Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Blaðsíða 16
 Miðvikudagur 25. nóvember 200916 Bækur Barna-/unglingaBók Skemmtileg og vel Skrifuð Þessi bók, Ég og þú, er þriðja bókin eftir sama höf- und um samkynhneigða unglinga. Fjallað er um samband samkynhneigðra stúlkna. Anna býr á Íslandi en Sylvia á Englandi. Sagan lýsir því þegar Anna reynir að segja foreldrum sínum að hún sé lesbía. Loksins þegar kom að því að segja foreldrunum frá kom í ljós að þeir vissu að Anna var lesbísk. Inn í söguna flétt- ast saga Kötu, bestu vin- konu Önnu, sem verður ólétt eftir indverskan strák. Það er best að segja ekki meira um það mál til að eyðileggja ekki fyrir væntanlegum lesendum. Mér fannst þessi bók mjög skemmtileg og vel skrifuð. Hún lýsir vel tilfinningum og baráttu samkynhneigðra. Þessi bók er fyrir stelp- ur fremur en stráka þótt allir hefðu vissulega gott af því að lesa hana. Ég held að mörgum stelpum eigi eftir að finnast hún skemmtileg. Bókin mun þó litlu breyta varðandi fordóma gegn samkynhneigð- um. Helsti gallinn á bókinni er kápan sem hefði ekki vakið áhuga minn. Hún er frekar léleg. Efni bókarinnar á erindi við flesta krakka. Ég mæli með þessari bók. Harpa mjöll reyniSdóttir, 13 ára Ég og þú Jónína leósdóttirMjög skemmtileg og vel skrif- uð bók. Á er- indi við flesta krakka. Útgefandi: Vaka Helgafell Fyrri dómar Harmur englanna Eftir Jón Kalman Stefánsson Ævintýraeyjan Eftir Ármann Þorvaldsson Hrunið Eftir Guðna Th. Jóhannesson Hvíta bókin Eftir Einar Má Guðmundsson Sofandi að feigðaróSi Eftir Ólaf Arnarson íSlenSka efnaHagSundrið: flugeldaHagfrÆði fyrir byrjendur Eftir Jón Fjörni Thoroddsen Svartbók kommúniSmanS Eftir Stéphane Courtois, Nicolas Werth, Jean-Louis Panné o.fl. Stúlkan Sem lÉk SÉr að eldinum Eftir Stieg Larsson laura og julio Eftir Juan José Millás Heitar laugar á íSlandi Eftir Jón G. Snæland og Þóru Sigur- björnsdóttur það liggur í loftinu Eftir Jónas Jónasson matSveppir í náttúru íSlandS Eftir Ásu Margréti Ásgrímsdóttur Svörtuloft Eftir Arnald Indriðason alltaf Sama Sagan Eftir Þórarin Eldjárn jón leifS – líf í tónum Eftir Árna Heimi Ingólfsson Himinninn yfir þingvöllum Eftir Steinar Braga paradíSarborgin Eftir Óttar Norðfjörð frjálS og óHáður Eftir Jónas Kristjánsson ÆviSaga einarS benediktSSonar Eftir Einar Benediktsson fölSk nóta Eftir Ragnar Jónasson Saga viðSkiptaráðu- neytiSinS 1939–1994 Eftir Hugrúnu Ösp Reynisdóttur SólStjakar Eftir Viktor Arnar Ingólfsson enn er morgunn Eftir Böðvar Guðmundsson Hyldýpi Eftir Stefán Mána til veSturHeimS Eftir Bergstein Jónsson vormenn íSlandS Eftir Mikael Torfason reyndu aftur – ÆviSaga magnúSar eiríkSSonar Tómas Hermannsson skráði milli trjánna Eftir Gyrði Elíasson á mannamáli Eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur Umsátrið – fall Íslands og endurreisn eftir Styrmi Gunn- arsson, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins, er ágætlega skrifuð en vilhöll bók um bankahrunið. Lokahluti bókarinnar fjallar um sýn Styrmis á framtíð- ina, vonir um lýðræðisumbætur og gagnsærra þjóðfélag. Að þeim hluta verður vikið síðar. Þegar Árni Mathiesen, í hlutverki dómsmálaráðherra í stutta stund, skipaði Þostein Davíðsson héraðsdómara gegn mati sérstakrar hæfnisnefndar varð uppnám. Pétur Kr. Hafstein, formaður nefndarinnar, mótmælti opinber- lega og upp hófst orðaskak. Styrmir kemur á framfæri upplýsingum, sumum nýj- um og merkilegum, setur þær í samhengi og dregur upp mynd af aðdraganda bankahrunsins og útdeilir ábyrgðinni á því að illa fór. Sjónarhornið er manns sem hefur reynslu og yfirsýn. Upplýsingarnar eru komnar úr innsta hring valdakjarna sem Styrmir viðurkennir að hafa verið hluti af. Honum sést stundum yfir að sannreyna upplýsingarn- ar eins og góðum blaðamanni er sæmandi. Frásögn Davíðs Oddssonar og annarra sem stóðu honum nærri eru látnar nægja. Ekki er þó loku fyrir það skotið að Styrmir hafi feng- ið að sjá skjöl þótt ekki sé það ljóst af textanum. Fyrsti hluti bókarinnar er sá mikilvægasti vegna þeirra upplýsinga sem þar koma fram. Yfirsýn Styrmis nýtur sín best þar þótt ekki sjái allir veruleikann sömu augum og hann. En í frásögn Styrmis dregst upp önnur mynd. Mynd- in af því hvernig stjórnmálamenn, bankamenn og emb- ættismenn vissu eða höfðu rökstuddar vísbendingar um hversu illa væri komið fyrir stóru bönkunum sem féllu. Hvernig íslenska kunningjaveldið og innmúrað flokksræð- ið rann saman við trú undangenginna ára á markaðsfrels- ið og kefisbundið eftirlitsleysið sem óhjákvæmilega hlaut að vera samofið pólitískri hugmyndafræði frjálshyggjunnar og markaðshyggjunnar. Að þessu leyti svipar aðdraganda bankahrunsins til hrunsins á verðbréfamörkuðum í Wall Street árið 1929 sem markaði upphaf heimskreppunn- ar. Hoover forseti hafði haft áhyggjur af þróuninni á Wall Street, en markaðurinn átti að „leiðrétta“ sig sjálfur án af- skipta stjórnvalda. Í nóvember árið 2005, þegar Davíð Oddsson hafði verið formaður bankastjórnar Seðlabankans í tæpa tvo mánuði, sagði hann Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra og Geir H. Haarde utanríkisráðherra frá því að bankakerfið kynni að fara á hausinn. „Kjarni málsins er sá að ekki skorti þekkingu eða vit- neskju á því, sem var að gerast, í Seðlabankanum og Fjár- málaeftirlitinu,“ segir á einum stað í bókinni. „Forráða- menn Seðlabankans höfðu ítrekað komið aðvörunum á framfæri við ríkisstjórn án þess að nokkuð gerðist. Hvað annað gátu stjórnendur Seðlabankans og Fjármálaeftirlits- ins gert?“ Nokkru síðar segir í tveggja blaðsíðna kafla um ábyrgð eftirlitsstofnana: „Formaður bankastjórnar átti þann kost að segja af sér með yfirlýsingu um, að hann gerði það vegna þess, að ekki væri hlustað á aðvaranir hans. Það er hins veg- ar álitamál, hvort slík afsögn hefði hreyft við stjórnkerfinu, sem af öðrum ástæðum taldi ekki tímabært að grípa inn í.“ Þetta er bráðmerkileg framsetning Styrmis, ekki síst í ljósi ummæla í vikulokaþætti RÚV síðastliðinn laugardag. Hallgrímur Thorsteinsson dagskrárgerðarmaður spurði Styrmi hvers vegna enginn hefði hlustað á Davíð seðla- bankastjóra. „Svara þú því,“ sagði Styrmir. Hallgrímur gaf sig ekki og spurði aftur. „Ég get ekki svarað því,“ sagði Styrmir þá. Þarna liggur ef til vill vandinn. Hvers vegna naut seðla- bankastjórinn ekki þess trausts sem telja verður lífsnauð- synlegt til farsælla starfa á æðstu stöðum í fjármálalífinu? Þeirri spurningu svarar Styrmir ekki í bókinni heldur. Af hvaða ástæðum vildu stjórnvöld ekki grípa inn í? Svarið er ekki á vörum Styrmis en gæti verið eftirfarandi: Í langvinnri stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins, þar sem gumað hafði verið af róttækum breytingum og þjóðfélagstilraun- um í anda markaðsfrelsis, hafði bankakerfið verið einka- vætt og komið í hendur vina og kunningja í talsambandi við stjórnarflokkana. Enginn sérstakur vilji var til þess að starfrækja öflugt eftirlitskerfi samfara hraðfara vexti bank- anna og útrás þeirra. Klíkuþjóðfélagið íslenska var versta og minnsta mögulega viðnám sem hugsast gat gegn of- boðslegri dýrkun vaxtarins, útrásarinnar og græðginnar sem skila átti öllum meiri velsæld. Ekki er laust við að Styrmir finni til iðrunar og sektar- kenndar í lokahluta bókarinnar. Landsstjórn og stefna, sem hann hafði stutt svo lengi, er fallin og með henni banka- kerfi heillar þjóðar. Sjálfur hafði hann stundað leynimakkið sem nærði vald stjórnarherrans, með góðu eða illu. Þjóðin og forsetinn höfnuðu fjölmiðlalögum Davíðs. Nágranna- þjóðirnar höfnuðu vinnubrögðum íslensku bankanna og getuleysi íslenskra stjórnvalda. Bankakerfið hrundi og þjóðin hafnaði ríkisstjórn sinni, spillingu stjórnmálanna og viðskiptalífsins. Ný ríkisstjórn hafnaði seðlabankastjóran- um Davíð Oddssyni. Fjórðungur áskrifenda hafnaði gamla trausta Morgunblaðinu. Þjóðin hafnar með öðrum orðum gamla Íslandi og krefst þess nú að fylgt sé almennum leik- reglum og góðum siðum í opnu og gagnsæju þjóðfélagi. Þannig hefði bók Styrmis Gunnarssonar fremur átt að bera titilinn „Höfnunin“ en ekki „Umsátrið“. En má ekki Styrmir Gunnarsson, sem viðurkennir að hafa verið innmúraður í valdakerfi gamla Íslands, ekki iðr- ast og boða umbætur og breytt þjóðfélag? Eins og sá sem sagði: „Ég er leiðtogi fjöldans og þess vegna fylgi ég hon- um.“ Jú, sannarlega, og það gerir hann í lokahluta bókar sinn- ar. Í kafla um opið og gagnsætt samfélag kemur hann að lykilatriði um völd og yfirráð. Þeir sem ráða mikilvægum upplýsingum og meðferð þeirra ráða miklu um þjóðfélags- umræðu og framvindu stjórnmála. Þeir sem kunna spuna og sviðsetja atburðarás venjast því að unnt sé að handstýra umræðunni einhverjum hagsmunum í vil. Styrmir vill aflétta leyndarhjúp og telur Morgunblað sitt hafa stuðlað að því. „Í einu vetfangi væri fótunum kippt undan lágkúrulegri fjölmiðlun, sem meirihluti fólks er þreyttur á og hefur skömm á. Og um leið yrði athyglis- verð breyting á valdahlutföllum í samfélaginu. Skyndilega misstu þeir völdin, sem hafa þrifist í skjóli leyndarinnar, sem hvílt hefur yfir stóru og smáu.“ Vel væri ef Styrmir breytti í samræmi við þessi orð sín í þeim ritverkum sem hann á enn óskrifuð. Jóhann Hauksson Höfnunin ÞJóðFélagsmál/BankaHrun umSátrið – fall íSlandS og endurreiSn styrmir gunnarsson Hlutdræg bók sem borin er uppi af yfir- sýn og góð- um texta höfundar. Útgefandi: Veröld StyrmirGunnarsson„Skyndi- lega misstu þeir völdin, sem hafa þrifist í skjóli leyndarinnar, sem hvílt hefur yfir stóru og smáu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.