Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Blaðsíða 4
Sandkorn n Vigdís Finnbogadóttir er einn ástsælasti forseti íslenska lýðveldisins og eflaust bíða margir spenntir eftir ævisögu hennar sem kemur út á næstu dögum. Frekar lítið hefur farið fyrir Vigdísi á undan- förnum árum og hún hefur alla tíð stað- ið vörð um einkalíf sitt og ekki látið mikið uppi um það þannig að það verður fróðlegt að sjá hversu mikið ævisagnaritari hennar, hinn eldklári Páll Valsson, hefur náð að lokka upp úr forsetanum fyrrverandi. n Deilur Frjálslynda flokks- ins og Ólafs F. Magnússonar, fyrrverandi borgarstjóra og fyrrverandi samherja Frjálslynda flokksins, um fjár- framlög úr borgarsjóði taka enn á sig nýj- ar myndir. Eins og lesa má á heimasíðu Frjálslynda flokksins íhuga menn þar innanborðs að stefna bæði Ólafi og borgar- stjóra vegna þeirrar túlkunar innri endurskoðunar Reykja- víkurborgar að vafi leiki á um hver skuli fá fjárframlög F-listans, efsti maður listans eða flokkurinn sem var stærsti hlutinn af framboðinu. Það er því afar breyttur veruleiki síð- an Ólafur F. náði inn í borgar- stjórn síðla nætur á kosninga- nótt 2002. n Lionsklúbburinn Fjörgyn hefur slegið í gegn með stór- tónleikum sem hann heldur í Grafar- vogskirkju á laugardags- kvöld. Tón- leikarnir eru til styrktar Barna- og unglinga- geðdeild Landspítal- ans og líknarsjóði Fjörgynjar og koma margir þekktir tónlist- armenn fram, þeirra á með- al Ragnar Bjarnason, Hörður Torfason, Karlakórinn Fóst- bræður, Ellen Kristjánsdóttir og Lay Low. Tónleikarnir eru svo vinsælir að nú er uppselt á þá og hafa kviknað hugmyndir hjá forsvarsmönnum Lions- klúbbsins Fjörgynjar að efna til annarra styrktartónleika á næsta ári vegna velgengni þessara tónleika. 4 föstudagur 13. nóvember 2009 fréttir Smíðum allar gerðir lykla , smíðum og forritum bíllykla. Verslun og verkstæði Grensásvegi 16 Sími: 511 5858 „Ég ætla að fá mér lögfræðing og lögsækja hann. Þessi maður skil- ur eftir sig sviðna jörð,“ segir Garð- ar H. Björgvinsson. Hann ætlar sér að stefna Ástþóri Magnússyni, fyrr- verandi forsetaframbjóðanda, vegna launa sem hann telur sig eiga inni hjá Ástþóri fyrir að safna meðmæl- endum fyrir Lýðræðishreyfinguna í þingkosningunum síðustu. Garðar telur sig eiga 450 þúsund krónur inni hjá Ástþóri. Enginn skriflegur samningur var gerður milli Garðars og Ástþórs og segir Garðar hafa treyst því að Ást- þór myndi greiða sér laun. Þeir hafa unnið saman áður og voru meðal aðstandenda Lýðræðisflokksins sem stofnaður var í lok síðustu aldar. Þá sakar Garðar Ástþór einnig um að hafa falsað nafn hans á framboðs- lista Lýðræðishreyfingarinnar í al- þingkosningunum fyrr á þessu ári. Þar var Garðar skráður í áttunda sæti í Norðvesturkjördæmi. „Það er of langt gengið. Ég er bú- inn að kæra það til utanríkisráðu- neytisins. Það mál er í farvegi og það verður tekið á því. Hann getur ekki leikið það úti um allar jarðir að svíkja fólk. Menn verða að standa fyrir máli sínu alls staðar í heiminum,“ segir Garðar. Ástþór, sem búsettur er á Spáni, hafði ekki heyrt af yfirvofandi stefnu Garðars þegar DV hafði samband við hann. Hann segir ekkert hæft í ásök- unum Garðars. „Ég held að maðurinn eigi við vandamál að stríða, því miður. Ef hann stefnir mér kemur sannleik- urinn í ljós. Ég hef ekki falsað nafn frá nokkrum einasta manni. Ég veit ekki fyrir hvað ég ætti að borga þeim manni laun. Ég hef ekkert haft hann í vinnu. Hann var sjálfur í framboði. Hann var ekki að vinna fyrir mig. Á ég að senda honum reikning fyrir mitt framboð?“ liljakatrin@dv.is Garðar H. Björgvinsson segir Ástþór Magnússon ekki borga sér laun: Ætlar að stefna Ástþóri Leitar réttar síns Garðar hefur ráðfært sig við lögfræðing og hyggst leita réttar síns. BYKO STEFNIR BROTT- REKNUM STARFSMANNI Sigurjón Örn Steingrímsson var rekinn frá Byko fyrir bjórsmygl í byrjun árs. Byko hefur nú stefnt honum fyrir að láta fyrirtækið greiða tolla af smyglinu. Byko ætlaði að kyrrsetja eignir Sigurjóns því fyrirtækið telur sig eiga kröfu á hann fyrir að hafa greitt tolla af smyglvarningnum. Byggingavöruverslunin Byko hefur stefnt fyrrverandi yfirmanni lagna- deildar fyrirtækisins, Sigurjóni Erni Steingrímssyni, fyrir að láta fyrir- tækið borga tolla af bjór og öðrum vörum sem hann er grunaður um að hafa smyglað til landsins í gámum fyrirtækisins frá Lettlandi. Smyglið stóð yfir í nokkur ár. Málið var þing- fest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur þann 6. nóvember síðastliðinn. DV greindi í lok janúar síðast- liðins frá því að Sigurjón hefði ver- ið rekinn frá Byko út af smyglinu sem hann var grunaður um að hafa stundað um áralangt skeið. Bjórinn var gefinn í kassavís til viðskiptavina lagnadeildar fyrirtækisins svo þeir myndu frekar beina viðskiptum sín- um til Byko en annarra. Byko hafði þá þegar kært málið til tollstjóra- embættisins. Tollstjóraembættið hefur nú sent rannsóknina á bjórsmyglinu til lög- reglunnar, að sögn Egils Stephensen, deildarstjóra í rannsóknardeild emb- ættisins. „Þetta er stórfellt og var flutt inn umtalsvert magn af bjórkössum í hvert skipti,“ sagði Egill í lok janúar í samtali við DV. Enginn annar en Sig- urjón hefur legið undir grun í mál- inu, að sögn Egils. Sigurjón Örn sagði við DV á sín- um tíma að einhverjir stjórnendur í fyrirtækinu hefðu vitað af smyglinu en þó ekki forstjórinn, Sigurður E. Ragnarsson, og aðaleigandinn, Jón Helgi Guðmundsson. Tvö aðskilin mál Því er um að ræða tvö aðskilin mál: annars vegar einkamál Byko á hend- ur Sigurjóni sem Byko höfðar og hins vegar opinbert mál sem líklegt er að lögreglan muni höfða á hendur honum þegar rannsókn málsins lýk- ur. Sigurjón sagði í samtali við DV í janúar að Byko hefði greitt fyrir bjór- inn þegar hann var keyptur erlendis en að hann hefði verið tollaður eins og um gjafir eða kynningarefni væri að ræða en ekki áfengi. Líklegt þykir að hið sama kunni að gilda um aðrar vörur sem fluttar voru inn til lands- ins í gámum Byko. Samkvæmt heimildum DV teng- ist stefna Byko því ekki eingöngu bjórsmyglinu heldur voru aðrar vör- ur fluttar inn líka sem Byko greiddi tolla af. Ekki hafa fengist upplýsing- ar um hvaða vörur þetta eru en þó kann að vera að í einhverjum tilfell- um hafi verið um rafmagnstæki og flatskjái að ræða. Byko fer með málið fyrir héraðs- dóm þar sem kyrrsetningarbeiðni fyrirtækisins gegn Sigurjóni var hafnað af sýslumannsembættinu í Reykjavík. Allir neita að tjá sig DV leitaði til Sigurjóns Arnar til að ræða við hann um stefnu Byko á hendur honum. Sigurjón vildi ekk- ert tjá sig um málið. „Ég vil ekkert tjá mig um málið,“ sagði hann en nú er sótt að honum úr tveimur áttum vegna bjórsmyglsins, annars vegar er það Byko og hins vegar væntanlega hið opinbera, lögreglan, þegar þar að kemur. Sömu sögu er að segja um lög- mann hans, Þórð Örn Sveinsson, sem taldi það ekki þjóna hagsmunum um- bjóðanda síns að ræða málið við fjöl- miðla. Lögmaður Byko, Andri Árnason, vildi heldur ekki ræða um smáatriði málsins þegar DV hafði samband við hann. Því má segja að nokkur leynd hvíli yfir þessu máli Byko gegn starfsmann- inum fyrrverandi þar sem enginn málsaðila fæst til að tjá sig um það. InGI F. VILHjÁLMSSon blaðamaður skrifar ingi@dv.is F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð miðvikudagur 28. janúar 2009 dagblaðið vísir 19. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347 Stórfellt Smygl á bjór frá lettlandi í gámum byKO: BYKO MÚTAÐI PÍPURUM MEÐ BJÓR fréttir Hrun Hjá Bretum fréttir Hafnar gYðingum Í HjÓLaBúð „júðar ekki veLkomnir“ BotnLauSttaP deCode „Það viSSu aLLir af ÞeSSu“ eigandinn SegiSt ekkert Hafa vitað davÍðfÆr 78 miLLjÓnir miSSti vinnuna en eignaðiSt Barn fÓLk erLent SviPta LeYndar- HuLunni af ÍSLandi neYtendur Leigan Í frjáLSu faLLi 176 ÞúSund á Hvern ÍSLending fréttir fréttir united fÓr Hamförum SPort Miðvikudaginn 28. janúar 2009. Eigandinn Jón Helgi Guðmundsson er eigandi byggingavöruverslunarinn- ar Byko sem hefur stefnt fyrrverandi starfsmanni fyrirtækisins. Hyglað með bjór Um var að ræða kassa af Diebels Alt-bjór sem smyglað var í gámum Byko frá Lettlandi. Viðskiptavinir lagnadeildarinnar fengu bjórinn svo gefins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.