Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2009, Page 16
miðvikudagur 29. apríl 200916 Ættfræði
Elínborg Einarsdóttir
húsmóðir í reykholti í Biskupstungum
Elínborg fæddist í Kjarnholtum í Biskupstungum
og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Héraðs-
skólann í Reykholti og aflaði sér síðan menntunar
við aðra skóla og á ýmsum námskeiðum. Elínborg
var búsett í Keflavík 1961-92, síðan í Reykjavík til
2004 en er nú búsett í Reykholti í Biskupstungum.
Meðfram húsmóðurstörfum stundaði Elínborg
m.a. verslunarstörf og starfaði hjá Pósti og síma.
Elínborg sat í skólanefnd Tónlistarskólans í
Keflavík í nokkur ár og var formaður síðustu árin,
var gjaldkeri Árnesingafélagsins í Keflavík um ára-
bil og starfaði í málfreyjudeild á Suðurnesjum í
nokkur ár.
Fjölskylda
Elínborg giftist 3.6. 1961 Ingólfi Falssyni, f. 4.12.
1939, d. 8.8. 1998, framkvæmdastjóra í Keflavík
og forseta Farmannasambandsins. Elínborg og
Ingólfur slitu samvistum 1991.
Börn Elínborgar og Ingólfs eru Margeir, f. 20.9.
1961, bóndi á Brú og oddviti Bláskógabyggðar,
kvæntur Sigríði J. Guðmundsdóttur, bónda og hús-
freyju, og eiga þau þrjú börn auk þess sem Margeir
á son frá fyrra sambandi; Rúnar, f. 23.10 1963, d.
5.1. 1965; Einar Falur, f. 24.10.1966, bókmennta-
fræðingur, ljósmyndari og menningarblaða-
maður, en kona hans er Ingibjörg Jóhannsdóttir,
myndlistarmaður og skólastjóri, og eiga þau tvær
dætur; Guðrún Helga, f. 4.6. 1970, skrifstofumaður
í Noregi, og á hún tvo syni; Kristinn Ágúst, f. 1.2.
1973, viðskiptafræðingur við Sparisjóð Keflavíkur,
en kona hans er Elín Kristjánsdóttir viðskiptafræð-
ingur og eiga þau tvö börn.
Eiginmaður Elínborgar er Snorri Ólafsson, f.
10.8. 1938, skipstjóri og laxeldisbóndi.
Systkini Elínborgar eru Ingibjörg, f. 13.8. 1931,
kaupkona, búsett í Kópavogi, gift Katli Kristjáns-
syni; Gísli, f. 2.9. 1932, d. 30.5. 1999, bóndi og odd-
viti í Kjarnholtum, var kvæntur Ingibjörgu Jóns-
dóttur sem einnig er látin; Ingimar, f. 5.8. 1935,
fyrrv. starfsmaður nautastöðvarinnar á Hvanneyri,
kvæntur Önnu Kristinsdóttur; Guðrún, f. 16.2.
1937, fyrrv. skrifstofumaður í Reykjavík, gift Þor-
steini Hjartarsyni; Þóra, f. 29.8. 1945, húsmóðir í
Kópavogi, gift Jóni Gísla Jónssyni; Magnús, f. 24.1.
1949, hrossaræktarbóndi í Kjarnholtum en kona
hans er Guðný Höskuldsdóttir.
Foreldrar Elínborgar voru Einar Gíslason, f. 1.9.
1904, d. 11.12. 1996, bóndi í Kjarnholtum, og k.h.,
Guðrún Ingimarsdóttir, f. 4.8. 1905, d. 17.3.1981,
húsfreyja.
Ætt
Systir Einars var Dóróthea, móðir Rögnvalds Þor-
leifssonar læknis. Einar var sonur Gísla, b. í Kjarn-
holtum Guðmundssonar, b. í Kjarnholtum Dið-
rikssonar, hreppstjóra í Laugarási, bróður Þorláks,
langafa Önnu, ömmu Björns Bjarnasonar, fyrrv.
ráðherra, Valgerðar alþm. og Markúsar Arnar Ant-
onssonar sendiherra. Annar bróðir Diðriks var
Þorsteinn, langafi Sigurðar, föður Eggerts Hauk-
dal. Diðrik var sonur Stefáns, b. í Neðradal Þor-
steinssonar, b. í Dalbæ Stefánssonar, pr. í Steins-
holti Þorsteinssonar. Móðir Þorsteins var Ingibjörg
Jónsdóttir, pr. á Ólafsvöllum Erlingssonar, bróður
Gísla, afa Eiríks ættföður Reykjaættar Vigfússon-
ar. Móðir Diðriks var Vigdís Diðriksdóttir, b. á Ön-
undarstöðum Bjarnasonar og Guðrúnar Högna-
dóttur, prestaföður, pr. á Breiðabólstað í Fljótshlíð
Sigurðssonar, langafa Þuríðar, langömmu Vigdísar
Finnbogadóttur. Móðir Stefáns var Guðríður Guð-
mundsdóttir, ættföður Kópsvatnsættar Þorsteins-
sonar, langafa Magnúsar Andréssonar, ættföður
Langholtsættar, langafa Ásmundar Guðmunds-
sonar biskups og Sigríðar, móður Ólafs Skúlason-
ar biskups. Móðir Gísla var Vilborg, systir Gísla,
langafa Guðna Ágústssonar, fyrrv. ráðherra og
formanns Framsóknarflokksins. Systir Vilborg-
ar var Guðrún, amma Vilhjálms, skálds frá Ská-
holti. Vilborg var dóttir Guðmundar, b. á Löngu-
mýri Arnbjörnssonar, bróður Ögmundar, föður
Salvarar, langömmu Tómasar Guðmundssonar
skálds. Móðir Vilborgar var Ingibjörg Gísladóttir,
b. í Útverkum á Skeiðum Jónssonar og Vilborgar
Jónsdóttur, systur Guðmundar, langafa Margrétar,
móður Ólafs Thors forsætisráðherra. Móðir Einars
var Guðrún Sveinsdóttir, systir Elínar, móður Guð-
mundar Jóhannessonar læknis.
Guðrún var dóttir Ingimars, b. á Efri-Reykjum í
Biskupstungum Guðmundssonar, b. á Bergsstöð-
um Ingimundarsonar en hann fékk konungsverð-
laun fyrir framfarir í jarðrækt. Móðir Guðmundar
var Þórey Guðmundsdóttir, b. í Syðra-Langholti
Björnssonar og Guðrúnar Ámundadóttur, b. og
smiðs í Syðra-Langholti Jónssonar. Móðir Guð-
rúnar var Ingibjörg Guðmundsdóttir, systir Gísla í
Kjarnholtum.
Elínborg verður að heiman á afmælisdaginn.
Helga fæddist á Raufarhöfn og
ólst þar upp til sextán ára aldurs.
Helga var í Grunnskóla Raufar-
hafnar, stundaði nám við Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra
á Sauðárkróki, lauk stúdentsprófi
frá Fjölbrautaskóla Breiðholts og
sjúkraliðaprófi þaðan.
Helga vann í Fiskiðju Rauf-
arhafnar á unglingsárunum í
nokkur sumur, vann í bakaríi á
Sauðárkróki, starfaði í Keiluhöll-
unni í Öskjuhlíð í Reykjavík í tvö
ár, starfaði við sjúkraliðastörf í
Skógarbæ og á Borgarspítalan-
um, starfaði hjá lyfjafyrirtæki í
eitt og hálft ár og er nú sjúkraliði
á Sóltúni.
Helga hefur starfað með KMK,
Konum með konum, um skeið.
Fjölskylda
Kona Helgu er
Jóna Kolbrún
Sigurjónsdótt-
ir, f. 7.4. 1976,
tannsmiður.
Systkini
Helgu eru Sig-
urrós Jónas-
dóttir, f. 28.6.
1967, búsett á Þórshöfn; Guðmund-
ur Jónas Jónasson, f. 3.6. 1970, bú-
settur á Hellu; Páll Ingi Jónasson, f.
6.1. 1973, búsettur í Hafnarfirði.
Foreldrar Helgu: Jónas Pálsson,
f. 12.11. 1947, d. 13.7. 1995, sjómað-
ur og útgerðarmaður á Raufarhöfn,
og Margrét Sigurðardóttir, f. 14.3.
1949, starfsmaður hjá Íþróttahúsi
Breiðabliks.
Guðrún fæddist á Akureyri og ólst þar
upp. Hún var í Lundaskóla og Gagn-
fræðaskólanum á Akureyri, lauk
stúdentsprófi frá Kvennskólanum
í Reykjavík og lauk prófi í rafeinda-
virkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík.
Guðrún vann við frystihús Út-
gerðarfélags Akureyringa á Akureyri
og starfaði við verslunina Hagkaup á
Akureyri með á sumrin og með skóla,
og starfaði síðan við Fjarskiptastöð-
ina í Gufunesi um tíu ára skeið. Hún
stofnaði, ásamt bróður sínum, fyrir-
tækið Nortek árið 1996 og starfar við
það í dag.
Guðrún situr í stjórn skíðadeildar
Víkings.
Fjölskylda
Eiginmaður Guðrúnar er Jens Krist-
insson, f. 12.11.
1964, fram-
kvæmdastjóri
rekstrarsviðs hjá
Nortek.
Dóttir Guð-
rúnar og Jens
er Karen María
Jensdóttir, f.
31.7. 1992, nemi
við framhaldsskóla.
Bræður Guðrúnar eru Við-
ar Björgvin Tómasson, f. 9.7. 1964,
framkvæmdastjóri í Reykjavík; Birg-
ir Örn Tómasson, f. 24.3. 1972, fram-
kvæmdastjóri á Akureyri.
Foreldrar Guðrúnar eru Tómas
Sæmundsson, f. 30.5. 1943, verktaki,
og Dagmar Björgvinsdóttir, f. 13.2.
1945, fulltrúi.
Helga sif Jónasdóttir
sjúkraliði í reykjavík
guðrún Ýrr tómasdóttir
rafeindavirki í reykjavík
Eggert Hannah, gullsmiður í Reykjanes-
bæ, er fertugur í dag. Í gær var hann bú-
inn að gera allt klárt fyrir afmælisveisl-
una sem verður haldin á alþjóðadegi
verkalýðsins.
„Afmælispartíð mitt verður upphit-
unarpartí fyrir Bergásballið: Hefðbund-
ið partí í heimahúsi eins og þau gerðust
best í gamla daga, með léttum veiting-
um, pylsum og pinnamat. Ég á von á
svona fjörutíu til fimmtíu manns, geri
ráð fyrir að fólk mæti hjá mér um sex-
leytið og dembi sér svo á Bergásballið
um miðnættið. Svo mun Breiðbandið
líklega troða upp hjá mér, enda er bróð-
ir minn, Rúnar Ingi Hannah, meðlimur í
því merka bandi.“
En hvað er Bergásball?
„Hvað – veistu það ekki? Vinsæl-
asta ballið á Suðurnesjum, maður. Allt-
af haldið einu sinni á ári á þessum
árstíma. Þetta er sko ball diskó-kynslóð-
arinnar enda held ég að aldurstakmark
sé 30 ár. Þarna sjá gömlu plötusnúðarnir
um að þenja diskólögin fram eftir nóttu
og Grease-andinn svífur yfir vötnunum.
Ballið er nefnt eftir skemmtistaðnum
sem var undir Nýja bíói í Keflavík og þar
var það lengst af haldið, en nú verður
ballið haldið í Officeraklúbbnum. Það
verður auðvitað að hita upp fyrir svona
stuðböll.“
En dregur það ekki svolítið úr nost-
algíunni að vera orðinn fertugur?
„Nei, nei! Ég hef engar áhyggjur af
því. Ég held að þetta sé ósköp svipað
því að verða þrítugur. Og það gekk bara
ágætlega.“
30 ára í dag 40 ára í dag
Fertugur gullsmiður í Reykjanesbæ:
frá BreiðBandinu á BergásBall
30 ára
n Robert Stankiewicz Borgarbraut 12, Borgarnesi
n Eugenio Daudo Silva Chipa Fífuseli 14, Reykjavík
n Marija Baric Stapasíðu 12, Akureyri
n Przemyslaw Wojciech Czyzewski Álfalandi 5,
Reykjavík
n Slobodan Subasic Víkurgata 3, Stykkishólmi
n Nicholas Aaron Boulton Kirkjulækjarkoti 4,
Hvolsvelli
n Mario Alejandro Rodas Talbott Hverfisgötu 50,
Reykjavík
n Ósk Gunnlaugsdóttir Þingholtsstræti 21, Reykjavík
n Helgi Rúnar Pálsson Birkihlíð 7, Akureyri
n Styrmir Jörundsson Akursíðu 2, Akureyri
40 ára
n Monika Zofia Frysztak-Mazur Kveldúlfsgötu 18,
Borgarnesi
n Gunnlaugur Axelsson Brekkuseli 4, Egilsstöðum
n Sveinn Ægir Árnason Faxatúni 9, Garðabæ
n Lilja Valgerður Jónsdóttir Víðihlíð 5, Reykjavík
n Sigrún Unnur Einarsdóttir Eyjabakka 30,
Reykjavík
n Sæmundur Árni Tómasson Álfkonuhvarfi 43,
Kópavogi
n Sigfús Freyr Þorvaldsson Grundarvegi 15,
Njarðvík
n Guðrún Þorláksdóttir Hofteigi 34, Reykjavík
50 ára
n Sophie Marie Schoonjans Nýbýlavegi Lundi 3,
Kópavogi
n Guðmundur Kjartansson Heiðarholti 13, Reykja-
nesbæ
n Ingveldur Þ. Einarsdóttir Bollagörðum 59, Sel-
tjarnarnesi
n Kolbrún Ívarsdóttir Lækjarhjalla 4, Kópavogi
n Lilja Guðný Friðvinsdóttir Gerplustræti 25,
Mosfellsbæ
60 ára
n Leifur Þorsteinsson Fremristekk 12, Reykjavík
n Guðmundur I. Jónsson Austurströnd 6, Seltjarn-
arnesi
70 ára
n Sigmar Hjelm Kríuási 47, Hafnarfirði
n Þorvaldur Þórðarson Hjallabrekku 37, Kópavogi
n Sigurður Hrafn Þórólfsson Svöluhöfða 11,
Mosfellsbæ
n Ásdís Kristinsdóttir Kleifarvegi 8, Reykjavík
75 ára
n Lúðvík Sigurður Nordgulen Dalseli 40, Reykjavík
n Sigurveig Hauksdóttir Smáratúni 20, Reykja-
nesbæ
n Guðni Arnberg Þorsteinsson Sóleyjarima 15,
Reykjavík
n Þorvaldur Jón Matthíasson Laugarnesvegi 87,
Reykjavík
n Ólafur Jóhannesson Háagerði 81, Reykjavík
n Eðvarð Jónsson Skálateigi 3, Akureyri
n Unnur Axelsdóttir Víðilundi 24, Akureyri
n Kolbrún G. Sigurlaugsdóttir Vesturbergi 54,
Reykjavík
80 ára
n Kristján A. Guðmundsson Vesturbergi 46,
Reykjavík
85 ára
n Margrét Sigurðardóttir Espigerði 4, Reykjavík
n Unnur Lilja Hermannsdóttir Hraunbæ 103,
Reykjavík
90 ára
n Kristján Hafliðason Kleppsvegi Hrafnistu,
Reykjavík
n Kathinka Klausen Stóragerði 10, Reykjavík
Til
hamingju
með
afmælið!
70 ára í dag
Eggert Hannah Ásamt eiginkonu sinni,
Önnu maríu róbertsdóttur flugfreyju.
Eggert er af skoskum ættum og gifti sig því í
skotapilsi. Hann verður í pilsinu í partíinu en
treystir sér ekki í því á ballið.
auglýsingasíminn er
512
70
50