Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Blaðsíða 12
12 miðvikudagur 26. ágúst 2009 fréttir
Bresk kona í leit að hóteli eyddi nótt í anddyri fransks ráðhúss.
Hún læstist inni þegar bæjarstarfsmenn fóru í helgarfrí og læstu
ráðhúsdyrunum á eftir sér. Konan reyndi margt til að vekja at-
hygli á vandræðum sínum en lengst af án árangurs.
VILLTIST Á HÓTELI
OG RÁÐHÚSINU
Bresk kona á ferðalagi í Frakklandi
komst að því við illan leik að „hotel“
þarf ekki endilega að vera hótel. Kon-
an eyddi einni nótt í ráðhúsi fransks
smábæjar, eftir að hún hafði fyrir
mistök talið sig geta fengið herbergi
á „Hotel de Ville“, sem í Frakklandi
stendur fyrir ráðhús borga eða bæja.
Hin óheppna kona kom til bæj-
arins Dannemarie í Alsace-héraði í
Frakklandi á föstudaginn. Fyrir henni
lá að finna hótelherbergi fyrir nótt-
ina og þar sem hún gekk um götur
þessa fallega smábæjar rak hún aug-
un í glæsilega byggingu sem merkt
var „Hotel de Ville“. Hún skundaði inn
á hið fallega „hótel“, en ákvað áður en
hún fengi sér herbergi og gengi frá
innritun að fara á snyrtinguna.
Ekki fylgir sögunni hve lengi henni
dvaldist á snyrtingunni en á þeim
tíma lauk fundi embættismanna sem
staðið hafði yfir í ráðhúsinu. Að fundi
loknum gengu embættismenn frá
eins og reglur gerðu ráð fyrir, yfirgáfu
húsið og læstu því fyrir nóttina.
Hinn ólánsami ferðalangur, sem
ekki var nafngreindur en mun vera
kona á fertugsaldri, eyddi að eigin
sögn nóttinni í stól í anddyri ráðhúss
Dannemarie. Í viðtali við BBC sagði
Paul Mumbach, bæjarstjóri Dannem-
arie, að konan hefði án árangurs reynt
að vekja athygli á meinlegum að-
stæðum sínum, kalla á hjálp og koma
með öðrum hætti á framfæri hjálp-
arbeiðni, meðal annars með því að
kveikja og slökkva á víxl ljósin í bygg-
ingunni, en allt kom fyrir ekki og eng-
in barst hjálpin.
Konan hafði ekki erindi sem erf-
iði fyrr en að morgni laugardags, eftir
heldur nöturlega næturgistingu í ráð-
húsinu, þegar vegfarandi sá skilaboð
sem konan hafði sett innan á einar
glerdyr hússins.
„Je suis fermer ici. Est ce possible
moi la porte ouvrir?“ voru skilaboð
konunnar á miða og má, þrátt fyrir að
ekki sé alveg um kórrétta frönsku að
ræða, skilja á þá leið að hún sé lokuð
inni og hvort mögulegt sé fyrir hana
að opna dyrnar.
„Konan talaði ekki mikla frönsku,
en gerði sér ljóst að næstu nótt myndi
hún finna almennilegt hótel til að
gista á,“sagði Paul Mumbach. Það
hótel mun konan ekki finna í þess-
um 2.500 manna smábæ við landa-
mæri Sviss og Þýskalands því að sögn
Mumbachs bæjarstjóra er næsta opna
hótel í nágrannabæ Dannemarie.
Kolbeinn þorsteinsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
„Konan talaði ekki
mikla frönsku, en gerði
sér ljóst að næstu nótt
myndi hún finna al-
mennilegt hótel til að
gista á.“
ráðhús Dannemarie
fyrir miðju „Hotel de
Ville“ var ekki vænlegur
gististaður.
Yulia og Tigrylia
Yulia Tímósjenkó, forsætisráðherra
Úkraínu, fékk óvenjulega gjöf þeg-
ar hún var í heimsókn í Skadovsk á
Krímskaganum fyrir skömmu. Þar
var henni færður albínótígurungi
að gjöf þegar hún var viðstödd vel-
gjörðarhátíð í bænum.
Án efa hefur gjöfin vakið athygli
á forsætisráðherranum og í þeim
efnum er ekkert heilagt. Tígurung-
inn mun hafa fengið nafnið Tigrylia
og upplýsti Yulia Tímósjenkó að hún
myndi gefa hann dýragarðinum í
úkraínska bænum Yalta.
Fyrsta geimskotið
mistókst
Síðasta tilraun Suður-Kóreumanna
til að festa sig í sessi í geimkapp-
hlaupi Asíuríkja mistókst í gær þeg-
ar gervihnöttur með fyrstu geim-
flaug þjóðarinnar villtist af leið.
Þrátt fyrir að Suður-Kóreumenn
hafi skotið ellefu gervihnöttum
á loft síðan 1992 hefur þeim öll-
um verið skotið á loft frá erlendri
grundu og með geimflaugum fram-
leiddum af erlendum aðilum.
Vilja láta lífláta
umbótasinna
Stjórnvöld í Íran skipuðu í gær
þekktum endurbótasinnum á saka-
mannabekk. Þetta eru fjórðu fjölda-
réttarhöldin yfir fólki sem sakað er
um að hafa skipulagt ólgu í kjölfar
umdeildra forsetakosninga í júní.
Nokkrir hinna ákærðu eru með-
limir Mosharekat, helsta umbóta-
flokks landsins, og á heimasíðu
flokksins eru réttarhöldin fordæmd
sem sýndarréttarhöld. Krafist er
dauðarefsingar yfir umbótasinnun-
um.
MynD AFP MynD AFPMynD AFP
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
AllAr AlmennAr viðgerðir á
húsbílum og ferðAvögnum