Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2009, Side 13
Áin segir sögu Nessvæðis Laxár í Aðaldal í máli
og myndum, allt frá því fyrstu veiðimennirn-
ir köstuðu flugu í þessa mikilfenglegu á árið
1877. Í bókinni rekur Bubbi í ítarlegu máli
sögu helstu ábúenda við ána, segir frá heims-
þekktum veiðimönnum og –konum sem veitt
hafa á bökkum Laxár, tekur viðtöl við heima-
menn og þá sem best þekkja ána og lýsir af ná-
kvæmni gjöfulustu tökustöðum hennar. Loks
er bókin stútfull af frásögnum og myndum af
glímum við risana; laxa sem eru 20 pund eða
stærri. Af þeim hefur Laxá í Aðaldal gefið ríku-
lega og gerir enn.
Með Ánni fylgir vönduð og glæsileg heim-
ildamynd um sögu Nesveiðanna, sem sýnd var
í Ríkisútvarpinu í haust.
Þegar ég hóf lestur bókarinnar velti ég því
fyrir mér hvernig hægt væri að skrifa 165 blað-
síður um eina á. Það er hins vegar
skemmst frá því að segja að Bubba
tekst það prýðilega. Lýsingar hans
og frásagnir eru lítríkar, eins og hans
er von og vísa. Maður heyrir rödd-
ina í Bubba þegar maður les. Virð-
ingin fyrri ánni og ástríðan að baki
veiðinni er ósvikin. Hún skín í gegn-
um alla bókina.
Fyrstu kaflar Árinnar eru helgaðir
fortíðinni, sögunni frá því fyrstu lax-
arnir voru dregnir á land. Bubbi fer
ágætlega með söguna sem inniheld-
ur skemmtilegar lýsingar af miklum
veiðimönnum; innlendum og er-
lendum. Því næst eru helstu veiði-
staðir árinnar taldir upp á 25 síðum.
Fyrir lesanda sem ekki þekkir ána
verður upptalningin leiðigjörn en stórbrotn-
ar ljósmyndir Einars Fals Ingólfssonar halda
manni við efnið.
Eftir að upptalningunni er lokið kemst
Bubbi á flug. Hann stekkur reyndar fram og
aftur í tíma en bætir það upp með hispurs-
lausri frásagnargleði sinni og skemmtilegum
lýsingum. Sem forfallinn veiðimaður fékk ég
fiðring í magann við lestur bókarinnar. Hana
ættu allir veiðimenn að lesa.
BALDUR GUÐMUNDSSON
Í síðasta bókablaði DV á þessari vertíð er meðal annars fjallað um ævisögu
Vigdísar Finnbogadóttur, bók eftir höfund hinnar gríðarvinsælu skáldsögu
Skugga vindsins, skáldsögu sem snertir á stóra málverkafölsunarmálinu eftir
Rögnu Sigurðardóttur og bók um atvinnulausan bankamann eftir banka-
mann sem er með vinnu.
dæmir...
Vigdís - Kona
verður forseti
Eftir Pál Valsson
„Stíll Páls er hríf-
andi, hófstilltur og
rennur vel. Hann
hefur sannarlega
ekki slegið af kröf-
um sínum frá því
hann ritaði bók sína
um Jónas Hall-
grímsson, bók sem
færði honum Ís-
lensku bókmennta-
verðlaunin.“
Hið fullkomna
landslag
Eftir Rögnu Sigurðardóttur
„Áleitnar spurning-
ar um viðskipti og
gróða þegar kemur
að list [...]“
Leikur engilsins
Eftir Carlos Ruiz Zafón
„Fínasta afþreying
en skilur ekkert
eftir sig.“
Saga Akureyr-
ar - V. bindi
Eftir Jón Hjaltason
„Sannkallað stór-
virki.“
Bankster
Eftir Guðmund Óskarsson
„Haganlega saman
sett skáldsaga um
það hvernig til-
veran liðast smátt
og smátt í sundur
hjá atvinnulausum
bankamanni.“
Fimmta barnið
Eftir Eyrúnu Ýr Tryggvadóttur
„Saga sem vekur
athygli.“
Peningarnir
sigra heiminn
Eftir Niall Ferguson
„Aðgengilegur
inngangur að
virkni og sögu
peninga.“
VEIÐIBÓK
ÁIN
Bubbi MorthensBók sem allir
veiðimenn ættu
að lesa. Hispurs-
laus frásagnar-
gleði og stór-
brotnar myndir.
Myndir: Einar Falur
Ingólfsson
Útgefandi: Salka
Fiðringur veiðimannsins
Fiðringur „Sem forfallinn veiðimaður fékk ég fið
ring í magann
við lestur bókarinnar,“ segir gagnrýnandi. MY
ND EINAR FALUR INGÓLFSSON