Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Blaðsíða 17
fréttir 13. nóvember 2009 föstudagur 17
var honum bannað að syngja í Skál-
holtskirkju en búið var að boða jóla-
tónleika með söngvaranum. Í viðtali
í Sunnudagskvöldi með Evu Maríu
í fyrra sagði Páll Óskar frá þessari
reynslu sinni.
„Mér var hreinlega kastað út af því
að ég var boðberi samkynhneigðra á
Íslandi.“
Áfengisvandamál í brennidepli
Fréttastofa Stöðvar 2 var harðlega
gagnrýnd síðla árs 1996 fyrir um-
fjöllun um meint áfengisvandamál
séra Hönnu Maríu Pétursdóttur sem
þá var þjóðgarðsvörður á Þingvöll-
um. Var fréttaflutningurinn tengdur
við afsögn hennar úr embætti stuttu
áður.
Kristín Ástgeirsdóttir, þingkona
Kvennalistans, fordæmdi umfjöllun-
ina.
„Þetta er svo hræðilegt mál að
maður á vart orð yfir það. Ég minn-
ist þess ekki að það hafi nokkru sinni
verið fjallað svona um nokkurn ein-
stakling hér á landi. Jafnvel þó að
það sé staðreynd að margir fulltrúar
þjóðarinnar og forstjórar — sem síð-
an hafa verið sendir á Freeport eða
Vog — hafi verið veltandi um á fyll-
eríum hefur það aldrei áður þótt efni
í fréttamál,” sagði Kristín í viðtali við
Helgarpóstinn 7. nóvember 1996.
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þá-
verandi varafréttastjóri Stöðvar 2,
sagði miðilinn hafa urmul heimilda
á bak við fréttina og líkti henni við
Davíð Oddsson og Bermúdaskálina.
Lagður í einelti
Séra Torfi Hjaltalín Stefánsson, þá
sóknarprestur í Möðruvallasókn í
Hörgárdal, vakti mikinn usla í sókn-
inni á tíunda áratugnum. Deilur
milli hans og sóknarbarna spönn-
uðu nokkur ár og náðu hámarki eft-
ir að hann tilkynnti að hann myndi
ekki heimila öðrum prestum að
vinna prestverk í Möðruvallakirkju.
Talsvert var um að sóknarbörn ósk-
uðu eftir að fá presta úr öðrum
sóknum til að skíra, gifta, ferma eða
jarða en afstaða séra Torfa var sú að
hann væri prestur í sókninni og ætti
að vinna prestverkin sem þyrfti að
vinna. Gekk málið svo langt að sókn-
arbörn hófu undirskriftasöfnun þar
sem krafist var að biskup viki séra
Torfa frá störfum.
Í viðtali við DV laugardaginn 17.
maí árið 1997 sagði séra Torfi þetta
vera einelti.
„Ég lít á þetta þannig að foreldr-
arnir leggi mig í einelti og að verið sé
að þjálfa krakkana upp í því að hafna
manneskju og leggja hana í einelti,
það er eins og yfirstjórn kirkjunnar
samþykki slíkt athæfi. Takist það sé
það lærdómur í því hvernig þau megi
haga sér í framtíðinni.“
Hafnað kynferðislega
Í byrjun árs 2000 komst séra Torfi aft-
ur í kastljósið er hann var dæmdur
í 45 daga skilorðsbundið fangelsi í
Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir
líkamsárás á leikstjórann og leikrita-
skáldið Hlín Agnarsdóttur. Hlín sagði
fyrir dómi að Torfi hefði ráðist á hana,
meðal annars snúið upp á handlegg
hennar, slegið höfði hennar marg-
sinnis í gólfið og sparkað margsinnis
í hana. Torfi viðurkenndi að til átaka
hefði komið á milli þeirra en að Hlín
hefði átt upptökin. Hann sagði sögu
sína í mars í Séð og Heyrt þar sem
hann sagði Hlín hafa reiðst því hann
hafnaði henni kynferðislega.
„Ég viðurkenni að hafa hrist hana
full harkalega af mér en neita því að
hafa verið valdur að líkamsmeið-
ingum [...] Konan missir stjórn á sér
þegar henni er hafnað kynferðislega
og notfærir sér það hvað staða mín
var veik út á við.“
Torfi sagði sig úr embætti í kjöl-
far þessa máls og sagði í viðtalinu
við Séð og Heyrt að honum fyndist
samsærislykt af málinu.
„Því er óhætt að fullyrða að Hlín
hafi tekist að koma mér úr starfi og
eru án efa þeir til sem eru henni
þakklátir fyrir það. Þetta mál var
auðvitað kærkomið tækifæri fyrir
vissa aðila í þjóðkirkjunni til að losa
sig við starfsmann sem aldrei gat ver-
ið til friðs.“
ALTARI SKANDALA
Sagði sig úr embætti Séra Torfi hefur verið mikið í sviðsljósinu í gegnum tíðina. Hann sakaði foreldra um að leggja sig í einelti
og reifaði samsæri innan kirkjunnar um að koma ætti honum úr starfi.
Kvennalistinn gagnrýndi
Mál séra Hönnu Maríu vakti hörð
viðbrögð Kvennalistans sem þótti brotið
á friðhelgi einkalífsins með umfjöllun um
meintan áfengisvanda.
Fimmtudagur 30. apríl 200912 Helgarblað
Karl Sigurbjörnsson
Ólafi Skúlasyni
Gunnari Björnssyni
FYRIRGEFNING SYNDANNA
„Ég bið þær konur og börn, sem brot-
ið hefur verið á af hálfu starfsmanna
og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar á
þeirri þjáningu og sársauka sem þau
hafa liðið,“ sagði Karl Sigurbjörns-
son, biskup Íslands, í setningarræðu
sinni við upphaf Prestastefnu Íslands
í Kópavogskirkju á þriðjudagskvöld.
Sagði biskup ennfremur að Kirkju-
þing hefði sett starfsreglur um með-
ferð kynferðisbrotamála í kirkjunni.
„Settar hafa verið siðareglur og
heilræði fyrir starfsfólk í barna- og
æskulýðsstarfi. Við verðum að taka
mark á þessu og fylgja eftir í starfi
kirkjunnar. Þessa dagana er verið að
ljúka gerð bæklings sem unninn er af
starfshópi á vegum Þjóðkirkjunnar
og annarra kristinna trúfélaga sem
vill leggja sitt af mörkum til að vinna
gegn ofbeldi í hvaða mynd sem er,
sem sagt kynferðisáreitni og mis-
notkun.“
Vonar að sár muni læknast
Karl segir í samtali við DV að fyrir-
gefningin sé almenn en útilokar ekki
að einstaka aðilar verði beðnir fyrir-
gefningar persónulega af hálfu kirkj-
unnar.
„Þá er það þegar og ef. En ég tek
það skýrt fram að þetta er almenn yf-
irlýsing og þetta snertir ekki einstaka
atvik. Ég er ekki í þeirri stöðu þarna
að taka á sérstökum málum sem fyrir
liggja. Ég er að vísa til bæði mála sem
hafa verið í hámæli og til reynslu
sem fólk hefur talað um stundum
mörgum árum síðar þar sem farið
hefur verið yfir mörkin. Ég er að vísa
til þessara sára, þjáningar og sárs-
auka sem er þarna úti sem í raun ýf-
ist upp og hefur aldrei fengið neina
sérstaka úrlausn. Ég er bara að orða
það. Ég bið þess og vona að þessi sár
muni læknast.
Ég tala við presta og djákna og
kirkju fólksins og það er fyrir þeirra
hönd sem ég ber þetta fram en ég er
ekki með nein sérstök dæmi í huga.
Ég er ekki að dæma í sérstökum, til-
teknum málum. Ég er bara að vísa til
þess að það eru ýmsir sem bera sár
og finna til þeirrar þjáningar sem
hefur kannski aldrei verið tekið á.
Eins og er alls staðar í okkar samfé-
lagi eru kirkjunnar starfsmenn upp
til hópa fólk eins og annað fólk.“
Kynbundið ofbeldi
er samfélagsvá
Karl telur að kynferðisbrot verði ekki
aðeins gerð upp með lögum og reglum
heldur líka með hjálp trúarinnar.
„Heimilisofbeldi og kynbundið of-
beldi er samfélagsmein á Íslandi í dag.
Kirkjan hefur markað stefnu um virka
andstöðu gegn kynbundnu ofbeldi í
samfélaginu. Hún hefur markað stefnu
bæði innan sinna vébanda í kirkjunni
og líka í samfélagi við alþjóðakirkju-
stofnanir sem við erum þátttakendur
í. Það er mikilvægt að við fylgjum því
eftir og tökum það alvarlega og látum
þau skilaboð hljóma í samfélaginu. Öll
umræða um slíka hluti verður til þess
að ýfa upp sárar minningar um brot
og margt af því verður ekki gert upp
með þeim verkfærum sem samfélag-
ið leggur til með lögum sínum og regl-
um, siðareglum og dómstólum heldur
með þeim verkfærum sem trúin bend-
ir okkur á. Það er að tala um hlutina,
iðrunin, fyrirgefningin sem til þarf.
Það er vegur trúar, vonar og kærleika.
Að því þurfum við að stuðla.
Það sem ég er fyrst og fremst að vísa
til er að okkar stefnumörkun í þessum
málum er alveg skýr og kirkjan vill ekki
líða slíka framkomu. Hún vill vinna
að því og taka undir með þeim í okkar
samfélagi sem vilja vinna gegn þess-
ari samfélagsvá sem margvíslegt kyn-
bundið ofbeldi er. Við eigum að taka
það alvarlega. Þetta eru ekki bara ein-
hver pappírsgögn þessar stefnumark-
anir kirkjunnar. Þetta á að hafa áhrif á
okkar persónulegu afstöðu og hvernig
við vinnum úr málum þegar þau koma
upp í framtíðinni.“
Sakaður um nauðgunartilraun
Nokkur tilfelli hafa komið upp síð-
ustu ár þar sem starfsmenn kirkj-
unnar hafa verið sakaðir um kyn-
ferðislega áreitni.
Árið 1996 sakaði Sigrún Pálína
Ingvarsdóttir séra Ólaf Skúlason, þá-
verandi biskup, um nauðgunartil-
raun. Mál Sigrúnar vakti mikla at-
hygli á Íslandi og í kjölfar ásakana
hennar gáfu aðrar konu sig fram og
sökuðu biskup um kynferðislega
áreitni. Öll málin voru frá þeim
tíma þegar Ólafur var prestur.
Biskup kærði málið til saksókn-
ara og sagði sakaráburð nafn-
greindra og ónafngreindra aðila
vega að friðhelgi einkalífs hans
og æru með ólögmætum hætti.
Í yfirlýsingu sem hann sendi frá
sér á þessum tíma sagði að ráða
mætti af ummælum í fjölmiðl-
um að markmiðið með þess-
um röngu sakargiftum væri að
þvinga hann til að segja sig frá
biskupsembættinu.
Ríkissaksóknari vísaði mál-
inu frá þar sem hann taldi ekki
efni fyrir hendi til að ákæru-
valdið aðhefðist neitt í máli kvenn-
anna sem biskup kærði. Skömmu
áður en saksóknari tilkynnti þessa
niðurstöðu ákvað biskup að aftur-
kalla kröfu sína.
Biskupinn er sekur
Í viðtali við
Helg-
lilja Katrín GunnarSdÓttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
Baðst fyrirgefningar Karl
bað fórnarlömb kynferðislegs
ofbeldis fyrirgefningar við
upphaf prestastefnu íslands
og segir kynbundið ofbeldi
samfélagsmein á íslandi.
Sýknaður Séra gunnar var
sýknaður fyrir skemmstu af
ákærum um kynferðisbrot gegn
tveimur unglingsstúlkum.
„Eins og er alls staðar
í okkar samfélagi eru
kirkjunnar starfsmenn
upp til hópa fólk eins
og annað fólk.“
Fimmtudagur 30. apríl 2009 13Helgarblað
arpóstinn 30. maí árið 1996 lýsti Sig-
rún Pálína yfir vonbrigðum sínum
við þessari niðurstöðu og sagðist
standa við að biskup væri sekur.
„Ég er ekki sátt við þessi málalok,
þar sem engin niðurstaða fékkst. Það
segir þó sína sögu að ríkissaksóknari
skuli ekki telja ástæðu til málshöfð-
unar gagnvart okkur fyrir að hafa
borið biskup röngum sökum. Bendir
það til þess að biskup sé saklaus? Mér
sýnist að ef ég hefði komið fram með
þetta mál
áður
en
það var fyrnt hefði ég jafnvel getað
unnið það, því ég stend við það að
biskupinn er sekur. Við rannsókn
RLR komu fram vitni sem höfðu
sömu sögu að segja af samskiptum
við biskup og við. En það hlýtur að
vera óviðunandi, bæði fyrir presta
landsins og okkur sem tilheyrum
Þjóðkirkjunni, að biskup sitji áfram
í embætti eftir það sem á undan er
gengið,“ sagði Sigrún Pálína í við-
talinu.
Valdníðsla
Sigrún Pálína tók málið fyrst upp
tveimur árum áður. Þá talaði hún
við séra Pálma Matthíasson og
árið eftir við séra Vigfús Þór
Árnason. Hún bað prestana
tvo að taka málið upp inn-
an kirkjunnar en hvorugur
hafðist að í málinu.
„Í upphafi lagði ég ekki
fram kæru á hendur bisk-
upi heldur erindi til siða-
nefndar Prestafélagsins.
Framganga biskups í mál-
inu varð hins vegar til
þess að ég fór að sækja
málið með ákveðn-
ari hætti. Eg sé ekki eftir
að hafa farið af stað með
þetta mál þótt niðurstaðan
valdi mér vonbrigðum. Ég
var svo barnaleg að halda að
siðanefnd Prestafélagsins tæki
virkilega á málinu og liti það
alvarlegum augum. Tilgang-
ur minn var að losa mig við
þessa vitneskju og
hræðslu um
að aðrar
konur ættu eftir að lenda í því sama
og ég. En þegar málið snýst upp í það
að Ólafur Skúlason fer að hóta mér,
eins hann gerði á sáttafundi í Graf-
arvogskirkju, varð ekki aftur snúið.
Þetta mál er löngu hætt að snúast um
mig og biskup. Það snýst um vald og
valdníðslu og réttarkerfið í landinu,“
sagði Sigrún Pálína í viðtali við Helg-
arpóstinn 30. maí árið 1996.
„Neytir aflsmunar“
Sigrún Pálína og tvær aðrar kon-
ur sögðu sögu sína í helgarblaði DV
í byrjun mars þetta ár. Þar lýsti Sig-
rún Pálína fundi sínum við séra Ólaf
í Bústaðakirkju að kvöldi vegna þess
að séra Ólafur sagðist ekki geta hitt
hana á öðrum tíma, að sögn Sigrún-
ar.
„Ég kalla þetta tilraun til nauðg-
unar. Þegar viðkomandi neytir afls-
munar til að koma fram vilja sínum
og fórnarlambið þarf að beita afli til
að komast undan er farið yfir mörk-
in á milli kynferðislegrar áreitni og
nauðgunartilraunar,“ sagði Sigrún í
viðtalinu. „Ég komst út úr kirkjunni,
fór heim og brotnaði alveg niður. Ég
skalf og grét alla nóttina. Ég sagði
mínum nánustu frá þessu en það
var alls staðar sama svarið. „Þú getur
ekkert gert, þetta er orð á móti orði.“
Á þessum tíma voru engin Stígamót
og þessi umræða ekki byrjuð nema
að mjög litlu leyti. Eðli atburðarins
og hversu alvarlegur hann var gerði
það að verkum að ég gat ekki fundið
sökina hjá mér þrátt fyrir að ég færi
strax að leita að henni eins og fórn-
arlömb reyna jafnan að gera.“
Önnur kona sagði frá því að séra
Ólafur hefði leitað á hana í Kaup-
mannahöfn 1979. Þá hefði hún
búið þar ásamt eiginmanni sínum
og séra Ólafur viljað hitta þau en
hann var þá í borginni á presta-
þingi. Þriðja konan sagðist hafa
orðið fyrir áreitni séra Ólafs þeg-
ar hún var tólf ára.
Nokkru áður en konurnar
þrjár komu fram í DV birtist frétt
í blaðinu þar sem greint var frá
að þrjár konur hittust reglulega
hjá Stígamótum vegna fyrri
samskipta sinna við biskup
og að starfskona samtakanna
vissi af fleiri konum en vildi
ekki greina nánar frá málum
þeirra.
Tveir biskupar í
málinu
Einn þeirra sem
tengdust inn í
mál kvenn-
anna gegn
séra Ól-
afi
biskupi á sínum tíma var séra Karl
Sigurbjörnsson, þá prestur og nú
biskup. Samkvæmt frétt DV 6. mars
1996 beittu tveir prestar, þeir Hjálmar
Jónsson, sem þá var þingmaður en er
nú sóknarprestur dómkirkjunnar, og
Karl, núverandi biskup, áhrifum sín-
um til að fá konurnar sem ásökuðu
Ólaf biskup um kynferðislega áreitni
til að falla frá málum sínum. Í frétt-
inni segir meðal annars að prestarn-
ir tveir hafi átt tíða fundi með kon-
unum og að í kjölfar þeirra hafi ein
kvennanna dregið mál sitt til baka.
„Munu prestarnir meðal annars hafa
lagt mikla áherslu á kostnaðinn sem
því fylgi að standa í málarekstri gegn
biskupi,“ segir í fréttinni.
Séra Karl vildi ekkert tjá sig um
þetta á þeim tíma en ónafngreind-
ur prestur sem DV ræddi við á þeim
tíma sagði að miklu „handafli“ hefði
verið beitt af hálfu biskupsmanna til
að þagga það niður.
Gefðu mér nú kraft
Á síðasta ári kærðu tvær unglings-
stúlkur séra Gunnar Björnsson,
sóknarprest á Selfossi, fyrir kynferð-
islega áreitni og brot á blygðunar-
semi. Stúlkurnar voru sóknarbörn
hans þegar meint brott áttu að eiga
sér stað. Önnur stúlkan fór fram á
tvær milljónir króna í skaðabætur og
hin sex hundruð þúsund krónur.
Héraðsdómur Suðurlands sýkn-
aði Gunnar.
Séra Gunnar sagði við DV í lok
apríl að ásakanir stúlknanna
væru einn stór misskilningur,
að hann hefði aðeins sýnt
stúlkunum hlýju en ekki
áreitt þær á nokkurn hátt.
Þetta staðfesti dómari en
hafi látið orðin: „Gefðu
mér nú kraft A mín“ falla
er hann faðmaði stúlkuna,
hann hafi einungis ekki
verið alveg hress. Í skýrslu
sagði stúlkan að Gunnar
hafi látið þau orð falla að
straumarnir streymdu úr lík-
ama hans við það að
faðma hana.
Sigurður Þ.
Jónsson, þá-
verandi
lög-
maður séra Gunnars, sagði í samtali
við DV í maí að umbjóðandi hans
væri algjörlega saklaus. „Þetta er nú
bara það sem sums staðar hefðu ver-
ið talin afar eðlileg samskipti. Þannig
sé ég þetta eftir að hafa skoðað málið
vandlega,“ sagði Sigurður í maí á síð-
asta ári.
Leitaði á drengi í KFUM og K
Ágúst Magnússon var dæmdur í
fimm ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
gegn sex drengjum og losnaði út af
Litla-Hrauni snemma á síðasta ári.
Þegar Ágúst var nýlega laus úr fang-
elsi fékk hann leyfi fangelsismála-
yfirvalda til að flytja til Uppsala í Sví-
þjóð þar sem hann ætlaði að stunda
nám í biblíuskóla. Ágústi var neitað
um skólavist eftir kvartanir foreldra
barna í skólanum um að dæmdur
barnaníðingur myndi sækja skól-
ann.
Ágúst ólst upp í Grýtubakka og var
í Breiðholtsskóla á sínum yngri árum.
Samkvæmt heimildum DV tók hann
að sér vinnu í æskulýðsstarfi kirkj-
unnar, KFUM og K, í Bakkahverfinu
sem unglingur og las sögur fyrir ungt
fólk. Þar lentu einhverjir drengir í því
að Ágúst leitaði á þá. Málið vakti usla
í hverfinu en var aldrei kært til lög-
reglu.
Alræmdur barnaníðingur Ágúst
tók að sér að lesa sögur fyrir ungt
fólk í KFum og K á sínum yngri
árum og leitaði þar á unga drengi.
Fyrsta fréttin lítil frétt á innsíðu í
dV 15. febrúar 1996 markaði upp-
hafið að umfjöllun um mál nokkurra
kvenna gegn þáverandi biskupi.
Sver af sér sakir Séra
Ólafur Skúlason biskup sagði
ekkert til í ásökununum.
Stigu fram Þrjár konur
sem sakað höfðu biskup
um áreiti og tilraun til
nauðgunar komu fram í
viðtali í helgarblaði dV 2.
mars 1996.
dv.is
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
þriðjudagur 26. maí 2009 dagblaðið vísir 79. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
Sparnaður
brunninn
allur upp
SviðSljóS
neytendur
aðkoma karls sigurbjörnssonar að ólafsmálinu:
vill ekkert
af jordan vita
réðu pabbann og
eiginmanninn
fólk
mikael
verður
Slátrað
toppar
davíð
í launum
fréttir
Hrafn
aftur
orðinn
pabbi fólk
Hart deilt á
bæjarStjóra og
formann bæjar-
ráðS í veStmannaeyjum
Huldufólk í
HúSi auðmannSinSfréttir
BISKUP
Í BOBBA
preStar íHuga
Stöðu biSkupS
Sigrún pálína
vill uppreiSn æru
ein konan átelur
biSkup fyrir HanS
þátt í málinu
„preStar léku
tveimur Skjöldum“
fréttir
Biskup í bobba Eftir umfjöllun DV um fyrirgefningu biskups komst biskupsmálið
gamla aftur í brennidepilinn. Það endaði með uppreisn æru Sigrúnar Pálínu.
Séra Gunnari Björnssyni hefur fjór-
um sinnum verið vikið úr starfi sem
sóknarprestur, þar af tvívegis frá
sama söfnuði. Fyrst var hann rekinn,
tvívegis, frá Fríkirkjunni í Reykjavík,
síðar færður úr starfi sem prestur í
Holti í Önundarfirði og nú síðast var
honum vísað úr starfi sem sóknar-
prestur í Selfosskirkju. Í öll skiptin
hefur Gunnar átt í deilum við sókn-
arbörn og sóknarnefndir þar sem
umræðan hefur ratað í fjölmiðla.
Flestir þeir sem til hans þekkja
lýsa honum sem hlýjum og góðum
en það hefur ekki komið í veg fyr-
ir hatrammar deilur hans við sókn-
arnefndir og söfnuði þar sem hann
hefur gegnt embætti sóknarprests.
Það sem mætti kalla þriðja og síðasta
stríð séra Gunnars stendur enn yfir.
Fimm ungar stúlkur kærðu klerkinn
fyrir kynferðisbrot, en þremur mál-
unum var vísað frá. Séra Gunnar var
síðan sýknaður á báðum dómstigum.
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands,
fullyrðir hins vegar að djúpstæður
og alvarlegur trúnaðarbrestur hafi
myndast innan safnaðarins í Selfoss-
kirkju og því geti Gunnar ekki snúið
aftur til starfa.
Tugmilljóna tilboð
Deila Gunnars við sóknarnefnd Sel-
fosskirkju er síður en svo fyrsti vand-
inn sem hann lendir í í kirkjusóknum
sínum. Honum hefur fjórum sinnum
verið vikið úr starfi sem sóknarprest-
ur, fyrst í september 1987 frá Fríkirkj-
unni í Reykjavík, þá í júní 1988, aft-
ur frá Fríkirkjunni, í mars 2000 frá
Holtakirkju í Önundarfirði og nú síð-
ast 15. október 2009 frá Selfosskirkju.
Í öll skiptin voru samskiptaörðug-
leikar Gunnars við safnaðarmeðlimi
orsök uppsagnarinnar.
Karl biskup þverneitar Gunn-
ari um að snúa aftur til starfa í Sel-
fosskirkju. Biskup bauð honum
stöðu sérþjónustuprests hjá Bisk-
upsstofu, þar sem honum var með-
al annars ætlað að sinna störfum hjá
Helgisiðastofu í Skálholti ásamt því
að þýða og staðfæra predikunarleið-
beiningar fyrir presta, og tók það sér-
staklega fram í bréfi að séra Gunnar
gæti unnið starfið heiman frá sér. Þá
bauðst prestinum starfslokasamn-
ingur, upp á nærri tuttugu milljónir
króna, en tilboðum um annað en að
snúa aftur til starfa hafnaði Gunnar
eindregið. DV hefur heimildir fyrir
því að biskup hafi orðað betri starfs-
lokasamning við Gunnar, samning
sem tryggir kleknum þrjátíu millj-
ónir króna eða mánaðarlaun næstu
fimm ár.
Bróðurmissir
Séra Gunnar hefur starfað samfellt
sem sóknarprestur í Selfosskirkju
frá 1. september 2001 og var skipað-
ur sem slíkur 1. júní 2002. Gunnar
hefur lengstum verið vel liðinn sem
prestur þó svo ekki sé hægt að segja
það sama um eiginkonu hans í öll-
um tilfellum. Ræður hans þykja góð-
ar og hlýja hans í garð sóknarbarna
hefur í gegnum tíðina verið lofuð af
samstarfsmönnum. Eftir að hinar
hatrömmu deilur komu upp í Sel-
fosskirkju má segja að söfnuðurinn
sé klofinn í tvær fylkingar, með og á
móti séra Gunnari. Stuðningsmenn
hans krefjast almenns safnaðarfund-
ar í þeirri von að ná að sýna fram á
einingu innan safnaðarins, ólíkt því
sem biskup heldur fram.
Erfiðleikar og deilur Gunnars við
sóknarbörn eru ekki einu erfiðleik-
arnir sem Gunnar hefur þurft að
glíma við. Gunnar varð fyrir miklu
áfalli fyrir tæpum fimm árum er
bróðir hans, Ragnar Björnsson veit-
ingamaður í Mosfellsbæ, lést. Atvik-
ið átti sér stað á veitingastaðnum Ás-
láki í Mosfellsbæ, í desember 2004,
þar sem Loftur Jens Magnússon sló
Ragnar þungu hnefahöggi í hálsinn
með þeim afleiðingum að brot kom
á hálshryggjarlið og slagæð rofnaði.
Mikil blæðing varð inn í höfuðkúp-
una í kjölfarið sem leiddi til þess að
Ragnar lést skömmu síðar.
Tekur enda
Þegar kærurnar á hendur Gunn-
ari komu fram sagði hann í samtali
við DV að málið væri alfarið byggt á
misskilningi og hann hefði lengi haft
þann stíl að faðma fólk og jafnvel
smella kossi á kinn. „Það hefur lengi
verið minn stíll að faðma fólk að mér.
Í kirkjulegu starfi koma oft þannig
stundir að maður ýmist hrósar, þakk-
ar, heilsar eða kveður með líkamlegri
snertingu. Það getur meira að segja
hent að maður smelli kossi á kinn. Ég
er hlýr maður,“ sagði Gunnar.
Þegar DV spurði Gunnar hvort
málið hefði valdið honum hugar-
angri svaraði hann að svo væri í
raun ekki. Hann væri viss um stöðu
sína gagnvart sóknarbörnum sínum.
Gunnar viðurkenndi að hann hefði
gengið í gegnum súrt og sætt í starfi
sínu sem prestur og þessir erfiðleik-
ar myndu líða hjá eins og aðrir. „Ég
er orðinn það gamalreyndur í starfi
mínu sem prestur og veit að meira
að segja hörðustu rimmur eiga sér
endi,“ sagði Gunnar.
30 föstudagur 30. október 2009 helgarblað
TrausTi hafsTeinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
séra Gunnars Björnssonar
ÞRIÐJA STRÍÐ SÉRA GUNNARS
„Ég er orðinn það gamalreyndur í starfi
mínu sem prestur og veit að meira að
segja hörðustu rimmur eiga sér endi.“
Bréf biskups
Karl Sigur-
björnsson bauð
tilfærslu í starfi
eða starfslok í
bréfi til Gunnars.
síðasta stríðið DV hefur heimildir
fyrir því að séra Gunnar sé alvar-
lega að íhuga að taka tugmilljóna
tilboði biskups um starfslok.
frÁ gÓðu heIMIlI
Gunnar Björnsson fæddist í
reykjavík 15. október 1944 og ólst
upp á ástríku heimili foreldra sinna í
gömlu timburhúsi á horni Bók-
hlöðustígs og Miðstrætis. hann er
sonur hjónanna Björns rósenkranz
einarssonar hljómsveitarstjóra
og ingibjargar Gunnarsdóttur
hárgreiðslumeistara. Björn er með
frægari hljómsveitarstjórum en til
margra ára stýrði hann eigin hljóm-
sveit sem skemmti víða, einkum á
hótel Borg.
Gunnar kvæntist fyrrverandi eiginkonu sinni, Veronicu Margaret Jarosz, árið
1967 og saman eignuðust þau tvö börn. Gunnar er í dag kvæntur Ágústu aðal-
heiði Ágústsdóttur söngkonu en þau gengu í hjónaband fyrir aldarfjórðungi.
hún stendur þétt við hlið eiginmannsins í erfiðri klípu sem blasir við. Við-
mælendur DV segja flestir að Ágústa sé ákveðin kona og skap hennar hafi oft
komið prestinum í vanda. Þeir segja að hún hafi ákveðið strax er hún sá Gunnar
í fyrsta sinn að hann skyldi verða eiginmaður hennar. Í kjölfarið skildi Gunnar
við fyrri konu sína og mældist skilnaðurinn í fyrstu nokkuð illa fyrir í fjölskyldu
hans. er Gunnar tók saman við Ágústu eignaðist hann þrjú stjúpbörn.
Gunnar er sjálfur mikill tónlistarmaður og spilaði í áratug með sinfóníu-
hljómsveit Íslands. hann er fær sellóisti og Ágústa er óperusöngkona. hún
rak um árabil söngskóla á Vestfjörðum. Gunnar er mjög félagslyndur og
hefur í gegnum erfiðar deilur átt mjög dygga stuðningsmenn. Þeim gefur
hann reglulega í nefið og faðmar er þeir hittast.
hlýtt heimili Gunnar ólst upp á
ástríku heimili foreldra sinna á horni
Bókhlöðustígs og Miðstrætis.
helgarblað 30. október 2009 föstudagu
r 31
Illdeilur séra Gunnars
KLOFIN KIRKJA
Deilan innan Fríkirkjunnar í Reykjavík á 9. áratug
síðustu aldar er eitt stærsta deilumál kirkjusafnaða
hér á landi. Lengi vel var kirkjan algjörlega klofin
milli tveggja andstæðra fylkinga. Þá gegndi Gunnar
Björnsson embætti sóknarprests Fríkirkjunnar og
þegar á leið fékk meirihluti sóknarnefndarinnar
sig fullsaddan af séra Gunnari og eiginkonu hans
Ágústu. Heimildir DV herma að hún hafi orðið
nokkuð ágeng í kórstarfi kirkjunnar og hafi viljað
ein komast að öllum söng sem þar færi fram.
Þannig tók hún fram fyrir hendurnar á organista
kirkjunnar og öllum kirkjuhöldurum. Á endanum
leysti safnaðarstjórnin Gunnar frá störfum vegna
samstarfsörðugleika. Reyndar var honum tvívegis
sagt upp. Fyrst í september 1985 en mánuði síðar
var hann endurráðinn eftir að hafa gert samkomu-
lag um að bæta ráð sitt. Rúmu hálfu ári síðar taldi
safnaðarstjórnin séra Gunnar hafa brotið gegn
samkomulaginu og að samstarfsörðugleikarnir
hefðu verið orðnir það miklir að stjórnin ætti ekki
annarra kosta völ en að víkja honum aftur úr starfi.
Stjórnin samþykkti brottvikninguna með fimm
atkvæðum gegn tveimur.
Upp frá þessu klofnaði kirkjan í tvær fylkingar,
stuðningsmenn stjórnarinnar og stuðningsmenn
séra Gunnars. Á tímabili var rætt um að skipta
söfnuðinum upp í tvo söfnuði. Kvenfélag
Fríkirkjunnar studdi stjórnina heilshugar og
ályktaði gegn stuðningsmönnum prestsins sem
konurnar sögðu ósmekklega aðför að stjórninni.
Blásið var til safnaðarfundar þar sem meirihluti,
376 atkvæði gegn 313, lýsti yfir vantrausti á
safnaðarstjórnina og séra Gunnar fagnaði. Síðar
boðaði safnaðarstjórnin til annars fundar þar sem
fram fór atkvæðagreiðsla um brottvikninguna.
967 fundarmenn studdu hana, 26 voru á móti og
29 skiluðu auðum seðli. Á kjörskrá voru liðlega 4
þúsund manns og séra Gunnar lýsti yfir vonbrigð-
um með að svo margir hefðu kosið gegn presti
sínum. Gunnar kom nokkru síðar að læstum dyrum
í Fríkirkjunni. Safnaðarstjórnin fagnaði sigri og leit
svo á að deilunni væri lokið.
Svo var nú aldeilis ekki. Séra Gunnar réð sér
lögmann sem leitaði til fógeta í þeirri von að
ógilda brottvikninguna. Sú varð ekki raunin og
fógeti heimilaði útburð prestsins úr prestsbústað
Fríkirkjusafnaðarins við Garðastræti. Eftir hatramm-
ar deilur, sem meðal annars fóru fram á síðum
dagblaða, yfirgaf Gunnar Fríkirkjuna í Reykjavík.
BAÐST AFSÖKUNAR
17. ágúst 1989, rúmu ári eftir deiluna í Fríkirkjunni,
var séra Gunnar Björnsson ráðinn sem prestur í
Holti í Önundarfirði. Lengi vel var hann vel liðinn í
starfi en áratug síðar komu upp deilur milli hans og
sóknarbarna sem enduðu á því að nokkur þeirra
kærðu hann fyrir erfiðleika í samskiptum og brot í
embætti. Á almennum safnaðarfundi var samþykkt
að veita Gunnari tímabundið leyfi frá störfum og
deilunni var vísað til áfrýjunarnefndar Þjóðkirkjunn-
ar. Gunnar sagði misklíðina við sóknarbörnin hafa
komið sér fullkomlega í opna skjöldu og benti á að
um fáa óánægða einstaklinga væri að ræða.
Um þessa óánægðu einstaklinga ritaði séra Gunnar
bréf og sendi til prófastsins. Þetta bréf kom fyrir
sjónir almennings og var meðal annars birt á
netinu nokkru síðar. Það er einkum þetta bréf sem
varð til þess að Gunnar hlaut skammir fyrir. Sjálfur
hefur hann lýst yfir eftirsjá vegna bréfaskrifanna
og sagði bréfið ekki hafa verið ætlað til birtingar.
Fyrir utan hin særandi bréfaskrif, þar sem hann
líkti sóknarbörnum sínum við Amish-fólk, var
prestinum gert að sök að hafa greint óviðkomandi
frá trúnaðarsamtali við sóknarbarn og að hafa farið
út fyrir velsæmismörk í ræðu sinni í kirkjunni.
Deilan endaði með því að Karl Sigurbjörnsson,
biskup Íslands, áminnti Gunnar, í mars árið 2000,
fyrir framkomu sem honum þótti ósamrýmanleg
því embætti sem presturinn gegndi. Í sérstöku bréfi
biskups til Gunnars mælti biskup fyrir um ákveðna
háttsemi og framgöngu og kvaðst gera það
vegna þjáninga og sorgar sem hann hefði valdið
sóknarbörnum sínum í Holti. Karl gaf Gunnari kost
á því að bæta ráð sitt en færði hann úr starfi sem
prestur í Holtskirkju og yfir í sérverkefni á vegum
Þjóðkirkjunnar. Það gerði Karl biskup eftir úrskurð
þess efnis frá áfrýjunarnefnd kirkjunnar. Biskupi
barst síðar afsökunarbeiðni frá séra Gunnari: „Ég
undirritaður, Gunnar Björnsson, sérþjónustuprest-
ur, bið fyrrverandi sóknarbörn mín í Holtspresta-
kalli, sem og aðra þá sem ég kann að hafa brotið
gegn, afsökunar. Sóknarbörnum í Holtsprestakalli
bið ég blessunar Guðs.“
SÝKNAÐUR AF ÁKÆRUM
Þrjár ungar stúlkur, allar undir 18 ára aldri, kærðu
séra Gunnar, sóknarprest í Selfosskirkju, fyrir kyn-
ferðisbrot gegn þeim. Þegar ákærur voru gefnar
út gegn prestinum bað hann um leyfi frá störfum
og í því leyfi var hann í tvö ár á meðan málið var
afgreitt, fyrst í héraðsdómi og síðar Hæstarétti.
Hann var sýknaður á báðum dómstigum. Engu að
síður var það viðurkennt fyrir dómi að séra Gunnar
hefði strokið, kysst og leitað sér huggunar hjá
ungum sóknarbörnum sínum. Af ákærum um kyn-
ferðisbrot var hann sýknaður en síðar úrskurðaði
úrskurðarnefnd kirkjunnar gegn Gunnari; þar var
skýrt kveðið upp að presturinn hefði brotið gegn
siðareglum presta með hegðun sinni.
Málið hefur valdið deilum meðal safnaðarins og er
talið að hann sé klofinn í tvær fylkingar. Sóknar-
nefndin sjálf, með Eystein Jónasson formann í
broddi fylkingar, krafðist þess að Gunnar fengi ekki
að snúa til baka, það var gert bréfleiðis til biskups,
og fékk vilja sínum framgengt.
Biskup Íslands gaf út skýr fyrirmæli, meðal annars
til sóknarprestsins sem leysti séra Gunnar af hólmi,
um að Gunnar fengi ekki að sinna embættisverkum
við Selfosskirkju á meðan málarekstur gegn honum
stæði yfir. Engu að síður varð presturinn uppvís að
því að sinna útför í óþökk biskups áður en lyktir
málsins voru ljósar. Þá sóttist hann síðar eftir því að
fá að jarðsyngja gamlan vin sinn í Selfosskirkju en
fékk neitun frá sóknarprestinum og biskupi.
Leyfi séra Gunnars frá störfum sóknarprests í
Selfosskirkju lauk á 65 ára afmælisdegi hans en
þá tilkynnti biskup að hann yrði færður til í starfi.
Bréf þess efnis endursendi Gunnar til biskups og
hefur fram til þessa neitað að hlýða fyrirmælum
yfirboðara síns. Hann hefur boðað málshöfðun
gegn Biskupsstofu vegna málsins en mögulegt er
að málinu ljúki áður með því að séra Gunnar taki
tilboði um myndarlegan starfslokasamning.
Rekinn tvisvar Séra Gunnar var tvívegis rek-
inn úr Fríkirkjunni í Reykjavík, fyrst í september
1987 og síðan í júní 1988.
Bréfið lak út Bréf séra Gunnars til prófastsins
lak í fjölmiðla. Í bréfinu líkti presturinn
sóknarbörnum sínum við Amish-fólk.
Snýr ekki aftur Biskup
harðneitar séra Gunnari
um að snúa aftur til
starfa í Selfosskirkju.
Allt er þegar þrennt er Deila séra Gunnars Björnssonar við
sóknarnefnd Selfosskirkju er þriðja stríð klerksins. Áður hafði
hann verið rekinn úr Fríkirkjunni í Reykjavík og færður úr starfi
sem sóknarprestur í Holtaprestakalli, eftir hatrammar deilur í
bæði skiptin.
16 föstudagur 11. september 2009 fréttir
starfskonur beittu stúlkur ofbeldi
Kynferðislegt ofbeldi, líkamlegar
refsingar og niðurlæging var veru-
leiki þeirra stúlkna sem vistaðar voru
á stúlknaheimlinu Bjargi sem Hjálp-
ræðisherinn rak vestur á Seltjarnar-
nesi árin 1967 til 1965. Þetta kemur
fram í skýrslu vistheimilisnefndar
um starfsemi Bjargs, Kumbaravogs
og Heyrnleysingjaskólans. Endalok
starfseminnar á Bjargi urðu tilefni
mikillar fjölmiðlaumfjöllunar í lok
sjöunda áratugarins.
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
starfaði á Bjargi allan starfstímann. Í
samtali við DV segir hún ásakanirn-
ar ekki eiga við rök að styðjast. „Þetta
eru mjög þungar ásakanir sem þarna
koma fram. Þær eru ekki réttar,“ segir
hún. Auður Eir vill þó ekki skýra mál-
ið frekar að svo stöddu. „Ég mun tala
um þetta mál en ég ætla ekki að gera
það núna,“ segir hún. Aðspurð seg-
ist hún hins vegar ekki hafa ákveðið
tíma og vettvang til þessa.
Auður Eir varð gagnrýnd harka-
lega eftir að Bjarg lokaði. Í viðtals-
bókinni „Sólin kemur alltaf upp á ný“
sem kom út árið 2005 segir Auður
Eir að endalok heimilisins hafi ráð-
ist af upplognum sögum. Þær konur
sem komu fyrir vistheimilisnefndina
greina hins vegar frá því að hafa þar
verið beittar alvarlegu ofbeldi.
Auður Eir var fyrsti kvenprestur-
inn sem fékk vígslu á Íslandi, en hún
var vígð til prests 1974. Þar áður hafði
hún starfað sem lögreglukona. Hún
var lengi prestur Kvennakirkjunn-
ar en lét þar af störfum á síðasta ári
vegna aldurs.
Óviðeigandi böðun unglings-
stúlkna
Í skýrslunni kemur fram að fjórar
af þeim sjö konum sem komu fyrir
nefndina hafi greint frá því að hafa
orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af
hálfu tiltekinna starfskvenna. „Til-
teknar starfskonur hafi kysst stúlk-
ur á munninn þegar þær voru að
bjóða góða nótt og þá oft með þeim
hætti að stinga tungunni upp í munn
þeirra,“ segir í skýrslunni.
„Þá greindu þær einnig frá því að
komið hafi fyrir að stúlkum hafi verið
strokið innanklæða, t.d. yfir brjóstin
eða bakið, og greindu tvær frá því að
hafa orðið vitni að því er starfskona
hafi í eitt tilgreint skipti baðað vists-
túlku og við það tækifæri sýnt af sér
kynferðislega hegðun, m.a. strokið
um brjóst hennar og kynfæri,“ segir
þar.
Báðar sögðu þær að sér hefði
fundist undarlegt að starfskonan hafi
baðað stúlkurnar þar sem þær hafi
allar verið komnar á unglingsaldur
og að aðfarir við böðunina hafi verið
óviðeigandi.
Næturkossar
Þetta kemur heim og saman við um-
fjöllun tímaritsins Ostrunnar frá
nóvember 1967 þar sem rætt var við
tvær stúkur sem vistaðar höfðu verið
á Bjargi.
„Einu sinni rak forstöðukonan
tunguna upp í mig um leið og hún
kyssti mig góða nótt, ég hrökklaðist
undan en hún varð bara vandræða-
leg og sagði að þetta væri bara leikur,“
segir önnur stúlkan í viðtalinu og hin
segir frá því hvernig forstöðukona
hafi farið inn fyrir peysu sína með
hendurnar og káfað á bakinu á sér.
DV vitnaði í þessi skrif þegar blað-
ið fjallaði um starfsemi Bjargs. Þegar
blaðamaður hafði þá samband vildi
Auður Eir ekkert tjá
sig. „Mig langar ekkert inn í þessa
umræðu aftur. Þetta er ekkert grín, ég
ræddi þetta á sínum tíma og vil ekki
ræða þetta frekar,” sagði hún. Auður
Eir bætti þá við að hún ætlaði að fara
yfir málið síðar, en tilgreindi ekki hve-
nær. Eins og kom fram hér að ofan er
hún enn ekki tilbúin til þess.
Djúpstæð vanlíðan
Tuttugu stúlkur voru vistaðar á Bjargi
á starfstíma þess. Við vinnslu skýrsl-
unnar hafði nefndin tiltæk gögn um
málefni þeirra hluta þeirra stúlkna
sem þar voru vistaðar. Nánast engin
gögn voru hins vegar til vegna vist-
unar hinnar færeysku Marion Gray,
heimlið var tekið til rannsóknar eftir
vistun hennar.
Ákvörðun um vistun stúlknanna
þar var tekin á grundvelli ætlaðrar
aðkomu stúlknanna að lögbrotum,
útivistar um nætur, skróps í skóla,
áfengisdrykkju eða annarra hegðun-
arerfiðleika.
Sjö konur komu fyrir nefndina
við rannsóknina og kemur fram í
skýrslunni að athygli nefndarinn-
ar vakti hversu samhljóða frásagnir
þeirra voru. Þær sögðu allar að dvöl-
in hafi reyndst þeim erfið og að þeim
hafi þar liðið almennt illa. Vanlíðan-
in stafaði meðal annars af þeim aga
sem ríkti á Bjargi, þeim refsingum
sem þar var beitt, erfiðum samskipt-
um við starfsfólkið og vegna aðskiln-
aðar við fjölskyldur þeirra.
Herbergi stúlknanna voru læst
yfir daginn og þeim ekki heimilt að
dvelja þar nema á kvöldin og yfir
nóttina. Ekki var hægt að ganga um
húsakynnin án þess að opna hurðir
með lyklum. Allar konurnar greindu
frá því að þessi skerðing á persónu-
frelsi hafi verið afar erfið og ástæða
þess að þær upplifðu dvölina sem
áþekka fangelsisvist, svo vitnað sé
beint til þeirra eigin orða. Vanlíðan-
in markaði djúp spor í sálarlíf þeirra
allra til langframa.
Löðrungar frá starfskonum
Meirihluti þeirra kvenna sem komu
fyrir nefndina greindu frá því að al-
gengt var að erfiðleikar kæmu upp á
milli viststúlkna og starfsfólks vegna
stífra og ófrávíkjanlegra reglna. Þá
hafi jafnvel komið til handa-
lögmála vegna þeirra, stundum að
frumkvæði stúlknanna.
Fimm af konunum sjö sögðust
hafa verið beittar líkamlegu ofbeldi
af hálfu starfsfólks og ein til viðbótar
sagðist hafa horft upp á slíkt.
„Komið hafi fyrir að starfsfólk
hafi löðrungað viststúlkur, rifið í hár
þeirra, klipið í líkama þeirra. Enn-
fremur komu fram nokkrar frásagn-
ir um að tvær viststúlkur hafi ver-
ið dregnar á hári og höndum niður
stiga á vistheimilinu. Starfsfólk hafi
beitt líkamlegu afli sem hafi ekki ver-
ið í þeim tilgangi að kveða niður árás-
argjarna hegðun viststúlkna heldur
Auður Eir VilhjálmsdóttirErLA HLyNsDÓttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
Neitar ásökunum Séra Auður
Eir Vilhjálmsdóttir neitar alvarleg-
um ásökunum sem fram koma í
nýrri skýrslu vistheimilisnefndar á
hendur starfsfólki Bjargs.
MyND KArL PEtErssoN
hóf umfjöllun um
Bjarg 9. febrúar 2007.
föstudagur 16. febrúar 200718
Helgarblað DV
Um síðustu helgi boðaði kona á
sextugsaldri börn sín til fundar við
sig. Hún vildi segja þeim leyndar-
mál sem hún hafði falið í fjörutíu
ár. Leyndarmálið var vist hennar
á stúlknaheimilinu Bjargi á Sel-
tjarnarnesi.
„Ég hef þagað yfir dvöl minni á
Bjargi í fjörutíu ár,“ segir Valgerð-
ur Kristjánsdóttir, sem hringir á
ritstjórn DV og segir að sér finnist
tímabært að lækna sárin. „Þegar
ég losnaði af Bjargi og það barst í
tal að ég hefði verið þar var ég
spurð hvort ég hefði verið „vand-
ræðabarn“. Þá ákvað ég að fela
þessa staðreynd og ætlaði aldrei
að ræða hana aftur. En þegar ég
las greinina í DV í síðustu viku
ákvað ég að ræða málin, sjálfrar
mín vegna og annarra.“
Valgerður er fædd suður með
sjó en eftir skilnað foreldranna var
hún send í fóstur til frænda síns og
konu hans vestur í Stykkishólmi.
„Blóðmóðir mín mun hafa vilj-
að fá mig aftur og meðan verið var
að greiða úr þeim málum var mér
komið fyrir á Bjargi,“ segir Val-
gerður. „Þar dvaldi ég í níu mán-
uði og þar fékk ég nóg af Guðsorði
fyrir alla ævina og meira til,“ seg-
ir hún og hlær lítillega „Við vorum
látnar fara með borðbænir sí og æ
og sækja nánast allar samkomur
Hjálpræðishersins og þarna fékk
ég ofskammt af trúartali. Mér hef-
ur gengið illa að sækja messur í
kirkjum eftir þessa upplifun.“
Eins og hundar í bandi
Valgerður man vel eftir húsa-
kynnum, starfsfólki og kennurum
að Bjargi.
„Niðri var skólastofan, þvotta-
hús, eldhús, borðstofa og heim-
sóknarherbergi, á efri hæð var
stofa og einhver herbergi og efst
uppi voru svefnherbergi okkar
stúlknanna. Á herbergjunum voru
rúm og kommóður, en á mínu
herbergi var enginn fataskápur.
Kennararnir sem ég man best eftir
voru guðfræðinemar, séra Sigurð-
ur Sigurðsson, nú vígslubiskup í
Skálholti, séra Gunnar Kristjáns-
son og séra Sigurður Guðmunds-
son. Mér fundust þessir menn
ágætir en talaði ekkert við þá fyrir
utan kennslustundirnar. Það má
vel vera að einhverjar stúlknanna
hafi sagt þeim frá vistinni, ég kaus
að þegja. Dagarnir voru ákaf-
lega einmanalegir,“ segir hún og
klökknar við að rifja upp dvöl-
ina. „Við vorum læstar inni eins
og í fangelsi og það var útilokað
að fá þá tilfinningu að þetta væri
heimili. Við máttum fara í göngu-
ferð einu sinni á dag, annaðhvort
í tíu mínútur eða klukkustund.
Ég kaus alltaf tíu mínútna göngu-
ferðina því mér fannst ákaflega
niðurlægjandi að vera á göngu
með einkennisklæddum Hjálp-
ræðisherskonum. Við vorum eins
og hundar í bandi og máttum þola
augngotur vegfaranda.“
Þegar Valgerður mætti í ljós-
myndatökuna vestur á Nes, var
það í fyrsta skipti frá því hún losn-
aði af Bjargi sem hún stendur við
það hús. Hún segist hafa viljað
gleyma öllu sem sneri að stúlkna-
heimilinu.
„Þetta er skrýtin tilfinning,“
segir hún þegar hún horfir á
Bjarg.“ Erfiðara en ég átti von á...
En þetta minnir mig líka á ljós-
ið í lífinu,” segir hún allt í einu
og brosir. „Stundum þegar við
Gísla Gunnarssonar,
Matthildar Hafsteinsdóttur
Ómanneskjulegur harmleikur
DV mynD: gúnDi
AnnA KristinE
blaðamaður skrifar: annakristine@dv.is
DV Helgarblað
föstudagur 16. febrúar 2007 19
vorum á gönguferð framhjá Mýr-
arhúsaskóla heyrði ég í Herberti
Guðmundssyni söngvara á hljóm-
sveitaræfingu. Hann var sönnun
þess að það væri líf fyrir utan veggi
Bjargs. Geturðu ekki skilað frá mér
kveðju til Hebba og þakkað honum
fyrir að hafa varpað gleði á gleði-
snautt líf unglingsstúlku fyrir fjöru-
tíu árum?“
Þvoði barnafötin úr ísköldu
vatni
Samtímis Valgerði á Bjargi var
færeyska stúlkan Marion, sem fjall-
að var um í blaðinu í síðustu viku.
„Marion var yndisleg stúlka.
Einu sinni gleymdist að læsa úti-
dyrahurðinni, svo við Marion stru-
kum og fórum heim til frænku
hennar. Eftir að hún hafði gefið
okkur að borða mætti Auður Eir
ásamt lögreglukonu og við vorum
illu heilli fluttar aftur á Bjarg.“
Valgerður man vel eftir syni
Marion, sem hún segir hafa dvalið
á Bjargi í um það bil viku eða ríf-
lega það.
„Starfskonurnar á Bjargi ætluðu
að hafa drenginn hjá sér, en það
var útilokað því hann grét stans-
laust, enda vildi hann fá mjólk hjá
móður sinni. Þær gáfust því upp
og Marion fékk að hafa hann hjá
sér. Ein minning hefur setið föst í
mér frá þessum tíma fyrir fjöru-
tíu árum. Það var þegar ég kom að
Marion, sárlasinni í þvottahúsinu
að þvo fötin af barninu. Ég spurði
hana hvers vegna hendurnar á
henni væru fjólubláar. Þá höfðu
starfskonurnar ekki leyft henni að
nota heita vatnið svo hún var að
þvo fötin upp úr ísköldu vatni. Ég
sótti óhrein föt af mér og stalst til
að þvo barnafötin úr heitu vatni.“
Dagurinn sem drengurinn
var tekinn af Marion er Valgerði
ógleymanlegur.
„Ég sat inni á herbergi hjá mér
þegar ég heyrði grátinn í barninu
og Marion. Þá var ein starfskon-
an mætt og tók barnið af Marion
með valdi. Marion féll algjörlega
saman, en sagði mér að drengur-
inn væri að fara til móður sinnar
og hún fengi hann þegar hún kæmi
til Færeyja. Síðar fékk ég staðfest að
barnið hefði verið sent til barna-
verndarnefndar í Þórshöfn og Mar-
ion fékk aldrei að sjá það...“
Valgerður segist ekki hafa verið
beitt ofbeldi á Bjargi utan tvisvar
sinnum.
„Í annað skiptið sagði ég í fífla-
skap að ég nennti ekki í kennslu-
stund, en sneri svo við og ætl-
aði inn á herbergið mitt að sækja
skólabækurnar. En það var of seint,
ein starfskonan hafði misst stjórn á
sér og dró mig á hárinu niður stig-
ann. Í annað skipti fór ég í taug-
arnar á einhverri þarna þannig að
hún hrinti mér á stigahandriðið og
ég var öll blá og marin. Eitt kvöld-
ið þegar ég var að festa svefn kom
ein kvennanna inn til mín, kyssti
mig á kinnina og það var greinilegt
að hún ætlaði sér að gera eitthvað
meira. En ég var vakandi, sneri mér
við og rak henni rokna löðrung.
Mín skoðun er sú að þessar konur
hafi að sumu leyti verið sadistar,“
segir hún ákveðin. „Sá matur sem
ég man mest eftir voru fiskibollur í
brúnni sósu sem við fengum nokk-
uð oft og nokkrum sinnum sá ég að
bollurnar voru myglaðar.“
Séra Hjalti var lífgjöfin mín
Þegar Valgerður fór vestur til
fermingarundirbúnings bað prest-
urinn í Stykkishólmi, séra Hjalti
Guðmundsson, hana að bíða eftir
tímann.
„Hann spurði hvernig mér liði
á Bjargi og ég sagði honum að það
væri eins hægt að drepa mig og láta
mig vera þar. Hann sagðist myndi
sjá til þess að ég færi aldrei aftur
á Bjarg, þangað hefði ég ekkert að
gera. Séra Hjalti var lífgjöfin mín,
ég fer aldrei ofan af því,“ segir Val-
gerður. „Eftir að ég hafði lesið DV
um síðustu helgi sagði ég börnun-
um mínum frá reynslu minni og
bar undir þau hvort ég ætti að segja
opinberlega frá. Minningarnar
streymdu fram eins og flóðbylgja.
Þau hvöttu mig til að segja sögu
mína: „Segðu frá því sem þú get-
ur, svona mál má ekki þagga nið-
ur“, sögðu þau. Vistin á Bjargi var
harmleikur. Þetta var ekki mann-
eskjulegt umhverfi.“
„Í annað skiptið sagði ég í fíflaskap að ég nennti
ekki í kennslustund, en sneri svo við og ætlaði
inn á herbergið mitt að sækja skólabækurnar.
En það var of seint, ein starfskonan hafði misst
stjórn á sér og dró mig á hárinu niður stigann.
Í annað skipti fór ég í taugarnar á einhverri
þarna þannig að hún hrinti mér á stigahandrið-
ið og ég var öll blá og marin.“
stelpurnar á bjargi
„Þetta mál hefur hvílt þungt á mér í fjörutíu ár en nú get ég ekki þag-að lengur. Umfjöllun DV um Breiðu-víkurmálið gerði það að verkum að minningarnar streymdu fram. Það voru ekki bara ungir piltar sem upp-lifðu að þeir sem áttu að aga þá eyði-lögðu líf þeirra.“Matthildur Hafsteinsdóttir er kona á sextugsaldri sem hefur boðað mig á sinn fund. Frá því DV kom út í síð-ustu viku með frásögnum ungra pilta sem dvöldu vestur í Breiðuvík við skelfilegt ofbeldi, hefur hún vart get-að sofið. Hún vill segja sína upplifun af stúlknaheimilinu Bjargi, sem rekið var af Hjálpræðishernum vestur á Sel-tjarnarnesi í tvö og hálft ár. Því heimili var lokað eftir að nokkrar stúlknanna höfðu greint frá dvöl sinni þar. Þangað var frænka Matthildar send frá Fær-eyjum fjórtán ára að aldri og dvaldi þar í eitt ár.„Minningarnar um Marion frænku mína hafa haldið fyrir mér vöku,“ segir Matthildur og hefur greinilega undirbúið vel hverju hún vill koma á framfæri.“Frásagnirnar af ofbeldinu í Breiðuvík heltóku mig og ýfðu upp sárar minningar. Við Marion vorum systradætur. Mæður okkar voru fær-eyskar, en móðir mín flutti ung til Íslands ásamt annarri systur sinni. Marion frænka mín var tveimur árum yngri en ég, fædd síðla árs 1951. Við sáumst fyrst þegar ég heimsótti fjöl-skylduna í Þórshöfn í Færeyjum þeg-ar ég var þrettán ára.“Bjarg var fangelsiMarion, þá tæplega ellefu ára, dökkhærð með gneistandi brún augu, sýndi stóru frænku sinni heimabæ sinn. Í minningunni ber smitandi hlátur hennar hæst.„Marion var alltaf hlæjandi og lífs-gleði hennar hafði áhrif á alla semvoru nálægir. Hún var afskaplega fjörug og hafði mikla útgeislun“ seg-ir Matthildur. „Þegar ég var sextán ára var ég komin í sambúð með Hinriki Jóni Magnússyni, sem var eiginmað-ur minn til dauðadags fyrir þremur árum. Við bjuggum í agnarlitlu húsi við Grettisgötu og þangað bárust mér fregnir af því að Marion frænka mín væri komin til dvalar á Bjargi. Skýr-ingin sem mamma hennar hafði gefiðvar sú að Marion væri óstýrilát og það þyrfti að aga hana. Hún hefði valið Bjarg, því það væri rekið á kristilegumnótum, en Anna, mamma Marion, starfaði með Frelsishernum í Fær-eyjum. Marion hvorki reykti né drakk eftir því sem ég best vissi og ég skildi ekki hvers vegna mamma hennar hefði sent hana til vistar á Bjargi.“Matthildur taldi sig vel geta haft litlu frænku sína hjá þeim Hinriki og þau héldu á Skódanum sínum rak-leiðis vestur á Seltjarnarnes til fundar við frænkuna.„Það fyrsta sem ég sagði við Hinrik þegar við höfðum hringt bjöllunni var að það væri engu líkara en við vær-um að koma í fangelsi. Við heyrðum hringl í lyklum enda voru stelpurn-ar læstar inni. Lyklakippan var stór
og þung og sú sem opnaði því lengi að finna rétta lykilinn. Andlitið sem mætti okkur í dyrum Bjargs þennan fyrsta dag var andlit hinnar norsku Kröte, sem spurði með þjósti hverja við vildum hitta. Bjarg var ekkert ann-að en fangelsi. Marion fékk þó að vera hjá okkur tvær eða þrjár helgar í fyrstu, en svo breyttist viðhorfið í garð fjölskyldunnar og okkur var meinað að heyra í og hitta Marion... „Stórt sár í sálinni„Starfsstúlkurnar voru allar norsk-ar, fyrir utan Auði Eir Vilhjálmsdótt-ur, sem réði mestu um daglegt starf Bjargs,“ segir Matthildur. „Ég man alltaf fyrsta fund okkar Auðar Eirar. Þá kom ég að heimsækja Marion og ætlaði upp á herbergið hennar en Auður Eir blokkeraði stigann upp og sagði mér að fara inn í viðtalsherberg-ið. Ég sá því aldrei herbergið henn-ar Marion þetta ár sem hún dvaldi á Bjargi. Þetta var ekki heimili. Þetta var fangelsi. Þessi staður gerði stúlkurn-ar ekki að betri manneskjum held-ur eyðilagði líf þeirra flestra. Ég hefhitt margar þeirra og það var ótrúlegt að heyra frásagnir þeirra af lífinu á Bjargi. Dvölin á Bjargi hefur skilið eft-ir stórt sár í sálu þeirra.“Marion gaf Matthildi engar skýr-ingar á því hvers vegna hún hefði ver-ið send að Bjargi, aðrar en þær að mömmu hennar líkaði ekki við kær-astann hennar. Hún hélt sannleikan-um leyndum, þangað til hann varðekki lengur umflúinn. Marion var barnshafandi. „Mér fannst sérkennilegt hvaðMarion var í ljótum og víðum fötum,“ segir Matthildur. „Eftir að ég varð eldri og þroskaðri, geri ég mér grein fyrir hvers vegna hún sagði mér aldrei að hún ætti von á barni.Hún hagaði sér í raun eins og barn sem hefur ver-ið misnotað; það þegir yfir verknaðin-um.“Um upphaf stúlknaheimilisins að Bjargi segist séra Auði Eir Vilhjálms-dóttur svo frá í ævisögu sinni, Sól-in kemur alltaf upp á ný, sem Edda Andrésdóttir skráði:„...mér sem fleirum þótti vanta hér skólaheimili fyrir stúlkur svo að þær fengju tíma til að átta sig á því sem hafði farið úrskeiðis í lífi þeirra, þar sem þær kæmust inn í reglulegt nám, tækju próf og héldu sína góðu leið í lífinu, Ég var lögreglukona þegar þetta var og þótti úrræðin sem þeim stúlkum buðust ekki mikil en að þau yrðu og gætu verið meiri.“„Vond verk í nafni Drottins“Matthildur getur ekki leynt andúð sinni á séra Auði Eir og segir starfsem-ina á Bjargi dæmi um vond verk, unn-in í nafni Drottins.„Ég söng með kirkjukórnum á Flateyri um margra ára skeið og það get ég sagt þér að það aðfangadags-kvöld sem ég sá að það var séra Auður Eir sem hafði verið fengin til að leysa séra Lárus af, þá gekk ég út. Í minni kirkju er ekki pláss fyrir hræsnara. Þegar Marion fæddi son sinn haustið
1967 fóru mamma og systir hennar á Fæðingardeildina og ætluðu að grípa inn í líf þeirra. En þær komu of seint. Móðir Marion hafði greinilega svipt dóttur sína sjálfræði og falið Auði Eir allt vald yfir henni.“Í viðtalsbókinni við séra Auði Eir Vilhjálmsdóttur er frásögnin á þessa leið:„...færeyska stúlkan sem rætt var við í blaðinu (Þjóðviljanum 20. okt-óber 1967) hafði reynst barnshaf-andi þegar hún kom á skólaheimil-ið. Var barn hennar flutt til Færeyja eftir fæðingu í samráði við móður-ömmu þess og barnaverndaryfir-völd í Færeyjum. Í viðtalinu í Þjóð-viljanum var lýst aðdraganda þess að stúlkan kom á skólaheimilið og dvölinni sem lauk með því að hún “strauk“....“„Hún strauk ekkert,“ segir Matt-hildur. „Henni var rænt af mann-inum mínum, Hinriki Jóni og vini hans og komið fyrir á heimili Ragn-ars Stefánssonar jarðskjálftafræðingsog foreldra hans á Sunnuvegi. Gísli Gunnarsson, kennari við Austur-bæjarskólann kenndi vinkonu einn-ar stúlkunnar á Bjargi, sem sagði honum frá aðstæðum og hann fór að kanna þær. Síðar kom Gunnlaug-ur Þórðarson, lögfræðingur að mál-inu, en hann átti sæti í Barnavernd-arráði.Það var staður þar sem framfór fangelsun og frelsissvipting ungl-ingsstúlkna. Það var ekki eins og þessar stúlkur væru einhver vand-ræðabörn samfélagsins. Þær voru bara of óstýrilátar fyrir foreldra sína, sem vildu losna við þær.“ „Endalok heimilisins voru ekki flókin; þau réðust einfaldlega af upp-lognum sögum“, segir séra Auður Eir í bókinni. „Við höfðum verið rænd til-trúnni; við hefðum aldrei getað hald-ið áfram og okkur hefði aldrei dottið það í hug.“Mörgum mun misbjóða sannleikurinnMarion sneri aftur að Bjargi eft-ir fæðingu sonar síns. Gjörbreytt ung stúlka að sögn Matthildar.„Glaða stúlkan var horfin að ei-lífu,“ segir Matthildur. „Þegar Bjargi var lokað nokkrum vikum síðar eftir að upp komst hvernig búið hafði ver-ið að bjargarlausum unglingsstúlk-unum fór Marion heim til Færeyja. Henni hafði verið lofað að hún fengisoninn þegar hún kæmi heim. Hann sá hún aldrei. Marion varð eins og skugginn af sjálfri sér. Hún kvaldist þá stuttu ævi sem hún átti eftir, en hún lést fertug að aldri úr krabbameini. Eftir að nýfæddur sonurinn var tekinn af henni hvarf lífslöngun hennar með öllu. Það er ekki hægt að gera ljótari hlut en þann að taka nýfætt barn af móður. Það gerði kona sem er prest-ur og rekur sérstaka Kvennakirkju. Mig hryllir við þessu. Bjarg var ekki stúlknaheimili. Það var fangelsi fyrir saklaus börn. Þegar saga Bjargs verð-ur gerð opinber – og þess er ekki langt að bíða – mun mörgum misbjóða, því get ég lofað.“
Földu MarionMeðan mál stúlknanna á Bjargi voru rannsökuð var gripið til þess ráðs að fela Marion Gray á stað þar sem hennar yrði örugglega ekki leitað. Ragnar skjálfti man vel eftir þessari unglingsstúlku.„Gísli Gunnarsson, sem var góð-ur vinur minn bað mig og foreldra mína að taka Marion að okkur tíma-bundið,“ segir Ragnar Stefánsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, betur þekktur sem Ragnar „skjálfti“ jarðskjálftafræðingur. „Gísli taldi af ýmsum ástæðum best að Marion væri á heimili þar sem hennar yrði ekki leitað og hún gæti verið örugg meðan mál hennar upplýstust bet-ur. Gísli vissi að hún hafði ekki átt góðar stundir á Bjargi.“Ragnar segir Marion hafa dvalið hjá sér og foreldrum sínum í nokk-urn tíma.„Ég kunni ágætlega við þessa stúlku og ég átti ómögulegt með að skilja hvers vegna hún var lok-uð inni á stúlknaheimili. Hún komvel fyrir sjónir og það var gaman að ræða við hana.“Sagði hún þér frá syni sínum sem hún fæddi og hafði verið tekinn af henni?„Nei, þessar fréttir koma mér alveg að óvörum,“ segir Ragnar og undrunin leynir sér ekki í rödd hans. „Hún talaði að vísu mest við móður mína, því við pabbi vor-um í vinnu á daginn og það má vel vera að hún hafi trúað mömmu fyr-ir þessu. Okkur fannst öllum Mar-ion vera indælisstúlka og var mjög
til friðs á heimili okkar. Mér fannst Gísli vera að gera mjög góða hluti því ég gat ekki séð nokkra ástæðu fyrir því að hún væri vistuð á Bjargi. Mér skildist að fjölskylda henn-ar í Færeyjum væri afskaplega sið-vönd og ástæða þess að þau hefðu sent hana á Bjarg væri sú að hún hefði ekki hagað sér nægilega vel að þeirra mati. En þessi frétt um að hún hafi verið barnshafandi og eignast son hér á landi, skýrirmargt fyrir mér. Ég hafði spurnir af Marion síðar og svo virðist sem húnhafi orðið hálfgert rekald eftir lífs-reynslu sína hér á Íslandi.“Stefán Bjarnason, faðir Ragnars, staðfestir að fjölskyldan hafi fallist á að veita Marion húsaskjól og hún hafi verið elskuleg stúlka. „Ég vissi af fæðingu sonarins, en man ekki hvort hún sagði mér sjálf af henni eða einhver annar,“ segir Stefán. Aðspurður hvort Gunnlaugur Þórðarson lögfræðingur hafi komið á heimilið til að taka skýrslu af Mar-ion segist Stefán muna eftir manni sem kom á heimilið til að ræða viðhana.„Hvort það var Gunnlaugur heit-inn Þórðarson veit ég ekki, en Mar-ion var nokkuð brugðið við komu þessa manns. Hún fór að gráta því hún taldi að verið væri að sækja sig og flytja aftur á Bjarg. Umræddur maður fullvissaði hana um að hann væri þarna til að hjálpa henni og fór mjög rólega að henni og talaði hlý-lega við hana.“
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir var mest var áberandi í sambandi við Bjargsmálið. Á henni stóðu öllspjót þegar málið var rannsakað og á hana er hart deilt í viðtölum í DV í dag.„Af hverju ertu að fara að skrifa um þetta?“ spyr hún þegar haft var samband við hana síðdegis í gær. „Ég skal segja þér hvað ég vil segja. Við settum þetta heimili á stofn. Þetta var skólaheimili.“Og fór þar fram einhver kennsla? „Þú hefur enga þekkingu á þessu máli og hefur engan rétt á að hringja í mig og krefjast svara. Ég nenni ekki að tala um þetta... Ég nenni þessu ekki lengur.“Auður Eir segir að vissulega hafi verið mikið um þetta mál fjall-að á sínum tíma, en segir:„Mig langar ekkert inn í þessa umræðu aftur. Þetta er ekkert grín, ég ræddi þetta á sínum tíma og vil ekki ræða þetta frekar.“Þegar vitn-að er í
frásögn Marion Gray, sem birtist í Þjóðviljanum 20. október 1967 og varð í raun Bjargi að falli svarar Auður:„Þetta var alls ekki eins og Marion lýsir þessu. Við settum þetta heim-ili á stofn, þetta var skólaheimili. Ég vil ekki tjá mig um þetta mál, ég gerði það á sínum tíma frá morgni til kvölds. Það getur vel verið að ég svari öðrum á morgun um málið. Það erlangbest að lifa lífi sínu í sátt við góðaveðrið. Þú verður að finna þitt hjarta og hvernig það slær,” sagði prestur Kvenna-kirkjunnar, séra Auður Eir Vil-hjálmsdóttir og kvaddi.valur@dv.is
„Tala ekki um þetta“
Ragnar „skjálfti“ Stefáns-son og foreldrar hans skutu skjólshúsi yfir Marion „Ég hafði spurnir afhenni síðar og svo virðist semhún hafi orðið hálfgert rekaldeftir lífsreynslu sína hér.“
Bjarg var fangelsi
Vond verk unnin í nafni DrottinsMatthildur Hafsteinsdóttir segirstúlkur sem dvöldu á bjargi hafa veriðbeittar andlegu ofbeldi.
Sátt við veðrið „Það er langbest að lifa lífi sínu í sátt við góða veðrið,“ segir séra auður eir Vilhjálmsdóttir.
DV Fréttir
Stelpurnar á bjargi
tóku nýfætt
barnið af
örvilnaðri
móðurinni
Helvíti á jörðuHarðræði, innilokun og frelsissvipting var hluti þess sem þessar unglingsstúlkur þurftu að þola. Þeim var komið fyrir á Bjargi, sem var heimili rekið af Hjálpræðishernum, og nú fjörutíu árum síðar kraumar enn hatur og beiskja í þeim konum sem þar voru vistaðar. DV hefur fundið gögn um starfiðá Bjargi og birtir hér hluta þeirra og viðtöl við fólk sem þekkir vel til þess sem þar fór fram.
Framhald á næstu opnu
Fréttir DV
Stelpurnar á bjargi
„Má móðir taka dóttur sína og láta vista hana í húsi, þar sem hún má varla fara út í tvö ár, bara vegnaþess að stúlkan var of lengi úti eittkvöld?“ Fyrir fjörutíu árum var þessari spurningu var beint til Gísla Gunnarssonar, prófessors í sagn-fræði, sem þá kenndi félagsfræðivið Gagnfræðaskóla Austurbæjar.Umfjöllunarefni kennslustundar-innar var sjálfræði unglinga.„Mér var mjög brugðið og bað stúlkurnar að ræða við mig eft-ir tímann. Þær sögðu mér að um-rædd stúlka væri vistuð á stúlkna-heimilinu Bjargi á Seltjarnarnesi og við sammæltumst um að þegar hún losnaði þaðan, talaði hún viðmig. Hún kom til fundar við migí ágúst árið 1967, ásamt tveimuröðrum stúlkum sem höfðu veriðá Bjargi. Þær sögðu mér af aðstöð-unni þar og ég varð skelfingu lost-inn, aðallega yfir einangruninni,sem mér finnst alltaf hafa veriðversti hluti Bjargsmálsins. Skoð-un mín á Bjargi var að mestu leytium einangrunina, bæði á Bjargiog sérstaklega þó þegar stúlkurn-ar þar voru sendar í refsieinangruneða einangrun við upphaf vistar áríkisupptökuheimilið í Kópavogi. Einnig að þeim var stöðugt hótað á Bjargi að vera settar í einangrun.“Í algjörri einangrunGísli sýnir mér pappíra; heilu möppurnar, sem innihalda skýrslu-tökur af stúlkum sem dvöldu áBjargi, blaðaúrklippur og afritbréfa til yfirvalda. Í vitnisburðieinnar stúlkunnar, skýrslu sem ervottfest af tveimur lögmönnumstanda eftirfarandi orð:„Á ríkisupptökuheimilinu var hún sett í herbergi með einu járn-rúmi. Annað húsgagna var þarekki... Gluggi var spenntur aftur.Þarna var hún læst inni og fékkaldrei allan tímann að fara útnema til að fara á salerni eða í bað.Mjög slæmt loft var í herberginuog lykt varð þar slæm fljótt. Læs-ing var þannig að bundið var fyrir hurð og skrölti mikið þegar opn-að var. Öll föt hennar voru tekin af henni, nema nærbuxur og hennifengin náttföt til að vera í, eða all-an innilokunartímann, 28/5-4/6eða 7 daga...“„Forstöðukona upptökuheim-ilisins, Ólöf Þorsteinsdóttir, tjáðimér að kvenlögreglukonurnarGuðlaug Sverrisdóttir og AuðurEir Vilhjálmsdóttir hafi viljað hafainnilokunina miklu strangari enhún sjálf hefði óskað,“ skrifaði Gíslií skýrslu til yfirvalda 1967. „Þaðþótti góður undirbúningur á Bjargiað hafa stúlkurnar í einangrun fráfimm upp í tíu daga. Þær fengu ekki að hlusta á útvarp né lesablöð. Eina lesefnið var kristilegt efni eða hrós um Bjarg. Þær áttu að vera sem mest með sjálfum sérog þeim sagt að, svo ég vitni orð-rétt í eina stúlkuna: „Til að ná best sambandi við Guð í bæn sé þegarmaður er einn og hefur engan til að trufla.“ Með einangruninni átti Guð að frelsa þær.“Gísli Gunnarsson hefur aldrei komið inn á Bjarg, en hann hafðiupplýsingar sínar frá fyrstu hendi:„Ég kom í fyrstu að málinu sem „vinsamlegur skoðandi“ og starfs-konur ríkisupptökuheimilisinsveittu mér góðfúslega upplýsingar,
enda voru þær mótfallnar því aðvera notaðar á þennan hátt. Þærfengu síðar skammir fyrir að veitamér upplýsingarnar, þótt ég semkennari, hafi átt fullan rétt á þeim.Þegar málið fór að vinda upp á sigreyndu starfskonur Bjargs að komasem mestri sök yfir á konurnar á ríkisupptökuheimilinu og þóttust ekki kannast við neitt, jafnvel þóttþað hefðu verið Guðlaug Sverris-dóttir og Auður Eir sem komu með stúlkurnar af Bjargi inn á ríkisupp-tökuheimilið. Þe ar ég kom aðmálinu hafði Bjarg verið starfræktí tvö ár en reglan var sú að stúlkurættu helst að dvelja þar í tvö ár.“Allir aðrir brugðustÞegar Gísli hafði tekið skýrsl-ur af nokkrum stúlknanna sendihann málið til fjölmargra aðila. „Allir þeir aðilar fengu bréf og skýrslu mína um einangrunstúlknanna,“ segir Gísli. „Eini mað-urinn sem svaraði mér var bæjar-fógetinn í Kópavogi, sem gerði sína athugun á ríkisupptökuheim-ilinu. Hann var eina yfirvaldið sem brást löglega við. Allir aðrir brugð-
ust. Formaður Sálfræðingafélags-ins hafði samband við mig og gafmér hreinskilnislegasta svar semég hef á ævinni fengið: „Við höfumekki siðferðilegan styrk til að eiga íþessu máli.“Réttlætiskenndinni misboðiðAð sögn Gísla sátu í Barnavernd-arráði Íslands á þessum tíma aukGunnlaugs: Sveinbjörn Jónsson hæstaréttarlögmaður, sem var for-maður ráðsins, Magnús skólastjóri Hlíðaskóla, séra Gunnar Árnason, prestur í Kópavogi og móðurbróðir séra Auðar Eirar Vilhjálmsdóttur ogSímon Jóhann Ágústsson, sem hafði verið í öllum barnaverndarmálumfrá því á fjórða áratugnum.„Barnaverndarráð samanstóð því eingöngu af gömlum karl-
mönnum. Gunnlaugur var eigin-lega unglambið, 48 ára! Við Sím-on Jóhann vorum vinir, hann hafðikennt mér við háskólann og hannfylgdist með Bjargsmálinu frá upp-hafi. Hann laumaði til mín upplýs-ingum um hvað barnaverndarráðvar að gera eða ekki að gera. Á yfir-borðinu var hann stuðningsmaðurBjargs, en hann lék tveimur skjöld-um í þessu máli og aðstoðaði mig dyggilega. Hann var í rauninni eini fagmaðurinn í Barnaverndarráði.“En hver er ástæða þess að gagn-fræðaskólakennari tekur upp á sitt eindæmi að rannsaka stúlkna-heimilið Bjarg, með þeim afleiðing-um að því er lokað nokkrum mán-uðum síðar?„Réttlætiskennd minni var mis-boðið og þegar ég byrjaði með mál-ið og mætti andstöðu og fjandsemiþá kom upp í mér þrjóska og bar-áttuvilji. Ég sagði við sjálfan mig aðef ég myndi láta málið niður falla,þá myndu fylgismenn Bjargs herjaá mig með allt sitt lið og það var ekkert lítið! Ég ákvað að ég yrði að sigra í þessu máli til að geta lifaðáfram. Ég var farinn að berjast fyrir
minni eigin tilvist sem kennari ogsem virtur þegn í samfélaginu.“Var reynt að stöðva þig?„Já, stöðugt og ég fékk fjölmarg-ar hótanir. Ég vann einn að mál-inu í nær fimm mánuði, með smá-stuðningi frá Símoni Jóhanni ogmanni sem var fljótur að vélrita.Ég bar málið jafnóðum undir tvolögfræðinga, sem fylgdust með tilað gæta að því að ég væri ekki meðneitt ólögmætt í höndunum. Ann-ar þeirra varð síðar virtur prófessor í lögfræði.“Heiftin engu minni en fyrirfjörutíu árumGísli segir stúlkurnar hafa verið misjafnlega á sig komnar andlegaþegar hann hitti þær. Hann hefurnýverið heyrt í tveimur þeirra sem
óskuðu eftir samtali við hann afástæðum sem fljótlega verða þjóð-inni kunnar.„Heift þeirra í garð Bjargs er ennþá til staðar. Þessar konur eru nú á sextugsaldri og bera enn þáþann heiftarhug til Auðar EirarVilhjálmsdóttur og Bjargs og þærgerðu fyrir fjörutíu árum.“Eftir að Bjargi var lokað, 23. okt-óber 1967 hafði Gísli ekkert sam-band við stúlkurnar í áratugi.„Ég mat það svo að þær vildu fá að vera í friði næstu árin og fá að gleyma þessum tíma. En svo fórhann að rifjast upp fyrir þeim þeg-ar þær urðu fullorðnar konur og margar þeirra orðnar mæður og sumar ömmur“.Kynferðisleg áreitni og of-beldi hefur komið mikið við söguí Breiðuvíkurmálinu sem mikið er fjallað um þessa dagana. Kom eitt-hvað slíkt til tals í þínum athugun-um?„Ég kannaði aldrei slíkt. Ég lagði áherslu á þann þátt sem sneri aðeinangrun stúlknanna, sem ég leitalvarlegustu augum. Umræða umslíkt kom hins vegar upp af hálfustúlknanna, en þær fundu fljótt aðég vildi ekki um það ræða.“Myndirðu spyrja öðruvísi í dag en þú gerðir fyrir fjörutíu árum?„Ég hygg ekki. Ég var einungis að athuga einangrun.“Bjargi var lokað 23. október 1967, en rannsókn málsins hófst 18. nóvember. Öll gögn málsins liggja á borðinu fyrir framan okk-ur. Það er eins og talnaþraut aðlesa sig í gegnum ferlið.„Málinu var vísað til ráðuneytis í lok nóvember, ráðuneytið sendiþað áfram til saksóknara til athug-unar 20. desember. Þaðan fór mál-ið aftur til saksóknara, sem senditil Barnaverndarráðs sem sendiþað til bæjarfógeta, sem sendi aft-ur til saksóknara og þaðan til ráðu-neytis og síðan lýsti ríkissaksókn-ari því yfir í desember 1968 aðengin málshöfðun verði að höfðusamráði við menntamálaráðu-neytið. Lögfræðingur Bjargs, Logi Guðbrandsson, lýsti sig ánægðanmeð þessar málalykt-ir... Barnaverndarráð Íslands var svo lamað fram til
ársins 1970 að Gunnlaugur Þórð-arson var gerður að formanni þess og hann var hvatamaður þess að Breiðuvík var lokað.“Sonurinn tekinn með valdi af móðurinniVar þér kunnugt um að fær-eyska stúlkan, Marion Gray, eign-aðist son sem var tekinn af henni?„Já. Drengurinn fæddist á Fæð-ingarheimili Reykjavíkur og síðarvar farið með hann á Bjarg þar sem Marion fékk að gefa honum brjóst í nokkra daga. Þetta veit ég frá Mar-ion sjálfri og stúlkunum sem vorusamtímis henni á Bjargi. Forráða-konur Bjargs voru ráðalausar ogfyrsta hugmyndin var sú að gefadrenginn til ættleiðingar. Mar-ion neitaði því og þá var leitað tilbarnaverndarnefndarinnar í Þórs-höfn í Færeyjum sem kvað uppþann úrskurð að barnið skyldi senttil Færeyja til umsjónar nefndar-innar. Drengurinn var tekinn afMarion með valdi.“Gísli segir að þegar Marion fór síðar til Færeyja hafi henni veriðlofað að hún fengi að sjá bar ið sitt ef hún undirritaði skjöl þess efnisað allt sem hún hefði sagt um Bjarg á Íslandi væru ósannindi.„Þegar Marion hafði undirrit-að það plagg var hún meðhöndl-uð sem úrhrak í Færeyjum og fékk aldrei að sjá son sinn.“Sannleikurinn er skjalfesturFrá því DV hóf umfjöllun um Breiðuvíkurmálið í síðustu viku hafa fjölmiðlar verið undirlagðir afþví. Við höfum fengið ábendingarum fleiri mál, þeirra á meðal þaðsem hér er til umræðu. Telur þú aðBjargsmálið muni rísa upp tvíefltaftur eins og Breiðavíkurmálið?„Ég veit að það mun gerast,“ svarar Gísli að bragði.“Ég hef heyrtað verið sé að vinna að ítarlegri ogáhrifaríkri athugun á þessu máli. Meira get ég ekki um það sagt, éger bundinn þagnarskyldu.“ Og verður niðurstaða þeirrar athugunar þannig að þú getir tek-ið undir lokaorð Matthildar Haf-steinsdóttur í viðtali í blaðinu í dag að þegar saga Bjargs verði gerð op-inber muni mörgum misbjóða?„Já, ég get tekið undir þau orð. Ég tel tvímælalaust að þær stúlk-ur sem vistaðar voru á Bjargi hafi skaðast sálarlega. Bjargsmálið hvíl-ir á þeim sem skuggi og er kannskineikvæðasta atriði lífs þeirra. Þærvoru margar geymdar á Bjargi meðsamþykki foreldra sinna - þó ekkiallar - og inn í málin blandast þvíuppgjör við foreldrana. Þær viljaekki ennþá vita allt sem foreldrarþeirra gerðu. Eftir að dómsrann-sókn hófst í málinu og lögreglan fór að taka skýrslur af Bjargsstúlk-unum kom margt hræðilegt í ljós. Sann-leikurinnum Bjarg er skjalfesturog margt um hanner aðfinna velgeymt íráðuneytií Reykja-vík.“
Sama iftin eftir 4 ár
AnnA KRiStineblaðamaður skrifar: annakristine@dv.is
„Ég tel tvímælalaust að þær stúlkur semvistaðar voru á Bjargi hafi skaðast sálarlega.Bjargsmálið hvílir á þeim sem skuggi og er kannski neikvæðasta atriði lífs þeirra.“
Kennarinn sem kannaði málin „Mér var mjög brugðið þegar ég heyrði af unglings-stúlkum í einangrun,“ segir gísli gunnarsson,sem hóf rannsókn á starfsemi bjargs fyrir fjörutíu árum. fyrir framan hann á borðinu erein af þeim möppum sem innihalda skýrslur og viðtöl við stúlkur sem dvöldu á bjargi.
Í einangrun fyrir óhlýðni
Tvær stúlkur sem höfðu verið
vistaðar á Bjargi fóru hörðum orð-
um um aðstæður þar og framkomu
stjórnenda við stúlkurnar í viðtali
sem birtist í tímaritinu Ostrunni í
nóvember 1967. Þær lýsa þar meðal
annars ofbeldi af hálfu starfskvenna
Bjargs, kynferðislegri áreitni og mik-
illi hörku.
Í viðtalinu segja stúlkurnar að
þær hafi verið beittar ofbeldi ef þær
hlýddu ekki. Þannig hafi þær til
dæmis orðið vitni að því að starfs-
konurnar hafi slegið til stúlkna og
dregið þær eftir gólfum. Þannig
segja þær að ein stúlka hafi verið
dregin alla leið niður af efstu hæð
niður á jarðhæð þegar hún neitaði
að fara niður. Fleiri refsingar komu
þó til greina og var beitt. „Ef við mót-
mæltum, var okkur hótað að við yrð-
um sendar á hælið í Kópavogi eða
þá á vandræðaheimili í Danmörku.
Þær litu á okkur sem vandræðabörn
og lýstu fyrir okkur, hvernig umhorfs
væri á þessum vandræðaheimilum í
Danmörku. Þær sögðu að þar
væru járnbekkir, rimlar fyr-
ir gluggum, múrar í kring og
annað eftir því.“
Önnur stúlknanna lýs-
ir því í viðtalinu hvernig hún
var flutt á Upptökuheimilið í
Kópavogi og sett í einangrun-
arklefa þar eftir að hún flýði
af Bjargi. Bróðir hennar hafði
þá keyrt hana aftur á Bjarg og
tekið loforð af forstöðukon-
unni um að hún yrði ekki
flutt á upptökuheimilið. Lof-
orð sem var ekki virt.
„Einu sinni rak forstöðu-
konan tunguna upp í mig
um leið og hún kyssti mig
góða nótt, ég hrökklaðist
undan en hún varð bara
vandræðaleg og sagði að
þetta væri bara leikur,“ segir önnur
stúlkan í viðtalinu og hin segir frá
því hvernig forstöðukonan hafi farið
inn fyrir peysu sína með hendurnar
og káfað á bakinu á sér.
Neyddar til trúarathafna
Þjóðviljinn og Tíminn fjölluðu
um flótta Marion Gray frá Bjargi og
veru hennar þar í löngum greinum
20. október 1967. Langt viðtal birt-
ist við Marion í Þjóðviljanum þar
sem hún lýsti upplifun sinni og þá
ekki síst hvernig barn hennar var
tekið af henni.
Marion segir frá því að þegar
hún sagði forstöðukonunni að hún
væri með barni hafi sú síðarnefnda
ekki trúað því. „...hún vildi ekki
trúa mér, hún lamdi mig, við lent-
um í slagsmálum og svo sagði hún
að ég væri ekki frekar ófrísk en hún
sjálf. Um kvöldið blæddi hjá mér í
klukkutíma.“ Marion segist í við-
talinu hafa beðið um að fá að fara
til læknis en verið neitað. Síðan
hafi liðið langur tími og hún fyrst
fengið að fara til læknis þegar
barnið var farið að sparka. Þá var
Marion komin sjö mánuði á leið.
Í umfjölluninni er Bjargi lýst
sem ríkisstyrktu uppeldisheim-
ili í höndum ofsatrúarflokks.
Þar segir meðal annars að eng-
inn sálfræðingur starfi við stofn-
unina en uppeldisaðferðirnar
byggi allar á annarlegri trúfræði,
annars vegar séu viststúlkur
þvingaðar til að taka þátt í trúar-
athöfnum og hins vegar beittar
hótunum og refsingum. Barna-
verndarráð er sagt hafa lítil af-
skipti af Bjargi.
Sett í spennitreyju
Marion segir frá því að hún
hafi verið lokuð inni í klefa í
færeyjum í spennitreyju, í
fimm daga.
Umfjöllun DV
9. febrúar
saga Marion gray,
sem flýði af bjargi,
vakti mikla athygli.
Umfjöllun Ostrunnar í nóvember
1967 stúlkurnar segja auði eir
Vilhjálmsdóttur, sem þá var lögreglu-
kona, hafa sagt að eina leiðin til að ala
upp unglinga væri að halda þeim í
sífelldum ótta.
„...hún vildi ekki trúa mér,
hún lamdi mig, við lentum
í slagsmálum og svo sagði
hún að ég væri ekki frekar
ófrísk en hún sjálf.“
„Þetta mál hefur hvílt þungt á mér í fjörutíu ár en nú get ég ekki þag-að lengur. Umfjöllun DV um Breiðu-víkurmálið gerði það að verkum að minningarnar streymdu fram. Það voru ekki bara ungir piltar sem upp-lifðu að þeir sem áttu að aga þá eyði-lögðu líf þeirra.“
Matthildur Hafsteinsdóttir er kona á sextugsaldri sem hefur boðað mig á sinn fund. Frá því DV kom út í síð-ustu viku með frásögnum ungra pilta sem dvöldu vestur í Breiðuvík við skelfilegt ofbeldi, hefur hún vart get-að sofið. Hún vill segja sína upplifun af stúlknaheimilinu Bjargi, sem rekið var af Hjálpræðishernum vestur á Sel-tjarnarnesi í tvö og hálft ár. Því heimili var lokað eftir að nokkrar stúlknanna höfðu greint frá dvöl sinni þar. Þangað var frænka Matthildar send frá Fær-eyjum fjórtán ára að aldri og dvaldi þar í eitt ár.
„Minningarnar um Marion frænku mína hafa haldið fyrir mér vöku,“ segir Matthildur og hefur greinilega undirbúið vel hverju hún vill koma á framfæri.“Frásagnirnar af ofbeldinu í Breiðuvík heltóku mig og ýfðu upp sárar minningar. Við Marion vorum systradætur. Mæður okkar voru fær-eyskar, en móðir mín flutti ung til Íslands ásamt annarri systur sinni. Marion frænka mín var tveimur árum yngri en ég, fædd síðla árs 1951. Við sáumst fyrst þegar ég heimsótti fjöl-skylduna í Þórshöfn í Færeyjum þeg-ar ég var þrettán ára.“
Bjarg var fangelsi
Marion, þá tæplega ellefu ára, dökkhærð með gneistandi brún augu, sýndi stóru frænku sinni heimabæ sinn. Í minningunni ber smitandi hlátur hennar hæst.
„Marion var alltaf hlæjandi og lífs-gleði hennar hafði áhrif á alla sem voru nálægir. Hún var afskaplega fjörug og hafði mikla útgeislun“ seg-ir Matthildur. „Þegar ég var sextán ára var ég komin í sambúð með Hinriki Jóni Magnússyni, sem var eiginmað-ur minn til dauðadags fyrir þremur árum. Við bjuggum í agnarlitlu húsi við Grettisgötu og þangað bárust mér fregnir af því að Marion frænka mín væri komin til dvalar á Bjargi. Skýr-ingin sem mamma hennar hafði gefið var sú að Marion væri óstýrilát og það þyrfti að aga hana. Hún hefði valið Bjarg, því það væri rekið á kristilegum nótum, en Anna, mamma Marion, starfaði með Frelsishernum í Fær-eyjum. Marion hvorki reykti né drakk eftir því sem ég best vissi og ég skildi ekki hvers vegna mamma hennar hefði sent hana til vistar á Bjargi.“Matthildur taldi sig vel geta haft litlu frænku sína hjá þeim Hinriki og þau héldu á Skódanum sínum rak-leiðis vestur á Seltjarnarnes til fundar við frænkuna.
„Það fyrsta sem ég sagði við Hinrik þegar við höfðum hringt bjöllunni var að það væri engu líkara en við vær-um að koma í fangelsi. Við heyrðum hringl í lyklum enda voru stelpurn-ar læstar inni. Lyklakippan var stór
og þung og sú sem opnaði því lengi að finna rétta lykilinn. Andlitið sem mætti okkur í dyrum Bjargs þennan fyrsta dag var andlit hinnar norsku Kröte, sem spurði með þjósti hverja við vildum hitta. Bjarg var ekkert ann-að en fangelsi. Marion fékk þó að vera hjá okkur tvær eða þrjár helgar í fyrstu, en svo breyttist viðhorfið í garð fjölskyldunnar og okkur var meinað að heyra í og hitta Marion... „
Stórt sár í sálinni
„Starfsstúlkurnar voru allar norsk-ar, fyrir utan Auði Eir Vilhjálmsdótt-ur, sem réði mestu um daglegt starf Bjargs,“ segir Matthildur. „Ég man alltaf fyrsta fund okkar Auðar Eirar. Þá kom ég að heimsækja Marion og ætlaði upp á herbergið hennar en Auður Eir blokkeraði stigann upp og sagði mér að fara inn í viðtalsherberg-ið. Ég sá því aldrei herbergið henn-ar Marion þetta ár sem hún dvaldi á Bjargi. Þetta var ekki heimili. Þetta var fangelsi. Þessi staður gerði stúlkurn-ar ekki að betri manneskjum held-ur eyðilagði líf þeirra flestra. Ég hef hitt margar þeirra og það var ótrúlegt að heyra frásagnir þeirra af lífinu á Bjargi. Dvölin á Bjargi hefur skilið eft-ir stórt sár í sálu þeirra.“
Marion gaf Matthildi engar skýr-ingar á því hvers vegna hún hefði ver-ið send að Bjargi, aðrar en þær að mömmu hennar líkaði ekki við kær-astann hennar. Hún hélt sannleikan-um leyndum, þangað til hann varð ekki lengur umflúinn. Marion var barnshafandi.
„Mér fannst sérkennilegt hvað Marion var í ljótum og víðum fötum,“ segir Matthildur. „Eftir að ég varð eldri og þroskaðri, geri ég mér grein fyrir hvers vegna hún sagði mér aldrei að hún ætti von á barni.Hún hagaði sér í raun eins og barn sem hefur ver-ið misnotað; það þegir yfir verknaðin-um.“
Um upphaf stúlknaheimilisins að Bjargi segist séra Auði Eir Vilhjálms-dóttur svo frá í ævisögu sinni, Sól-in kemur alltaf upp á ný, sem Edda Andrésdóttir skráði:
„...mér sem fleirum þótti vanta hér skólaheimili fyrir stúlkur svo að þær fengju tíma til að átta sig á því sem hafði farið úrskeiðis í lífi þeirra, þar sem þær kæmust inn í reglulegt nám, tækju próf og héldu sína góðu leið í lífinu, Ég var lögreglukona þegar þetta var og þótti úrræðin sem þeim stúlkum buðust ekki mikil en að þau yrðu og gætu verið meiri.“
„Vond verk í nafni Drottins“Matthildur getur ekki leynt andúð sinni á séra Auði Eir og segir starfsem-ina á Bjargi dæmi um vond verk, unn-in í nafni Drottins.
„Ég söng með kirkjukórnum á Flateyri um margra ára skeið og það get ég sagt þér að það aðfangadags-kvöld sem ég sá að það var séra Auður Eir sem hafði verið fengin til að leysa séra Lárus af, þá gekk ég út. Í minni kirkju er ekki pláss fyrir hræsnara. Þegar Marion fæddi son sinn haustið
1967 fóru mamma og systir hennar á Fæðingardeildina og ætluðu að grípa inn í líf þeirra. En þær komu of seint. Móðir Marion hafði greinilega svipt dóttur sína sjálfræði og falið Auði Eir allt vald yfir henni.“
Í viðtalsbókinni við séra Auði Eir Vilhjálmsdóttur er frásögnin á þessa leið:
„...færeyska stúlkan sem rætt var við í blaðinu (Þjóðviljanum 20. okt-óber 1967) hafði reynst barnshaf-andi þegar hún kom á skólaheimil-ið. Var barn hennar flutt til Færeyja eftir fæðingu í samráði við móður-ömmu þess og barnaverndaryfir-völd í Færeyjum. Í viðtalinu í Þjóð-viljanum var lýst aðdraganda þess að stúlkan kom á skólaheimilið og dvölinni sem lauk með því að hún “strauk“....“
„Hún strauk ekkert,“ segir Matt-hildur. „Henni var rænt af mann-inum mínum, Hinriki Jóni og vini hans og komið fyrir á heimili Ragn-ars Stefánssonar jarðskjálftafræðings og foreldra hans á Sunnuvegi. Gísli Gunnarsson, kennari við Austur-bæjarskólann kenndi vinkonu einn-ar stúlkunnar á Bjargi, sem sagði honum frá aðstæðum og hann fór að kanna þær. Síðar kom Gunnlaug-ur Þórðarson, lögfræðingur að mál-inu, en hann átti sæti í Barnavernd-arráði.Það var staður þar sem fram fór fangelsun og frelsissvipting ungl-ingsstúlkna. Það var ekki eins og þessar stúlkur væru einhver vand-ræðabörn samfélagsins. Þær voru bara of óstýrilátar fyrir foreldra sína, sem vildu losna við þær.“
„Endalok heimilisins voru ekki flókin; þau réðust einfaldlega af upp-lognum sögum“, segir séra Auður Eir í bókinni. „Við höfðum verið rænd til-trúnni; við hefðum aldrei getað hald-ið áfram og okkur hefði aldrei dottið það í hug.“
Mörgum mun misbjóða sannleikurinn
Marion sneri aftur að Bjargi eft-ir fæðingu sonar síns. Gjörbreytt ung stúlka að sögn Matthildar.
„Glaða stúlkan var horfin að ei-lífu,“ segir Matthildur. „Þegar Bjargi var lokað nokkrum vikum síðar eftir að upp komst hvernig búið hafði ver-ið að bjargarlausum unglingsstúlk-unum fór Marion heim til Færeyja. Henni hafði verið lofað að hún fengi soninn þegar hún kæmi heim. Hann sá hún aldrei. Marion varð eins og skugginn af sjálfri sér. Hún kvaldist þá stuttu ævi sem hún átti eftir, en hún lést fertug að aldri úr krabbameini. Eftir að nýfæddur sonurinn var tekinn af henni hvarf lífslöngun hennar með öllu. Það er ekki hægt að gera ljótari hlut en þann að taka nýfætt barn af móður. Það gerði kona sem er prest-ur og rekur sérstaka Kvennakirkju. Mig hryllir við þessu. Bjarg var ekki stúlknaheimili. Það var fangelsi fyrir saklaus börn. Þegar saga Bjargs verð-ur gerð opinber – og þess er ekki langt að bíða – mun mörgum misbjóða, því get ég lofað.“
Földu Marion
Meðan mál stúlknanna á Bjargi voru rannsökuð var gripið til þess ráðs að fela Marion Gray á stað þar sem hennar yrði örugglega ekki leitað. Ragnar skjálfti man vel eftir þessari unglingsstúlku.
„Gísli Gunnarsson, sem var góð-ur vinur minn bað mig og foreldra mína að taka Marion að okkur tíma-bundið,“ segir Ragnar Stefánsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, betur þekktur sem Ragnar „skjálfti“ jarðskjálftafræðingur. „Gísli taldi af ýmsum ástæðum best að Marion væri á heimili þar sem hennar yrði ekki leitað og hún gæti verið örugg meðan mál hennar upplýstust bet-ur. Gísli vissi að hún hafði ekki átt góðar stundir á Bjargi.“
Ragnar segir Marion hafa dvalið hjá sér og foreldrum sínum í nokk-urn tíma.
„Ég kunni ágætlega við þessa stúlku og ég átti ómögulegt með að skilja hvers vegna hún var lok-uð inni á stúlknaheimili. Hún kom vel fyrir sjónir og það var gaman að ræða við hana.“
Sagði hún þér frá syni sínum sem hún fæddi og hafði verið tekinn af henni?
„Nei, þessar fréttir koma mér alveg að óvörum,“ segir Ragnar og undrunin leynir sér ekki í rödd hans. „Hún talaði að vísu mest við móður mína, því við pabbi vor-um í vinnu á daginn og það má vel vera að hún hafi trúað mömmu fyr-ir þessu. Okkur fannst öllum Mar-ion vera indælisstúlka og var mjög
til friðs á heimili okkar. Mér fannst Gísli vera að gera mjög góða hluti því ég gat ekki séð nokkra ástæðu fyrir því að hún væri vistuð á Bjargi. Mér skildist að fjölskylda henn-ar í Færeyjum væri afskaplega sið-vönd og ástæða þess að þau hefðu sent hana á Bjarg væri sú að hún hefði ekki hagað sér nægilega vel að þeirra mati. En þessi frétt um að hún hafi verið barnshafandi og eignast son hér á landi, skýrir margt fyrir mér. Ég hafði spurnir af Marion síðar og svo virðist sem hún hafi orðið hálfgert rekald eftir lífs-reynslu sína hér á Íslandi.“
Stefán Bjarnason, faðir Ragnars, staðfestir að fjölskyldan hafi fallist á að veita Marion húsaskjól og hún hafi verið elskuleg stúlka.
„Ég vissi af fæðingu sonarins, en man ekki hvort hún sagði mér sjálf af henni eða einhver annar,“ segir Stefán.
Aðspurður hvort Gunnlaugur Þórðarson lögfræðingur hafi komið á heimilið til að taka skýrslu af Mar-ion segist Stefán muna eftir manni sem kom á heimilið til að ræða við hana.
„Hvort það var Gunnlaugur heit-inn Þórðarson veit ég ekki, en Mar-ion var nokkuð brugðið við komu þessa manns. Hún fór að gráta því hún taldi að verið væri að sækja sig og flytja aftur á Bjarg. Umræddur maður fullvissaði hana um að hann væri þarna til að hjálpa henni og fór mjög rólega að henni og talaði hlý-lega við hana.“
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir var mest var áberandi í sambandi við Bjargsmálið. Á henni stóðu öll spjót þegar málið var rannsakað og á hana er hart deilt í viðtölum í DV í dag.
„Af hverju ertu að fara að skrifa um þetta?“ spyr hún þegar haft va samband við hana síðdegis í gær. „Ég skal segja þér hvað ég vil segja. Við settum þetta heimili á stofn. Þetta var skólaheimili.“
Og fór þar fram einhver kennsla?
„Þú hefur enga þekkingu á þessu máli og hefur engan rétt á að hringja í mig
og krefjast svara. Ég
nenni ekki að tala
um þetta... Ég nenni
þessu ekki lengur.“
Auður Eir segir
að vissulega hafi verið
mikið um þetta mál fjall-að á sínum tíma, en segir:
„Mig langar ekkert inn í þessa umræðu aftur. Þetta er ekkert grín, ég ræddi þetta á sínum tíma og vil ekki ræða þetta frekar.“
Þegar vitn-
að er í
frásögn Marion Gray, sem birtist í Þjóðviljanum 20. október 1967 og varð í raun Bjargi að falli svarar Auður:
„Þetta var alls ekki eins og Marion lýsir þessu. Við settum þetta heim-ili á stofn, þetta var skólaheimili. Ég vil ekki tjá mig um þetta mál, ég gerði það á sínum tíma frá morgni til kvölds. Það getur vel verið að ég svari öðrum á morgun um málið. Það er langbest að lifa lífi sínu í sátt við góða veðrið. Þú verður að finna þitt hjarta og hvernig það slær,” sagði
prestur Kvenna-
kirkjunnar, séra
Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir
og kvaddi.
valur@dv.is
„Tala ekki um þetta“
Ragnar „skjálfti“ Stefáns-son og foreldrar hans skutu skjólshúsi yfir Marion „Ég hafði spurnir af henni síðar og svo virðist sem hún hafi orðið hálfgert rekald eftir lífsreynslu sína hér.“
Bjarg var fangelsi
beittar andlegu ofbeldi.
Sátt við veðrið „Það er langbest að lifa lífi sínu í sátt við góða veðrið,“ segir séra auður eir Vilhjálmsdóttir.
9. febrúar 2007
DV opnaði á umfjöll n um
Bjarg 9. febrúar 2007
fréttir 11. september 2009 föstudagur 17
viðbrögð starfsfólks ef stúlkurnar
neituðu að gera það sem þeim var
fyrirskipað eða voru með dónalegar
athugasemdir í garð starfskvenna,“
segir í skýrslunni.
Konunum fannst þær ekki geta
leitað til starfsfólksins vegna vanlíð-
unar og flestar þeirra sögðust lengst
af dvölinni á Bjargi hafa grátið sig í
svefn á kvöldin.
Lífslöngunin hvarf
DV ræddi við Matthildi Hafsteins-
dóttur í byrjun árs 2007 en hún og
Marion eru systurdætur. Í kjölfar
umfjöllunar blaðsins um Breiðavík-
urmálið steig hún fram og sagðist
ekki geta þagað lengur, enda hefði
hún gert það í fjörutíu ár.
Þjóðviljinn og Tíminn fjölluðu
um flótta Marion Gray frá Bjargi og
veru hennar þar í löngum greinum
20. október 1967. Langt viðtal birtist
við Marion í Þjóðviljanum þar sem
hún lýsti upplifun sinni og þá ekki
síst hvernig barn hennar var tekið
af henni.
Marion sagði frá því að þegar
hún sagði Auði Eir að hún væri með
barni hafi sú síðarnefnda ekki trúað
því. „...hún vildi ekki trúa
mér, hún lamdi mig, við
lentum í slagsmálum og svo
sagði hún að ég væri ekki
frekar ófrísk en hún sjálf.
Um kvöldið blæddi hjá mér í
klukkutíma,“ sagði Marion.
Matthildur sagði í sam-
tali við DV að Bjarg hafi gjör-
breytt frænku sinni. „Glaða
stúlkan var horfin að eilífu,“
sagði Matthildur um lundar-
far Marion eftir að hún kom
af Bjargi. Marion fór aftur til
Færeyja og bjó þar til dánar-
dags. „Marion varð eins og
skugginn af sjálfri sér. Hún
kvaldist þá stuttu ævi sem hún
átti eftir, en hún lést fertug að
aldri úr krabbameini. Eftir að
nýfæddur sonurinn var tek-
inn af henni hvarf lífslöngun
hennar með öllu. Það er ekki
hægt að gera ljótari hlut en þann
að taka nýfætt barn af móður. Það
gerði kona sem er prestur og rekur
sérstaka Kvennakirkju. Mig hryll-
ir við þessu. Bjarg var ekki stúlkna-
heimili. Það var fangelsi fyrir sak-
laus börn. Þegar saga Bjargs verður
gerð opinber – og þess
er ekki langt að bíða – mun mörg-
um misbjóða, því get ég lofað,“ sagði
Matthildur.
Drakk klór til að drepa sig
Í viðtölum hjá vistheimilisnefnd
sögðu konurnar sjö að á Bjargi hafi
hver dagur hafist með bænahaldi.
Eftir morgunmat var skólahald
og eftir hádegið sinntu þær hefð-
bundnum heimilisstörfum. Þeim
var ekki heimilt að fara út í öðr-
um erindagjörðum en í daglegan
göngutúr og vikulega samkomu hjá
Hjálpræðishernum.
Yfirleitt voru göngutúrarnir í
fylgd starfskvenna sem voru klædd-
ar í einkennisföt Hjálpræðishersins
og fyrir kom að þær gerðu hróp að
stúlkunum með niðurlægjandi at-
hugasemdum.
Konurnar voru sammála um að
þeim fyndist mikil skömm að hafa
verið vistaðar á Bjargi og forðuðust
að greina frá því á fullorðinsárum.
Ef stúlkurnar á Bjargi brutu heim-
ilisreglur eða struku var þeim refs-
að með innilokun í herbergi í ein-
hvern tíma. Frásagnir kvennanna
voru ekki samróma um hversu lengi
innilokunin átti sé stað en hugsan-
lega var það breytilegt eftir eðli aga-
brota. Fyrir nefndinni sögðust kon-
urnar hafa verið lokaðar inni allt
frá einni klukkustund og upp í tvo
daga. Þá voru þær sviptar heimild til
að hlusta á útvarp, horfa á sjónvarp
eða tekið fyrir göngutúrana jafnvel
vikum saman.
Einnig var algengt að viðlög
við stroki frá Bjargi væru vikuvist á
Upptökuheimilinu í Kópavogi þar
sem þær voru algjörlega einangrað-
ar, gátu ekki opnað glugga eða dreg-
ið frá gluggatjöld, og fengu ekki að
tala við fjölskylduna í síma á meðan
á einangruninni stóð.
Ein kvennanna sagði sjálfsmat
sitt hafa farið mjög niður á við í ein-
angruninni og hafi hún upplifað að
starfsmönnum fyndist hún verð-
skulda einangrunina því hún væri
ómerkileg persóna. Þá upplýsti hún
nefndina um að ein starfskvenna
Bjargs hafi heimsótt hana nokkr-
um sinnum á Upptökuheimilið til
að biðja fyrir henni en í eitt skiptið
hafi hún framkæmt á enni skoðun
til að athuga hvort hún væri hrein
mey. Eftir það ákvað hún að fremja
sjálfsmorð og gerði tilraun til þess
með því að drekka klór sem hún
fann á salerni Upptökuheimilisins.
Ekki var kallað á lækni en starfs-
fólk heimilisins lét hana þess í stað
drekka saltvatn sem varð til þess að
hún kastaði upp klórnum.
DV 16. febrúar 2007
DV hóf umfjöllun
um Kumbaravog 16.
febrúar 2007
DV Fréttir
föstudagur 16. febrúar 2007 13
Þrælabúðir
barna
„Ég þekkti ekkert annað en að
vera á barnaheimili á æskuárum
mínum,“ segir Elvar Jakobsson,
tæplega fimmtugur maður, sem
búsettur er í Þýskalandi. „Ég er
næstyngstur sex systkina og vegna
veikinda minna í bernsku og mik-
ils vinnuálags á foreldrum mínum
var mér komið fyrir á vöggustofu
og barnaheimilum. Þegar ég var
ellefu ára kom ég að Kumbaravogi,
sem átti eftir að verða heimili mitt
næstu fimm árin.“
Forstöðumenn Kumbaravogs
voru hjónin Hanna Guðrún Hall-
dórsdóttir og Kristján Friðbergs-
son. Þar segist Elvar hvorki hafa
fengið ástúð né blíðu, en verið not-
aður til vinnu eins og önnur börn á
heimilinu.
„Þetta voru þrælabúðir barna,“
segir hann með mikilli áherslu.
Sagan hefur legið á honum eins og
mara í áratugi og hann tekur sér
nokkra daga til að undirbúa þetta
viðtal.
„Við vorum tólf eða fjórtán
börn á bænum þegar ég dvaldi
þar og vorum öll látin vinna hörð-
um höndum. Þarna var hænsna-
bú með yfir þúsund hænum og ég
gleymi aldrei þegar við vorum að
moka skítinn úr hænsnahúsinu
með skóflum þar til við fengum
blöðrur á hendurnar. Frá Kumb-
aravogi var mikil „útgerð“, þaðan
voru seldir kjúklingar og egg og
það var í verkahring okkar barn-
anna að hlaða eggjunum upp og
sjá um þetta bölvaða hænsnahús,
svo ég taki vægt til orða,“ segir
hann og hlær lítillega. „Almáttug-
ur, hvað ég hataði þetta hænsna-
bú! Ef við vorum dugleg fengum
við ís að launum.“
Í grænmetisgarðinum frá
morgni til kvölds
Auk vinnunnar við hænsna-
húsið segist Elvar hafa verið látinn
stjórna stórri kartöfluvél og negla
tjörupappa á þök, ellefu ára að
aldri.
„Annars lágum við mest á fjór-
um fótum á Kumbaravogi. Við vor-
um að taka upp gulrætur, gulrófur
og kartöflur frá morgni til kvölds
og látin bera níðþunga kartöflu-
pokana í kartöflugeymsluna. Við
vorum líka látin festa þakplötur,
ellefu, tólf ára börnin og þau einu
sem ég veit til að hafi sloppið við
þrældóminn voru þrjú systkini
sem komu um það leyti sem ég
var að fara af Kumbaravogi. Sum
barnanna voru í eftirlæti hjá hjón-
unum... Sá yngsti sem var með
mér í þessari þrælkunarvinnu
var Einar heitinn Agnarsson, sem
var níu ára þá.... Við vorum lát-
in negla tjörupappa á húsþök,
hreinsa timbur, grafa skurði og
bera sérstakt efni á timbur svo ég
nefni þér dæmi. Og ekki nóg með
það, heldur var sett upp pokaverk-
smiðja þarna og við börnin vorum
látin sauma heyábreiður og ann-
að. Við sátum við risasaumavél-
ar sem fæst okkar réðu við, enda
saumaði ég í gegnum fingurinn á
mér. Ef það er ekki barnaþrælkun
að láta börn koma beint úr skóla
til að setjast við vinnuvélar, þá veit
ég ekki hvað barnaþrælkun er. Hér
í Þýskalandi, þar sem ég hef búið
í áratugi, væru forstöðumenn slíks
heimilis löngu komnir á bak við lás
og slá. Það var komið fram við okk-
ur eins og vinnudýr og sem dæmi
þá fengum við aldrei að koma inn í
húsið nema bakdyramegin.“
Hann segist aldrei hafa fundið
fyrir hlýju eða alúð af hálfu hjón-
anna. Eina manneskjan sem hann
hafi tengst sterkum böndum hafi
verið jafnaldra hans, stúlka úr
Reykjavík sem hann kallar fóst-
ursystur sína. Hún er sú eina sem
hann heldur sambandi við af
Kumbaravogsbörnunum.
„Ég man aldrei eftir að nokkur
hafi sýnt mér ástúð á æskuárum
mínum,“ segir Elvar og þagnar. „Og
þó. Ég man þegar ég var nokkra
daga í Reykjavík hjá mömmu
minni þegar ég var að fermast að
þá fékk ég nokkra hlýju frá henni.“
Hann segist oft hafa reynt að
strjúka ásamt öðrum börnum. En
annaðhvort náðust þau eða hann
sneri til baka að eigin ósk.
„Ég átti nefnilega hest þarna,“
segir hann til útskýringar. „Það
eina sem ég gat sýnt blíðu voru
dýrin. Ég elskaði að vera innan um
dýr, tók að mér veika fugla og hlúði
að þeim. Eini tíminn sem gafst þó
til þess að sinna hugðarefnunum
var á laugardögum, því þetta var
aðventistaheimili þar sem laugar-
dagurinn var hvíldardagur.“
Langaði til himinsins, til
Guðs...
Herbergjum deildu börnin ým-
ist tvö eða þrjú saman. Að sögn
Elvars voru herbergin þrifaleg og
þótt honum hafi ekki þótt matur-
inn góður, var nóg af honum.
„Það sem mér fannst best voru
stappaðar gulrætur, rófur og kart-
öflur í smjöri,“ segir hann hlæjandi.
Framhald á
næstu opnu
AnnA Kristine
blaðamaður skrifar: annakristine@dv.is
elvar Jakobsson „Ég er búinn að grafa
minningarnar svo djúpt að ég held að
enginn nái þeim úr þessu. Ég veit ekki
hvort það sé hægt að hjálpa mér lengur.“
Anna Kristine Magnúsdóttir
Halldórs J. Kristjánssonar
hótað eftir umfjöllun dV
„Í símanum var maður, mjög æst-
ur, og segir mér að hann viti að ég
sé að skrifa um Kumbaravog og
að ég skuli ekki halda að ég kom-
ist upp með það. Hann viti hvar
ég búi, hann viti á hvernig bíl ég
aki, gefur upp bílnúmerið á bíln-
um mínum og tilkynnir mér að
ég verði drepin. Hann segir að
þessi grein muni ekki birtast. Þeir
muni sjá til þess, og að aðrir hafi
verið drepnir áður sem hafi verið
að ljúga upp á þennan yndislega,
gamla mann, Kristján á Kumbara-
vogi,“ segir Anna Kristine Magn-
úsdóttir fjölmiðlakona. Fyrri hluta
árs 2007 skrifaði hún greinaröð
um unglingaheimilið Kumbaravog
í DV. Kristján Friðbergsson var for-
stöðumaður heimilisins.
Sigurjón M. Egilsson tók við
ritstjórn DV þá um áramótin og í
kjölfar Breiðavíkurmálsins, sem
blaðið fjallaði um fyrst fjölmiðla,
var ákveðið að Anna skrifaði um
starfsemina á Kumbaravogi. Um-
fjöllunin var hluti af viðamiklum
skrifum sem ritstjórn DV var verð-
launuð fyrir af Blaðamannafélagi
Íslands fyrir rannsóknarblaða-
mennsku ársins.
Lömuð af skelfingu
Anna hafði árið 2002 skrifað bók-
ina Litróf lífsins þar sem hún
ræddi við Sigurdór Halldórsson
sem lýsti því harðræði sem hann
bjó við sem unglingur á Breiðavík.
Málið hafði þá vakið litla sem enga
athygli en var aftur að koma upp á
yfirborðið.
Hótanirnar sem Anna fékk
vegna skrifa um Kumbaravog
fengu mjög á hana. „Ég hrein-
lega lamaðist af skelfingu. SME
[Sigurjón M. Egilsson] var á vakt-
inni með mér og sá mig hreinlega
hvítna upp. SME fylgdi mér út í bíl
því ég ætlaði ekki að þora heim,“
segir Anna. Hún lagði aldrei fram
kæru vegna málsins, taldi sig hafa
náð að tala manninn til í símanum
og hélt ótrauð áfram við rannsókn-
arvinnuna.
Grét allt kvöldið
Anna sagði vinkonu sinni frá atvik-
inu en sú þekkti til þeirra sem ráku
Kumbaravog. Anna segir vinkon-
una hafa verið sannfærða um að
baráttunni gegn því að sannleik-
urinn birtist væri ekki lokið. „Nú
munu þeir rústa þér fjárhagslega,“
segir hún vinkonuna hafa sagt.
Anna var á þessum tíma í viðskipt-
um við Landsbankann en þar var
annar bankastjórinn, Halldór J.
Kristjánsson, sonur Kristjáns Frið-
bergssonar á Kumbaravogi. „Ég
bara hló að þessu,“ segir Anna.
Á kosningadeginum í maí þetta
ár var Anna síðan stödd í Bónus
með fulla körfu af vörum sem hún
ætlaði að kaupa. „Þegar kortinu
mínu var rennt í gegn pípti allt og
mér var sagt að þetta væri stolið
kort. Síðan var kallað í verslunar-
stjórann og hann tilkynnti mér að
kortið væri stolið, og í rauninni
ætti hann að hringja í lögregluna
og láta handtaka mig,“ segir hún.
Anna hélt í fyrstu að um saklaus
mistök væri að ræða og gat sann-
að hver hún var með vegabréfinu
sínu sem hún var með á sér vegna
kosninganna.
Hún hringdi síðan beint upp
í Visa þar sem henni var sagt að
kortinu hefði verið lokað því það
hefði borist tilkynning frá Lands-
banka Íslands, aðalstöðvum, und-
irrituð af Guðlaugu S. Arnórsdótt-
ur, um að þetta kort væri stolið. Þá
birtist kona í biðröðinni, sagði að
allir í búðinni vissu að hún gengi
ekki um með stolið kort og greiddi
fyrir vörurnar. Eftir spjall við versl-
unarstjórann fékk Anna síðan að
fara heim. „Ég grét allt kvöldið.
Þetta var svo hrikalega niðurlægj-
andi, að vera þjófkennd,“ segir
hún.
Daginn eftir skrifaði Anna um-
ræddri Guðlaugu bréf sem og
bankastjórn Landsbankans og
Björgólfi Guðmundssyni þar sem
hún krafðist skýringa á málinu.
Þar spurði hún hver hefði gefið út
þá fyrirskipan að tilkynna að kort-
ið væri stolið og að taka ætti það af
þeim sem framvísaði því.
Nafnlausar hótanir
„Á mánudeginum hringdu í mig
bæði Garðar Ólafsson og Guð-
mundur Davíðsson og sögðu þetta
mistök, ég mætti sækja nýtt kort.
Ég hélt nú ekki að ég ætlaði að gera
mér ferð í Hafnarfjörðinn, þar sem
ég var með viðskipti, og fékk kort-
ið sent heim með leigubíl,“ segir
Anna.
Anna fékk aldrei svör við þessu
hjá Landsbankanum, þar vísaði
hver á annan og það eina sem
barst var „lufsulegt afsökunarbréf
úr lögfræðideildinni“, eins og hún
orðar það, og hefur ekki enn feng-
ið, þrátt fyrir að hafa skrifað Garð-
ari Ólafssyni margoft og krafið
hann svara.
Hún segir mótlætið þegar hún
var að skrifa um Kumbaravog hafa
hvatt hana áfram. „Það var reynt að
stoppa þetta, ég fékk ótal nafnlaus
símtöl þar sem ég var vöruð við.
En á endanum var ég orðin mjög
köld. Eftir því sem mér var ógnað
meira, því ákveðnari varð ég og
sannfærðari um að þarna var eitt-
hvað mikið að. Ég bara fílefldist
við hverja hótun. Þegar ég veit að
ég hef sannleikann að leiðarljósi
er ekkert sem getur stöðvað mig,“
segir hún.
Anna tekur fram að hún hafi
að sjálfsögðu skipt um viðskipta-
banka eftir þetta. Aðspurð um
hvort hún ætli að lögsækja Lands-
bankann segir Anna að ekki séu
öll kurl komin til grafar enda mál-
ið langt frá því að vera fyrnt.
erla@dv.is
„Ég bara fílefldist við
hverja hótun.“
Niðurlæging Anna Kristine segist sjaldan hafa upplifað aðra eins
niðurlægingu og þegar hún var þjófkennd í yfirfullri Bónusverslun
eftir að kortinu henni var synjað og það sagt stolið.
16. fe rúa 2007
DV hóf umfjöllu um Kumb-
aravog 16. febrúar 2007
Alvarlegar ásakanir Auður Eir vann á Bjargi allan starfstímann
og segir ásakanir um kynferðislegt ofbeldi og líkamlegar
refsingar ekki eiga við rök að styðjast.
30 days
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla verðinu.
Losnið við hættulega kviðfitu og komið
maganum í lag með því að nota
náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman.
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Birkilauf
Við opnum nýja Ísbúð og veitum 30% kynningarafslátt
af öllum ísréttum, samlokum, salötum og gosi
17-26 okt.
Nýbýlavegi 32 Nýbýlavegi 32
Opið til 22:00 alla daga
Smakkaðu 200 kr ís í brauði, miðstærð
Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is
Apótekin & Heilsubúðirnar
www.leit.is · Smellið á ristilvandamál
Á gamla gamla genginu.
Oxy tarm
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama Oxy tarmið