Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Blaðsíða 22
22 mánudagur 14. desember 2009 fréttir
Vertu þinn eigin læknir
Flestir vita að vægar verkjatöflur, plástrar og sárabindi ættu að vera til á hverju heimili, enda getur
slíkur búnaður komið að góðum notum þegar kvillar koma upp eða óhöpp verða. Hitt vita færri að á
heimilinu leynast hlutir og jafnvel matvæli sem geta hjálpað þér að vinna bug á minniháttar kvillum eða
óþægindum. Í The Big Doctors Book of Home Remidies eru nánast óteljandi húsráð sem gott er að grípa
til í neyð. DV tók saman nokkur af þeim bestu.
Lausnin:
Vodki
Lausnin:
BLýantur
kVilli:
táfýla
kVilli:
höfuðVerkur
Lausnin:
Jógúrt
kVilli:
andremma
Lausnin:
MunnskoL
kVilli:
blöðrur
Lausnin:
tennisBoLti
kVilli:
eymsli í fótum
Lausnin:
sykur
kVilli:
hiksti
Er táfýlan að gera út af
við vinnufélaga þína eða
sambýlisfólk? Ertu með
aukapör af sokkum og skóm
í vinnunni? Þú getur losnað
við óþefinn með því að bleyta
vasaklút í vodka og strjúka
yfir illa þefjandi býfurnar.
Vodki inniheldur alkóhól sem
drepur sýkla og bakteríur sem
valda óþefnum. Vínið þurrkar
enn fremur upp svitann sem
bakteríurnar valda.
Ert þú einn af þeim sem gnístir
tönnum þegar þú ert stressaður,
án þess að taka beinlínis eftir
því? Gnístran tanna veldur álagi
á vöðvunum sem þú notar til
að hreyfa kjálkann. Í þeim getur
myndast þreyta og spenna sem
getur valdið höfuðverk. „Settu
blýant á milli tannanna en ekki
bíta,“ segir Fred Sheftell, læknir
við New England Center for
Headache í Stamford, Conn-
ecticut. Við það slakar þú á
kjálkavöðvum sem getur komið
í veg fyrir höfuðverk.
Bráðabirgðaniðurstöður
rannsókna á jógúrtgerlum
sýna að þeir geta bælt niður
eða stöðvað myndun bakt-
ería sem valda andremmu.
„Góðu gerlarnir í jógúrtinni
yfirgnæfa bakteríurnar
sem valda andremmunni
og skapa þeim ómöguleg
vaxtarskilyrði,“ segir John
C. Moon, tannlæknir í Half
Moon Bay, í Kaliforníu.
Hefðbundið munnskol
er auðvitað fyrst og
fremst öflugur sýkla-
eyðir. En það getur líka
unnið á blöðrum. Bleyttu
bómull með munnskoli
og berðu varlega á
blöðruna þrisvar sinnum
á dag, eða þar til þú
hættir að finna til og
blaðran hverfur. Þetta
segir Janet Maccaro, lög-
giltur næringarráðgjafi í
Scottsdale, Arizona.
Jafn lítilfjörlegur hlutur og
tennisbolti getur gert krafta-
verk þegar kemur að aumum
fótum. Með honum geturðu
á auðveldan og þægilegan
hátt nuddað iljarnar og losað
um spennu úr fótunum eftir
erfiðan dag. Farðu úr skónum,
settu boltann á gólfið og
rúllaðu fætinum yfir boltann,
fram og til baka í nokkrar
mínútur. Ef þú villt losna við
bjúg eða bólgur skaltu frysta
flösku með vatni í og leika
sama leikinn.
„Ef þú gleypir eina teskeið
af sykri geturðu losnað við
hiksta á fáeinum mínútum,“
segir Andre Dubois, prófessor í
læknisfræði á smitsjúkdómasviði
við læknaháskólann í Bethesda í
Bandaríkjunum. Sykurinn er talinn
getað róað vöðva sem hafa áhrif
á þindina sem framkallar hiksta.
Hiksti er krampi í þindinni sem
veldur snöggri innöndun sem
stöðvast síðan jafn snögglega við
það að bilið á milli raddbandanna
lokast, en það veldur einmitt
hljóðinu sem fylgir þessum kvilla,
samkvæmt Vísindavefnum.