Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Blaðsíða 29
á m á n u d e g i Hvað veistu? 1. Hvar er lúxusturninn sem Bjarni Benediktsson er grunaður um að hafa braskað með? 2. Rapparinn 50 Cent lýsti yfir áhuga í síðustu viku á því að gera dúett með söngkonu nokkurri. Hverri? 3. Rithöfundur nokkur birtir ljóð í nýjasta Tímariti Máls og menningar þar sem hann minnist á kærasta sinnar fyrrverandi. Hver er höfundurinn? JólaHádegistón- leikar óp-Hópsins Jólahádegistónleikar Óp-hópsins í Íslensku óperunni verða á morgun, þriðjudag, klukkan 12.15. Fram koma allir meðlimir hópsins en sérstakur gestur á tónleikunum er Gissur Páll Gissurarson tenórsöngvari. Á efnisskrá eru jólalög úr ýmsum áttum. Miðaverð er 1.000 krónur og taka tónleikarnir um 40 mínútur í flutningi. Á efnisskránni eru meðal annars Hin fyrstu jól, Maria Wiegenlied, Ave Maria, Alleluia úr Exultate Jubilate, Kveikt er ljós við ljós, Pie Jesu og Ó, helga nótt. stJörnu- plötusnúður á Broadway Plötusnúðurinn Sander Van Doorn mun spila á Broadway næsta laug- ardag, 19. desember. Van Doorn spilaði á Nasa árið 2008 og þurfti að loka húsinu vegna aðsóknar mannfjöldans. Á hverju ári spil- ar Van Doorn fyrir framan meira en milljón manns og hann spilar stöðugt á risaatburðum eins og Global Gathering, Sensation og Dance Valley. Enn fremur spilaði hann á Ólympíuleikunum í Peking í fyrra. Ásamt Van Doorn koma fram Exos, Hallibal, A.T.L, Dj In- vert og Face2face. Forsalan er í N1. Fyrstu gestir fá óvæntan glaðning. marta maría sýnir í mosó Marta María Jónsdóttir opnaði sýn- ingu á málverkum og teikningum í Listasal Mosfellsbæjar síðastliðinn laugardag. Verk Mörtu Maríu eru á mörkum þess að vera teikningar og málverk. Í tilkynningu segir að verkin séu óhlutbundin og unnin með akríl á striga og pappír, í þeim birtast end- urtekin form, mynstur og stundum mandölur í bland við fljótandi liti. Verk Mörtu Maríu hafa nýlega ver- ið sýnd í Gallerí Ágúst í Reykjavík, í Skaftfelli á Seyðisfirði, á hreyfimynda- samsýningu í New York og nú síðast í Þýskalandi, þar sem hún var í vinnu- stofudvöl. Á sýningunni í Listasalnum má sjá afrakstur þeirrar dvalar, ásamt nýjum verkum unnum á þessu ári. Mannskæðasta flugslys á Íslandi varð um hádegisbil 29. maí 1947 þegar Douglas Dakótaflugvélin TF- ISI í eigu Flugfélags Íslands fórst í Hestfjalli í Héðinsfirði við utanverð- an Eyjafjörð. Allir, sem í vélinni voru, 25 manns, biðu bana og er talið að víst að allir hafi látist samstundis er flugvélin lenti á fjallinu. Þetta slys hafði mikil áhrif á alla Íslendinga. Þeir höfðu flestir fylgst af áhuga með hraðri uppbyggingu flugsamgangna hér á landi, margir bundu miklar vonir við þessa nýju samgöngutækni og ekki fór hjá því að nokkur ævin- týrablær léki um flugið og þá sem þar störfuðu. Fréttin af sorglegum örlög- um flugvélarinnar, áhafnar hennar og farþega kom sem reiðarslag yfir þjóðina en þó var sorgin eðlilega mest í þeim byggðarlögum sem næst stóðu og flestir hinna látnu komu frá, Akureyri og Reykjavík. Sá sem þessar línur ritar var barnungur drengur norður á Akur- eyri þegar slysið varð í Héðinsfirði, of ungur til að geta munað atburð- inn. Á hinn bóginn hefur mér löng- um fundist að ég muni þessa vordaga árið 1947. Um fátt var meira talað á Akureyri lengi á eftir og þar að auki þekktu foreldrar mínir og ýmsir nán- ir ættingjar og fjölskylduvinir marga þeirra sem fórust með flugvélinni og einnig a.m.k. nokkra þeirra sem unnu að björgunarstörfum og flutn- ingi líka hinna látnu til Akureyrar. Umtal og samræður hinn fullorðnu greyptust í barnshugann, við börn- in hlustuðum, sjálfsagt skelfingu lostin, en skildum lítið fyrr en löngu síðar. Á unglingsárum vann ég síð- an stundum á sumrin með gömlum mönnum, sem höfðu ýmist komið að bjögunarstörfum eða þekktu vel til manna sem þar höfðu átt hlut að máli. Í samtölum þeirra bar þetta slys stundum á góma og mátti hafa það til marks um hve mikil og langæ áhrifin af þessum örlagaríka atburði voru. Af þessum sökum lék mér nokk- ur forvitni á að lesa þessa nýju bók Margrétar Þóru Þórsdóttur blaða- manns um „Héðinsfjarðarslysið“, eins og það var oftast kallað, og bjóst allt eins við að þar kæmi fram eitt og annað, sem ekki var áður vitað eða á almanna vitorði. Höfundurinn rek- ur sögu þessa örlagaflugs, frá því lagt var upp frá Reykjavík og þar til síð- ast sást til vélarinnar í lágflugi og lé- legu skyggni við Reyðará við Siglu- nes skömmu áður en talið er að hún hafi farist. Hvað síðan gerðist veit enginn með vissu annað en að flug- vélin flaug í Hestfjall í Héðinsfirði og fórst þar. Ástæða slyssins var í sjálfu sér einföld. Engin flugleiðsögutæki voru til við Eyjafjörð á þessum tíma og þegar flogið var í lélegu skyggni, eins og þarna var, urðu flugmenn- irnir öðru fremur að treysta á guð og gæfuna. Það dugði oft, en því miður ekki alltaf og í þessu tilviki er nokk- uð ljóst, að flugmennirnir hafa villst af leið í þoku, hvernig svo sem það hefur borið til. En svo forvitnileg sem mér þótti þessi bók þegar mér barst hún í hendur, verður að segja eins og er, að hún olli mér miklum vonbrigðum. Bókin er hvorki vel skrifuð né læsileg og ber þess glögg merki, að höfundur reynir að koma að öllu sem hún veit um efnið, teygir lopann og freistar þess að gera bók úr efni, sem nægir varla nema í langa tímaritsgrein. Fyr- ir vikið er of mikið um endurtekning- ar, en verra þykir mér þó, að sumar setningar í bókinni eru klúðursleg- ar og jafnvel málfarslega rangar. Til dæmis kemur það fyrir oftar en einu sinni að setning sem byrjar í nafn- hætti endar í viðtengingarhætti (eða öfugt), tíðir sagna eru rangar og þannig mætti áfram telja. Besti kaflinn í bókinni er í raun sá fyrsti, um Maríu Jó- hannsdóttur frá Hömrum, sem þó kemur slysinu ekki beinlín- is við. Í köflunum um björgun- araðgerðir í Héðinsfirði kemur sitthvað nýtt fram, en þeir eru alltof langdregnir og of mik- ið um endurtekningar, til að mynda um brim og erfið lend- ingarskilyrði við ströndina fyrir neðan slysstaðinn. Sama máli gegnir um frásögnina af komu vélbátsins Atla með lík hinna látnu til Akureyrar og athafn- ir, sem þar fóru fram, fyrst á bryggjunni og síðan í Akureyr- arkirkju. Þessar frásagnir eru of langdregnar og verða fyr- ir vikið áhrifaminni en ella. Á hinn bóginn eru þættirnir um þá sem fórust með vélinni og kaflinn um minnisvarðann, sem reistur var í Hestfjalli árið 1997, vel samdir. Verst af öllu við þessa bók þykir mér þó, að hún er illa unnin og frá- gengin af hálfu útgáfunnar. Hún er prentuð á heldur lélegan pappír og prófarkalestur er með þeim fádæm- um, að ég minnist þess vart að hafa séð annað eins, a.m.k. ekki lengi. Hér úir og grúir af prentvillum af öll- um stærðum og gerðum, sums stað- ar vantar orð svo setningar verða illskiljanlegar og á einum stað hefur bókstafurinn z laumað sér inn á ein- hvern óskiljanlegan hátt, og vitaskuld í orð þar sem engin zeta á að vera. Mikill fjöldi mynda er í bókinni. Sumar þeirra hafa nokkuð heimilda- gildi, en hér fer eins og með megin- málið, að aðstandendur bókarinn- ar kunna sér ekkert hóf. Öllu virðist tjaldað sem til er með þeim afleiðing- um að myndirnar eru of margar og að í sumum tilvikum eru sýndar marg- ar myndir af því sama. Að mínu viti hefði verið nóg að birta eina eða tvær myndir af vörubílum með líkkistur á leið frá Akureyrarkirkju upp Eyrar- landsveg eða niður á bryggju. Tólf svona myndir eru hins vegar nokkur ofrausn nema tilgangurinn hafi ver- ið sá að sýna hve margir vörubílar voru til á Akureyri árið 1947. Annað segir þessi myndafjöldi ekki og sum- ar myndanna eru óskýrar. Sama máli gegnir um myndir af slysstaðnum í Héðinsfirði. Þær eru of margar, flest- ar af því sama, og segja sumar hverjar nánast ekki neitt. Gæði frummynd- anna hafa sjálfsagt verið misjöfn, en þegar þær eru prentaðar á lélegan pappír verður útkoman óhjákvæmi- lega sú, að myndirnar verða óskýrar og lesandinn á erfitt með að átta sig á því, hvað sé verið að sýna, ekki síst vegna þess að texti fylgir ekki öllum myndum. Niðurstaða mín er sú, að hér hafi verið verr af stað farið en heima set- ið. Bókin er of hrá og illa unnin en hefði vafalaust orðið mun betri með góðri ritstjórn og vönduðum prófar- kalestri. Jón Þ. Þór fókus 14. desember 2009 mánudagur 29 Svör: 1. Makaó í Kína 2. Susan Boyle 3. Hallgrímur Helgason flugslys á íslandi Harmleikur í Héðinsfirði Höfundur: Margrét Þóra Þórsdóttir Útgefandi: Tindur Bókaútgáfa bækur mannskæðasta Sorg Frá vettvangi flugslyssins í Héðinsfirði í maí 1947.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.