Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.2009, Blaðsíða 33
Botnliðin leika Botnliðin í N1-deild karla í handbolta, Fram og Stjarnan, eiga bæði leiki á fimmtudagskvöldið í N1-deildinni en bæði liðin sárvantar stig í baráttunni á fallsvæðinu. Bæði Fram og Stjarnan hafa aðeins tvö stig fyrir 7. umferðina en Framarar ráku um daginn þjálfarann, Viggó Sigurðsson, vegna ár- angursins á þessu tímabili. Fram fær þó ærið verkefni að sækja heim FH sem er í þriðja sæti deildarinnar með sjö stig. Stjarnan fer í heimsókn á Nesið og mæt- ir þar heimamönnum í Gróttu sem hafa fjögur stig, eða tveimur stigum meira en botnliðin. Fram, Stjarnan og Grótta töpuðu öll leikjum sínum sannfærandi í síðustu umferð. Leikirnir hefjast báðir klukkan 19:30. Annað árið í röð mætast Hafnarfjarð- arliðin og erkifjendurnir, Haukar og FH, í átta liða úrslitum Eimskipsbik- ars karla í handbolta en liðin voru dregin fyrst upp úr pottinum í gær. Aftur fær FH heimaleikinn en FH sló Hauka út úr bikarnum í fyrra í mikl- um háspennuleik þar sem allt sauð upp úr í lokin. Reykjavíkurstórveldin Fram og Valur mætast einnig á meðan fyrstu deildar liðin, Selfoss og Víkingur, fá heimaleiki gegn HK og Gróttu. Stærsti leikurinn hjá konunum er leikur Stjörnunnar og Hauka í Mýrinni en annars má búast við öruggum sigrum Fram og Vals í sínum leikjum. Mest spenna verður væntanlega í leik FH og KA/Þórs sem mætast í Krikanum. UmSjóN: tómaS þór þórðarSoN, tomas@dv.is sport 25. nóvember 2009 miðvikudagur 33 Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 www.birkiaska.is Birkilauf Haukar til spánar n Íslandsmeistarar Hauka drógust gegn spænska liðinu Naturhouse La Rioja í 16 liða úrslitum Evr- ópukeppni félagsliða í handbolta. Naturehouse lagði Rauðu stjörnuna frá Serbíu, 63- 56, í 32 liða úrslitum á sama tíma og Haukar lögðu Pler KC frá Ung- verjalandi. Leikirnir fara fram eftir áramót. Íslendingaslagur verður í 32 liða úrslitunum þar sem Ragnar Óskarsson og félagar í Dunkerque mæta GOG Svendborg sem lands- liðsþjálfarinn, Guðmundur Guð- mundsson, þjálfar. gylfa Boðinn samningur n Knattspyrnumanninum Gylfa Þór Sigurðssyni hjá Reading hef- ur verið boðinn nýr fjögurra ára samningur við félagið. Gylfi hefur verið hjá Reading í nokkur ár en er í fyrsta skiptið núna að leika reglu- lega sem byrjunarliðsmaður. Þessi tvítugi piltur hefur átt góðu gengi að fagna á tímabilinu og skoraði um helgina sitt fyrsta deildarmark. Þá var hann einnig valinn í lið umferðarinnar í ensku Champion- ship-deildinni. Hann hefur verið hjá Reading undanfarin fjögur ár. Bliki tryggði real sigur n Los Angeles Galaxy, lið Davids Beckham í bandarísku MLS-deild- inni, tapaði fyrir Real Salt Lake í úrslitaleik deildarinnar á sunnu- dagskvöldið eins og greint hefur verið frá. Leikurinn fór í vítaspyrnukeppni og það end- aði með að Robbie Russel skoraði fyrir Real Salt Lake og tryggði þeim titilinn. Robbie Russel lék eitt sinn á Íslandi með Breiðabliki en hann skoraði eitt mark í tólf leikjum með liðinu í Símadeildinni árið 2001. Eftir það hélt hann til Sogndal í Noregi, Rosenborg og svo Viborg í Danmörku áður en hann fluttist aftur heim til Bandaríkjanna. MOLAR Dregið í 8 liða úrslit karla og kvenna: Hafnarfjarðarslagur 8 liða úrslit karla Leikið 6. - 7. desember FH - Haukar Valur - Fram Selfoss - HK Víkingur - Grótta 8 liða úrslit kvenna Leikið 19. - 20. janúar Víkingur 2 - Valur Grótta - Fram FH - KA/Þór Stjarnan - Haukar Sigurbergur Sveinsson Stórskytta Hauka. mynd Sigtryggur Ari JóhAnnSSon Sænski knattspyrnudómarinn martin hansson hefur öðlast heimsfrægð eftir að hann leyfði kolólöglegu marki að standa í umspilsleik Frakka og Íra í síðustu viku. Í viðtali við sænskt dagblað talar hann um atvikið og segir að mistökin séu ekki sín. Hann hef- ur velt því fyrir sér að hætta vegna niðurlægingarnnar sem hann sætir fyrir atvikið. Enn eru eftirskjálftar í knattspyrnu- heiminum eftir eitt umtalaðasta atvik síðari ára sem gerðist í síð- ustu viku. Thierry Henry, leikmað- ur franska landsliðsins, kom þá Frökkum á HM á kostnað Íra með því að leggja upp kolólöglegt mark á varnarjaxlinn William Gallas. Allt ætlaði um koll að keyra á vellin- um og ekki hafa eftirmálarnir verið minni. Írar heimtuðu að leikurinn yrði endurtekinn og hafa tugir þús- unda knattspyrnuunnenda um all- an heim skráð sig á lista, til dæmis á Facebook, þar sem beðið er um að leikurinn verði endurtekinn. Mað- urinn í miðjunni á þessu öllu, knatt- spyrnudómarinn Martin Hansson, tekur sökina ekki á sig. „Ekki mér að kenna“ „Ég er búinn að velta því fyrir mér hvort þetta starf sé þess virði miðað við alla niðurlæginguna sem ég hef þurft að þola. Það hefur hvarflað að mér hvort þetta sé nokkuð fyrir mig,“ segir Hansson í viðtali við sænska dagblaðið Sydostran. Hann segir að vikan hafi verið eins og fellibylur en mistökin sem voru gerð kostuðu Íra sæti á heimsmeistaramótinu en Írar hafa ekki komist á stórmót síðan 2002. „Þetta var ekki mér að kenna. Vissulega var þetta óheppilegt því af- leiðingarnar voru rosalegar fyrir Ír- land. En þetta var ekki okkur dóm- urunum að kenna,“ segir Hansson og bendir á að breska dagblaðið The Times hafi hreinsað þá af öllum sök- um með því að setja upp graf þar sem sýnt er að enginn dómaranna þriggja hafi séð atvikið. „Þessi grafík hef- ur hreinsað allt dómaratríóið af öll- um sökum,“ segir hann en spurning- in liggur þá vissulega í því hvort þeir hafi verið rétt staðsettir. Við það hafa margir vel metnir dómarar, starfandi og fyrrverandi, sett spurningamerki. hættið að hringja heim Hansson segist hafa fengið stuðn- ing úr mörgum áttum þó gagnrýn- in hafi verið allsvakaleg og engu minni í heimalandinu Svíþjóð þar sem sum blöðin tóku hann hrein- lega af lífi. Merkir menn úr boltan- um, til dæmis sir Alex Ferguson, komu honum þó vil varnar og það kann hann að meta. „Mér leið virki- lega vel með að Ferguson hafi talað fyrir mína hönd,“ segir Hansson og viðurkennir að eitt af því erfiðasta við allt saman sé að blaðamenn um allan heim séu að hringja heim til foreldra hans í von um að ná sam- bandi við hann. „Ég veit ekki hvað málið er með að hringja í og heimsækja foreldra mína. Þau eru 73 og 75 ára gömul. Þau hafa svo sannarlega ekki dæmt neina fót- boltaleiki,“ segir Hansson og bætir við að hann sé strax orðinn spennt- ur fyrir því að dæma næsta leik sem verður líklega meistaradeildarleikur um miðjan desember.“ tómAS Þór ÞórÐArSon blaðamaður skrifar: tomas@dv.is tekur mistökin ekki á sig Hansson segir mistökin ekki vera sín.mynd AFP „ekki mér að kenna“ Allt vitlaust Írar trylltust þegar ekki var dæmt á hönd thierrys Henry.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.