Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2009, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2009, Blaðsíða 15
miðvikudagur 29. apríl 2009 15Umræða Hver er maðurinn? „maðurinn er andri, forstjóri Ölgerðarinnar.“ Hvað drífur þig áfram? „Jákvæðni og metnaður.“ Hvaða þrjú orð lýsa þér best? „Jákvæðni, orka og metnaður.“ Hvar ertu uppalinn? „í Fossvog- inum.“ Hver er uppáhaldsdrykkurinn þinn? „kristall plús, rauður.“ Ertu ánægður með samninginn við KSÍ? „Já, ég er mjög ánægður með samninginn, ég tel að hann verði báðum aðilum til góðs.“ Af hverju ákvað Ölgerðin að styðja við knattspyrnuhreyfing- una? „Okkar samfélagslega ábyrgð liggur svolítið í því að fá börn og unglinga til að hreyfa sig meira og höfum við gjarnan reynt að styðja við bakið á ungmennahreyfingunni. Núna eru erfiðir tímar og íþrótta- hreyfingin á erfitt með að afla fjár, flestir eru að pakka í vörn og þar af leiðandi ákváðum við að spila sóknarbolta.“ Hvert er markmið ykkar með samstarfinu? „við stefnum að sjálfsögðu á að auka sölu á pepsi.“ Verður erfitt að taka við sem styrktaraðili af Landsbankan- um? „landsbankinn hefur gert alveg frábæra hluti og það verður mjög erfitt að feta í fótspor hans og það væri í raun ósanngjarnt að bera okkur saman til að byrja með. við munum gera þetta á okkar forsendum og fara aðrar leiðir.“ Af hverju Pepsi-deildin, hefði ekki verið eðlilegra að láta hana heita í höfuðið á hollari drykk? „Það má segja að öll þessi gossala sé svolítið eins og knattspyrnuleikur. annars vegar við og vífilfell og marg- ir mismunandi drykkir. við ákváðum þar af leiðandi að nota efnilegasta leikmanninn okkar sem er pepsi. pepsi er einnig alþjóðlegt vörumerki og mjög tengt fótbolta á alþjóðavísu. Þar af leiðandi erum við að fá mikinn stuðning að utan sem gerir okkur kleift að vinna þetta verkefni.“ Óttast þú svínaflensuna? „Já. Ég er ekki frá því að ég óttist hana.“ HALLdór Kr. bakari/kONditOr. „Nei. Ég óttast hana ekki.“ GuðLAuG StEinGrÍmSdóttir, 64 ára aFgreiðslukONa. „Já. við vorum einmitt að ræða þetta í vinnunni. Ég óttast hana.“ HrEfnA Lind, 40 ára útstilliNgahÖNNuður. „erum við ekki öll jafndauð eftir sem áður?“ GÍSLi JónSSon, 45 ára Öryrki. Dómstóll götunnar Ölgerðin gerði þriggja ára samning við ksí í vikunni og mun styrkja sambandið næstu þrjú árin. Andri Þór GuðmundSSon, forstjóri Ölgerðarinnar, segir þetta erfiða tíma en að samningurinn verði báðum til góðs. efstu deildir karla og kvenna heita nú pepsi-deildin. Spilum Sóknar- bolta í vörninni „persónulega óttast ég hana ekki en tilhugsunin um útbreiðslu hennar er óhugnanleg.“ StEfán ErLEndSSon, 49 ára stJórNmálaFræðiNgur. maður Dagsins Meðan Ísland brennur Með yfirstöðnum kosningum má að einhverju leyti segja að Búsáhalda- byltingin hafi verið staðfest. Vissu- lega hafa margir sem bjuggust við því að þjóðfélagið myndi gerbreytast á þessum sjö dögum orðið fyrir von- brigðum og víst er að enn er meira ógert en gert. En eigi að síður höfðu þessir sjö dagar mikil áhrif, sem kosningarnar sjálfar eru kannski besta dæmið um. Áður en bylting- in hófst voru kosningar ekki til um- ræðu. Nokkrum dögum síðar voru þær orðnar óhjákvæmilegar. Stjórn- in féll, Davíð fór úr Seðlabankanum, stjórnlagaþing hefur ekki enn verið haldið en að öllum líkindum mun stjórnarskránni verða breytt í fyrir- sjáanlegri framtíð. Þetta voru ein- földustu og skýrustu kröfur bylting- arinnar og ólíklegt að neitt af þessu hefði gerst án hennar. Kosið um fortíðina Hvað skal gera nú er annað og mun flóknara mál. Enda snérust kosn- ingarnar ekki um framtíðina fyrst og fremst, heldur voru þær uppgjör við fortíðina. Slíkt uppgjör er einmitt nauðsynlegt til þess að við getum lært af mistökum hennar. En enginn af flokkunum virtist með skýrar hug- myndir um hvað skuli gera næst. Vinstrigrænum tókst að sýna það og sanna á tveimur mán- uðum að þeir gætu verið ábyrg- ur stjórnarflokkur. Í síðustu viku gerðu þeir hinsvegar sitt besta til að styrkja málstað þeirra sem sögðu að vinstrimönnum væri ekki trey- standi í stjórn. Svo virðist sem flokk- ur sem elst upp í stjórnarandstöðu eigi erfitt með að höndla velgengni sína. Ráðherra lagðist gegn olíu- leit og flokkurinn er búinn að vera í endalausum vandræðagangi varð- andi Evrópusambandið, er hlynnt- ur lýðræði en gerir á sama tíma allt sem hann getur til þess að tefja fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu. Formaður- inn er farinn að verða geðvondur í fjölmiðlum, reiðist spurningum og vill fá að halda sínum leyndarmál- um út af fyrir sig. Líklega er það of mikið á nokkurn mann leggjandi að vera í senn fjármála-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og mál til komið að létta af honum og ráða einhvern í hin ráðuneytin. Byltingarmenn á þing Vinstrigrænir bættu vissulega við sig miklu fylgi, en þó minna en búast mætti við í kosningum um fortíðina. Enda er hann eini flokkurinn sem hefur hreinan skjöld, var með opið bókhald og ekki á mála hjá neinum öðrum en kjósendum sínum. Hinn flokkurinn sem hefur hrein- an skjöld er sá sem hefur enga for- tíð, en það er Borgarahreyfingin. Þó að búsáhaldabyltingarfólk hafi verið æði fjölbreyttur hópur, þá er Borg- arahreyfingin eigi að síður skilgetið afkvæmi byltingarinnar. Það er mik- ið gleðiefni að raddir þeirra fá nú að heyrast á þingi. Samt hefur flokkur- inn gert sín fyrstu mistök í kringum heiðursverðlaunamál Þráins Bert- elssonar. Þráinn er vissulega með skemmtilegri mönnum þjóðarinn- ar og það verður gaman að fá hann á þing. En það er óheppilegt að á tímum þar sem tvöföld laun þing- manna eru að komast úr tísku skuli hann ríghalda í listamannalaun sín. Ekki síður er það vandræðalegt þeg- ar hann sagðist ætla að kynna sér hefðir og venjur Alþingis gagnvart slíkum launum. Flokkur sem ætlar sér að vera tákn fyrir nýja og betri tíma verður að gera betur en þetta. deilumálin leyst Segja má að fengist hafi niðurstaða í öllum helstu deilumálum undan- farinna ára, um kvótakerfið, einka- væðingu almennt og bankanna sér- staklega, innrásina í Írak og að því er virðist Kárahnjúkavirkjun. Í öll- um þessum málum höfðu vinstri- menn rétt fyrir sér. Sjálfstæðismenn þurfa að koma sér upp nýrri hug- myndafræði, og líklega verður hún sótt lengra til vinstri en áður, verður meira í anda Norræna velferðarkerf- isins sem flokkurinn var jú hlynntur á árum áður en snérist gegn á tíma formennsku Davíðs Oddssonar. Í Silfri Egils daginn eftir kosningar hljómaði Þorgerður Katrín frekar sem stjórnmálaskýrandi en stjórn- málamaður og reyndi að gefa vænt- anlegri stjórn góð ráð, það hljómaði næstum eins og hún væri að sækja um vinnu. Vorið er komið í Reykjavík og það er gott að hafa það á tilfinningunni að maður geti setið á Austurvelli án þess að hafa stöðugar áhyggjur af því hvað er verið að plotta hinum megin við styttuna af Jóni. En vor- ið endist ekki að eilífu. Almenning- ur verður að taka mun virkari þátt í stjórnmálaumræðunni á næstunni en hann hefur gert undanfarið. Ef til vill er þetta það mikilvægasta sem við getum lært af mistökum fortíð- arinnar. (Ekkert er fegurra en) vorkvöld í Reykjavík kjallari svona er íslanD 1 á ofurlaunum í greiðslu- stöðvun stjórnendur og starfsfólk í fjármálafyrir- tækjum sem eru komin í umsjá skilanefnda eru enn á topplaunum. 2 „Ég helt að hann myndi hreinlega drepa mig“ kona á áttræðisaldri sem brotist var inn hjá á arnarnesinu á laugardagskvöld óttaðist hið versta. 3 21 milljónar Benz skráður á spúsuna Fyrrverandi stjórnandi hjá kaupþingi skráði lúxusbíl á konuna í kringum hrun og reynir nú að selja bílinn. 4 Enn logið upp á ásdísi rán búlgarskur fjölmiðill segir hana og garðar gunnlaugsson flúin frá búlgaríu. 5 Skrautlegur dúett ólafur F. magnússon borgarfulltrúi kemst í fréttirnar vegna þátttöku í skemmtana- lífi borgarinnar ásamt fasteignasala. 6 Gat ekki mætt vegna gæslu- varðhalds rúnar Þór róbertsson sem er í gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnasmygls með skútu mætti ekki í aðalmeðferð í skaðabótamáli sínu gegn ríkinu. hann vill bætur fyrir gæsluvarðhaldsvist þegar hann var grunaður um kókaínsmygl 2007. 7 „Þetta var ekkert næturblogg“ magnús Þór hafsteinsson gefur lítið fyrir umvandanir félaga síns, guðjóns arnars kristjánssonar, formanns Frjálslynda flokksins. mest lesið á dv.is VALur GunnArSSon rithöfundur skrifar „Hvað skal gera nú er annað og mun flóknara mál.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.