Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2009, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2009, Side 14
Ef fer sem horfir verður árang-ur Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs eitt alls-herjar efnahagsundur. Ísland undir stjórn vinstri-grænna verður fordæmalaust hagkerfi sem brýtur aftur fyrri hugmyndir hagfræðinga heimsins. Nú þegar 10 fyrirtæki fara á hausinn á degi hverjum, tekjur ríkissjóðs hrynja, út-gjöld ríkissjóðs rísa, skuldir þjóðarbúsins nema á bilinu einni til tveimur billjónum og Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn krefst hrikalegs nið- urskurðar, leggja vinstri-grænir upp í fordæmalausan uppgang. Í atvinnu- stefnu þeirra kemur fram að þetta sé ekkert mál. Þrátt fyrir stórfelldan niðurskurð ætla þeir að varðveita störf í menntamálum og velferðarmálum, því það er jú eitt stærsta atvinnumál- ið, að þeirra mati. Að auki munu störf spretta upp eins og fíflar í túni, tvist og bast, um hvippinn og hvappinn. Það verða störf á hverju strái. Dæmalaus upprisa efna-hagslífsins hefst með því að 2.500 til 3.000 störf í ferða-mennsku skjóta upp kollin- um vegna aukinnar markaðssetningar erlendis, með áherslu á vor-, haust- og vetrarferðir til Íslands. Mannkynið verður táldregið til að koma til Íslands í slabbi, myrkri og roki. Hvernig? Jú, það verður boðið upp á beint flug frá hinum stóra heimi og út á íslensku landsbyggðina. Þekkist eitthvað betra en landsbyggðin um vetur? Aðrir áfangastaðir munu blikna í saman- burðinum. London, París og Róm verða orðin tóm. Hver vill vera í sand- ölum og ermalausum bol þegar hægt er að mæta í kraftgallanum til Egils- staða, eða fara á sjóinn í myrkri, frosti og roki til að kíkja á hvali við Húsavík? Innan skamms mun hagkerfið taka á stökk líkt og fældur grað-hestur. Ástæðan er yfirvofandi stórvöxtur í landbúnaðarfram- leiðslu Íslendinga, sem VG áætlar að skili 1.500 til 2.000 störfum til viðbótar við það sem nú er. Og hvernig? Enn verður sannfæringarmætti Íslendinga beitt á útlendinga til að ginna þá. Fólk í útlöndum er eins og leir. Það þarf bara að móta það í þeirri mynd sem okkur þykir fýsilegust og sveigja það undir vilja okkar. Vinstri-grænir munu hanna ómótstæðilegt markaðsátak fyrir íslenskar landbúnaðarvörur og auka grænmetisframleiðslu íslenskra bænda. Hollensku tómatarnir breyt- ast í tómatsósu við tilhugsunina. Engu skiptir þótt skilyrði til landbúnaðar- framleiðslu séu miklu betri alls staðar í heiminum, ef frá eru taldar eyði- merkur án aðgangs að vatni. „Innlend kornrækt verður stóraukin“ með hjálp vinstri-grænna. Þótt forsenda þess sé að kornræktin verði að vera sam- keppnishæf við kornakra Ameríku, Rússlands og Evrópu skiptir það engu. Því vinstri-grænir eru ekki bundnir af hagfræðilögmálum eins og fram- boði, eftirspurn og hagkvæmni. Þegar maður hefur heilt ríki til að spila úr, og ónýtta skattstofna í mannauði, eru möguleikarnir endalausir. Rosalegum árangri vinstri-grænna hafa síður en svo verið gerð tæmandi skil. Þeir ætla að auka fiskeldi og byrja að nýta fleiri tegundir, eins og kræk- linga. Af einhverri ástæðu hefur þetta ekki gengið upp áður, en vinstri-græn- ir hafa forskot á aðra, því þeir hafa ótæmandi ríkiskassann til að seilast í. Þúsund störf verða til í skipaiðnaði, úrvinnsluiðnaði, umhverfistækni, ull- ar- og skinnaiðnaði, húsgagnafram- leiðslu, vatnsútflutningi og minja- gripagerð. 500 störf myndast vegna ófyrirséðrar uppbyggingar á lands- byggðinni sem fer af stað vegna þess að störf flytjast út á land þegar efna- hagsundrið verður til. 500 störf koma upp á yfirborðið þegar nauðsynlegt verður að fara í uppbyggingu vegna stórfellds uppgangs í ferðamanna- iðnaðinum. Efnahagsundur VG slær út fyrra undrahagkerfi Íslands og það verður miklu traustara, því vinstri- grænir kunna að beygja markaðslög- málin með sannfæringarmætti sínum og einbeittum sprotavilja. miðvikudagur 29. apríl 200914 Umræða KraftaverK vG svarthöfði spurningin „Nei, ætli ég sé ekki frekar að fara úr sollinum í sveitasæl- una enda er ólíkt fallegra við Eyja- fjörðinn en í borg- inni,“ segir Einar Már Sigurðarson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, sem verður skólastjóri í valsárskóla á Svalbarðseyri í Eyjafirði. ertu eKKi að fara úr ösKunni í eld- inn, einar? sandkorn n Jón Magnússon svaraði fyrir sig af hörku í Morgunblaðinu á mánudag þegar prófessor við Háskólann á Akureyri bar upp á hann að vera ein af ástæð- unum fyrir fylgishruni Frjálslynda flokksins. Jón sagði að það hefði sýnt sig í þessum kosning- um hverjir hefðu komið með fylgi inn í síðustu kosningabaráttu og hverjir ekki. Líklega átti hann við að hann og Nýtt afl hefðu átt fylgi frjálslyndra 2007. Jón virðist þó gleyma að hann sat á þingi fyrir tvo flokka á kjör- tímabilinu og báðir töpuðu stórt. n Borgarahreyfingin mun þurfa á öllu sínu að halda til að hópurinn splundrist ekki. Mikil ólga er innan- dyra vegna heiðurs- launa Þráins Bertelsson- ar alþingis- manns sem Framsókn- arflokkurinn tryggði honum á sínum tíma. Skeytasendingar ganga á milli flokksmanna þar sem flest- ir eru á því að Þráinn eigi að afsala sér þessum 200 þúsund krónum á mánuði. Sjálfur gefur hann ekkert eftir og er harður á að þiggja heiðurslaunin. n Fréttavefurinn Pressan undir stjórn Björns Inga Hrafnssonar hefur svo sannarlega tekið flug- ið. Menn hafa á þeim bænum verið dug- legir við að skúbba. Vefurinn mælist nú í 13. sæti yfir landið þegar litið er til aðsóknar og sækir hratt að Eyjunni sem er væntanlega helsti samkeppnis- aðilinn. Meðal nýjustu skúbba á Pressunni er að innan Sjálfstæð- isflokksins sé vilji til að selja höfuðstöðvarnar, Valhöll, til að losna út úr greiðsluerfiðleikum. n Fótboltakappinn Garðar Gunnlaugsson er á landinu eins og DV greindi frá í gær. Garðar hefur ýmislegt fyrir stafni og hefur með- al annars farið á sín- ar gömlu æskuslóðir á Akranesi. Þar var hann meðal áhorfenda á leik ÍA og Fjölnis um helgina. Þjálfarar liðsins eru bræð- ur hans, tvíburarnir Arnar og Bjarki. Ekki sá Garðar bræð- ur sína spila en sá hins vegar hvernig þeir taka sig út við stjórnvölinn á fótboltaliði. lynghálS 5, 110 rEykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn loftsson framkvæmdaStjóri: Elín ragnarsdóttir ritStjórar: jón Trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.iS aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Ef þið hreyfið ykkur þá skjótum við.“ n Sögðu fautarnir sem héldu rosknum hjónum í gíslingu meðan þeir rændu heimili þeirra á Arnarnesinu. -DV „Haukar Íslandsmeistarar í handbolta“ n Heitir fréttin um leik Hauka og Vals á streymivef RÚV. Staðan í einvíginu er hins vegar 1-0 og Haukar þurfa tvo sigra í viðbót. Annaðhvort starfar Haukamaður á vefnum eða RÚV veit eitthvað sem við hin vitum ekki. - ruv.is „... skrifa bara það sem þeim dettur í hug.“ n Ásdís Rán Gunnarsdóttir um búlgarska fjölmiðla. Núna síðast var því haldið fram að Ásdís hefði krafist þess að Garðar yrði leystur undan samningi svo þau gætu snúið heim. Fjölskyldan var bara í stuttu fríi á Íslandi. - DV „Ríkið ræður engu um launakjör þeirra“ n Hjördís Vilhjálmsdóttir, ráðgjafi fjármálaráðherra, um ofurlaunagreiðslur sem enn eiga sér stað til starfsmanna fjármálafyrirtækja sem farið hafa í greiðslustöðvun. Margir þeirra eru enn með evrutengd laun. - DV „Núna fer ég hins vegar hvert sem er óáreittur“ n Davíð Oddsson sem segir að hann hafi þurft að vera með lífverði hvert sem hann fór eftir bankahrunið en nú sé fólk jákvæðara í hans garð. -The Daily Telegraph Meðan Ísland brennur Leiðari Vandræðagangur sigurvegara kosn-inganna með að mynda ríkisstjórn er beinlínis þjóðhættulegur. Minni-hlutastjórn samlyndis sem stóð fyr- ir alþingiskosningum er nú meirihlutastjórn sundurlyndis. Á meðan Ísland brennur loga innan beggja flokka deilur um mögulega að- ild að Evrópusambandinu. ESB-málið yfir- skyggir allt annað á tímum þar sem mark- vissra aðgerða er þörf til að reisa efnahag landsins úr rústunum. Samfylkingin á mest sitt undir því að þjóðin gangi í Evrópusam- bandið en hagsmunir VG eru í hina áttina. Báðir flokkarnir máluðu sig út í horn fyr- ir kosningar með grjóthörðum yfirlýsing- um um ESB, stóriðju og jafnvel olíuleit. Litl- ar líkur á farsælu stjórnarsamstarfi annarra flokka en þeirra tveggja. Mikill meirihluti þjóðarinnar er þeirrar skoðunar að Sjálf- stæðisflokkurinn þurfi tíma til að ná áttum og taka til innandyra áður en hann fer aftur í stjórn. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, og Jóhanna Sigurðardóttir verða strax að finna leiðir til að láta ekki ágreiningsmál sín skaða þjóðarbúið meira en orðið er. Úrslit kosninganna fela í sér þau skilaboð að þeim sé treyst til að hreinsa til eftir hrunið og hefja endurreisnina. Lítt umdeildur heiðarleiki leiðtoganna tveggja var meginástæða kosn- ingasigranna. Það var kosið gegn spillingu. Fólkið sem þjóðin treysti til að hreinsa til í rústunum var valið. Allt tal um sigur Evrópu- sinna er út í bláinn. Evrópumálið má ekki vera sú fiðla sem stjórnvöld leika á meðan Ís- land brennur. Nú er mest áríðandi að koma atvinnulífinu af stað og slá á gjaldþrotahrin- una. Létta þarf á skuldum fólksins í land- inu ekki síður en fyrirtækjunum. Reisa þarf bankakerfið við. Nauðsynleg verkefni eru við hvert fótmál. Óróafólk innan beggja flokka verður að finna leiðina til að flokkarnir geti unnið saman af heilindum að þjóðarhag. Annars sekkur þjóðin enn dýpra í volæði og eymd kreppunnar. reynir traustason ritstjóri sKrifar: Evrópumálið má ekki vera sú fiðla sem stjórnvöld leika á. bókstafLega

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.