Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2009, Blaðsíða 6
6 miðvikudagur 29. apríl 2009 Fréttir
Úrval-Útsýn fer nýstárlega leið til að nálgast eldri klúbbfélaga með sólarlandaferðir:
Fjögur þúsund krónur dagurinn
„Það má segja að við séum að ýta á eft-
ir fólki sem kannski var ekkert að spá
í að fara til útlanda. En þegar það sér
hvað þetta er ódýrt þá finnst því þetta
mjög spennandi,“ segir Guðrún Sigur-
geirsdóttir, framleiðslustjóri hjá Úrval-
Útsýn.
DV hafði spurnir af nokkrum aðil-
um sem höfðu fengið upphringingu frá
sölumönnum Úrvals-Útsýnar þar sem
þeim var boðin 22 daga ferð til Marm-
aris í Tyrklandi fyrir um 90 þúsund
krónur. Þegar DV hafði samband við
ferðaskrifstofuna fengust þau svör að
verið væri að hringja í meðlimi ferða-
klúbbsins Úrvalsfólks sem er ætlað-
ur 60 ára og eldri. „Þetta er ódýr tími.
Þetta er sá tími þar sem er of snemmt
að fara í vikulegt flug og þess vegna er
hægt að gera svona góða samninga.
Þessi hópur, sextíu ára og eldri, fær líka
gjarnan betri kjör á hótelum en aðrir,“
segir Guðrún.
Sú leið að hringja í fólk vekur athygli
og segir Guðrún að upphaflega hafi
staðið til að auglýsa ferðina í blaði sem
á að koma út á vegum eldri borgara.
„En síðan tafðist blaðið og okkur vant-
aði hreinlega leið til að ná til fólksins.
Þetta er í raun ódýrara fyrir okkur en að
senda út fréttablað. Eldra fólk er yfir-
leitt ekki með netfang þannig að þetta
var talin betri leið en að senda klúbb-
meðlimum tölvupóst,“ segir Guðrún.
Hún segir þessa markaðsaðferð hafa
gengið mjög vel og nánast sé uppselt í
ferðina. Hins vegar viðurkennir hún
að Úrval-Útsýn hafi almennt fækkað
ferðum vegna erfiðs efnahagsástands í
samfélaginu. „Við erum búin að draga
mikið úr framboði,“ segir hún.
erla@dv.is
Betri kjör
Hótel erlendis bjóða eldra fólki
oft betri kjör en öðrum til að
laða að þennan kúnnahóp.
„Minn skjólstæðingur kom inn í
þetta mál af tilviljun. Hann er eng-
inn skipuleggjandi eða frumkvöðull
að einu eða neinu,“ segir Hilmar Ingi-
mundarson, lögmaður yngri manns-
ins sem handtekinn var vegna árásar
og húsbrots við Mávanes um helg-
ina. Tveir menn á þrítugsaldri réðust
þar inn á öldruð hjón, héldu þeim í
gíslingu og veittust harkalega að kon-
unni, auk þess sem þeir fóru ráns-
hendi um húsið.
Lögreglan þögul
„Þetta er hlutur sem á ekki að eiga
sér stað. En það eru kannski vissar
ástæður fyrir því að þeir fara á akkúr-
at þennan stað. Þetta var engin tilvilj-
un,“ segir Hilmar. Hann vill þó ekki
tjá sig nánar um hvað hann á við með
því að þetta hafi ekki verið tilviljun.
„Þú verður að spyrja lögregluna um
það af hverju þau völdu akkúrat þetta
hús,“ segir hann.
Ómar Smári Ármannsson, yfir-
maður auðgunarbrotadeildar lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu,
getur ekki tjáð sig um þetta atriði sér-
staklega. „Þeir handteknu upplýsa þá
væntanlega um það ef svo er. Þetta
er bara eitt af þeim atriðum sem við
erum að skoða,“ segir hann.
Árásarmennirnir tveir voru í gær
úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 19.
maí. Tvær konur voru einnig hand-
teknar en þeim var sleppt í gær. Önn-
ur þeirra hefur játað aðild að málinu.
Tekin af lífi
Mennirnir tveir hafa verið fluttir upp
á Litla-Hraun þar sem þeir eru vistað-
ir. Hilmari finnst ekki réttlætanlegt að
mennirnir þurfi að sitja í gæsluvarð-
haldi í þrjár vikur. „Mér finnst það nú
ekki. Þetta er byggt á einhverju sem
menn kalla almannahagsmuni. Ég er
ekki sammála því og mótmælti kröf-
unni á þeim grundvelli,“ segir Hilm-
ar.
Hann segir skilgreiningu á al-
mannahagsmunum vera heldur á
reiki. „Ég held að þessu atriði hafi
fyrst og fremst verið beint að terror-
istum og slíkum aðilum, en ekki máli
sem þessu. Mér finnst þetta mál hafa
verið afvegaleitt af fjölmiðlum og lög-
reglu,“ segir hann.
Spurður hvað hann eigi við með
því segir Hilmar: „Mér finnst talað
um þetta með þeim hætti að þetta sé
svo hryllilegur glæpur og það verði að
taka mjög hart á þessu, eins og það er
orðað. Það er verið að mynda ákveðið
almenningsálit gegn þessu blessaða
fólki. Þetta er ungt fólk sem á framtíð-
ina fyrir sér, sem verður á. Mér finnst
nánast eins og það sé verið að taka
þetta fólk af lífi,“ segir hann um sak-
borningana í málinu.
Lamin í höfuðið
Konan sem varð fyrir árásinni sagði
í samtali við DV í gær að þetta hefði
verið mikið áfall. „Sérstaklega þar
sem ég var lamin mikið í höfuðið. Ég
er með marbletti og andlitið er mjög
blóðhlaupið eftir þetta,“ sagði konan.
Hún er á áttræðisaldri og eiginmaður
hennar tæplega níræður.
Mennirnir tveir börðu dyra hjá
þeim hjónum í Mávanesinu seint á
laugardagskvöldið. Þeir voru hettu-
klæddir og með klút fyrir andlitinu.
Eiginmaðurinn fór til dyra þar sem
honum var mætt með hótunum og
ógnað með hnífi.
Hilmar Ingimundarson, lögmaður yngri mannsins sem handtekinn var vegna árásar
í Mávanesi um helgina, segir það enga tilviljun að mennirnir fóru inn á þetta tiltekna
heimili. Hann bendir á að árásarmennirnir séu ungt fólk sem einfaldlega varð á og
honum finnist eins og þeir hafi verið teknir af lífi af lögreglu og fjölmiðlum.
AfsAkAr gjörðir
ÁrÁsArmAnnA
„Það eru kannski viss-
ar ástæður fyrir því
að þeir fara á akkúrat
þennan stað.“
ErLa HLynsdóTTIr
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
neytendur
sviðsljós
dv.is
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
þriðjudagur 28. apríl 2009 dagblaðið vísir 67. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
þetta var
ekkert
nætur-
blogg
stjörnuveisla
samkynhneigðra
með ofurlaun í greiðslustöðvun
logið upp á
ásdísi rán
búlgarskir miðlar segja
hana flutta úr landi
fólk
fréttir
lúxusbíll
bankamanns
til sölu
21 mil
ljón
fréttir
neytendur
græða á esb
hjónin í ArnArnesárásinni óttuðust um líf sitt:
ÉG HÉLT
HANN
MYNDI
DREPA
MIG
konan barin í höfuðið svo sér á henniallt að sextán ára fangelsi fyrir árásina
innbrotsþjófar
ógnuðu með hnífum
„ef þið hreyfið ykkur
þá skjótum við“
M
yn
d
in
er sv
ið
sett
svínaflensan breiðist út um heimsbyggðina
erlent
fréttir
Í gæsluvarðhaldi
Árásarmennirnir voru í gær leidd-
ir fyrir dómara og úrskurðaðir í
þriggja vikna gæsluvarðhald. Þeir
hafa verið fluttir á litla-Hraun.
Mynd sIgTryggur arI JóHannsson
Huldu andlit sín
mennirnir huldu andlit sín til að forðast
kastljós fjölmiðlanna. lögreglan
rannsakar hvernig þeir völdu húsið
sem þeir réðust til inngöngu í.
28. ap íl 2009
Þrauka þrátt
fyrir útstrikanir
Steinunn Valdís Óskarsdóttir
heldur sæti sínu á lista Samfylk-
ingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi
norður þrátt fyrir 1.443 útstrik-
anir í kosningunum síðastliðinn
laugardag. Útstrikanirnar hafa
því engin áhrif á uppröðun á lista,
segir Erla S. Árnadóttir, formaður
kjörstjórnar í kjördæminu.
Flestar útstrikanir voru hjá
Samfylkingunni í kjördæminu;
657 strikuðu út nafn Helga Hjörv-
ar og 656 nafn Marðar Árnasonar.
403 kjósendur Sjálfstæðisflokks-
ins strikuðu út nafn Sigurðar
Kára Kristjánssonar en hann náði
ekki kjöri á þing. 300 kjósendur
Borgarahreyfingarinnar strikuðu
út nafn Þráins Bertelssonar, sem
telst hlutfallslega mikið miðað
við heildaratkvæðafjölda listans í
kjördæminu.
fíkniefni í
leggöngum
Héraðsdómur Suðurlands dæmdi
í gær 28 ára konu í 75 daga fangelsi
fyrir að gera tilraun til að smygla
fíkniefnum inn á Litla-Hraun þann
3. desember 2008. Þá var hún svipt
ökuréttindum ævilangt fyrir að aka
bifreið undir áhrifum fíkniefna.
Konan reyndi að smygla tæpu
grammi af amfetamíni, 0,71
grammi af kókaíni og 10 óþekktum
lyfjatöflum inn í fangelsið. Lyfja-
töflunum hafði konan komið fyrir í
pakkningum í leggöngum sínum.
Fyrir dómi játaði konan brot
sín greiðlega.
Gas á Hverfis-
götu
Slökkvilið og sjúkrabílar
voru kallaðir að Hverfisgötu í
Reykjavík í gærmorgun og var
götunni lokað fyrir umferð.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu mun gaslykt hafa
lagt frá húsi að Hverfisgötu 49
sem varð til þess að rannsaka
þurfti málið.
Engin skýring fannst á
gaslyktinni og var umferð aft-
ur hleypt um götuna.
Skilanefnd fær
eignirnar
Kyrrsetningu á eignum Glitnis
í Noregi, sem staðið hefur frá
falli bankans í byrjun október
í fyrra, hefur verið aflétt. Það
þýðir að skilanefnd bankans fær
nú óskorað forræði yfir eignum
hans í Noregi, sem eru að and-
virði um eitt hundrað milljarðar
íslenskra króna.
Árni Tómasson, formaður
skilanefndar Glitnis, segir þessa
niðurstöðu mikilvæga því með
henni sé ljóst að hægt verður að
standa við allar skuldbindingar
bankans í Noregi og hámarka
þannig virði eigna. Þá sé jafn-
ræðis milli kröfuhafa tryggt en
þeir sem kröfðust kyrrsetningar-
innar í Noregi þurfa nú eins og
aðrir að beina kröfum sínum í
þrotabúið á Íslandi og hugsan-
legur ágreiningur verður leystur
fyrir íslenskum dómstólum.