Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Page 22
Þingmönnum er vissulega vor-kunn. Þeir hafa verið önnum kafnir í langan tíma vegna ESB-aðildarumsóknar og síðan Icesave-ábyrgðar. Þess vegna er kannski ekki furða að þeir hafi gleymt gömlum spádómum um að besta leið þeirra til að vera í tengslum við umbjóðendur sína sé sú að upplýsa þá um störf sín og stefnu á heimasíð- um. Og það þrátt fyrir að þingið sjái ástæðu til auglýsa heimasíður þing- manna sérstaklega á þingvefnum . Sumir þingmenn blogga vissu-lega í gríð og erg. Við skul-um ekki draga úr því. Dæmi um það er Birgitta Jónsdóttir sem keppir við þingmenn á borð við Eyglóu Harðardóttur, Ólínu Þor- varðardóttur, Björgvin Val Gíslason og Unni Brá Konráðsdóttur um að yfirtaka bloggmeistaratitil Alþingis af Birni Bjarnasyni sem skrifar mikið þrátt fyrir að vera hættur á þingi. Svo eru þeir sem skrifa reglu-lega. Þingmenn eins og Jónína Rós Gunnarsdóttir, Margrét Tryggvadóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Ögmundur Jónasson og Þór Saari skrifa öll reglulega og nokkuð oft. Aðrir þingmenn virðast hins vegar síður í tengslum við net- verjann í sjálfum sér. Ásta Ragnheið-ur Jó-hannes-dóttir, forseti Alþingis, skrifaði síðast um sjálfstjórn á Græn- landi, fyrir tveimur mánuðum. Birkir Jón Jónsson hefur ekkert skrifað síðan í lok maí. Árni Þór Sigurðsson hefur ekki skrifaði á vef sinn í næstum mánuð en þó átt spretti í sumar. Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar af og til og Jóhanna Sigurðar- dóttir, sem eitt sinn var afar duglegur bloggari, skrifar ekki á síðu sína nema um það bil einu sinni í mánuði. Jón Bjarnason skrifar við sérstök tækifæri, svo sem 1. maí, á Eurovision, Ung- mennalandsmóti og nú þegar Sem- entsverksmiðjan á Akranesi virðist í dauðakippunum. Unga kynslóðin á þingi, þessi sem ólst upp við pólitísk vefrit er kannski ekki mikið betri. Katr- ín Jakobsdóttir skrifaði síðast 7. mars og nafna hennar Júlíusdóttir, sem einnig situr í ríkisstjórn, skrifaði síðast á heimasíðu sína 18. mars. Einhverjir þingmenn eru þó að vakna til lífsins nú þegar sum-arið tekur að víkja fyrir haust-inu. Magnús Orri Schram hafði lítið bloggað eftir kosningar þar til hann skrifaði allt í einu þrjár greinar á skömmum tíma nú nýlega. Sigurður Ingi Jóhannsson dettur í gírinn af og til og sama má segja um Valgerði Bjarna- dóttur og Vigdísi Hauksdóttur. Svo eru þeir þingmenn sem virðast hafa gleymt bloggsíð-um sínum. Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra skrifaði síðast grein um Sjálfstæðisflokk á harðahlaupum. Það var 23. apríl, á fæðingarafmæli nóbelskáldsins og tveimur dög- um fyrir kosningar. Flokks- bróðir hans Guð- bjartur Hannesson hefur ekkert skrifað síðan tæpri viku fyrir kosning- ar. Svipaða sögu er að segja af Helga Hjörvar. Illugi Gunnarsson virðist lítið hafa haft um að skrifa frá því lands- fundi Sjálfstæðisflokksins lauk í mars. Heimasíða hans er reyndar þeirrar tegundar að hann virðist mest lítið hafa skrifað sjálfur og aðallega stuðn- ingsmenn hans séð um slíkt skömmu fyrir prófkjör. Flokksbróðir hans Jón Gunnarsson hefur aðeins einu sinni uppfært síðu sína eftir að hann þakk- aði fyrir stuðninginn í prófkjöri í mars og þá til að setja inn blaðagrein. Svip- aða sögu er að segja af Þorgerði Katr- ínu Gunnarsdóttur. Ólöf Nordal skrif- aði mánaðarlega fram í maí. Gamli blaðamaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson var duglegur bloggari fram í júlí og Siv Friðleifsdóttir er auðvitað manna duglegust við uppfærslur en þar er þó fyrst og fremst um að ræða dagbók þingmanns en síður umræður um pólitísk málefni. Steinunn Valdís hefur einu sinni bloggað síðan í mars. Meira að segja Össur Skarphéðins- son, sem ritað hefur sumar frægustu bloggfærslur þingmanna, hefur ekki ritað á síðu sína síðan daginn fyrir kosningar. Auðvitað eru sumir þingmenn í sérflokki. Síðasta færslan á vef Péturs Blöndal er dagsett 27. október, að vísu ekki í fyrra heldur árið 2006. Vel fyrir hrun. Og já. Heimasíða Björgvins G. Sig- urðssonar skartar enn sama textan- um og birtist þar allt í einu í kringum bankahrunið. „Verið er að endurskoða og breyta vefsvæðinu bjorgvin.is.“ Hin gleymda list Spurningin Já, ég tel að það sé alveg greinilegt að þeir hafi smitast af sigurgleði líka,“ segir Leifur Guðjónsson, sjómaður í Grindavík og félagi í stuðnings- mannaliðinu Stinningskalda sem brá á leik og mætti í hvítum sóttvarnargöllum á leik Grindavíkur. smitaðist liðið af sigurgleði? Sandkorn n Athafnamaðurinn og vatnsris- inn Jón Ólafsson var á fyrri tíð meira áberandi en þessa dagana. Jón var einn af ríkustu mönnum landsins og umdeildustu með gríðar- leg umsvif í afþreying- ariðnaði. Eignastaða hans eftir hrunið er óljós. Nú ein- beitir hann sér að fyrirtæki sínu, Glacier, sem tappar vatni á flöskur handa þyrstum heimi. Jón er flutt- ur frá London heim til Íslands þar sem hann lætur lítið fyrir sér fara en hlúir að rekstri sínum. n Þær stöllur Agnes Bragadótt- ir, pistlahöfundur Moggans, og Björg Eva Erlendsdóttir, ritstjóri Smugunnar, eru fastagestir í Bítinu á Bylgjunni. Stór hluti af orðræðu Agnesar fer þar í að vitna vinnustað sinn, Mogg- ann, og vísa í gullið sem finnst í grjóti þess skuld- uga blaðs. Björg Eva tók upp hátt Agnesar í gærmorgun og hældi teikningu Halldórs Baldurssonar sem sýndi Hannes Hólmstein Gissurarson sitja einan í kirkju. Hannes var kallaður sértrúarsöfnuður þar sem hann sat og mærði Davíð Oddsson. Eftirtektarvert var að Agnes, sem talin er náin Hannesi og Davíð, tók ekki undir hólið. n Bakkabræðurnir Ágúst og Lýð- ur Guðmundssynir hafa líklega skotið sig rækilega í allar lappir með kröfu sinni um niðurfellingu skulda og að fá 1.000 milljónir króna á ári fyrir að halda gang- andi þeim kontór sem stýrir Ex- ista. Þetta kann að marka upphaf falls þeirra bræðra sem eru íslenski útrásar- draumurinn holdi klædd- ur. Bræðurn- ir byrjuðu rekstur sinn smátt með því að kaupa og selja grásleppu- hrogn sem umbreyttust í kavíar. Síðan lá leiðin upp á stjörnuhim- in útrásarvíkinganna. Nú fer þetta aftur að verða spurning um grá- sleppuna. n Dorrit Moussaieff forsetafrú rokkar sæmilega feitt með því að fá leikkonuna Kate Winslet til að ljá Sólskinsdreng Friðriks Þórs Friðrikssonar rödd sína. Á meðan vinsældir Ólafs Ragnars Grímsson- ar, forseta Íslands, eru í sögulegu lág- marki hefur þjóðin sama dálætið á for- setafrúnni sem jafn- an fylgdi manni sínum á ferðum um heiminn í þágu útrásar- innar. LynGháLS 5, 110 Reykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir ritStjórar: jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.iS aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Það er ósköp sorglegt að heyra.“ n Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, um að grunnskólanemar þurfi að eyða svipuðum fjárhæðum og framhaldsskólanemar í ritföng. Kostnaður getur hlaupið á tugum þúsunda. - DV. „Ef vel ætti að vera þyrfti að fjölga starfsfólki um helming.“ Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri um að embættið hafi ekki fengið aukið fjármagn þrátt fyrir að verkefnin séu mun fleiri en nokkru sinni. - DV. „Hann var alltaf í síman- um að tala við Kate Winslet.“ Erlingur Ingvarsson, veiðifélagi Friðriks Þórs Friðrikssonar, um að sá síðarnefndi hafi lítið getað einbeitt sér að veiðinni. Óskarsverðlaunaleikkon- an Kate Winslet talar inn á enska útgáfu myndarinnar Sólskinsdrengur sem Friðrik gerði. - Morgunblaðið. „Þetta er stór- furðulegt.“ Margrét Lára Viðarsdóttir um vítaspyrnuna sem hún tók á móti Frökkum og sagði ekki nógu góða. Hana grunaði að þessi staða gæti komið upp og hafði æft vítin sérstaklega daginn áður. - Morgunblaðið. „Ég vissi alltaf að við ættum bestu stuðnings- menn í heimi.“ Dóra María landsliðskona sem sagði stuðningsmenn Íslands þá bestu í heimi en þeir drógu hvergi af sér þrátt fyrir erfitt gengi gegn Frökkum. - fotbolti.net. Opinberun Hannesar Leiðari Það er þekkt í áróðursstríði að ef menn segja sama hlutinn nógu oft fari fólk að taka það trúanlegt. Fyr-ir íslenskan almenning er nauðsyn- legt að láta ekki slá ryki í augu sín. Skúrk- ar hrunsins mega ekki komast upp með að ljúga af sér sakir. Þeir sem ábyrgð bera á því að íslenskt efnahagslíf er í rúst eru ekki ein- göngu útrásarvíkingar sem fóru geyst og steyptu sjálfum sér og öðrum í efnahagslega glötun, heldur er ábyrgðin ekki síður þeirra sem skópu það umhverfi sem reyndist búa yfir kjöraðstæðum fyrir græðgi og spillingu. Stjórnmálamennirnir sem stóðu fyrir einka- væðingu bankanna eru þar ofarlega á lista, rétt eins og þeir sem töluðu þeirra máli. Nú eru þessir menn í óðaönn að tala hjörtu sín hrein. Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor og einlægur talsmaður hömlu- lauss frelsis í viðskiptum, er frægur fyrir þá setningu að alvörumenn græði á daginn og grilli á kvöldin. Hannes Hólmsteinn er í starfi hjá Háskóla Íslands þrátt fyrir að hafa verið dæmdur fyrir að taka texta ófrjálsri hendi. Það hefði átt að kosta hann starfið en skjól Sjálfstæðisflokksins dugði honum. Nú er prófessorinn lagstur í þann víking að koma sök á efnahagshruninu yfir á flesta aðra en aðalleikarana í stjórnmálum og viðskiptum. Hann heldur því fram að Davíð Oddsson hafi reynt að berjast gegn því sem síðar gerð- ist en verið borinn ofurliði. Og prófessorinn heldur því fram að hrunið sé Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, að kenna. Ástæð- an sé sú að hann hafi stöðvað fjölmiðlalögin. Það þýðir væntanlega að fjölmiðlarnir gengu óheftir til þess óhæfuverks að rústa Íslandi. Loks heldur Hannes því fram í opinberun sinni að Steingrímur J. Sigfússon fjármála- ráðherra beri ábyrgð á þeirri skelfilegu stöðu sem skapast hefur vegna Icesave. Bullið í prófessornum tekur út yfir allan þjófabálk. Veikburða, en blygðunarlaus, tilraun hans til kattarþvottar á spilltum stjórnmálamönn- um og vinum þeirra í viðskiptum er skamm- arleg. Það er íslenskri þjóð til skammar að vera með slíkan mann á framfæri í æðstu menntastofnun landsins. Hann hefur opin- berað það að vera ómerkingur. reynir traustason ritstjóri skrifar. Bullið í prófessornum tekur út yfir allan þjófabálk. bókStafLega 22 miðvikudaGur 26. ágúst 2009 umræða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.