfi Securitas. Öryggisvörðurinn kallaði þegar til slökkvilið Bruna- varna Suðurnesja og fór síðan inn í íbúðina og bjargaði hús- ráðanda út, sem hafði sofnað í sófa. Þá var þykkur reykur inni í íbúðinni. Eftir að hafa komið húsráðandanum út fór öryggisvörðurinn aftur inn og slökkti eldinn. Það kom síðan í hlut slökkviliðs Brunavarna Suðurnesja að reykræsta húsið. Löggan stöðvar dópframleiðslu Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í húsi í Hafn- arfirði í fyrrinótt. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 220 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Einnig var lagt hald á all- marga gróðurhúsalampa. Karl á fertugsaldri var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins. Síðustu vikuna hefur verið lagt hald á rúmlega þúsund kanna- bisplöntur í Hafnarfirði. Tveir milljarðar greiddir í bætur Vinnumálastofnun greiddi í gær út tæpa 2 milljarða króna í atvinnuleysistryggingar til um 15 þúsund einstaklinga. Um síð- ustu mánaðamót voru greiddar út atvinnuleysistryggingar til um 14 þúsund einstaklinga. Í gær var greitt út fyrir tíma- bilið 20. febrúar til 19. mars. 17.782 einstaklingar eru skráðir atvinnulausir á vef Vinnumálastofnunar, þar af 11.920 á höfuðborgarsvæðinu. 1.879 eru skráðir á Suðurnesj- um, 1.571 á Norðurlandi eystra og 1.035 á Suðurlandi. Foreldrar barna í Fjölbrautaskóla Suðurlands eru áhyggjufullir yfir ástandi sem hefur skapast í skóla- bifreið sem ekur nemendum frá Hvolsvelli og Hellu að skólanum á Selfossi. Hópur ungmenna hefur að sögn eins foreldris útkljáð deilumál sín í skólabílnum sem hafa endað með slagsmálum, hópur nemenda hafi til að mynda ráðist á aðra nem- endur í rútunni og veist að farþeg- um þannig að aðrir nemendur þora vart að taka rútuna. Skólarútan er einnig áætlunarbíll Guðmundar Tyrfingssonar og seg- ir einn þeirra sem oft sitja í rútunni að eldri borgarar þori heldur ekki að taka rútuna frá Selfossi að Hvolsvelli á þeim tíma sem skólakrakkarnir eru með. Í að minnsta kosti eitt skipti síð- asta haust var átt við skólarútuna þannig að hún fór ekki í gang dag- inn eftir. Gripið var til þess ráðs að geyma rútuna á sveitabæ til þess að koma í veg fyrir frekari skemmdar- verk. „Suðurlandsvegur er hættuleg- asti þjóðvegur landsins, það er verið að keyra í alls konar veðrum og að- stæðum þar sem nánast er ófært á milli, á meðan er allt brjálað í bíln- um,“ segir áhyggjufullt foreldri í við- tali við DV. Þegar DV hafði samband við bílstjóra skólabílsins og bar undir hann frásögn foreldranna, neitaði hann því ekki að svona væri í pott- inn búið. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Þórarinn Ingólfsson, aðstoð- arskólameistari í FSU, segist ekki þekkja til þess að eineltismál í skóla- rútunni hafi komið inn á borð til skólayfirvalda. „Ég hef heyrt að það sé stundum fjör í rútunni, það er hluti af því að unglingar séu saman,“ segir hann aðspurður hvort skólinn hafi haft aðkomu að málinu. valgeir@dv.is Uppivöðslusemi framhaldsskólanema í skólarútu veldur áhyggjum: Eldri borgarar þora ekki í rútuna Frá Hvolsvelli Hópur unglinga er sagður hafa veist að öðrum nemendum í rútunni. Eldri borgarar forðast að taka rútuna á þessum tíma.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.