Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2009, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2009, Blaðsíða 21
mánudagur 20. apríl 2009 21Fókus á m á n u d e g i Hvað veistu? 1. Kvikmyndahátíðin Bíódagar hófst í Háskólabíói um helgina. Opnunarmyndin er íslensk, hvað heitir hún? 2. Frambjóðandi Samfylkingarinnar keyrir um á jeppa sem 365 á. Hver er maðurinn? 3. Hver var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitakeppni íslandsmótsins í körfuknattleik sem lauk í síðustu viku? Útskriftar- sýning LHÍ Vídeóskúlptúrar, ljósmyndir, furðu- verur, hljóðbókhlaða, veggflísar, maríubjalla, innsetningar, útiverk, friðasúlur og besti vinur mannsins. Þetta og margt fleira getur að líta á útskriftarsýningu nemenda mynd- listardeildar og hönnunar- og arki- tektúrdeildar Listaháskóla Íslands sem opnuð verður á Kjarvalsstöð- um á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta, klukkan14. Í ár eru um sjötíu útskriftarnemendur sem sýna verk sín, meirihlutinn í hönnunar- og arkitektúrdeild en aðrir í myndlistar- deild. Sýningin stendur til 3. maí og er opin daglega frá klukkan 10 til 17. Aðgangur er ókeypis. Meðfylgjandi mynd er frá útskriftarsýningunni á Kjarvalsstöðum í fyrra sem fjölmarg- ir sóttu. kaLLað á end- urfLutning Einleikurinn Ódó á gjaldbux- um eftir Ásdísi Thoroddsen og í hennar leikstjórn var frumsýnd- ur í Hafnarfjarðarleikhúsinu í gær. Verkið er þjóðleg hroll- vekja skrifuð árið 2005 en kveikja einleiksins var andrúmsloftið í þjóðfélaginu á þeim tíma, ekki síst viðtöl í fjölmiðlum við út- rásarvíkinga. Einleikurinn var fluttur í Útvarpsleikhúsinu 2007 undir heitinu Kvöldstund með Ódó. Jóhanna Vigdís Arnardóttir fór þá með hlutverk ódæðunn- ar en nú fer Þórey Sigþórsdóttir með hlutverk hennar. „Sérstakar aðstæður íslensku þjóðarinnar kölluðu á endurflutning,“ segir í tilkynningu. Næstu sýningar eru á fimmtudag og laugardag og er miðasala á midi.is og í Hafnar- fjarðarleikhúsinu. ÖfLug kiLjuÚtgáfa JPV-útgáfa ryður út kiljum þessa dagana. Fimm kiljur sem nutu nokk- urra vinsælda í innbundnum útgáf- um fyrir jól hafa komið út síðustu daga. Þetta eru 10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp eftir Hallgrím Helgason, Sjöundi sonur- inn eftir Árna Þórarinsson, Dóttir myndasmiðsins eftir Kim Edwards, Bókaþjófurinn eftir Markus Zusak og loks spennusagan Fundið fé eftir sænska lögfræðinginn Jens Lapidus. Þá kom út í kiljuformi í síðustu viku bókin Dóttir hennar, dóttir mín, sem ekki hefur áður komið út á íslensku. Bókin er eftir Dorothy Koomson sem notið hefur mikilla vinsælda í Bret- landi en þetta er fyrsta bók hennar sem þýdd er á íslensku. Maður hefur svo sem aldrei spáð al- mennilega í stera. Maður sér þetta við og við í fréttunum, og svo held- ur maður að menni fái lítið typpi og verði skapvondir af þessu. Þeg- ar maður horfir á Bigger Stronger Faster kemst maður hins vegar að því að það er haugalygi. Svona rétt eins og þegar okkur er talin trú um að sígarettur og áfengi séu skaðm- inni efni en kannabis. Chris Bell, sögumaður og aðalstroff myndar- innar er nett vöðvatröll. Hann hef- ur aldrei eitrað (notað stera) vegna þess að honum finnst það óheið- arlegt. Bræður hans hinsvegar eru báðir á djúsnum og ná miklu betri árangri en hann. Reynir hann því að komast að nákvæmlega hver áhrif stera eru og hversu útbreiddir þeir eru. Bell kemst að ýmsu á ferðalagi sínu, talar meðal annars við virta lækna og sérfræðinga, sem spyrja heiðarlega; hvernig geta sterar bætt þá sem eru veikir fyrir, en eiga svo að hafa neikvæð áhrif á hina? Þá fjallar hann um hið tvöfalda siðgæði Bandaríkjamanna, þjóðarinnar sem bannar steranotkun, en hverrar for- seti ræður Arnold Scwharzenegger til að vera lýðheilsuráðgjafi sinn. En Arnold segir opinberlega að hann myndi ekki hika við að nota stera, ætti hann að endurtaka lyftingaferil sinn. Chris er stórgóður heimildar- myndagerðarmaður, sem hikar ekki við að spyrja erfiðra spurninga þeg- ar þess þarf. Bigger Stronger Faster er ekki aðeins heimildarmynd um intressant efni, heldur heimild um ákveðið lífsviðhorf. Vöðvadraum- urinn. Muscle Beach í Kaliforníu, Golds-Gym. Afhjúpanir á lyfjanotk- un bandarískra íþróttamanna. Sjáið þessa, hún er illa feit á því. Og djöf- ull langar mig að dæla í mig testa, deka, HGH, you name it. Dóri DNA. Óþægilega steraður sannleikur Þar sem bæði Svíar og vampírur eru fórnarlömb alls kyns fordóma er hætt við því að fólk sniðgangi umhugsun- arlaust bíómynd sem sameinar þessi tvö fyrirbæri. Þess vegna er best að taka það fram áður en lengra er hald- ið að sænska vampírumyndin Låt den rätte komma in er alveg hreint frábær bíómynd og skipar sér í flokk með allra bestu blóðsugumyndum sem gerðar hafa verið. Låt den rätte komma in segir frá Óskari, álkulegum, einmana og ut- angátta dreng sem elst upp í hrörlegu úthverfi Stokkhólms árið 1982. Hann er lagður í einelti og á undir högg að sækja en líf hans tekur dramatískum breytingum þegar jafnaldra hans, hin dularfulla Eli, flytur í næstu íbúð. Óskar verður bálskotinn í Eli sem virðist vera alger himnasending þar sem hún gefur Óskari styrk til þess að standa uppi í hárinu á eineltispúkun- um. Hún er þó ekki öll þar sem hún er séð. Hún þolir ekki sólarljós, hefur andstyggð á mat og getur ekki geng- ið inn í herbergi nema henni sé boðið sérstaklega inn. Óskar kemst síðan að því að kærastan hans er búin að vera 12 ára svolítið lengi og tryggir sér eilífa æskuna með því að bíta fólk í hálsinn og drekka úr þeim allt blóð. Þegar Óskar kynnist Eli býr hún með eldri manni sem er henni til halds og trausts og ber í hana blóð sem hann hefur tappað af ungu fólki sem hann hefur hengt upp á hvolf og skorið á háls. Lögreglan er því á hött- unum eftir raðmorðingja og auðvitað hvarflar ekki að neinum að í raun sé alvöru vampíra að terrorísera Stokk- hólm og nærsveitir. Þar sem við erum með annan fótinn í alvöru hryllingi en hinn í sænskum sósíalraunveru- leika eru allar persónur ósköp mann- legar og um leið klaufalegar þannig að þjónn Eliar lendir í klóm yfirvalda. Þegar Eli hefur misst þennan Ren- field sinn vandast málin þar sem það fer ekki fram hjá mörgum þegar 12 ára unglingur trylltur af blóðþorsta fer að drekka úr gestum hverfisbars- ins. Hringurinn þrengist því um litlu vampíruna og dauðlegan kærastann hennar sem sjálfur stendur í bölvuðu stappi þar sem eineltispúkarnir gera gagnárás tvíefldir eftir að hann fór að ráðum blóðsjúgandi kærustunnar og svaraði áreiti þeirra með ofbeldi. Styrkur þessarar dásamlegu mynd- ar er fyrst og fremst fólginn í angur- værri fegurð hennar. Þetta er ósköp snotur og falleg ástarsaga tveggja unglinga með sterka undirtóna vampírismans í bakgrunninum. Til einföldunar má segja að Låt den rätte komma in sé einhvers konar „Eð- varð Ingólfsson meets Stephen King“ dæmi. Þetta fallega samband Óskars og Eli er nefnilega auðvitað nett per- vertískt þar sem það segir sig sjálft að eitthvað sjúkt hlýtur að búa að baki í tilfinningasambandi 12 ára stráks og blóðsugu sem getur þess vegna verið mörghundruð ára þótt hún sé í 12 ára líkama. Þeir sem þekkja til vampíra vita líka að þeim er ekki vel treystandi og áhorfandinn hlýtur að spyrja sig út alla myndina hvað Eli gangi raunverulega til með því að leggja lag sitt við Óskar. Elskar hún hann í alvörunni? Eða er hún kannski bara að krækja sér í nýj- an framtíðarþjón til að færa sér ylvolgt mannablóð í bensínbrúsa? Lögin í þessari sögu eru svo mörg að hún verður bara dýpri og dýpri eftir því sem frá líður og hún sækir á mann löngu eftir að maður hefur stigið út úr bíóinu. Slíkt gera auðvitað bara góðar bíómyndir og mjög góðar hryllings- myndir og Låt den rätte komma in er bæði. Sagan er frábær, sögð á skemmti- legan hátt og vampíran hefur sjald- an verið jafn trúverðug og þegar hún dúkkar upp í líki 12 ára, fölrar og dökkhærðrar stelpu í Svíaríki. Stór- leikur krakkanna í aðalhlutverkum gulltryggir svo að myndin hitti mann beint í hjartastað en maður man varla eftir öðrum eins tilþrifum hjá ungum byrjanda og Lina Leandersson sýnir í hlutverki blóðsugunnar. Kåre Hede- brant er líka frábær í hlutverki Ósk- ars en Lina toppar allt þegar hún um- turnast á augnabliki úr 12 ára stelpu í blóðþyrst villidýr. Stundum eru skræfum og við- kvæmum sálum bent á að sniðganga ákveðnar hryllingsmyndir en í þessu tilfelli er rétt að vara fólk við því að missa af Låt den rätte komma in. Hún er svo miklu meira en hryllingsmynd og fólk sem almennt leggur á flótta undan blóðsugum ætti að kasta sér í faðm Eliar. Hún bítur ekkert voðalega fast en maður verður samt ekki samur maður á eftir. Þórarinn Þórarinsson banvænt krÚtt Hin 14 ára gamla Lina Leandersson Sýnir lágstemmdan stjörnuleik í frumraun sinni á hvíta tjaldinu í hlutverki vampírunnar eli. Låt den rätte komma in Leikstjóri: Tomas alfredson Aðalhlutverk: Kåre Hedebrant, lina leandersson kvikmyndir Bigger Stronger FaSter Leikstjóri: Chris Bell Aðalhlutverk: Chris Bell, mark Bell og mike Bell. kvikmyndir Vöðvarnir hnyklaðir Heimild um lífsviðhorf og viðfangsefni. Svör: 1. Me & Bobby Fischer 2. Sigmundur Ernir Rúnarsson 3. KR-ingurinn Jón Arnór Stefánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.