Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Page 16
Miðvikudagur 26. ágúst 200916
Skótíska samtímans er svo fjölbreytt
að maður veit ekki hvar á að byrja
að stíga niður fæti. Skór með engum
hæl, skór með hæl, skór með mjórri
tá, skór með breiðri tá, sandalar, stíg-
vél, klossar, Buffalo-skór ... Listinn er
endalaus. Skór með sóla sem einn-
ig þjóna hlutverki fiskabúrs þekkjast
meira að segja, eins og þeir vita sem
séð hafa grínmyndina I´m Gonna Git
You Sucka. Og saga skósins er alda-
löng.
Skór hafa verið til merkis um virðu-
leika síðan löngu fyrir Krist. Í Biblíunni
er minnst á skó á fleiri en einum stað.
Til að mynda hljómar fyrsta skipun
Guðs þegar hann birtist Móses í ann-
arri Mósesbók á þá leið að hann skuli
taka af sér skóna því jörðin sem hann
standi á sé heilög. Í nokkurra þúsund
ára gömlum skjölum um hindúatrú
eru hinir trúuðu varaðir við því að
fara ekki úr skónum áður en gengið
er inn í helgan stað. Líkt og þeir vita
sem ferðast hafa til landa þar sem ís-
lamstrú er iðkuð er venjan að fara úr
fótabúnaði sínum áður en gengið er
inn í bænahús. Á dögum Grikklands
hins forna áttu konur af stétt aristó-
krata allt upp í tuttugu skópör, í mis-
munandi stíl eftir því hvað hentaði
tilefninu hverju sinni. Í Kína er alda-
gömul hefð sem gengur út á að hafa
kvenmannsfætur reirða. Upphaflegi
tilgangurinn var að tryggja að konan
yfirgæfi manninn sinn ekki sem var
talið erfitt fyrir hana ef fæturnir væru
afmyndaðir eftir böndin. Á miðöldum
komust sandalarnir „í tísku“ (aftur
myndu sumir segja) sökum þæginda
og svona mætti lengi halda áfram í að
stikla á stóru í sögu skófatnaðar.
Að lokum verður þó að koma því að
að konur í Bandaríkjunum nú til dags
kaupa að jafnaði fimm pör af skóm á
ári á meðan karlarnir kaupa um tvö
pör. Það er eingöngu talið tengjast því
að karlmannsskór endast lengur og
tolla lengur í tísku. Eða ekki.
Brot úr sögu skósins
Skór, skór, skór Mikið þarfaþing í sögu
mannsins.
„Ég vissi ekkert hvað ég var að fara
út í þegar ég byrjaði fyrir tveimur
árum,“ segir Halldóra Eydís Jóns-
dóttir, nemi í skóhönnun í Lond-
on College of Fashion. Hún hefur
stundað nám í Bretlandi í tvö ár og
mun útskrifast frá skólanum næsta
vor. Halldóra lærir allt sem tengist
skóhönnun í skólanum bæði mark-
aðsfræði og hvernig á að sauma og
gera skó.
Skólagjöldin roSalega há
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á
myndlist og er með mikla skódellu
sem ég hef líklega fengið frá ömmu
minni frá því ég var yngri, svo ég
ákvað að sameina þetta tvennt,“
segir Halldóra sem hélt út á vit æv-
intýranna í nám sem ekki marg-
ir Íslendingar hafa farið í. „Vinkon-
um mínum fannst alveg frábært
að ég væri að fara út í námið, þær
eru margar hverjar í svipuðu námi
tengdu myndlist, svo þetta var ekki
algjörlega nýtt fyrir þeim. Fjölskyld-
unni minni leist nú ekkert voðalega
vel á þetta í fyrstu, en mamma og
pabbi styðja alltaf við bakið á mér
í því sem ég tek mér fyrir hendur.“
Námið er oft á tíðum strembið hjá
Halldóru en hún heldur út til Bret-
lands á næstu vikum til að klára
síðasta árið. „Ég ætla að klára loka-
árið með stæl nú í vor. Þetta er oft á
tíðum strembið nám og mikil sam-
keppni. Skólagjöldin eru líka rosa-
lega há, þá sérstaklega fyrir okkur
sem erum ekki í Evrópusamband-
inu, þannig að ég ætla að reyna
drífa lokaárið af.“
notar íSlenSka Steina og
roð í Skóna Sína
Þegar Halldóra útskrifast í vor stefnir
hún á að ná frama á Norðurlöndun-
um og Bretlandi en segir að íslenski
markaðurinn sé erfiður. „Markað-
urinn á Íslandi er svo lítill og erfið-
ur en auðvitað væri það draumur að
geta opnað búð á Íslandi en draum-
urinn er úti í heimi.“ Halldóra bjó í
London þegar bankahrunið varð
í október í fyrra, hún segist hafa
fundið vel fyrir því. „Það var svolít-
ið erfitt að búa þá úti. Til að mynda
fór leigan á íbúðinni sem ég bjó í úr
100 þúsundum á mánuði í 170 þús-
und á mánuði. Ég þurfti að flytja út
úr henni eiginlega strax því það var
bara allt of mikið.“
Halldóra reynir að auglýsa og
nota Ísland sem mest þegar hún
hannar skóna sína. „Ég nota rosa-
lega mikið af sjaldgæfum íslenskum
steinum og einnig roð í skóna sem
ég hanna í skólanum, kennararnir
og krakkarnir í skólanum eru mjög
hrifnir af því hér úti.“
ein af tíu upprennandi
Skóhönnuðum BretlandS
Nú fyrir stuttu var Halldóra val-
in sem ein af tíu upprennandi skó-
hönnuðum á Bretlandi til að keppa
um titilinn „Nýju skóstjörnuna“ hjá
fyrirtækinu Viva la Diva sem sel-
ur fjölda þekktra merkja undir sínu
nafni. „Ég var með yfir tvö hundr-
uð hugmyndir í upphafi svo eftir
langt og strangt ferli endaði ég með
tólf hugmyndir sem ég vann svo
meira úr.“ Það var þó ein hugmynd
sem Halldóra sendi inn í keppnina
og var hún valin, eins og fyrr segir.
„Síðan er kosið á heimasíðunni vi-
valadiva.com og gestir þeirrar síðu
kjósa síðan flottasta skóparið.“ Úr-
slitin verða síðan birt í september
og er Halldóra bjartsýn að bera sig-
ur úr býtum. „Verður maður ekki
að vera það? Ég er það að minnsta
kosti alveg, það er svo erfitt að segja
og maður getur engan veginn vitað
það.“ Hún segir mikil tækifæri fel-
ast í því að vinna keppnina. „Þetta
er náttúrlega stórt fyrirtæki og stór
stökkpallur og flottir vinningar ef
maður skyldi vinna,“ segir Halldóra
kát að lokum.
Halldóra Eydís Jónsdóttir er 25 ára Mývetningur sem hefur stundað nám í London College of Fashion
í tvö ár. Þar lærir hún skóhönnun en það eru ekki margir Íslendingar sem hafa lært það undanfarin ár.
Hún er komin í hóp tíu skóhönnuða á Bretlandi sem taka þátt í keppni hjá stóru fyrirtæki. Halldóra notar
íslenska steina og roð í skóna sína.
íSlenSkur
Skóhönnuður
slær í gegn í Bretlandi
„Ég nota rosalega
mikið af sjald-
gæfum íslenskum
steinum og einnig
roð í skóna sem ég
hanna í skólanum.“
Halldóra Eydís Stundar
nám í Bretlandi og lærir
þar skóhönnun.
Catwalk-skór Halldóra var með vatn, ís og
loft í huga þegar hún hannaði þesa skó í sam-
vinnu við Georginu Goodman skóhönnuð.
Hiphop-skór Halldóra hannaði
þessa skó með hiphop og graffití í
huga. Hún prentaði sjálf á leðrið.
Íslensk hönnun Í þessa skó notar
Halldóra íslenskt laxaroð og muge-
arit-steina sem eru afar sjaldgæfir og
finnast einungis á Íslandi og Írlandi.
skór og FYLgIHLUTIr
Sérverslun með
FÁKAFENI 9 - (við hliðina á ísbúðinni)
Sími: 553 7060
Skór & töskur
www.gabor.is ALLT Í STÍL
snyrtibuddur
töskur
lykla
veski
seðlaveski