Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Page 23
Hver er maðurinn? „Baldvin Zóphoníasson, 31 árs Akureyringur.“ Hvað drífur þig áfram? „Að hafa eitthvað fyrir stafni og vinna að einhverju.“ Hvar ertu uppalinn? „Akureyri.“ Uppáhalds leikari/leikkona og leikstjóri? „Paul Tomas Andersson leikstjóri og Atli Óskar Fjalarsson sem leikari.“ Hver myndi leikstýra Holly- wood-mynd um íslenska efnahagshrunið? „Oliver Stone.“ Af hverju unglingadrama? „Því það hafa allir verið þar og það fara allir í gegnum það. Það geta allir tengt sig við þessi ár og þetta eru skemmtilegustu ár ævi okkar. Þegar enginn er morgundagurinn og allar ákvarðanir endanlegar.“ Um hvað fjallar myndin? „Unglinga sem eru að breytast í fullorðið fólk. Skilin þarna á milli.“ Af hverju Ingibjörg Reynisdóttir og hennar bækur? „Það var upphaflega haft samband við mig. En hún nær að fanga þennan anda vel en krakkarnir í myndinni eru eilítið eldri en í bókunum.“ Hvað kostar myndin í fram- leiðslu? „Mér skilst 130 milljónir.“ Fyrsta mynd í fullri lengd. Hvað hefur þú gert áður? „Ég hef gert töluvert af stuttmyndum. Í fyrra gerði ég til dæmis myndina Hótel Jörð sem fór á nokkrar kvikmyndahátíðir. Svo bjó ég í Danmörku í 3 ár. Var þar í námi og vann við auglýsinga- og myndbandagerð.“ Áttu þér einhverja drauma- mynd? „Ég er að vinna í drauma- myndinni og það er heimildarmynd um Reyni Örn Leósson betur þekktan sem Reynir sterki.“ Fórst þú til útlanda í sumarFrí í sumar? „Nei það gerði ég ekki, ég hafði ekki efni á því. Ég ferðaðist bara innanlands í staðinn.“ AUðUR BjöRg gUðmUndsdóttIR 24 áRA STARFSMAðUR Í SPAkSMANNSSPJÖRUM „Ég bý í útlöndum og er á Íslandi í fríi, þannig, já, ég fór til útlanda í sumarfrí.“ RegínA mARíA ÁRnAdóttIR 22 áRA NEMi „Nei ég ákvað að fara ekki, Ísland verður að duga í bili.“ ólAFUR snæR ólAFsson 16 áRA NEMi „Nei, því miður, ég átti engan pening.“ mAgdAlenA BjöRnsdóttIR 15 áRA NEMi Dómstóll götunnar BAldvIn ZópHoníAsson leikstýrir sinni fyrstu kvikmynd í haust. Um er að ræða unglingamynd eftir bókum ingibjargar Reynisdóttur. Myndin mun kosta um 130 milljónir en Baldvin segir unglingsárin nokkuð sem allir geti tengt við og mest spennandi tíma lífsins. DraumamynDin um reyni sterka „Já, ég fór til Spánar og Praag. jARA HIlmARsdóttIR 14 áRA NEMi Innanbúðarmaður í einum bank- anna sem hrundu síðastliðið haust hefur efnislega látið eftirfarandi frá sér fara: Veikleiki íslensku bankanna fólst í að lántakendur voru orðnir fáir og stórir. Í þessu fólst vaxandi áhætta. Matsfyrirtækin vissu þetta. Fjár- málaeftirlitið breytti vinnubrögðum sínum til að geta farið sérstaklega yfir lánveitingar til tengdra aðila. Kaupþing greip til varúðarráð- stafana þegar haustið 2007. Bankinn stöðvaði vöxt útlána. Hann fækkaði starfsfólki og dró úr rekstrarkostn- aði. Stjórnendur bankans gerðu sér grein fyrir því að fjármálamarkaðir voru farnir að hökta og jafnvel lok- ast. Stjórn Kaupþings hélt örlagarík- an fund rétt fyrir bankahrun. Þar var tekin ákvörðun um að flytja alla al- þjóðlega starfsemi bankans í dótt- urfélög. Starfsemina í Svíþjóð, Finn- landi og í Danmörku átti að fella undir FIH-bankann í Danmörku sem þá var í eigu Kaupþings. Alla aðra erlenda starfsemi Kaupþings átti að fella undir starfsemi Kaup- þings í Bretlandi. Á Íslandi yrði að- eins íslensk starfsemi bankans. Á þessum tíma voru um 80 prósent af starfsemi Kaupþings á erlendri grundu. Þessar ákvarðanir ætl- uðu stjórnendur bankans að kynna markaðnum í lok október 2008. En bankinn féll og ekkert varð af þessum áformum. ógnarleg umsvif Þegar allt lék í lyndi var heildar- velta Kaupþings 55 milljarðar evra. 10 milljarðar evra hafi tapast af þessum peningum en það merkir að heimtur upp í kröfur eru um 75 til 80 prósent. Bankinn er búinn að gera upp við alla kröfuhafa í Finn- landi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Lúxemborg, Þýskalandi og Austur- ríki. Ekki fellur króna á íslenska rík- ið eða íslenskan almenning. Innan- búðarmaðurinn segir jafnframt að rétt hafi verið að lána Kaupþingi 500 milljónir evra á síðustu metrunum fyrir hrun enda líkur á að umtalsvert heimtist upp í þá upphæð. Öll dótturfyrirtæki Kaupþings fengu eðlilegan stuðning þegar á reyndi, til dæmis í Svíþjóð. Enda gerði sænski seðlabankinn ekki annað en að leysa til sín starfsemina í Stokkhólmi þegar Kaupþing féll og hefur nú selt bankann og fengið allt sitt til baka. Singer Friedlander- bankinn í London var sá eini sem ekki fékk fyrirgreiðslu; hann stóð ekkert verr en margir aðrir breskir bankar á þessum tíma. Singer Fri- edlander varð fyrir jarðskjálftanum frá viðskiptum breskra yfirvalda við Landsbankann og Icesave. Innanbúðarmaðurinn umræddi heitir Hreiðar Már Sigurðsson, fyrr- verandi forstjóri Kaupþings. Í sjón- varpsþætti á RÚV nýverið sagðist hann ekki geta beðist afsökunar á því sem hann kallaði skelfileg mis- tök Seðlabankans á síðasta ári. Ef Seðlabankinn hefði hagað útlánum sínum eins og hann hagaði lánum sínum til Kaupþings hefði ríkissjóð- ur ekki verið rekinn með 240 millj- arða króna halla í fyrra. Skuldir rík- issjóðs hafa aukist um 700 milljarða króna sagði Hreiðar Már. „Það er áætlað að það sé annars vegar vegna hruns Seðlabankans og hins vegar vegna Icesave. Þessar upplýsingar eiga allar að fara upp á borðið.“ vont ef satt reynist Hreiðar Már sagði einnig í umræddu viðtali að stærstu mistök stjórnenda bankans hefðu verið að flytja ekki höfuðstöðvar hans úr landi þegar árið 2006. Hreiðar Már bað hluthafa, starfs- menn og lánardrottna afsökunar á mistökum sínum. Frekar en að vera með skæting og veifa blöðrum fullum af máln- ingu er verðugt að staldra við eitt andartak og velta því fyrir sér hvort ekki sé hægt að sannreyna staðhæf- ingar Hreiðars Más. Hafi hann rétt fyrir sér verð- ur ábyrgð stjórnvalda þeim mun meiri. Þau bönnuðu Kaupþingi að gera upp í er- lendri mynt. Þau leyfðu bönk- um að taka stöðu gegn krónunni með þeim af- leiðingum að gengi hennar féll um 80 prósent löngu áður en bank- arnir féllu. Það leiddi til 30 pró- senta hækkunar verðbólgu sem nú er meginástæða þess að heimilin í landinu eru að kikna undan dráps- klyfjum. „Þetta voru ekki ákvarðanir bankamanna. Þetta voru ákvarðan- ir stjórnvalda og yfirmanna Seðla- bankans,“ sagði Guðmundur Ól- afsson hagfræðingur í útvarpsþætti fyrir fáeinum dögum. Þyngra en tárum taki kjallari mYnDin 1 Bush berar bossann - myndir Sophia Bush virðist mjög hrifin af stuttum kjólum og stuttbuxum þessa dagana. 2 Allsber og ólétt Veruleikasjónvarpsstjarnan kourtney kardashian gengur nú með sitt fyrsta barn. Svo ánægð er hún að hún gengur um nakin heima hjá sér til að sýna bumbuna. 3 jákvæð en dauðhrædd Borghildur Björnsdóttur, sem nýlega var dæmd til að skila sonum sínum til föður þeirra í Bandaríkjunum, er jákvæðari núna en áður. Hún er þó dauðhrædd um hvernig málið endar. 4 skoða sölu Baugs á Högum Einn af þeim viðskiptagerningum sem nú er verið að skoða er hvort sala Baugs á tæplega 96 prósenta hlut í Högum yfir til eignarhaldsfélagsins 1998 ehf. á síðasta ári hafi verið óeðlileg. 5 Árni betur á sig kominn en gylfi árni Páll árnason félagsmálaráðherra hljóp hraðar í Reykjavíkurmaraþoninu en kollegi hans Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra. 6 sigmundur ernir sver af sér ölvun á þingi Þingmaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson þvertók fyrir að hafa verið ölvaður í ræðustól á Alþingi, þegar svæðisútvarp Austurlands spurði hann út í ásakanir þess efnis. 7 Hver á þetta forláta hálsmen? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir eiganda forláta hálsmens sem nú er í vörslu lögreglunnar. mest lesið á DV.is umræða 26. ágúst 2009 miðvikudagur 23 nudd á milli vina Annars ólánsamir íbúar strætisins eiga margir því láni að fagna að geta leitað til góðra félaga þegar eitthvað bjátar á. Hvort sem það var vöðvabólga eða axlarverkur sem þjáði þennan mann þar sem hann sat á bekk við Austurvöll í gær þurfti hann ekki að bíða lengi eftir að sessunauturinn byðist til að nudda hann þar til verkurinn hjaðnaði. mynd sIgtRyggUR ARI jóHAnn HAUksson blaðamaður skrifar „Þetta voru ekki ákvarðanir banka- manna. Þetta voru ákvarðanir stjórn- valda og yfirmanna Seðlabankans.“ maður Dagsins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.