Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.2009, Síða 4
mánudagur 20. apríl 20094 Fréttir
Það er undir afstöðu rannsóknarnefndar um bankahrun komið hvort haldinn verður
fundur í utanríkismálanefnd í vikunni. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknar-
flokksins, vill að þar verði létt trúnaði af gögnum sem stjórnvöld hafa fengið nefnd-
inni í hendur um Icesave-deiluna og fall Landsbankans helgina örlagaríku í byrjun
október. Formaður utanríkismálanefndar bíður svara frá nefndinni og boðar fund
þyki nefndinni óhætt að ræða gögnin í trúnaði.
REYNT AÐ AFLÉTTA
ICESAVE-LEYNDINNI
Siv Friðleifsdóttir, Framsóknarflokki,
hefur óskað eftir fundi í utanríkis-
málanefnd Alþingis í kjölfar svara
sem hún fékk við fyrirspurn sinni til
forsætisráðherra fyrir helgi um ýmsa
þætti Icesave-deilunnar. „Ráðuneyt-
ið lýsir sig reiðubúið til þess að kynna
utanríkismálanefnd gögnin í trúnaði
hafi rannsóknarnefnd um aðdrag-
anda og orsakir bankahrunsins ekk-
ert við það að athuga,“ segir Siv sem á
sæti í utanríkismálanefnd.
Árni Þór Sigurðsson, VG, formað-
ur utanríkismálanefndar, kveðst bíða
eftir svari rannsóknarnefndarinnar
um það hvort hún fallist á að trúnaði
verði aflétt af gögnum sem nefndin
hefur fengið í hendur. „Ég hef þegar
lagt þetta fyrir rannsóknarnefndina
og býst við að fá svör frá henni í byrj-
un vikunnar.“
Öll gögn komin til rannsóknar-
nefndarinnar
Öll tiltæk gögn í forsætisráðuneytinu
sem varða aðdraganda banka-
hrunsins, þar á meðal
minnisblöð um samtöl
Geirs H. Haarde, þá-
verandi forsætisráð-
herra, við breska
ráðamenn í byrjun
október, hafa verið
afhent rannsókn-
arnefnd Alþing-
is.
Þetta kemur
fram í svari Jó-
hönnu Sigurð-
ardóttur forsæt-
isráðherra við
fyrirspurn
Sivjar
Frið-
leifsdóttur, Framsóknarflokki, sem
lagt var fram á síðasta degi þing-
haldsins fyrir helgi. Siv spurði um
minnisblöð, hljóðritanir og önnur
gögn frá helginni örlagaríku frá 3. til
6. október þegar Landsbankinn féll
og neyðarlög voru sett. Hún spurði
einnig hvort umrædd gögn vörpuðu
ljósi á þá atburðarás sem deilt hefði
verið um varðandi mögulegan flýti á
því að Bretar tækju Icesave-ábyrgð-
irnar í breska lögsögu.
Forsætisráðherra telur hvorki
rétt að leggja mat á þýðingu fyrir-
liggjandi gagna né endursegja efni
þeirra í svari til Sivjar þar sem gert
sé ráð fyrir sérsöku ferli við upplýs-
ingagjöf um störf rannsóknarnefnd-
arinnar til Alþingis. Einnig bendir
forsætisráðuneytið á að opinberum
aðilum sé óheimilt að veita aðgang
að gögnum sem rannsóknarnefndin
hafi fengið afhent, nema með
samþykki nefnd-
arinnar.
Ráðuneytið kveðst aftur á móti
reiðubúið til þess að kynna utanrík-
ismálanefnd gögnin í trúnaði, enda
geri rannsóknarnefndin ekki athuga-
semdir við það.
Dularfullar og misvísandi
upplýsingar
Upplýst hefur verið að FME var í
sambandi við Hector Sants, forstjóra
breska fjármálaeftirlitsins, umrædda
helgi í byrjun október. Þá hefur
Tryggvi Þór Herbertsson, þá-
verandi efnahagsráðgjafi
forsætisráðherra, upp-
lýst að hann hafi sagt
Geir H. Haarde eftir
umrædda helgi frá fyr-
irætlunum um að koma
Icesave-reikningunum
yfir í breska lögsögu.
Hvað nákvæmlega er
satt og rétt í málinu er
að talsverðu leyti enn á
huldu.
DV óskaði eftir upp-
lýsingum frá Seðlabanka
Íslands og Mervyn
King, seðla-
banka-
stjóra Bank of England, um málið
þann 20. mars síðastliðinn en sögum
fer af því að Davíð Oddsson og hann
hafi ræðst við í byrjun október síðast-
liðins. Bank of England hefur svarað
og ber við að ekki sé venjan að gefa
upplýsingar um samtöl. Engin svör
hafa borist frá Seðlabankanum, en
meðal annars var spurt um hugs-
anlegar upptökur af símtölum sem
varpað gætu ljósi á málið.
Trúnaður og gegnsæi
Fyrir helgi svaraði Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra einnig fyr-
irspurn Guðfinnu S. Bjarnadóttur,
Sjálfstæðisflokki, um stöðu viðræðna
vegna Icesave-skuldbindinganna. Í
svarinu kemur fram að haft hafi verið
samband við embættismenn og póli-
tísk stjórnvöld í viðkomandi löndum.
Þeim hafi verið kynntar ýmsar leiðir
og rætt við þau um lausn málsins.
Frekari viðræður fari fram á næstu
vikum. „Með hliðsjón af stöðunni í
viðræðunum þykir ekki rétt að upp-
lýsa frekar um einstök atriði þess sem
til umræðu er milli aðila. Það skal og
tekið fram að fjármálaráðherra hefur
átt fund með utanríkismálanefnd Al-
þingis um málið og veitt henni ýmsar
upplýsingar um stöðu þess, sem eðli
málsins samkvæmt er bundið trún-
aði,“ segir í svari Steingríms til Guð-
finnu.
Jóhann haukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Fyrirspyrjandinn Siv
Friðleifsdóttir hefur þráspurt
stjórnvöld um ýmis atvik
sem varpað gætu ljósi á
lykilatriði í bankahruninu og
beitingu breskra hryðju-
verkalaga gegn þjóðinni.
Formaður utanríkismálanefndar „Ég
hef þegar lagt þetta fyrir rannsóknarnefnd-
ina og býst við að fá svör frá henni í byrjun
vikunnar,“ segir árni Þór Sigurðsson.
Forsætisráðherra Jóhanna Sigurðardótt-
ir er til í að aflétta trúnaði af gögnum innan
utanríkismálanefndar ef rannsóknarnefndin
hefur ekkert við það að athuga.
„Ráðuneytið lýsir sig
reiðubúið til þess að
kynna utanríkismála-
nefnd gögnin í trúnaði.“
„Draugahljóðin“
hætt að hljóma
Richardshús á Hjalteyri komst í
fréttirnar á síðasta ári vegna óút-
skýrðra hljóða sem ómuðu um
húsið. Hljóðin voru orðin svo
slæm að Heilbrigðisnefnd Norð-
urlands úrskurðaði húsið óíbúð-
arhæft. Margar kenningar voru
uppi um hvaðan óhljóðin komu
og töldu margir meðal annars að
framliðnir væru þar að verki. Jón
Ársæll Þórðarson tók húsið fyrir
í þætti sínum Sjálfstæðu fólki
og fékk þjóðþekkta miðla til liðs
við sig. Samkvæmt upplýsingum
DV eru „draugahljóðin“ hætt
að hljóma og svo virðist sem
hljóðið tengist rafmagni. Skýrslu
er að vænta um málið á næstu
dögum.
Ólafur F. vill lóðir
Bjögganna
Ólafur F. Magnússon, borgar-
fulltrúi Frjálslynda flokksins, vill
að Reykjavíkurborg eignist þær
lóðir og þær fasteignir sem eru
í eigu félaga og fyrirtækja Björ-
gólfsfeðga. Hann vill að borgin
leysi eignirnar til sín, einkum
lóðirnar á Listaháskólareit við
Laugaveg og Fríkirkjuveg 11.
„Borgin ætti því að fá tækifæri
til að fá aftur forræði yfir þess-
um eignum gegn litlu sem engu
gjaldi, enda skulda eigendur
þeirra almenningi í raun marg-
falt meira með þeirri fjármálaó-
ráðsíu sem þeir ætla almenningi
að borga!“ segir Ólafur í tilkynn-
ingu.
Rok í Reykjavík
Um 30 björgunarsveitamenn
úr hjálparsveitum skáta í
Kópavogi og Reykjavík voru
kallaðir út um hádegisbil í
gær til að sinna útköllum
vegna veðurs á höfuðborgar-
svæðinu.
Nokkrar beiðnir um að-
stoð bárust. Þakkantar og
þakplötur losnuðu, glugg-
ar brotnuðu og lausir munir
fuku frá byggingasvæðum.
Björgunarfélag Akraness
var einnig kallað út í gær-
morgun þegar þakeinangrun
fauk af blokk í byggingu.
Kvarta undan
mótorhjólum
Lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu hefur borist talsvert
af kvörtunum vegna hávaða frá
bifhjólamönnum sem leggja
leið sína á Ingólfstorg í Reykja-
vík. Meðal umkvörtunarefna er
að bifhjólamenn þenji hjól sín
óþarflega mikið svo vart sé líft
fyrir hávaða í næsta nágrenni.
Lögreglan kom við á Ingólfs-
torgi nú um helgina og hitti
þar nokkra bifhjólamenn að
máli. Voru menn beðnir að taka
meira tillit til þeirra sem búa í
nágrenninu og starfa á svæð-
inu og samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu var vel tekið í erindi
hennar.
Eigandi og starfsmaður söluturns í Breiðholti eltu uppi þjóf:
„alveg hissa hvað ég gat hlaupið“
Eigandi og starfsmaður söluturnsins
Hraunbergs í Breiðholti eltu uppi
þjóf sem reyndi að komast á brott
með peningakassa.
Magnús Gunnar Baldursson,
starfsmaður í söluturninum, sá
óboðinn gest vaða í peningakassa
sem geymdur er í eldhúsinu fyrir aft-
an afgreiðsluna. Magnús var sjálfur
staddur inni í eldhúsinu að steikja
kvöldmat er þjófinn bar að garði.
Magnús segist hafa hrópað upp yfir
sig: „Hvern djöfulinn ertu að gera?“
þegar hann sá hvað var á seyði.
Ræninginn tók á rás um leið og
Magnús kom auga á hann með pen-
ingakassann í hendi með tæpum
hundrað þúsund krónum í. „Hann
var ekki með neitt barefli, en ég
hljóp á eftir honum með spýtu sem
við geymum bakvið.“
Gunnar hljóp á eftir ræningjan-
um og elti hann alla leið í Krumma-
hólana þar sem hann missti sjónar á
honum. Í millitíðinni hafði Magnús
hringt í dóttur sína, Lenu Magnús-
dóttur, einn eigenda söluturnsins.
„Hún keyrði af stað um hverfið og
sá strák labba um í Máshólum sem
hún kannast við,“ segir Magnús um
það sem gerðist næst. Þá kom í ljós
að ræninginn hafði unnið í Hraun-
bergi síðastliðið sumar.
Þegar Lena sá þjófinn spurði hún
hvort hann hefði hlaupið á brott
með þýfið. Sá viðurkenndi strax að
hafa stolið peningunum af fyrrver-
andi vinnuveitanda sínum og skil-
aði þeim um hæl. Ræninginn fór
með Lenu inn í bíl og þau keyrðu
aftur að söluturninum þar sem lög-
reglan beið eftir ógæfupiltinum.
Magnús fór seinna á stúfana og
fann peningakassann ásamt nokkr-
um seðlum sem fokið höfðu um víð
og dreif. Allur peningurinn komst
til skila. Magnús segir ógæfupilt-
inn aldrei hefðu þorað að stela pen-
ingunum hefði hann vitað að hann
sjálfur væri á vakt. „Ég vinn venju-
lega ekki á kvöldin. Hann hefur
haldið að stelpurnar væru bara að
vinna og þær hefðu aldrei hlaup-
ið á eftir honum.“ Aðspurður seg-
ist Magnús ekki hafa hlaupið svona
mikið í langan tíma. „Ég hef ekki
verið svona þreyttur lengi, ætli það
hafi ekki verið adrenalínið sem fór í
gang er ég tók af stað. En ég var al-
veg hissa hvað ég gat hlaupið,“ segir
hann og hlær.
hanna@dv.is
óhrædd feðgin Feðgin-
in magnús og lena höfðu
upp á ræningja sem
þekkti vel til söluturnsins í
Breiðholtinu.
MynD/RóbeRT