Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Blaðsíða 21
fréttir 26. ágúst 2009 miðvikudagur 21 Lausn Lockerbie-sprengjumannsins hefur víða áhrif: Krafist bóta fyrir fórnarlömb IRA Útlit er fyrir að lausn Lockerbie- sprengjumannsins Abdels Baset Ali Al Megrahi úr prísund á Bret- landi muni draga þungan dilk á eft- ir sér. Nú hafa ættingjar fórnarlamba hryðjuverka írska lýðveldishersins IRA endurnýjað kröfur sínar á hend- ur Líbýu um bætur, í kjölfar lausnar Megrahis. Líbýa útvegaði IRA byss- ur og sprengiefni á sínum tíma og nú vilja ættingjar fórnarlamba sam- takanna að líbýsk stjórnvöld horfist í augu við ábyrgð sína. Þeir fara fram á að Muammar Gaddafi sýni sömu samúð og sýnd var Megrahi. Fjölskyldur þeirra sem féllu fyr- ir líbýskum vopnum telja lausn Megrahis hafa styrkt málstað þeirra, en lausn hans hefur valdið úlfaþyt beggja vegna Atlantsála. Skoska ríkisstjórnin tók ákvörð- un um að sleppa Abdelbaset Ali Al Megrahi á grundvelli samúðar, en hann mun vera með ólæknandi krabbamein. Megrahi var fagnað sem hetju þegar hann kom heim til föðurlandsins og var það síst til þess fallið að slá á gagnrýni á ákvörðun breskra stjórnvalda. Jason McCue, lögfræðingur fjöl- skyldnanna, sagði að uppákoman við heimkomu Megrahi hefði kastað Líbýu mörg ár, diplómatískt séð, aft- ur í tímann. Kenny MacAskill, dómsmálaráð- herra Skotlands sem tók ákvörð- un um lausn Abdelbasets Ali Al Megrahi, sakaði hann í fyrradag um að hafa gengið í bága við loforð um að stofna ekki til sérstakra há- tíðarhalda og var það í fyrsta sinn sem stjórnvöld í Skotlandi taka undir fordæmingu á þeim sigurlát- um sem fylgdu heimkomu Megra- his. kolbeinn@dv.is Heimkoma Abdel Baset Ali Al Megrahi Fagnaðarlætin gengu í bága við samkomulag vegna lausnar hans. Mynd AFP Dánarorsök poppprinsins að skýrast og ekki allt með felldu: Dauði Jacksons manndráp Dánardómstjóri Los Angeles-sýslu hefur úrskurðað dauða Michaels Jackson manndráp. Samkvæmt leit- arheimild sem tekur til Conrads Murray, einkalæknis Jacksons, sem var opinberuð á mánudaginn, fannst banvænt magn svæfingalyfsins Prop- ofol eftir að lík Jacksons hafði verið rannsakað. Lyfið er allajafna notað á sjúklinga fyrir uppskurði. Embættismaður við embætti dánardómstjóra sagði að Jackson hafi verið gefin banvæn blanda lyfja klukkustundum áður en hann lést 25. júní. Við rannsókn fannst Propof- ol auk tveggja annarra deyfilyfja í lík- ama Jacksons. Við húsleit á aðsetri Jacksons í Los Angeles fann lögreglan átta flöskur af Propofol auk annarra lyfja, þeirra á meðal Valíum, Tamsulosin, Loraz- epam og fjögur önnur. Í læknistösku Murrays læknis fannst Propofol, en hann tjáði rannsóknarlögreglunni að hann væri ekki fyrsti læknirinn sem hefði gefið Jackson þetta öfluga svæf- ingalyf. Að sögn Murrays var hann, þegar dauða Jacksons bar að, að reyna að venja hann af lyfinu og fá hann til að sofna án þess. Í aðdraganda dauða Jacksons hafði læknirinn gefið honum Valíum klukkan hálf tvö um nóttina. Þegar það bar ekki árangur gaf hann Jack- son Lorazepan í æð klukkan tvö. Þeg- ar Jackson var enn vakandi klukkan þrjú fékk hann Midazolam. Á næstu klukkustundum fékk Jackson ýmis lyf hjá lækninum og klukkan 10.20 um morguninn fékk hann 25 milligrömm af Propofol. Nokkrum klukkustundum síðar var Michael Jackson allur. Michael Jackson Tekinn inn í Rock and Roll Hall of Fame 2001. Mynd AFP Mannskæðasta ár hersveita Nato í Afganistan: Fleiri fallið en allt síðasta ár Með dauða fjögurra bandarískra her- manna í Afganistan, sem féllu í gær, er árið 2009 það mannskæðasta fyrir Nato og alþjóðlegar hersveitir undir forystu þess í landinu síðan aðgerðir hófust. Mannfall það sem af er ári er 295 manns miðað við 294 allt síðast- liðið ár. Fyrir skömmu varaði Michael Mullen aðmíráll, háttsettur embætt- ismaður í Bandaríkjaher, við versn- andi öryggisaðstæðum í Afganist- an. Í viðtali við fréttastofu CNN á sunnudag sagði Mullen aðmíráll að aðstæður væru „alvarlegar og færu versnandi“. Að sögn hans gengi sókn talibana betur en áður og væri þró- aðri. Richard Holbrooke, sérstakur full- trúi Baracks Obama, forseta Banda- ríkjanna, um málefni þessa heims- hluta, hitti yfirmenn í Afganistan um helgina og varð honum tíðrætt um að skortur væri á landhermönnum til að takast á við sókn talibana. Æðsti yfirmaður Bandaríkjanna í Afganistan, Stanley McChrystal, sagði fyrr í þessum mánuði að tali- banar væru að vinna. Þetta eru nöturlegar niðurstöð- ur, ekki síst í ljósi þess að Banda- ríkjamenn fjölguðu nýlega her- mönnum sínum í Afganistan um 17.000 og er heildarfjöldi banda- rískra hermanna í Afganistan nú um 57.000. Bandarískir hermenn með slasaðan félaga Þrátt fyrir fjölgun hermanna eykst mannfall vestrænna herja í Afganistan. Mynd AFP GenGisfall í ÁGÚsT Allar pizzur á matseðli 1.500 kr miðað við sóttar pizzur 568-6868 30 days Apótekin & Heilsubúðirnar www.leit.is · Smellið á ristilvandamál Á gamla gamla verðinu. 30 days Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman. Oxy tarm Apótekin & Heilsubúðirnar www.leit.is · Smellið á ristilvandamál Á gamla gamla genginu. Oxy tarm Endurnærir og hreinsar ristilinn Allir dásama oxy tarmið KOMDU Í ÁSKRIFT :: hringdu í síma 515 5555 eða :: sendu tölvupóst á askrift@birtingur.is eða :: farðu inn á www.birtingur.is og komdu í áskrift

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.