Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Qupperneq 6
6 mánudagur 14. desember 2009 fréttir
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafknúnir
hæginda-
stólar
•
standa upp
• Einfaldar stillingar
og fjölbreytt úrval
Opið laugardaga til jóla kl. 11-16
Lyfjafyrirtækið Actavis þakkar starfsfólki sínu mynduglega um jólin með því að veita
hverjum og einum hundrað þúsund króna jólagjöf í beinhörðum peningum. Þar að
auki var öllum starfsmönnum fyrirtækisins og mökum þeirra boðið í glæsilegt jóla-
hlaðborð og var vín innifalið.
TUGMILLJÓNA
JÓLAGJAFIR
Lyfjarisinn Actavis gleður starfsfólk
sitt myndarlega yfir jólahátíðina.
Glaðningar fyrirtækisins eru í formi
nærri 60 milljóna íslenskra króna
sem deilast niður á starfsmenn ásamt
því að öllum starfsmönnum, og mök-
um, var nýverið boðið í glæsilegt
jólahlaðborð. Samanlagður kostn-
aður Actavis vegna jólaglaðninganna
er nærri 70 milljónir samkvæmt út-
reikningum DV, miðað við að allir
starfsmennirnir séu í fullu starfi.
Tugmilljóna jólagjafir fyrirtækis-
ins er engin nýlunda því undanfarin
tuttugu ár hefur það gefið hverjum
starfsmanni hundrað þúsund krónur
í jólagjöf, háð starfshlutfalli. Starfs-
menn fyrirtækisins hérlendis eru
tæplega 600 talsins. Þrátt fyrir efna-
hagserfiðleika víða í samfélaginu var
ákveðið að breyta ekki fyrirkomulag-
inu í ár enda er gjöfin þakklætisvott-
ur fyrirtækisins fyrir vel unnin störf.
Á sama tíma og fyrirtækið gleður sitt
fólk um jólin er rætt um himinhá-
ar skuldir þess og erfiða lánastöðu.
Fullyrt hefur verið að Actavis skuldi
þúsund milljarða króna.
Vel þegið
Hjördís Árnadóttir, talsmaður Act-
avis, segir ekki um launabónus að
ræða heldur sé þetta jólagjöf frá fyr-
irtækinu og slík gjöf hafi verið gefin
undanfarna tvo áratugi. „Síðastlið-
in ár höfum við fengið 100 þúsund
frá fyrirtækinu og í ár verður eng-
in breyting á. Þessi upphæð er fyrir
alla starfsmenn fyrirtækisins og það
er sama upphæð yfir línuna, tengd
starfshlutfalli. Þetta er einfaldlega
þakklætisvottur fyrir vel unnin störf,“
segir Hjördís.
„Með þetta er náttúrlega mik-
il ánægja. Það kom ekki til tals að
bregða út af vananum í ár enda hefur
rekstur fyrirtækisins gengið vel. Þess
vegna töldum við enga ástæðu til að
breyta til þar sem starfsmenn hafa
verið mjög ánægðir með þetta og lagt
hart að sér á árinu og staðið sig gríð-
arlega vel undir álagi.“
Samkvæmt upplýsingum frá Act-
avis hefur starfsmannafélag Actavis
líka gefið öllum starfsmönnum litla
jólagjöf, jafnan í formi bókar eða
geisladisks. Í ár var ákveðið að láta
upphæðina heldur renna til góð-
gerðarmála.
Flott veisla
Actavis bauð öllum starfsmönn-
um og mökum þeirra til glæsilegr-
ar jólaveislu um síðustu helgi. Há-
tíðin var haldin í risasal Gullhamra
í Grafarholti enda voru veislugest-
ir sjö hundruð talsins. Þeim var öll-
um boðið í glæsilegt jólahlaðborð
og með því var þeim boðið upp á vín
með matnum. Aðspurð segir Hjör-
dís jólaveisluna í ár hafa verið svip-
aða og undanfarin ár þar sem boðið
var upp á hlaðborð, vín, skemmtiat-
riði og hljómsveit. Hún segir kostn-
aðinn á hvern veislugest hafa verið
tæpar níu þúsund og fimm hundruð
krónur. „Veislan var mjög svipuð og
undanfarin ár og við höfum ekki séð
neina ástæðu til að breyta til. Vissu-
lega hefur efnahagsástandið í heim-
inum áhrif á öll fyrirtæki en ég sé
enga aðra ástæðu til annars en að líta
björtum augum til framtíðar,“ segir
Hjördís.
TrausTi haFsTeinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
engin breyting Hjördís bendir á að 100
þúsund króna jólagjöf til starfsmanna sé
20 ára gömul hefð og engin ástæða hafi
verið til að breyta til í ár.
Gjafmildi actavis Hver og einn starfsmaður
hlýtur veglega peningagjöf frá Actavis fyrir
jólin sem þakklætisvott fyrir vel unnin störf.
„Með þetta er
náttúrlega mik-
il ánægja. Það
kom ekki til tals
að breyta til í
ár enda hefur
rekstur fyrirtæk-
isins gengið vel.“
Fjárframlög til stjórnmálaflokka og
þingflokka verða lækkuð um tíu pró-
sent milli ára samkvæmt breytingar-
tillögum meirihluta fjárlaganefndar
við frumvarp til fjárlaga. Fjárhæðin
sem flokkarnir verða af vegna þessa
nemur um tveimur þriðju hlutum
þeirrar hækkunar sem flokkarn-
ir fengu á fjárframlög sín frá ríkinu í
fyrra.
Samkvæmt tillögum meirihluta
fjárlaganefndar lækka framlög til
þingflokka um hálfa sjöundu milljón
króna og framlög til stjórnmálaflokka
um 37 milljónir. Samtals eru þetta
43,5 milljónir króna. Fyrir ári hækk-
uðu framlög til stjórnmálaflokka og
þingflokka um 60 milljónir króna
milli ára og tók sú hækkun mið af
verðbólgu. Þetta voru fyrstu fjárlög-
in sem samþykkt voru eftir hrunið og
var þá víða skorið niður í ríkisrekstri
þótt það hafi ekki verið í líkingu við
það sem nú stendur til.
Þegar DV fjallaði um aukin fjár-
framlög til flokkanna í fyrra kom í
ljós að engin umræða hafi verið um
það að lækka framlög til flokkanna.
Svo virtist sem engum hefði kom-
ið til hugar að skera mætti niður í
framlögum til stjórnmálaflokkanna
á sama tíma og ýmsir aðrir liðir voru
skornir niður.
Tillögur meirihluta fjárlaganefnd-
ar um niðurskurð á framlögum til
flokka eru hluti af yfirferð nefndar-
innar yfir fjárlagafrumvarpið fyrir 2.
umræðu málsins.
brynjolfur@dv.is
Þingflokkarnir fá minna Flokkarnir fá minna fé til að fjármagna starfsemi sína.
Framlög til stjórnmálaflokka og þingflokka lækka milli ára:
Missa fé sem þeir fengu í fyrra
Umsátur í
Reykjanesbæ
Umsátursástand skapaðist við
hús í Reykjanesbæ á tíunda tím-
anum í gærmorgun. Sérsveitin
var þá kölluð út vegna tveggja
manna sem höfðu hótað þrem-
ur með haglabyssu. Þremenn-
ingarnir höfðu heimsótt húsið
vopnaðir hafnaboltakylfu til að
gera upp átök frá því fyrr um
morguninn. Þeir tóku til fótanna
eftir að haglabyssan var dregin
upp og hringdu á lögregluna.
Umsátursástand skapaðist við
húsið í um hálftíma, eða þar
til lögreglan hafði sannfært þá
í gegnum síma um að gefa sig
fram. Byssan var óhlaðin. Þeir
voru yfirheyrðir í gær.
Íslendingur
í haldi Dana
Íslendingar, eða Íslending-
ur, voru á meðal þeirra tæp-
lega þúsund mótmælenda sem
handteknir voru vegna þátttöku
sinnar í mótmælunum við lofts-
lagsráðstefnuna í Kaupmanna-
höfn á laugardag, að því er fram
kemur á vef danska ríkisútvarps-
ins.
Mótmælendur af alls 26
mismunandi þjóðerni voru
handteknir í kjölfar mótmæl-
anna, þar á meðal einn eða fleiri
frá Íslandi, að því er segir á vef
danska ríkisútvarpsins.
Dani, Frakki og Þjóðverji
voru úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald til 4. janúar vegna fram-
göngu sinnar í mótmælunum,
að því er segir á DR.dk.
Fjárlögin í
brennidepli
Þingmenn taka fjárlagafrum-
varpið til annarrar umræðu í
dag. Frumvarpið var afgreitt úr
fjárlaganefnd fyrir helgi. Þar
kom fram að gert var ráð fyr-
ir að niðurskurður yrði fimm
milljörðum króna minni en
upphaflega var gert ráð fyrir í
frumvarpinu og að tekjur yrðu
tíu milljörðum minni en stefnt
var að. Því verður halli fimmtán
milljörðum meiri en Steingrím-
ur J. Sigfússon fjármálaráðherra
gerði ráð fyrir þegar hann lagði
frumvarp sitt fram.