Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Blaðsíða 48
48 föstudagur 13. nóvember 2009 lífsstíll
brjálaður yfir ráðningu lindsey lohan
Stofnandi tískuhússins Emanuel Ungaro, Emanuel sjálfur, er
víst brjálaður yfir ráðningu Lindsay Lohan. Emanuel seldi
bandarískri fyrirtækjasamsteypu tískuhús sitt árið 2005. Þeir
sem stjórna fyrirtækinu í daga hafa ráðið Lindsay til starfa og
er hún listrænn stjórnandi tískuhússins. Þetta fer fyrir brjóst-
ið á Emanuel sem segir Lindsay ræna sál vörumerkisins en
það sé ekkert sem hann geti gert í því.
Á hverju ári þegar
veturinn skellur á
má búast við því að
húðin okkar fríki
svolítið út. Húðin
á það til að verða
þurr, flekkótt og
fínu línurnar okkar
líta út eins og djúpir
skurðir í andlitinu.
Það er óþarfi að ör-
vænta þó ekki sé til
tími eða peningar
til þess að splæsa
í andlitsdekur á
fínum snyrtistofum. Það er nefnilega
ýmislegt sem við getum gert sjálfar úr
því sem er til inni í skáp.
Til þess að hreinsa þurra húð er
gott að nota 1–2 matskeiðar af ný-
mjólk og nokkra dropa af ólívuolíu.
Mjólkin hreinsar varlega burt öll
óhreinindi meðan
ólívuolían er svaka-
lega góð til þess að
næra húðina. Dauð-
ar húðfrumur stífla
fitukirtlana og geta
látið húðina virka
líflausa. Til að losna
við þær er gott að
búa til maska úr
hálfum bolla af
haframjöli, einni
matskeið af fín-
möluðu sjávarsalti,
þremur matskeið-
um af möndluolíu og smávegis
ferskri myntu. Bætið örlitlu volgu
vatni út í þangað til blandan verður
að þykku mauki. Þetta er nóg að nota
einu sinni til tvisvar í mánuði. Nú er
bara um að gera að skella í heimatil-
búið dekur!
Húðin þarf ekki að gjalda þó buddan leyfi ekki að farið sé í dekur á fínum snyrtistofum:
heimatilbúið dekur fyrir vetrarhúð
UmSjón: HELga kriStjánSdóttir
n Blake Lively sem leikur í
Gossip Girl-þáttunum vinsælu er
ein þessara stjarna sem líta alltaf
vel út. Það eftirsóknarverðasta
við Blake er þó án efa hárið, sem
hárgreiðslumenn vestanhafs eru
farnir að kalla „The Rachel“ en
þá er átt við eina vinsælustu
klippingu allra tíma sem Jennifer
Aniston sportaði í þáttunum
Friends.
n Curtis „50 Cent“ Jackson situr
fyrir í auglýsingaherferð fyrir nýj-
an rakspíra sem var að koma á
markað. Rakspírinn er hans hug-
myndasmíð og heitir Power. At-
hygli vekur að rapparinn er illi-
lega fótósjoppaður á myndunum
en öll tattú hans hafa meðal ann-
ars verið afmáð.
n Um daginn sögðum við frá því
að Madonnu hefði verið skipt
út hjá Louis Vuitton fyrir yngra
módel. Nú er ástæðan kannski
komin upp á yfirborðið því söng-
konan er nýjasta módel Dolce &
Gabbana.
Notaður fatnaður hefur aldrei verið jafnvinsæll og um þessar mundir. Verslunin Gyllti
kötturinn sérhæfir sig í sölu á slíkum fatnaði og hefur aldrei verið meira að gera en núna, í
miðri kreppu. Verslunin heldur upp á fjögurra ára afmæli sitt um helgina og í tilefni af því
verður opnuð karlmannsdeild Gyllta kattarins og slegið upp veislu í leiðinni.
Notuð föt viNsæl
Viktoría segir að fyrstu árin hafi fólk verið dálítið hrætt og for-dómafullt gagnvart því að kaupa sér notuð föt en margt hafi breyst upp á síðkastið. Mikil vitundarvakning sé hjá fólki og jafnvel einhverjir sem kaupa sér notaðar flíkur út frá umhverf-
issjónarmiðum. Hins vegar sé mjög móðins í dag að blanda saman not-
uðu og nýju og það hjálpi án efa til.
Í kreppunni er fólk minna að ferðast erlendis
en áður og kaupa sér fatnað þannig að kreppan
hefur ekki farið illa með rekstur verslunarinn-
ar. Einnig segir hún ferðamenn vera duglega að
versla á sumrin.
Okkur lék forvitni á að vita hvað væri það
heitasta í vetrartískunni. „Það er svo margt í
gangi. En við erum að fá æðisleg stutt ullarp-
ils, rosalega djúsí pelsa og þykkar peysur. Einn-
ig eru flottir ökklaskór og stígvél málið og við
vorum að taka upp sérstaklega skemmtilega
sendingu af alls konar skarti. Jólakjólarnir eru
komnir í hús og eru skemmtilega fjölbreyttir.
VIð keppumst við að hafa eitthvað fyrir allar
týpur.“
En hverju á karlpeningurinn að leyta að um
þessar mundir? Hjá okkur má
til dæmis finna alla vega lit-
aðar og mynstraðar hneppt-
ar peysur, gamaldags og
grúví skyrtur, frakka og slauf-
ur sem gera karlana voðalega
sparilega yfir jólin!“ Hingað
til hefur okkur fundist hálfó-
mögulegt að finna almenni-
leg strákaföt í Reykjavík og
ákvaðum við að láta undan
miklum þrýstingi og fara að
selja föt á sterkara kynið.
Hvaðan fáið þið flíkurnar sem þið seljið? „Við kaupum allar not-
uðu flíkurnar hjá heildsala í Manchester. Hann fer út um allan heim og
svo kíkjum við til hans og veljum það sem okkur líkar hverju sinni.“
Gyllti kötturinn ætlar að bjóða til veislu laugardaginn 14. nóvember
og mun ofurfyrirsætan og dj-inn Anna Rakel þeyta skífum fyrir opnu
húsi að Austurstræti 8. Sigríður Thorlacius, úr hljómsveitinni Hjaltalín,
ætlar einnig að taka nokkur lög en hún gaf út plötu á dögunum. Léttar
veitingar verða í boði og troðfull búð af nýjum (notuðum) vörum fyr-
ir bæði kynin. Þessari viðbót í tískuflóru landsins mun án efa vera vel
tekið.
í kreppunni
Smart staff Gyllta kattarins Eigandi
gyllta kattarins, Hafdís Þorleifsdóttir, og
verslunarstjórinn, Viktoría Hermannsdóttir.
Fallegir hælar konur eiga
aldrei nóg af hælaskóm.
Glys og glingur auðvelt er að missa sig
í glingrinu.
Heimatilbúið dekur Þarf ekki
að kosta mikið.
Gaman Hafið gaman af því að
dekstra við húðina.