Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Blaðsíða 12
12 miðvikudagur 25. nóvember 2009 fréttir
Samkvæmt skýrslum yfirmanna í
breska hernum voru breskir her-
menn sendir til innrásar í Írak svo
vanbúnir að sumir höfðu einungis
fimm skot í byssu sína. Aðrir gengu
til bardaga án lífsnauðsynlegs hlífð-
arfatnaðs.
Hermenn þurftu að ferðast með
farþegaflugvélum og skrá tjöld og
annan búnað sem handfarangur og
sumir hermenn þurftu jafnvel að
láta af hendi vasahnífa, kveikjara og
naglaklippur.
Samvæmt skýrslum yfirmann-
anna ríkti svo mikil óreiða í kringum
innrásina í Írak að send voru skíði til
eyðimerkurríkisins.
Í skýrslunni segir að pöntun á lífs-
nauðsynlegum búnaði að verðmæti
510 milljóna punda hefði verið sett í
bið eftir að Tony Blair, þáverandi for-
sætisráðherra, neitaði að uppi væru
áform um hernaðaraðgerðir.
Í einni skýrslu segir að Tony Blair
hafi blekkt almenning 2002 þegar
hann sagði að hann vildi einungis af-
vopna Íraka en ekki steypa Saddam
Hussein af stóli. Líkt og fleiri ráða-
menn ýkti Blair þá ógn sem stóð
af gereyðingarvopnum Íraka, sem
aldrei hafa fundist.
Yfirmenn hersins segja að Blair
hafi lagt meiri áherslu á að vinna
fylgi almennings við aðgerðir en að-
gerðirnar sjálfar.
Að sögn eins undirofursta höfðu
hermenn, sumir hverjir, aðeins fimm
byssuskot og einungis var til hlífðar-
fatnaður fyrir þá sem voru fremstir
og aftastir í farartækjunum.
Þrátt fyrir að stríðinu hefði verið
lýst sem „markverðum hernaðarleg-
um árangri“, segja yfirmenn hersins
að skortur á búnaði hefði sennilega
gert hæfari óvini kleift að refsa breska
hernum alvarlega. Í gær hófst rann-
sókn á þætti Breta í innrásinni í Írak
og á meðal þess sem fram kom var
að bandarískir og breskir embættis-
menn ræddu um að steypa Saddam
Hussein af stóli tveimur árum fyrir
innrásina 2003.
Í félagsskap breskra hermanna í Basra,Írak Breskir hermenn fóru sumir hverjir
verulega vanbúnir til innrásar í Írak. Mynd: AFP
Íraksinnrás einkenndist af blekkingum og óreiðu:
Með fimm skot í stríð
Tvennt líflátið
í Kína
Kínversk stjórnvöld hafa líflátið
tvo karlmenn fyrir þátt þeirra í
hneyksli sem varðaði mengað
mjólkurduft sem varð sex börn-
um að bana.
Yfir 300.000 börn veiktust
vegna mjólkurdufts sem innihélt
efnið melamín, sem notað er í
iðnaði.
Á vef BBC er haft eftir þar-
lendum embættismönnum að
tvímenningarnir, Zhang Yujun
og Geng Jinping, væru þeir einu
sem teknir voru af lífi, en nítján
aðrir fengu fangesisdóma fyrir
aðild sína að málinu.
Byssur bannaðar
á börum
Dómari í Tennessee í Banda-
ríkjunum felldi nýverið úr gildi
lög sem heimiluðu fólki að fara
á barinn vopnað skambyssu.
Lögin tóku gildi í júlí og tóku til
veitingastaða þar sem helming
tekna mátti rekja til matsölu.
Dómarinn, Claudia Bonn-
yman, sagði að lögin væru „full
af tvíræðni“ og dæmdi veitinga-
húsaeigendum, sem sögðu að
skammbyssueigendur gætu ekki
sagt til um hvort veitingahús
uppfylltu skilyrðin, í vil. Veit-
ingahúsaeigendurnir óttuðust
að barir hér og hvar yrðu skot-
bardögum að bráð.
Súdanska blaðakonan Lubna Huss-
ein, sem komst í heimsfréttirnar í
september þegar hún var ákærð fyrir
að ganga í buxum, braut gegn banni
súdanskra yfirvalda við því að fara
úr landi í síðustu viku. Lubna Huss-
ein fór til Evrópu til að leggja lóð sín
á vogarskálarnar í baráttunni fyrir
frelsi múslímskra kvenna.
Hussein, sem heimsótti Frakk-
land í síðustu viku, sagði að henni
hefðu borist líflátshótanir síðan her-
ferð gegn hýðingum og fangelsun
kvenna fyrir það eitt að ganga í bux-
um hófst.
Lubna Hussein á á hættu að verða
refsað fyrir að hafa farið frá Súd-
an í heimildarleysi, en sagði að það
myndi ekki koma í veg fyrir að hún
varpaði ljósi á „fáránleika“ þeirra
laga sem niðurlægðu konur.
Brot á „velsæmislögum“
„Hvar segir í Kóraninum að kon-
ur megi ekki ganga í buxum?“ sagði
Lubna Hussein í viðtali við The Tim-
es. Hussein er fyrrverandi embætt-
ismaður Sameinuðu þjóðanna og
hefur orðið táknmynd baráttu fyrir
réttindum kvenna í Afríku og Araba-
löndunum.
Lubna Hussein var á meðal þrett-
án kvenna sem handreknar voru á
kaffihúsi í Kartúm í júlí, og ákærð-
ar fyrir brot á „velsæmislögum“ með
því að klæðast buxum. Tólf konur
ákváðu að játa sök og voru dæmdar
til tíu vandarhagga. Lubna Hussein
ákvað hins vegar að mótmæla sakar-
giftum og átti á hættu að verða dæmd
til 40 vandarhögga.
Málið varð svo vandræðalegt fyr-
ir stjórnvöld að þau buðu Hussein
að málið yrði látið niður falla ef hún
viðurkenndi sök, en hún afþakkaði
boðið.
Að lokum var Lubna dæmd til
sektargreiðslu, en neitaði að greiða
hana. Sektin var að lokum greidd af
blaðamannasamtökum sem njóta
stuðnings stjórnvalda.
Gengur enn í buxum
Lubna Hussein hefur síðan haldið
áfram baráttu sinni gegn lögum sem
heimila refsingar gagnvart konum
vegna klæðaburðar þeirra. Lubna
hefur einnig haldið áfram að klæðast
buxum.
„Þúsundir kvenna hafa verið hýdd-
ar... Þær þjást í þögn. Þær ganga á brott
niðurlútar af skömm,“ sagði Lubna
Hussein í viðtali við The Times.
Að sögn Lubnu njóta karlmenn
hins vegar ótrúlegrar linkindar.
„Karlmaður sem nauðgaði dreng
var dæmdur til aðeins eins mánaðar
fangelsisvistar,“ sagði Lubna og bætti
við að það væri sami dómur og kona
gæti fengið fyrir að klæðast buxum.
Fram í rauðan dauðann
Vonir Lubnu standa til þess að kúgað-
ar konur alls staðar hrífist með og láti
til sín taka. „Hvað gerist ef 100 sádi-
arabískar konur, sem bannað er með
lögum að aka bifreið, taka höndum
saman og brjóta regluna, setjast við
stýrið eins og þær gera í Lundúnum
eða Beirút, mótmæla í bílalest á göt-
um Jedda eða Riyad? Aðeins átak af
þeim toga getur komið á breyting-
um,“ sagði Lubna Hussein. Annað
sem Lubna álítur hneykslanlegt er
umskurður stúlkna, en sjálf var hún
sjö ára þegar hún var umskorin.
Þrátt fyrir að geta sótt um hæli í
Frakklandi hefur Lubna heitið því
að fara heim til Súdan aftur og halda
baráttunni áfram: „Ef nauðsyn kref-
ur, er ég reiðubúin að deyja fyrir bar-
áttuna.“
yfirgefur dómsalinn í Kartúm í buxum 7. september Lubna Hussein kom súdönskum yfirvöldum í klípu.
Súdanska blaðakonan Lubna Hussein braut gegn farbanni sem hún hafði verið úr-
skurðuð í. Lubna komst í heimsfréttirnar þegar hún var, ásamt fleiri konum, dæmd til
hýðingar fyrir þá sök að ganga í buxum.
BuxnaKlædd
BaráTTuKona
Í félagsskap fyrrverandi Frakklandsforseta Lubna Hussein hitti Jacques Chirac á
þriðjudaginn. Mynd:AFP
Hugsanlega eng-
in fangaskipti
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra Ísraels, sló á vænting-
ar um að ísraelski hermaðurinn
Gilad Shalit kynni að losna úr
haldi Hamas-samtakanna. Net-
anyahu sagði í gær að fanga-
skipti Ísraela og Hamas hefðu
ekki enn verið samþykkt og
hugsanlega yrði ekkert af þeim.
Leiðtogar Hamas-samtak-
anna, sem fara með völd á Gaza,
hafa átt í viðræðum við Ísraela
um möguleg skipti á Gilad Shalit
og meira en eitt hundruð fang-
elsuðum Palestínumönnum.
Gilad Shalit hefur verið í haldi
Hamas-samtakanna síðan 2006.