Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2009, Page 23
fréttir 14. desember 2009 mánudagur 23
Vertu þinn eigin læknir
Lausnin:
ÓLífur eða
sítrÓnur
kVilli:
ferðaVeiki
Lausnin:
GrænmetisoLía
kVilli:
Stökkar neglur
Lausnin: PiPar-
mynta/kaniLL
kVilli:
umferðarStreita
Lausnin:
ePLi
kVilli:
ÓHreinar tennur
Ferðaveiki veldur því yfir-
leitt að munnvatnsfram-
leiðsla eykst. Slíkt getur
leitt til velgju eða ógleði,
að mati sumra lækna.
Efnasambönd í ólífum,
svokölluð barksýra,
þurrkar munninn og getur
sefað ógleðina. Fáðu þér
fáeinar ólífur eða sítrónu
um leið og þú finnur fyrir
ógleði. Sítrónur eiga að
gera sama gagn.
Skortur á vatni er yfirleitt ástæð-
an fyrir því að neglurnar verða
þurrar eða skorpnar. Húðsjúk-
dómafræðingurinn Dee Anna
Glaser kann ráð fyrir þá sem ekki
tíma að kaupa rándýr rakakrem
í hverjum mánuði. Berðu
grænmetisolíu á hendurnar
áður en þú ferð að sofa. Farðu
svo í einnota gúmmíhanska eða
vefðu hendurnar varlega með
filmu, til að olían fari ekki öll í
rúmið. Með því móti smýgur
olían inn í húðina og neglurnar
á meðan þú sefur.
Vísindamenn við Wheeling
Jesuit-háskólann fylgdust með
25 háskólanemum í ökuhermi.
Rannsóknin var kostuð af
NASA. Hún leiddi í ljós að þeir
sem neyttu piparmyntu við
aksturinn urðu síður stressaðir
eða þreyttir. Munurinn var
um 20 prósent. Piparmynta
og kanill minnkuðu gremju
um 25 prósent, bættu snerpu
um 30 prósent og þeim sem
neyttu myntu eða kanils
fannst ferðin um 30 prósent
styttri en hinum.
Safaríkir og stökkir
ávextir og grænmeti
geta virkað eins og
litlir tannburstar þegar
þú tyggur þá. Þessar
afurðir innihalda nátt-
úruleg efni sem geta
virkað hreinsandi fyrir
glerunginn og unnið
á óhreinindum. Þetta
segir Jennifer Jabow,
tannlæknir við Park 56
tannlæknastofuna í
New York.