Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 26.08.2009, Page 25
Stelpurnar okkar mæta Norðmönn- um á morgun í öðrum leik á Evrópu- móti kvenna í knattspyrnu. Lið Nor- egs er firnasterkt og státar af mikilli knattspyrnuhefð. Liðið er í tíunda sæti á styrkleikalista FIFA, alþjóða- knattspyrnusambandsins, tveimur sætum neðar en franska liðið sem lagði Ísland að velli með þremur mörkum gegn einu á mánudaginn. Norðmenn eru jafnframt sjötta sterk- asta lið Evrópu. Til samanburðar er íslenska liðið í átjánda sæti á styrk- leikalistanum. Gullaldarskeið kvennaliðs Noregs var á tíunda áratugnum, en þær urðu Evrópumeistarar árið 1993 og heims- meistarar árið 1995. Sama ár komust þær í undanúrslit á Evrópumótinu. Á Ólympíuleikunum í Sydney árið 2000 unnu þær svo til gullverðlauna. Norsku konurnar byrjuðu Evrópu- mótið hins vegar hrikalega og fengu stóran skell á móti Þjóðverjum. 1-0 var staðan í lok venjulegs leiktíma, en þýska liðið setti í fluggír í uppbót- artíma og skoraði þrjú mörk á jafn- mörgum mínútum. Stelpurnar okkar ætla sér ekkert nema sigur og því er ljóst að bæði lið munu koma til leiks eins og særðar ljónynjur. Hafa augun á Sólveigu Ásthildur Helgadóttir, fyrrverandi landsliðskona, segir að norska liðið byggi sóknarleik sinn mikið í kring- um framherjann Sólveigu Guld- brandsen, sem er þeirra stærsta stjarna. „Hún er að mínu mati mjög góður leikmaður, en það er ekkert voðalega erfitt að plokka hana út úr leiknum, ég vona að þær geri það íslensku stelpurnar. Þær þurfa að hjálpast að með það inni á miðjunni að hafa góðar gætur á henni,“ segir Ásthidur. Að hennar mati hentar leikur Norðmanna íslenska liðinu vel. „Þær vilja beita löngum sendingum og hafa verið í ákveðinni lægð, eins og úrslit- in í leiknum á Algarve gefa til kynna,“ segir hún, en Ísland sigraði Noreg 3-1 í leik á Algarve Cup í mars. Á vefsíðu UEFA eru aðrir lykil- menn norska liðsins tilgreindir sókn- armennirnir Leni Laursen Kaurin og Melissa Wiik. Einnig er vert að hafa augun á miðjumanninum Ingvild Stensland og hinni reynslumiklu Trine Rønning í vörninni. Koma afslappaðar í leikinn Ásthildur bendir á að þrátt fyrir mikla sigurhefð í norskri kvennaknatt- spyrnu, séu ákveðin kynslóðaskipti að eiga sér stað hjá þeim. „Það hefur sést að undanförnu. Þeim gekk ekk- ert sérstaklega vel á æfingamótinu í Algarve og í síðasta leik var þýska liðið einfaldlega miklu sterkara og keyrði yfir þær í lokin,“ segir hún. Að- spurð hvernig hún spái um leikinn, segir hún: „Það er að duga eða drep- ast fyrir íslensku stelpurnar, ég trúi að þær vinni þennan leik 1-0. Þær spili skynsamlega og komi afslapp- aðar í þennan leik, það var greinilega mikill skjálfti í þeim í seinasta leik.“ Umsjón: valgeir örn ragnarsson, valgeir@dv.is sport 26. ágúst 2009 miðvikudagur 25 gæti spilað á móti united arsene Wenger, knattspyrnustjóri arsenal, telur möguleika á því að Cesc Fabregas, fyrirliði liðsins, geti leikið með liðinu á móti manchester United í ensku úrvals- deildinni um helgina. Fabregas meiddist í 4-1 sigri arsenal á Portsmouth um síðustu helgi og missir örugglega af leiknum á miðvikudag gegn Celtic í umspili um sæti í meistaradeildinni. valgeir örn ragnarSSon blaðamaður skrifar: valgeir@dv.is Norska kvennalandsliðið er eitt sigursælasta knattspyrnu- landslið síðustu áratuga. Kynslóðaskipti eru að eiga sér stað hjá Norðmönnum og sigraði Ísland þær 3-1 fyrr á þessu ári. Ásthildur Helgadóttir bendir á að liðið verði að halda Sólveigu guldbrandsen í skefjum. Norska liðið byggi sóknarleik sinn í kringum hana. KYNSLÓÐASKIPTI HJÁ NORÐMÖNNUM guðrún Sóley gunnarsdóttir Íslenska liðið verður að ná sigri í leiknum á morgun. guðrún fékk höfuðhögg í leik á móti Frökkum. Ásthildur Helga- dóttir „Það er að duga eða drepast fyrir íslensku stelpurnar, ég trúi að þær vinni þennan leik 1-0.“ Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR BIFREIÐAVERKSTÆÐI 2 dálkar = 9,9 *10          Fyrir bústaðinn og heimilið Smáauglýsingasíminn er 515 5550 smaar@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.