Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2009, Blaðsíða 3
mánudagur 20. apríl 2009 3Fréttir
DEILT UM ÓKLÁRAÐA
LÍKAMSRÆKTARSTÖÐ
Minnihlutinn í bæjarstjórn Akureyrar
er ósáttur við stöðuna á hálfkláraðri
líkamsræktarstöð sem stendur við
hliðina á sundlauginni á Akureyri en
framtíð byggingarinnar hefur verið í
óvissu síðustu mánuði. Byggingin er
í eigu Vaxtarræktarinnar á Akureyri
sem kraftajötunninn Sigurður Gests-
son á og rekur. Verktakafyrirtæki Páls
Alfreðssonar hefur unnið að bygg-
ingu hússins.
Engin vinna hefur verið við bygg-
inguna frá bankahruninu í haust
þegar Landsbankinn skrúfaði fyr-
ir lánveitingar til eigendanna, seg-
ir Sigurður Gestsson. „Við ætluðum
að opna í haust; um það leyti sem
Ísland hrundi. Þá fór auðvitað allt til
fjandans. Við höfum verið í biðstöðu
síðan,“ segir Sigurður.
Deilur um húsið frá byrjun
Nokkur styr hefur staðið um bygg-
ingu líkamsræktarstöðvarinnar á Ak-
ureyri frá því leyfi var veitt fyrir henni
fyrir þremur árum. Margir Akureyr-
ingar voru ósáttir við byggingu lík-
amsræktarstöðvarinnar á lóðinni,
sem er ein besta byggingarlóð bæj-
arins, segir Jóhannes G. Bjarnason,
bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins
á Akureyri. Jóhannes segir að um
1.500 Akureyringar hafi skrifað und-
ir undirskriftalista og lýst sig andvíga
byggingunni. „Þetta er hálfgerð sorg-
arsaga. Þetta er hús sem mjög marg-
ir voru á móti að væri byggt og nú er
óljóst hvort það verður klárað. Nú
stendur þetta hús hálfkarað þarna,“
segir Jóhannes og bætir því við að
lóðin hafi verið hugsuð sem framtíð-
arbyggingarsvæði fyrir sundlaugina
á Akureyri.
Kristján Þór heimilaði bygging-
una
Bæjarfulltrúinn var á móti byggingu
hússins frá upphafi en Akureyrar-
bær gerði samning um byggingu
þess skömmu fyrir síðustu bæjar-
stjórnarkosningar árið 2006 þegar
Kristján Þór Júlíusson þingmaður
var bæjarstjóri. „Það sem er athuga-
vert við þetta er að þáverandi bæj-
arstjóri, Kristján Þór Júlíusson, gekk
frá samningnum um að líkamsrækt-
arstöðin yrði byggð nokkrum dög-
um fyrir síðustu kosningar og úthlut-
aði lóðinni til þess án þess að hafa
samráð við þáverandi samstarfsflokk
sinn í bæjarstjórn. Auðvitað vakna
margar spurningar upp vegna þess,“
segir Jóhannes en Sigurður Gestsson
og Kristján Þór eru aldavinir og veiði-
félagar samkvæmt heimildum.
Unnið er að heildarúttekt á bygg-
ingu hússins á bæjarstjórnarskrift-
ofum Akureyrarbæjar um þess-
ar mundir, segir Jóhannes. Búist er
við að úttektinni verði lokið á
næstu tveimur til þrem-
ur vikum.
Framtíð bygg-
ingarinnar
óljós
Jóhannes segir
þó að vonandi
náist að klára
bygginguna
því margfalt
dýrara sé að
gera það ekki.
„Ég vil ekk-
ert heitar en
að Sigurður
og Páll nái að
klára bygging-
una því þeir eru
hálfgerðir þolendur
í þessu máli, jafnvel þó
ég hafi verið á móti því
að byggja húsið þarna
á sínum tíma. En
það veltur
auðvitað allt á því hvernig Lands-
bankinn snýr sér í þessu máli,“ segir
Jóhannes.
Sigurður Gestsson segist vera von-
góður um að ná að tryggja sér lána-
fyrirgreiðslu fljótlega svo hægt verði
að ljúka byggingu hússins. Hann seg-
ir að ef það tekst geti verið hægt að
ljúka við bygginguna á einum mán-
uði. „Þetta lítur allt miklu betur út
núna og ég er nokkuð bjartsýnn. Það
er komin ákveðin staða upp sem mér
sýnist vera vænleg,“ segir Sigurður.
Aðspurður segir Sigurður að Lands-
bankinn muni áfram veita lánafyrir-
greiðslu til byggingar hússins en að
hann geti ekki veitt frekari upplýs-
ingar um lendinguna í mál-
inu að svo stöddu en
að málið muni skýr-
ast á næstu dög-
um.
Hann
segir að ef
vel gengur
vonist hann
til þess að
hægt verði að
opna líkams-
ræktarstöð-
ina næsta
haust.
Deilur hafa staðið um ókláraða líkamsræktarstöð á Akureyri sem ljúka átti við síðasta
haust. Unnið er að úttekt á byggingunni á bæjarstjórnarskrifstofum Akureyrarbæjar.
Bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins kallar byggingu hússins „sorgarsögu“. Kristján
Þór Júlíusson, þingmaður og fyrrverandi bæjarstjóri, hefur verið gagnrýndur fyrir
aðkomu sína að málinu.
„Þetta er hálfgerð sorg-
arsaga. Þetta er hús
sem mjög margir voru
á móti að væri byggt og
nú er óljóst hvort það
verður klárað.“
IngI F. VIlhJálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
líkamsræktarstöðin umdeilda Eig-
andi líkamsræktarstöðvarinnar, Sigurður
gestsson, segist vera vongóður um að ná
að tryggja sér lánafyrirgreiðslu svo hægt
verði að ljúka við byggingu hússins.
hrikalegur á Ítalíu Sigurður gestsson,
margfaldur íslandsmeistari í vaxtarrækt,
er eigandi líkamsræktarstöðvarinnar
ókláruðu á akureyri. Fyrirgreiðslu skort-
ir til að halda áfram með bygginguna.
Sigurður sést hér í glæsilegri pósu á
Sikiley fyrir nokkrum árum.
Deilur um húsið frá byrjun um 1500
akureyringar mótmæltu byggingu
líkamsræktarstöðvarinnar árið 2006 en
Kristján Þór Júlíusson, þingmaður og
fyrrverandi bæjarstjóri, gerði samninga
um byggingu hennar fyrir hönd
bæjarins skömmu áður en hann lét af
störfum.
TEKnIR MEÐ SLÖngUbÁT
DREKKhLAÐInn Af DÓpI
í hálfkæringi vil ég meina, að þessi
hraðskreiði bátur yrði hentugur
þegar skúturnar færu að koma,“
segir hann og á þar við slöngu-
bátinn sem smyglararnir notuðu
til að sækja fíkniefnin í skútuna á
hafi úti.
ný tegund af farfuglum
„Eftir á að hyggja hafa menn
kannski kveikt á ákveðnum hlut-
um en það var ekkert sem lá í loft-
inu um að þetta væri að gerast,“
segir Björn Hafþór.
Hann játar því að vissulega
sé það áfall að komast að því að
smygl á tugum kílóa fíkniefna
hafi verið skipulagt frá höfninni.
„Það er óhætt að segja það. En
þetta virðist geta gerst hvar sem
er. Þetta er eins og með farfugl-
ana. Þeir koma hingað upp að
suðausturströndinni. Þetta er
kannski bara ný tegund af farfugl-
um,“ segir Björn Hafþór.
Í gæsluvarðhald Þremenn-
ingarnir voru úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til 11. maí. Þeir
voru leiddir fyrir Héraðsdóm
reykjavíkur í gær.
mynDIr róbert