Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2009, Síða 10
10 föstudagur 13. nóvember 2009 helgarblað
HUGURINN BER ÞIG AÐEINS HÁLFA LEIÐ
BERÐU SAMAN VERÐ OG ÞJÓNUSTU
NÆST ÞEGAR ÞÚ FLÝGUR
HVERS VEGNA VELUR ÞÚ ICELANDAIR?
• Hjá Icelandair býðst farþegum að innrita sig á netinu 22 klukkustundum fyrir
brottför hér heima og erlendis.
• Við netinnritun prentar farþegi út brottfararspjald og ef hann er ekki með annað en
handfarangur getur hann farið beint í öryggisskoðun þegar komið er í flugstöðina.
• Farþegum Icelandair býðst einnig sjálfsinnritun í brottfararsalnum í Leifsstöð.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
76
46
1
1/
09
GúmmíkenninG Hæstaréttar
Vilhjálmur Bjarnason, lektor við Há-
skóla Íslands og framkvæmdastjóri
Samtaka fjárfesta, furðar sig á dómi
Hæstaréttar sem kveðinn var upp
í lok október. Vilhjálmur er að láta
þýða hæstaréttardóminn á erlend
tungumál til dreifingar í Þýskalandi,
Bretlandi og annars staðar á megin-
landi Evrópu.
Vilhjálmur höfðaði upphaflega
mál gegn Þorsteini M. Jónssyni og
öðrum stjórnarmönnum í Glitni fyr-
ir meint brot á á hlutafélagalögum og
jafnræðisreglu þegar stjórnin sam-
þykkti kaup á eigin hlutum bankans
af Bjarna Ármannssyni á hærra verði
en því verði sem öðrum hluthöfum
stóð til boða.
Hæstiréttur sýknaði stjórn Glitnis
og snéri þar með dómi héraðsdóms.
Áfall fyrir rekstur hlutafélaga í
landinu?
Heitar umræður hafa sprottið upp
um málið í fjölmiðlum. Sjálfur rit-
aði Vilhjámur grein í Morgunblaðið
á fimmtudag þar sem hann fullyrti
að með dóminum hefði Hæstiréttur
skapað gúmmíkenningu til túlkunar
á hlutafélagalögum.
Sveinn Valfells, hagfræðingur
og eðlisfræðingur, fjallaði um dóm-
inn í Silfri Egils um síðustu helgi og
sagði dóminn grafalvarlegan fyr-
ir starfsemi íslenskra hlutafélaga.
Dómurinn fæli í sér að Hæstiréttur
sniðgengi jafnræðisreglu 76. greinar
hlutafélagalaga og tæki hæpnar sam-
þykktir hluthafafundar fram fyrir það
ákvæði. „Þessi dómur kippir stoðum
undan almenningshlutafélögum á
Íslandi héðan í frá og kippir í raun
og veru stoðum undan nýju bönk-
unum. Héðan í frá er ekki hægt að
stunda starfsemi hér á Íslandi með
venjulegum hlutafélögum nema
með því að færa eignarhaldið eitt-
hvert annað. Þú verður að fara með
eignarhald á íslenskri starfsemi inn í
eitthvað þroskaðra umhverfi heldur
en tíðkast hér á Íslandi. Það er opið
veiðileyfi fyrir innherjana að svína á
hinum,“ sagði Sveinn í Silfri Egils síð-
astliðinn sunnudag.
Lögfræðingar fram á völlinn
Lögfræðingar hafa blandað sér í um-
ræðuna síðustu daga og lýst stuðn-
ingi við niðurstöðu Hæstaréttar.
„Hæstiréttur sýknaði (...) stjórn-
armennina af kröfu Vilhjálms þar
sem aðalfundur félagsins hafði fært
stjórninni heimild til að kaupa hlut
á 10 prósenta hærra eða lægra gengi
en því sem skráð var. Kaup á hlut
Bjarna komu því jafnræðisreglunni
ekkert við enda ekki hægt að kaupa
hlut af öllum hluthöfum bankans,“
skrifaði Brynjar Níelsson hæstarétt-
arlögmaður á vefmiðilinn Pressuna
síðastliðinn miðvikudag.
Jón Magnússon, hæstaréttarlög-
maður hafði einnig um þetta orð á
bloggi mbl.is síðastliðinn fimmtu-
dag. „Ég hafði ekki kynnt mér umrætt
mál þangað til dómur gekk og von-
aðist til þess að Vilhjálmur Bjarna-
son hefði sigur í málinu. Svo fór ekki
og við skoðun á málinu gat ég ekki
séð að Hæstiréttur hefði getað kom-
ist að annarri niðurstöðu,“ skrifaði
Jón Magnússon.
Í ofangreindri grein Vilhjálms
Bjarnasonar í Morgunblaðinu er vís-
að til 55. greinar hlutafélagalaga, en
eftir henni dæmdi Hæstiréttur. Auk
þess kom jafnræðisákvæðið í 76.
grein laganna einnig við sögu eins og
áður greinir.
Verð en ekki prósentur, takk
Í þriðju málsgrein 55. greinar hluta-
félagalaga segir: „Í heimildinni skal
greina hámarksfjölda hluta sem fé-
lagið má eignast og lægstu og hæstu
fjárhæð sem félagið má reiða fram
sem endurgjald fyrir hlutina.“
Vilhjálmur vísar þessu næst í
grein sinni til samþykktar aðalfund-
ar Glitnis 20. febrúar 2007 þar sem
stjórn bankans var veitt heimild til
að kaupa eigin hluti í Glitni eða taka
þá að veði. „Heimild þessi standi í 18
mánuði og takmarkist við að saman-
lögð kaup - og veðsetning hluta fari
ekki yfir 10 prósent af heildarhlutafé
félagsins á hverjum tíma. Kaupverð
hluta skal vera lægst 10 prósentum
lægra og hæst 10 prósentum hærra
en skráð kaup- eða sölugengi í Kaup-
höll Íslands hf,“ segir orðrétt í heim-
ildinni.
Vilhjálmur spyr í ljósi þessa hver
sé fjöldi hluta samkvæmt ofan-
greindri málsgrein hlutafélagalaga.
„Er það sá fjöldi hluta sem er úti-
standandi þegar samþykktin er gerð
eða þegar félagið kaupir hluti?“
Verð hlutanna sem Bjarni Ár-
mannsson fékk að selja Glitni á
genginu 29 meðan aðrir urðu að
sætta sig við markaðsgengið 26,66 er
meginatriði í andmælum Vilhjálms.
Því spyr hann í grein sinni: „Hvert er
verðið (samkvæmt 55. grein); er kraf-
an um verðupplýsingar krafa um fast
eða breytanlegt verð? Verð í kauphöll
Deilur gerast háværari um dóm Hæstaréttar í máli Vilhjálms Bjarnasonar gegn Glitni.
Vilhjálmur lætur þýða dóminn á erlend tungumál til dreifingar á meginlandi Evrópu og
í Bretlandi. Lögmenn, sem DV hefur rætt við, telja að samþykkt aðalfundar Glitnis sam-
rýmist ekki lög og fráleitt sé að víkja til hliðar jafnræðisákvæðum hlutafélagalaga.
Jóhann hauksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
hæstiréttur „Það er opið
veiðileyfi fyrir innherjana að
svína á hinum,“ segir Sveinn
Valfells um dóm Hæstaréttar.