Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Page 13
Vilhjálmur Vilhjálmsson var – og er – einn vin-
sælasti dægurlagasöngvari, sem Ísland hefur
alið. Vinsældir sínar átti hann ekki aðeins að
þakka góðum hæfileikum, fallegri rödd, skýrum
framburði og góðri meðferð texta, heldur einn-
ig og ekki síður vingjarnlegri og viðkunnanlegri
framkomu. Margir, sem aðeins þekktu söngv-
arann og skemmtikraftinn Vilhjálm Vilhjálms-
son, héldu að hann væri hálfgerður glaumgosi
og tæki aðalstarf sitt seinni æviárin, flugmanns-
starfið, ekki ýkja alvarlega. Ekkert var þó fjær
sanni og þeir, sem kynntust manninum vissu,
að undir strákslegu og á stundum galsafengnu
yfirborðinu bjó alvörugefinn og hugsandi mað-
ur, sem átti sér margar hliðar og mörg áhuga-
mál: maður sem hafði mörgu kynnst og margt
reynt – viðkvæm og leitandi sál.
Vilhjálmur Hólmar Vilhjálmsson lést af slys-
förum aðeins 32 ára gamall. Hann átti viðburða-
ríka ævi og það var vafalaust rétt, sem faðir hans
sagði í erfidrykkju hans, að hann hafi lifað svo
hratt að hann hafi í raun átt sér margar manns-
ævir. Líf hans var hins vegar fráleitt samfelldur
dans á rósum, þótt svo kynni að virðast á yfir-
borðinu. Hann fékk að kynnast því í ríkara mæli
en margur langlífari maðurinn, að nótt fylgir
degi og skúrir skini. Við lestur þessarar bókar
fannst mér, að ævi hans hafi á köflum verið sár
raunasaga, en þegar litið er til þess sem hann lét
eftir sig, kemur upp í hugann spurning Jónas-
ar Hallgrímssonar: „Hvað er langlífi?“, og síðan
svar hans: „Lífsnautnin frjóa.“
Jón Ólafsson tónlistarmaður segir sögu Vil-
hjálms og tekst það að flestu leyti vel. Hann hef-
ur safnað drjúgum heimildaforða og rætt við
fjölda heimildamanna. Úr þessum heimild-
um og upplýsingum vinnur hann vel og tekst
að draga upp góða, og að minni hyggju sanna,
mynd af söguhetjunni. Frásögn Jóns er lipurlega
skrifuð, þótt ekki sé málfarið hnökralaust. Hann
verður aldrei væminn, en á köflum verður vað-
allinn um einstaka tónlistarmenn, hljómsveit-
ir, lög og texta, sem ekki koma sögu Vilhjálms
beinlínis við, fullmikill fyrir minn smekk.
Góður fengur er að rituðu efni, sem Vil-
hjálmur lét eftir sig í lausu máli og bundnu, og
birt er í bókarlok og sömuleiðis skrá yfir hljóm-
plötur hans. Myndefni er vel valið og allur frá-
gangur bókarinnar góður.
Jón Þ. Þór
Söngvari aldarinnar
Bókaormar komast hér í feitt því bókablað DV þetta sinnið er tvöfalt stærra
en fyrstu tvö blöð vetrarins. Á meðal þeirra bóka sem fjallað er um eru ævi-
sögur Snorra Sturlusonar, Vilhjálms Vilhjálmssonar og Gylfa Ægissonar, auk
lokahlutans í hinum yfirmáta vinsæla þríleik Stiegs Larsson og bókar sem
var kannski biblía útrásarvíkinganna. Þá eru birtar fyrstu síðurnar í Týnda
tákninu eftir Dan Brown sem kemur út í íslenskri þýðingu í dag.
dæmir...
Snorri – Ævi-
saga Snorra
Sturlusonar
Eftir Óskar Guðmundsson
„Of langdregin og
byggð á fáum og
fábreytilegum
heimildum.“
Mynd af Ragn-
ari í Smára
Eftir Jón Karl Helgason
„Hraflkennd bók um
merkan mann sem á
betri umfjöllun
skilið.“
Loftkastalinn
sem hrundi
Eftir Stieg Larsson
„Þetta er bara allt
svo svalt, ruddalegt,
krúttlegt, ljótt, sexí
og sjarmerandi að
mann sundlar á
köflum yfir snilli
Stiegs heitins.“
Umsátrið
Eftir Styrmi Gunnarsson
„Hlutdræg bók sem
borin er uppi af
yfirsýn og góðum
texta höfundar.“
Augnablik
Eftir Malcolm Gladwell
„Ein af þeim sjald-
gæfu bókum sem
eru allt í senn
lærdómsríkar,
gagnlegar og
skemmtilegar.“
Komin til að
vera, nóttin
Eftir Ingunni Snædal
„Listasmíð skáld-
konu sem sýnir vel
hve hæfileikarík
hún er.“
Færeyskur
dansur
Eftir Huldar Breiðfjörð
„Huldar er góður og
þægilegur ferðafélagi.“
ÆViSAgA
Söknuður – ÆviSaga
vilhJálmS vilhJálmSSonar
Jón ÓlafssonAð flestu leyti
vel gerð ævi-
saga. Á köflum
verður vaðall-
inn um tónlist-
armenn, lög og
fleira sem ekki
koma sögu Vil-
hjálms beinlínis
við þó fullmikill.
Útgefandi: Sena
Villi Vill „Líf hans
var hins vegar
fráleitt samfelldur
dans á rósum, þótt
svo kynni að virðast
á yfirborðinu.“