Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Qupperneq 9
fréttir 14. desember 2009 mánudagur 9 „Ég er auðvitað bara dauðfeginn að við séum allir á lífi enda leit þetta nú ekki vel út á tímabili,“ segir Ólafur Hjartarson sem er einn þeirra þriggja manna sem bjargað var af þaki bíls í Steinholtsá á laugardagskvöldið. Tíu Akurnesingar voru á leið í Þórsmörk á laugardagskvöld á þrem- ur jeppum og ætluðu að gista eina nótt á Básum í Goðalandi. Þær áætl- anir enduðu með skelfilegum af- leiðingum þegar vel útbúinn Nissan Patrol-fjallajeppi, öflugasti bíll ferð- arinnar sem fór fyrir leiðangrinum, gaf undan straumþunga Steinholtsár í desembermyrkrinu, en mikill vöxt- ur er í henni. Horfðu félagarnir skelf- ingu lostnir á þremenningana sem héldu dauðataki um boga og bita á þaki jeppans næstu tvær klukku- stundirnar. Menn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu komu á staðinn á Benz Unimog-pallbíl og náðu að bjarga lífi Ólafs og félaga hans. Mátti þar ekki miklu muna og augljóst að þre- menningarnir hefðu ekki lifað af ef björgunarsveitir hefðu ekki komið á staðinn í tíma. Einn þeirra var mjög illa útbúinn – klæddur í gallabux- ur og þunna peysu. Hinir tveir náðu hins vegar bakpoka úr bílnum með hlýjum fötum og náðu að klæða og hlýja hinum ólánsama gallabuxna- klædda félaga. Afar þakklátur fyrir að fá að lifa Þremenningarnir voru kaldir og hraktir eftir átökin við náttúruöfl- in. En hvað flýgur í gegnum hugann þegar þeir eru staddir uppi á þaki í miðri straumharðri á í fullkominni sjálfheldu? „Maður hugsar fyrst og fremst um það að halda lífi,“ segir Ól- afur. „Ég er þakklátur fyrir að vera á lífi,“ bætir Ólafur við og þakkar björg- unarsveitarmönnum lífsbjörgina. „Ég var þeim afar þakklátur enda tók ég oft í höndina á þeim öllum. Ég þakkaði vel fyrir mig.“ Ólafur segir að þeir félagar hafi farið í gær og sótt jeppann í Steinholtsá. Hann segir það hafa verið lítið mál og voru þeir á heimleið, aftur upp á Akranes, þegar DV náði tali af honum í gærdag. Erfitt að horfa upp á félagana Félagi Ólafs, Sigurður Axel Axelsson rafvirki, segir að allir sjónarvottar hafi verið nokkuð rólegir á meðan ósköpin dundu yfir þrátt fyrir að mikil skelfing hefði gripið um sig. Þeir séu allir gamalreyndir jeppamenn. „Við vorum nokkrum metrum fyrir aftan. Hann var að finna leið á jeppanum, fer fram af bakka og ákveður að dóla og var tilbúinn að bakka ef hann ræk- ist á meira dýpi. En straumurinn var of harður til þess. Það var rigning og rok og aðstæðurnar mjög vondar.“ Sigurður nefnir að ekki sé auð- velt að horfa á félaga sína í lífshættu og geta ekkert gert. „Við hefðum ekki náð þeim ef þeir hefðu farið í ána. Þeir hefðu hugsanlega getað krafl- að sig í land. Ég vil nú ekki afskrifa þá alveg. En straumurinn var feiki- lega mikill. Menn eru auðvitað ekki til stórræðanna svona kaldir, eftir tvo klukkutíma uppi á þaki. Náttúruöfl- in voru svo sterk að við gátum ekkert gert. Við þurftum bara að horfa á þá og bíða. Ef bíllinn hefði oltið á hlið- ina með strákana hefðum við ekki náð þeim.“ Enginn hugsaði um jeppann Sigurður var staddur við Steinholtsá þegar DV ræddi við hann. Hann tel- ur að Nissan Patrol-jeppinn sé ónýt- ur. „Við vorum mjög ákveðnir að ná þeim og báðum um allar möguleg- ar bjargir – þyrlu og stóra trukka. Þetta var bara lífsbjörgun og enginn að hugsa um jeppann. Hann náð- ist reyndar upp úr, en er væntanlega ónýtur.“ Félagarnir eru sammála um að þeir hafi vanmetið aðstæður og nátt- úruöflin. „Við tökum ekki áhættuna við svona aðstæður aftur, snúum frekar við. Við vorum búnir að finna góð vöð þarna yfir og þetta var sein- asta haftið. Við héldum að þetta yrði allt í lagi – en greinilega ekki.“ Akurnesingurinn Ólafur Hjartarson hélt dauðataki um þakboga á jeppanum sínum í tvær klukkustundir við afleitar aðstæður í Steinholtsá í Þórsmörk um helgina. Hann var einn þriggja sem þurftu að halda sér á þaki jeppa sem fór á kaf í straumharðri ánni. Ferðafélagar þremenninganna horfðu á af árbakkanum en gátu ekki komið þeim til hjálpar vegna straumþungans. „Þakklátur fyrir að vera á lífi“ HElgi HrAfn guðmundsson og sigurður mikAEl JÓnsson blaðamenn skrifa: helgihrafn@dv.is og mikael@dv.is „Náttúruöflin voru svo sterk að við gátum ekk- ert gert. Við þurftum bara að horfa á þá og bíða.“ Tveir tímar á þakinu Þre- menningarnir voru í fullkominni sjálfheldu á þakinu á bílnum. myndir JÓn HErmAnnsson Vanmátu aðstæður „Við tökum ekki áhættuna við svona aðstæður aftur,“ segir Sigurður Axel Axels- son, einn jeppamannanna. skelfilegar aðstæður Mikil mildi þykir að þremenn- ingarnir komust lífs af. Bjargað upp á pall Björgunarsveitarmenn komu mönnunum til bjargar á pallbíl. Þjakaðir Þremenningarnir voru kaldir og þjakaðir eftir vistina á þakinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.