Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2009, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2009, Blaðsíða 17
miðvikudagur 29. apríl 2009 17Sport Sir Alex biðlAr til StuðningSmAnnAnnA manchester united og arsenal takast á í kvöld í fyrri leik sínum í undanúrslitum meistaradeildar Evrópu. Þessi lið hafa eldað grátt silfur undanfarin ár en frá 1997-2003 sátu þau ein að Englandsmeist- aratitilinum. aldrei áður hafa þau mæst í meistaradeildinni og kallar Sir alex Ferguson, knattspyrnustjóri manchester united, á hjálp stuðningsmanna í leiknum í kvöld. „Það var magnað hvernig fólkið tók við sér eftir að við skoruðum fyrsta markið gegn Tottenham. við þurftum þann stuðning og munum þurfa hann út tímabilið. Stuðningsmennirn- ir þurfa að keyra okkur áfram. Þetta hefur verið langt og erfitt tímabil og nú þurfum við hjálp frá öllum,“ segir Sir alex. „Þetta var vont en ég er ágætur í dag [í gær],“ segir handknattleiksmaður- inn og að eigin sögn gleðigjafinn Sig- urður Eggertsson, leikmaður Vals, sem rifbeinsbrotnaði í fyrsta leik úr- slitarimmunnar um Íslandsmeist- aratitilinn gegn Haukum að Ásvöll- um. Hann verður ekki meira með og verður að horfa á baráttuna um Ís- landsmeistaratitilinn af áhorfenda- bekkjunum. Línutröllið í liði Hauka, Kári Kristján Kristjánsson, gaf Sig- urði þungt högg í bringuna undir lok leiksins með fyrrgreindum afleiðing- um. Sigurður var drifinn á bráðamót- tökuna beint eftir leikinn. „Ég var þar til tvö um nóttina. Það var hressandi svona eftir leikinn,“ segir Sigurður nokkuð hress. Sigurður kvaldist mikið þegar hann lá í gólfinu eftir höggið enda brotið mjög gróft. „Já, ég og Kári eru alveg sammála um það,“ segir Sig- urður um grófleika brotsins. „Hann hringdi í mig, baðst innilegrar afsök- unar á þessu og lofaði að vera lélegur í næsta leik í staðinn,“ segir Sigurð- ur en tekur hann afsökunarbeiðni Kára? „Ég tek henni ef hann stendur við sitt og verður lélegur í næsta leik,“ segir Sigurður kátur en hann fiskaði einnig rautt spjald á Einar Örn Jóns- son þegar hann sló Sigurð í andlit- ið. Brot Kára virkaði þó mun grófara en hann slapp meira að segja með tveggja mínútna brottvísun. „Dóm- arinn var með svo slæmt sjónarhorn á þetta að ég var nú bara hissa á að fá aukakast.“ Sigurður hefur síðustu ár þurft að glíma við ýmiss konar meiðsli. Að- eins á þessu tímabili hefur hann far- ið í aðgerð á nára og handarbrotn- að. „Þau brot komu bara á mun betri tímum. Þrátt fyrir þessi meiðsli hef ég samt leikið meira á þessu tímabili en nokkru öðru. Það er samt alveg ótrúlega svekkjandi að lenda í þessu núna,“ segir Sigurður Eggertsson. tomas@dv.is Sigurður Eggertsson rifbreinsbrotinn eftir þungt högg frá Kára Kristjáns: „HAnn lofAr Að verA lélegur næSt“ vildi StórA ákvörðun Enski knattspyrnudómarinn, Howard Webb, hefur sætt mikilli gagnrýni fyrir vítaspyrnu sem hann dæmdi manchester united í hag gegn Tottenham síðastliðinn laugardagin. Hann hefur viðurkennt mistök sín og mun dæma í næstefstu deild um helgina. Hvort það sé refsing eins og sumir enskir miðlar halda fram er þó spurning. leikurinn sem hann mun dæma er viðureign reading og Birmingham sem er einn stærsti leikur ársins. Bæði lið eiga mikinn möguleika á að komast í úrvalsdeildina með sigri, en þetta er lokaumferðin. Fyrrverandi dómari, graham poll, segir í pistli sínum í blaðinu guardian að eftir að Webb frétti að hann myndi dæma bikarúrslitaleikinn á Englandi hefði hann viljað sanna sig og leitaði því eftir að taka stóra ákvörðun. Hann vildi sanna að hann væri bestur segir poll. Cruz inn – zokorA út Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham gerir sig æ líklegra til að sækjast eftir kröftum paragvæska framherjans roque Santa Cruz sem leikur með Blackburn. Santa Cruz, sem sló í gegn á sínu fyrsta tímabili í úrvalsdeildinni, hefur sjálfur lýst því yfir að hann vilji leika hjá liði sem stefndi hærra en Blackburn og verður erfitt fyrir liðið að halda honum. Harry redknapp, stjóri Tottenham, hefur lýst yfir áhuga á leikmanninum og vill sjá hann bætast við framherjaflóru Totten- ham. Á móti þykir líklegt að liðið missi Fílabeinsstrendinginn didier Zokora. Zokora hefur fallið niður goggunarröðina eftir komu Wilsons palacios en Zokora vill spila reglulega á næsta tímabili til að eygja möguleika á sæti í Hm-hóp Fílabeinstrandarinnar. umSjón: TómaS Þór ÞórðarSon, tomas@dv.is / sport@dv.is Vilt þú fjármálaráðgjöf hjá óháðum aðila? Fyrsta viðtal er án endurgjalds! Bókaðu viðtal á www.ghradgjof.is Það er auðveldara að taka á vandanum strax! GH Ráðgjöf Sóleyjargötu 17, 101 Reykjavík, Sími 510-3500 Geymdu þessa auglýsingu – hún getur komið sér vel! Stopp! Sigurður í góðri gæslu Eyjamann- anna kára kristjáns og gunnars Berg í fyrsta úrslitaleiknum. mynd HEiða HElgadóttir Það er vægt til orða tekið þegar sagt er að leikur Barcelona og Chelsea í fyrri leik liðanna í undanúrslitum meist- aradeildarinnar hafi staðist vænting- ar. Liðin skildu jöfn, 0-0, í leik þar sem Guus Hiddink sannaði snilli sína sem þjálfari. Enn fremur sannaði leikurinn hversu ofboðslega sterk ensk lið eru í því að verjast. Það átti ekki að vera spurning um hvort heldur hve mörg mörk Lion- el Messi átti að skora fyrir Barcelona. Heimsbyggðin stóð á öndinni yfir því hver ætti að gæta hans í leiknum. Portúgalinn Jose Bosingwa fékk það hlutverk og gerði það vel. Messi sást ekki í seinni hálfleik. lok, lok og læs Guus Hiddink sem stýrir Chelsea sendi sína menn út með eina dag- skipun. Barcelona átti ekki að skora. Barcelona-menn vilja senda boltann endalaust á milli sín og það fengu þeir að gera. Þegar að því kom að sækja að markinu var einfaldlega engin leið inn að markinu enda varnarleikur Chelsea gífurlega sterkur. Það var svo Didier Drogba sem hefði getað komið Chelsea yfir undir lok fyrri hálfleiks en hann lét verja frá sér úr dauðafæri. Barcelona fékk þrjú mjög góð færi sem það hefði þurft að nýta en Cech sá við Börsungum í tvö skipti og eitt skiptið var skallað yfir. Þetta er í fyrsta skiptið á árinu sem Barcelona mistekst að skora. Ástæða fyrir þremur enskum Það sást greinilega í gærkvöldi af hverju þrjú ensk lið eru á meðal þeirra fjög- urra sem keppa í undanúrslitum. Eins og tíðrætt hefur verið eru ensku liðin einfaldlega gífurlega sterk. Barcelona hefur meira og minna hlegið að and- stæðingum sínum í spænsku deildinni í ár og rúllaði upp Lyon og FC Bayern í 16 liða og 8 liða úrslitum. Þegar svo loks kom að því að mæta ensku liði eins og Chelsea í gær var eins og það gengi einfaldlega á vegg. Ekkert af því sem Barcelona leggur upp með í hverjum leik virtist ganga og verður Chelsea talið sigurstrang- legra liðið fyrir seinni viðureignina á heimavelli. Börsungar eru þó engir ný- liðar og geta Chelsea-menn vart farið að fagna strax. Lionel Messi olli þó án vafa vonbrigðum kvöldsins. Vissulega kom það í ljós að maðurinn er mann- legur en hann verður að sýna miklu betri leik eftir viku ætli Barcelona sér í úrslitaleikinn. Chelsea tókst ætlunarverk sitt þegar það sótti Barcelona heim í fyrri leik liðanna í meistaradeildinni: Að halda hreinu. guus Hiddink smurði saman varnarleik sem Barcelona átti ekki svör við í leik sem var langt frá því að standa undir væntingum. tómaS Þór ÞórðarSOn blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Erfitt Eto’o og félagar í Barcelona áttu erfitt með að brjóta niður Chelsea í gærkvöldi. Chelsea skellti í lás

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.