Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Blaðsíða 17
Danska lögreglan handtók nokkur hundruð aðgerðasinna um helgina, en um eittþúsund mótmælendur víða að úr Evrópu höfðu slegist í hóp ann- arra mótmælenda. Danska lögreglan einangraði um þrjú hundruð þeirra skammt frá sendiráði Bandaríkjanna og var mótmælendum tilkynnt að leit- að yrði á þeim og þeim síðan sleppt. Þeir mótmælendur sem voru ósam- vinnuþýðir voru handteknir. Mótmælendur höfðu áður kvart- að vegna harðhentra aðgerða dönsku lögreglunnar fyrr um helgina þegar hún handtók 968 manns á laugardag- inn. Að sögn lögreglunnar hafði öllum hinna handteknu verið sleppt úr haldi nema þrettán. Fjórar klukkustundir á götunni Baráttusamtök um loftslagsmál vanda dönsku lögreglunni ekki kveðjurnar og hafa gagnrýnt hana fyrir gróf og harð- hent vinnubrögð eftir að lögreglan handtók tæplega eitt þúsund manns sem tóku þátt í kröfugöngu vegna lofts- lagsráðstefnunnar. Í viðtali við BBC sagði Mel Evans, frá Climate Justice Actions, að mót- mælendum hefði verið haldið í fjórar klukkustundir í kalsaveðri, án læknis- aðstoðar eða aðgangs að vatni eða sal- erni. Talsmaður dönsku lögreglunn- ar sagði að flestum hinna handteknu hefði verið sleppt á laugardaginn, en nokkrir yrðu ákærðir. 30.000 til 100.000 Að sögn lögreglu tóku um 30.000 manns þátt í mótmælum í Kaupmannahöfn á laugardaginn, en skipuleggjendur mót- mælanna sögði að fjöldinn hefði verið um 100.000. Mel Evans sagði að vinnu- brögð lögreglunnar hefðu verið fyrir neðan allar hellur. „Fólk var hrætt og var haldið í um fjóra tíma á berri jörð- inni [...] Fólkið var þarna í kalsaveðri, pissaði á sig og var haldið í röð eins og, nánast eins og skepnum,“ sagði Evans. Mótmælin voru að mestu leyti frið- samleg, en einhverjir mótmælenda hentu múrsteinum og brutu rúður og enn aðrir kveiktu í flugeldum. Flestir hinna handreknu voru ungt fólk og var gert að sitja í röð á miðri götu með hendur bundnar aftur fyrir bak. Hinum handteknu var síðan ekið á brott í strætisvögnum. Brotið á mótmælarétti Forstjóri World Development Movem- ent, Deborah Doane, fordæmdi yfir- völd fyrir það sem hún sagði vera „al- gjört brot á rétti [fólks] til að mótmæla“ og sagði aðfarir lögerglunnar vera skref í áttina að skipbroti lýðræðis. Að sögn lögreglunnar hafði stór hópur mótmælenda sett upp svartar grímur en það er ólöglegt í mótmæl- um í Danmörku og reyndi lögreglan að einangra slíka hópa frá kröfugöng- unni. Einnig kom fram hjá lögregl- unni að hinn mikli fjöldi handtekinna hefði sett verulegan þrýsting á lög- reglumenn sem voru í forsvari fyrir skráningu, móttöku og flutning hinna handteknu. Því hefði mikill fjöldi handtekinna þurft að sitja á götunni í óeðlilega langan tíma áður en flutn- ingur á þeim var mögulegur. fréttir 14. desember 2009 mánudagur 17 „Fólkið var þarna í kalsaveðri, pissaði á sig og var haldið í röð eins og, nánast eins og skepnum,“ sagði Evans. KolBeinn þorsteinsson blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Engin vEttlingatök í kaupmannahöfn Danska lögreglan sætir gagnrýni af hálfu baráttusamtaka um loftslagsmál. Hátt í þúsund voru handteknir á laugardaginn og þurftu að sitja í röð á miðri götu áður en hægt var að flytja þá á brott. Enn frekari handtökur fóru fram í gær þegar um 1.000 manns víða að úr Evrópu hugðust leggja mótmælunum lið. lögreglan hefur staðið í ströngu Mikið álag hefur verið á dönsku lögreglunni. Mynd AFp Öryggisverðir þrátt fyrir grun um áform um hryðjuverk: Bresk stjórnvöld sofa á verðinum Tíu meðlimir íslamskrar sellu sem grunuð er af bresku leyniþjónust- unni MI5 um áform um að sprengja upp verslunarmiðstöð og næturklúbb í Manchester höfðu fengið leyfi frá innanríkisráðuneyti Bretlands til að starfa sem öryggisverðir. Um er að ræða pakistanska náms- menn, sem aldrei voru ákærðir vegna skorts á sönnunum, en höfðu ver- ið handteknir vegna meintra áforma um hryðjuverk um síðustu páska. Að mati lögreglunnar höfðu þeir staðið að „könnun með illvirki í huga“ við Arndale- og Trafford-verslunarmið- stöðvarnar og Birdcage-næturklúbb- inn. Nú hefur komið í ljós að mánuðina áður en framkvæma átti meint illvirki fengu mennirnir leyfi deildar innan innanríkisráðuneytisins, sem sér um málefni einkarekinnar öryggisþjón- ustu, til að starfa sem öryggisverðir. Allir höfðu staðist skoðun sem hugsuð er til að koma í veg fyrir að glæpamenn og aðrir óæskilegir ein- staklingar fái starf sem öryggisverðir á viðkvæmum stöðum á borð við flug- velli, hafnir og byggingar ríkisstjórnar landsins. Uppljóstrunin er talin undirstrika ágalla kerfisins sem vottar starfsleyfi til útlendinga og í frétt The Times um málið segir að enbættismenn viður- kenni óopinberlega að þeir reyni ekki að sannreyna bakgrunnsupplýsingar umsækjenda. Þráttf fyrir loforð ráðherra um að gera endurbætur á kerfinu fyrir tveimur árum virðist lítið hafa breyst til batnaðar, en þá kom í ljós að yfir 7.000 ólöglegir innflytjendur höfðu fengið leyfi til að starfa sem öryggis- verðir, og einn þeirra hafði meira að segja það starf með höndum að gæta bifreiðar forsætisráðherra landsins. Forsætisráðherra Bretlands Ólöglegur innflytjandi gætti öryggis bíls Gordons Brown. Mynd AFp Woods tekur sér frí Samkvæmt nýjustu fréttum hyggst rakvélaframleiðandinn Gillette ekki snúa baki við kylf- ingnum Tiger Woods. Á laugar- daginn sendi fyrirtækið frá sér yfirlýsingu þar sem sagði meðal annars að fyrirtækið hygðist „takmarka“ hlut Woods í mark- aðsherferðum þess og veita honum það svigrúm sem hann þarfnaðist til að vinna úr hjóna- bandsraunum sínum. Í yfirlýsingu Gillette sagði ennfremur að fyrirtækið styddi þá ákvörðun Tigers að taka sér frí frá atvinnumennsku í golfi um óákveðinn tíma, en Woods sagði á föstudaginn á vefsíðu sinni að hann tæki sér frí frá golfiðkun til að sinna fjölskyldu- málum. karl prins ekki sniðgenginn Talsmaður bresku konungs- fjölskyldunnar hefur vísað á bug frétt sem birtist í Mail on Sunday um helgina þess efnis að Vihjálmur prins myndi taka við töluverðum hluta skyldna drottningarinnar. Sagði talsmað- urinn að fréttin væri „fullkom- inn skáldskapur“. Í frétt blaðsins sagði að drottning væri að minnka við sig vinnu sökum aldurs, en tals- maður konungsfjölskyldunnar sagði að Vilhjálmur prins væri hægt og rólega að takast á við fleiri skuldbindingar, en ekki væri í bígerð að sniðganga Karl prins. hefði gert innrás hvort sem var Tony Blair, fyrrverandi forsæt- isráðherra Bretlands, sagði að hann hefði gert innrás í Írak án sannana um tilvist gjöreyðing- arvopna í landinu, og að hann hefði fundið leið til að réttlæta stríð gagnvart þingi og þjóð. Játning Blairs kom í viðtali á bresku sjónvarpsstöðinni BBC og sagði Blair einnig að hon- um hefði fundist rétt að koma Saddam Hussein, einræðisherra Íraks, frá völdum. Mikið mæðir nú á Tony Blair vegna opinberrar rannsóknar á þætti Bretlands í innrásinni í Írak og réttlætingu þar á. Brugðið á leik í Kaupmannahöfn Ekki gripu allir mótmælendur til óyndisaðgerða. Mynd AFp Handteknir bíða flutnings „Fólk var hrætt og var haldið í um fjóra tíma á berri jörðinni.“ Mynd AFp Fjöldamorðin á Filippseyjum voru jafnvel umsvifameiri en talið var í fyrstu. Mannrétt- indanefnd landsins telur að um tvö hundruð manns séu grafin í fjöldagröfum á Mind- anao-eyju og byggir grun sinn á frásögnum vitna, þeirra á meðal fimm lögreglumanna. flEiri fórnarlömb fjöldamorðanna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.