Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2009, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2009, Blaðsíða 21
Fimmtudagur 2. apríl 2009 21Fókus á fimmtudegi hvað heitir lagið? „Þér líður eins og ókunn- ugum, aleinn, skinn og bein, við símann.“ Konur hrapa Metsölubókin Karlar sem hata kon- ur situr þriðju vikuna í röð á toppi sölulista Eymundsson og Bókabúð- ar Máls og menningar. Bókin, sem er eftir hinn látna Stieg Larsson, kom nýlega út í kilju og hefur fengið gríðarlega góðar viðtökur. Athyglis- vert er að Konur eftir Steinar Braga hrapar úr öðru sæti niður í það sjötta eftir að hafa verið á toppnum og við hann í þó nokkrar vikur, eða frá því kiljuútgáfa þessarar mögn- uðu sögu kom út snemma á árinu. Sæti Kvenna í öðru sætinu hefur tekið Stóra myndaorðabókin en fast á hæla henni kemur skáldsagan Hús moskunnar eftir Abdolah Kader. egó á aKureyri Hin goðsagnakennda Egó spilar í Sjallanum á Akureyri á laug- ardagskvöldið. Alllangt er síðan hljómsveitin spilaði síðast á Ak- ureyri en það var í Sjallanum fyrir troðfullu húsi. Undanfarið hefur Egó átt vinsælasta lagið á Íslandi, Í hjarta mér, og er það af vænt- anlegri geislaplötu sveitarinnar sem kemur út síðar á þessu ári. Á prógrammi hljómsveitarinnar eru, ásamt Egó-lögunum, mörg af vinsælustu lögum Bubba í gegnum tíðina, bæði með öðrum hljómsveitum hans og frá sóló- ferlinum. Miðaverð er 1.800 krón- ur og miðasala er á midi.is. pops á Kringlu- Kránni Í tilefni af tuttugu ára afmæli Kringlukrárinnar verður slegið upp Bítlaballi á kránni með „unglinga- hljómsveitinni“ Pops, lifandi goð- sögn frá sjöunda áratugnum, um helgina sem fram undan er, bæði föstudag og laugardag. Pops er með valinn mann í hverju rúmi, þar á meðal stórstjörnurnar og Keflavíkur- bítlana Gunnar Þórðarson og Magn- ús Kjartansson. Pops sýndi það um síðustu áramót að sveitin hefur aldrei verið þéttari og lofar Óttar Fel- ix, umboðsmaður bandsins, nógu af rokki, rytmablús og bítli í anda sjö- unda áratugarins. Miðasala á böllin hefst á Kringlukránni klukkan 22 bæði kvöldin. Þrándur Þórarinsson listmálari opnar einkasýningu á Laugavegi 51 á laugardaginn klukkan 14. Á sýn- ingunni verða átján olíumálverk sem Þrándur hefur unnið frá því á síðustu sýningu sinni, sem haldin var fyrir ári, til dagsins í dag. Þránd- ur sækir viðfangsefni sín meðal annars í þjóðsögur og Íslendinga- sögurnar og eru Grýla, Grettir Ás- mundsson, Heklugos, Þorgeirsboli, Egill Skallagrímsson, fjallkonan, Illugadrápa og Flugumýrarbrenna meðal þess sem birtist ljóslifandi í verkum Þrándar. „Ég mála svona í stíl gömlu meistaranna sem voru allir í olíu og þessum barokkstíl,“ sagði Þránd- ur í viðtali við DV fyrir sýninguna í fyrra. Þar kom einnig fram að aðal- átrúnaðargoð Þrándar væri Rembr- andt, eins og glöggt má sjá í verkum hans. Þrándur er fæddur árið 1978 og nam málaralistina hjá norska list- málaranum Odd Nerdrum á árun- um 2003 til 2006 en Nerdrum er stórt nafn í natúr- alíska geiranum. Áður hafði Þrándur sótt fornámsdeild Listaháskóla Ís- lands og hvort sitt árið í málaradeild Myndlistaskólans á Akureyri og mál- aradeild Listahá- skóla Íslands. Sýningin stend- ur til 19. apríl og er opin daglega frá klukkan 13 til 17. grýla, grettir og Þorgeirsboli Madworld ber nafn með rentu. Það er varla til geðveikari og ofbeldisfyllri heimur en framleiðendum þessa leiks hefur tekist að skapa. Ofbeld- ið er algjört og blóðsúthellingarn- ar eftir því. Það er svo sem ekki við neinu öðru að búast í leik þar sem aðalpersónan er með vélsög fasta við framhandlegginn. Í leiknum Madworld bregður maður sér í hlutverk hins grjótharða málaliða Jacks Cayman. Hann er eini maðurinn sem fer vísvitandi inn á eyju í borginni Varrigan City sem hefur verið hertekin af hryðjuverka- mönnum sem kalla sig The Organ- izers. Samtökin standa fyrir leik sem ríkt og sjúkt fólk fylgist með. Leikur- inn heitir Death Watch og gengur í raun út á að drepa aðra áður en þeir drepa þig. Á ferð sinni um borgina sigrar Jack alls konar óþverralið en skipuleggj- endur leiksins komast brátt að því að Jack karlinn er ekki allur þar sem hann er séður. Mad World er allur svarthvítur að einu undanskildu. Blóðið er rautt og það er nóg af því. Leikurinn gengur ekki bara út á að slátra þeim sem á vegi þínum verða heldur að gera það á eins ofbeldisfullan hátt og hugs- ast getur. Þú færð fullt af stigum fyrir að saga mann í sundur með vélsög- inni þinni en þú færð fleiri stig fyrir að grýta honum í gaddavegg. Þú færð svo enn fleiri stig ef þú treður hon- um í tunnu og rekur umferðarskilti í gegnum höfuð hans áður en þú kast- ar honum á gaddana. Hvert borð er svo byggt upp með alls kyns frumlegum leiðum til þess að slátra andstæðingunum. Þeir eru margir og koma í bunkum. Í hverju borði er svo yfirleitt einn öflugri andstæðingur fyrir utan aðalóvin- inn. Endakarlarnir eru fjölbreyttir og skemmtilegir. Þeir eru miserfiðir en yf- irleitt er auðvelt að afgreiða þá eftir að maður lærir á veikleika þeirra. Grafíkin í Madworld er frábær. Svarthvíta útlitið er bara ferskt og gef- ur blóðinu, ó öllu blóðinu, nýja vídd. Tónlistin í leiknum er fín líka og það sem kryddar skemmtunina eru lýs- endurnir sem lýsa ofbeldisverkum manns eins og afrekum í íþróttaleik. Framboðið af endakörlum er mikið og það er jákvætt. Þeir mættu þó vera erf- iðari sumir. Helsti galli leiksins er að hann er allt of stuttur. Það er hægt að spila hann tvisvar í gegn án þess að fá leið en hann er samt of stuttur. Þá mætti bardagakerfi leiksins vera mun fjöl- breyttara. Á endanum er maður hætt- ur að nenna að berja menn í spað og aflífa þá svo. Vélsögin er á lofti mest- allan tímann. Myndavélin sem fylgir manni getur líka verið vel pirrandi og fylgir oft illa eftir þeim hamagangi sem Jack virðist laða að sér. Mesta skemmtunin er þó senni- lega allar áskoranirnar í boði The Black Baron. Allt frá því að kasta líkum eins og pílum eða nota höf- uð sem golfkúlur. Söguþráður leiks- ins er líka ágætis skemmtun og allir raddir í leiknum eru sannfærandi og skemmtilegar. Ásgeir Jónsson Blóð og aftur Blóð Jack Cayman Finnst fínt að koma hlutum fyrir í mönnum áður en hann aflífar þá. Svar: personal Jesus með Johnny Cash, depeche mode o.fl. Madworld Tegund: Hasarleikur Spilast á: Nintendo Wii tölvuleikir Þrándur Þórarinsson listmálari lærði hjá listmálaranum fræga Odd Nerdrum á árunum 2003 til 2006. MYND Sigurður guNNarSSoN grýla Eitt af verkunum sem berja má augum á sýningunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.